Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 56
ÞreMdur . . i. vmningur FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 Geysir fái að gjósa á ný DV, Selfossi: Aðalfundur Sambands sunnlenskra sveitarfélaga stendur nú yfir að Geysi í Haukadal en í gær lagði oddviti Biskupstungnahrepps, Gísli Einars- son í Kjamholtum, fram tillögu um að skora á umhverfisráðherra að hann beiti sér fyrir því að leyft verði að láta Geysi í Haukadal gjósa á ný. í greinargerð með tillögunni segir Gísli að engin rök mæli með því að leyfa Geysi ekki að njóta sín og m.a. sé veðrun á skálinni umhverfis Geysi mikil og barmar skálarinnar muni eyðast ef hverinn fær ekki að gjósa og viðhalda þannig skálinni. Tillögu Gísla var vísað til umhverfisnefndar aðalfundarins, en líklegt er að hún verði samþykkt þegar greidd verða at- kvæði um hana í dag. KE/SÁ Iðjufélagar felldu: Bjóst við þessu - segir formaður Iðju „Það þarf að vinna úr þessu eins og öðru og við hittum fulltrúa at- vinnurekenda strax í fyrramálið og ætli niðurstaðan eða lendingin verði ekki svipuð og það sem Dagsbrún og Framsókn hafa samið um,“ sagði Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, í gær- J* kvöld en Iðjufélagar felldu kjara- samninginn sem gerður var 9. mars sl. Einnig hafa rafiðnaðarmenn hjá Pósti og síma fellt sinn kjarasamning. „Það sem gerst hefur síðan við sömdum 9. mars hefur allt orðið til að veikja þennan samning. Hefði fyrri samningur Dagsbrúnar og Framsóknar verið samþykktur hefði þessi vafalítið einnig farið í gegn en báðir voru þeir mjög áþekkir. Síðan urðu straumhvörf þegar hann var felldur þannig að þetta kemur ekkert á óvart.“ saeði Guðmundur. -SÁ Sjálfskipt NISSAN Almera «§30 ^ w kr. 1.498.000.- .szhssfsu Ingvar M =# Helgason hf. Sœvarhöföa 2 Sími 525 8000 ÞAKF EK.ISI MEILA öAru- VERKSMIPJU TIL AÐ VEKJA GEYSI? Sex íslendingar á vegum ÍS um borö í rússnesku skipi: Fólkið eins og í stofu- fangelsi úti á sjó - segja tvær eiginkonur - íhugað aö senda þyrlur til aö sækja fólkið „Fólkið hefur verið þama langt úti í hafi og var alveg sambands- laust I rúmar tvær vikur. Nú síð- ustu daga hefur verið hægt að hringja i skipið en fólkið fær ekki aðgang að fjarskiptatækjunum til að hringja heim. Okkur skilst að þaö skorti ekkert og samskiptin við Rússa um borð séu góð. Þetta hefur samt sem áður verið mjög erfiður og þrúgandi timi fyrir okkur fiöl- skyldurnar og auðvitað lika fyrir fólkið okkar. Þetta er eins og að vera í stofufangelsi úti á sjð,“ segja eiginkonur tveggja íslenskra sjó- manna en þeir eru um borö í rúss- neska frystitogaranum Sovietskaya Buryatia sem er staddur í Otkosk- hafi vestan við Kamtsjatka. Alls eru sex íslenskir sjómenn á vegum íslenskra sjávarafurða hf., fiórir karlmenn og tvær konur, föst um borð í skipinu sem er í eigu rússneska útgerðarfyrirtækisins UTRF. Rússneska fyrirtækið rifti sem kunnugt er samningi sínum við íslenskar sjávarafuröir hf. í síð- asta mánuði. Eftir að samningsslit- in uröu var íslendingunum meinað að vinna um borð í skipunum og meinaöur aðgangur að fiarskipta- tækjunum. Fólkið hefúr því verið aðgerðalaust um borð í skipinu undanfarnar rúmar þijár vikur. Reynt að senda þyrlu „Það verður kannað vandlega nú um helgina að senda þyrlu til að sækja fólkið og ná því í land og það er liklegt að það verði reynt strax eftir helgi ef allt gengur upp. Það er ekki skemmtileg staða að vera að- gerðalaus úti á sjó en það er enginn sexmenninganna í hættu þama um borð,“ segir Friðrik Sigurðsson, for- stöðumaður erlendra verkefna hjá ÍS. DV hringdi um borð í rússneska skipið í gærkvöld en þar var sagt að ekki væri hægt að fá að tala við ís- lendingana. -RR Slydda og rigning Skúrir og slydduél Veðrið á sunnudag: Vaxandi suðaustanátt og slydda en síðan rign- ing um mestallt land, mest sunnanlands og vestan. Hlýnandi veður og hiti 2 til 7 stig síðdegis. Veðrið á mánudag: Búast má við suðvestlægum áttum og áfram víðast frostlausu veðri á landinu. Skúrir eða slydduél verða sunnan- og vestanlands en úrkomulítið norðaustan til. Starfsmannakór Frjálsrar fjölmiðlunar færöi Félagi bóka- gerðarmanna söng í afmælisgjöf en félagið fagnaði 100 ára afmæli í Borgarleikhúsinu í gær. Kórinn söng þrjú lög und- ir stjórn Sigvalda Snæs Kaldalóns. Margt manna heimsótti afmælisbarnið og var salurinn þéttskipaður. Á innfelldu myndinni eru forsetahjónin, herra Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Sæmundur G. Árnason, formaður Félags bókagerðarmanna, og kona hans, Guð- rún Eyberg Ketilsdóttir. DV-mynd E.ÓI. Vikartindur: Forstjórinn á ekkert í skipinu - segir blaðafulltrúi „Ástæða þess að eiginkona forstjór- ans gaf Vikartindi nafti er sú að skip- ið var smíðað í sömu skipasmíðastöð og Brúarfoss, skipið var afhent á svip- uðum tima og þá búið að ákveða að Eimskip leigði það, þannig að útgerð skipsins bauð einfaldlega eiginkonu forstjórans að gefa því nafn,“ segir Steinunn Böðvarsdóttir, blaðafulltrúi Ennskips, í samtali við DV. Þrálátur orðrómur hefur verið um það að Vikartindur, sem skráður er í Hamborg sé í raun í eigu íslenskra aðila sem nátengdir séu Eimskip. Venja er að konur, sem nátengdar eru skipaútgerðum, gefi nýjum skipum naft>, gjaman eiginkonur skipstjóra eða útgerðarmanna, en eiginkona Harðar Sigurgestssonar, forsfióra Eimskips, gaf Vikartindi nafn sl. vor. DV hefur reynt að hafa tal af for- sfióra Eimskips um þetta mál en blaðafulltrúinn bar blaðamanni þau boð frá honum að þessi orðrómur ætti ekki við nein rök að styðjast. -SÁ ___>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.