Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
Dansari í Evítu slasast:
Operusviðið hrundi
- prímadonnan slapp naumlega en dansarinn er úr leik
„Ég sat úti í sal og var að skrifa
nótur þegar ég sá allt í einu hvar
maðurinn hvarf niður í gólfið og
flekinn á eftir honum. „Guð gefi að
hann fái ekki flekann ofan á sig,“
hugsaði ég. Mér brá mjög þegar ég
sá þetta,“ sagði Andrés Sigurvins-
son, leikstjóri söngleiksins Evítu.
Mildi er að ekki fór verr þegar
Ásgeir Bragason, dansari í mikil-
vægu hlutverki söngleiksins, féll
illa niður þegar fleki yfir hljóm-
sveitargryfju íslensku óperunnar
hrundi skyndilega í gærmorgun.
Ásgeir ristarbrotnaði er hann kom
niður á steingólf fyrir neðan.
Andrea Gylfadóttir, sem er í aðal-
hlutverki söngleiksins, stóð við hlið
Ásgeirs þegar flekinn féll. Hún
horfði skelfingu lostin á eftir hon-
nm en slapp naumlega sjálf. Fleira
fólk var einnig nálægt.
„Við vorum að renna yfir atriði
sem verið var að æfa,“ sagði Andr-
és. „Þetta hefði getað farið verr ef
Ásgeir hefði fengið flekann yfir sig
eða hann slegist utan í jámsúlu
sem er þarna. Það er ljóst að hann
verður ekki með okkur í sumar en
hann er hluti af danshópnum sem
tekur þátt í sýningunni og var
Dansarinn féll niöur í hljómsveitagryfjuna undir sviðinu.
Dómur í „Gaffallyftaramálinu“ á Eskifiröi:
Fjöldi fólks í hættu
mjög mikilvægur," sagði Andrés.
Hann tók fram að Garðar Cortes
óperustjóri harmaði mjög að slysið
skyldi hafa átt sér stað í húsinu.
Garðar hefði síðan gefið fyrirmæli
um að slíkt gerðist ekki aftur.
Evíta verður frumsýnd þann 12.
júní. Andrés sagði að miðasala væri
þegar hafin og eftirspurn lofaði
góðu. Hvað varðar dansara i hlut-
verk Ásgeirs sagði Andrés að þegar
yrði hafist handa við að flnna ann-
an í hans stað. -Ótt
Tekinn á 171
Ökumaður fæddur 1979 var í
fyrrakvöld tekinn á 171 km hraða á
Eyrarbakkavegi. Lögreglan á Sel-
fossi stöðvaði piltinn og hirti af
honum skírteinið á staðnum. Ekki
er búist við að ungi ökumaðurinn
setjist undir stýri aftur á næstunni.
-sv
I stuttar fréttir
Mefrihluti Skýrr seldur
Opin kerfi hf. keyptu 51%
| hlutaflár í Skýrr hf. síðdegis í
J gær fýrir 161,6 milljónir króna,
| greitt út i hönd. Meirihluti rík-
I issjóðs, Reykjavikurborgar og
J Rai'magnsveitu Reykjavíkur
1 var boðinn út og hæsta tilboði
tekið. Naftiverð hlutafjárins er
I 102 milljónir og gengið sem
J Opin kerfi buðu því 1,58, sagði
J í fréttum RÚV.
22 ára gamall Akureyringur,
Halldór Öm Kristjánsson, var í gær
dæmdur í dómþingi Héraðsdóms
Austurlands, sem haldið var á
Akureyri, i tveggja ára óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir ýmis brot er
hann framdi á Eskifirði 13. mars sl.
Hann var m.a. ákærður fyrir að
hafa á ófyrirleitinn hátt stofnað í
stórhættu lífi og heilsu ótiltekins
Þrir mannanna, sem grunaðir
eru um líkamsárás á Vegas sem
leiddi til dauða 26 ára Eyrbekkings
í síðustu viku, voru í gær dæmdir i
6 mánaða fangelsi. Þeir voru dæmd-
ir fyrir að hafa tekið 34 ára íbúa við
Flétturima nauðugan út í farang-
ursgeymslu jeppabifreiðar og ekið
með hann á brott i september sið-
astliðinn.
Mennirnir þrír, Birkir Herberts-
son, 34 ára, Sigurþór Amarson, 25
ára, og Sverrir Þór Einarsson, 35
ára, voru ekki taldir hafa sér nein-
ar málsbætur - þeir hafi sammælst
um brotið og var það virt þeim til
refsiþyngingar.
„Það að nema fólk með valdi frá
heimili sínu eða dvalarstað og
svipta þannig frelsi er alvarlegt af-
brot,“ segir m.a. í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Neyddur út í bíl
Mannránsmálið er óskylt Veg-
asmálinu. Réttarhöld höfðu hins
vegar staðið yfir og málið lagt í
dóm skömmu áður en Vegasárás-
in átti sér stað. Tveir aðrir menn
voru ákærðir í Flétturimamálinu
en þeirra þáttur var aðskilinn þar
sem þeir eru fluttir úr landi.
Fimmmenningarnir fóru allir
fjölda fólks með því að aka undir
áhrifum áfengis gaffallyftara viða
um bæinn og valda þannig stór-
skemmdum.
í málsskjölum kom fram að Hall-
dór Örn ók gaffallyftaranum frá
fiskverkunarhúsi Friðþjófs hf. á lög-
reglubifreið á Strandgötu og þá
skellti hann lyftaragafflinum undir
lögreglubifreiðina að framanverðu
að húsi sjómannsins við Flétt-
urima í september. Einn þeirra
taldi sig eiga óuppgerðar sakir við
hann. Samkvæmt framburði sjó-
mannsins komu mennirnir fyrst
að íbúð mannsins. Þeir sögðu við
hann að bakkað hefði verið á bil
hans fyrir utan. Þegar hann fór út
úr íbúðinni og leit síðan út um
anddyri hússins veittust mennirn-
ir að honum og neyddu hann út í
farangursgeymslu jeppa sem hafði
verið lagt upp við húsið. Síðan
hafi verið ekið með hann á brott
og honum m.a. sagt að hann
skyldi „ekki hugsa meira um
skuld“ eins fimmmeninganna við
sig - annars þeirra sem nú eru
fluttir úr landi.
Samkvæmt dóminum var ekið
með manninn að Hafravatni og eft-
ir nokkra dvöl þar að Úlfarsfellsvegi
þar sem lögreglumenn handtóku
fimmmenningana við Vesturlands-
veg.
í fórum þriggja mannanna fund-
ust fikniefni - samtals 14 alsælutöfl-
ur, 5 skammtar af LSD, 12 grömm af
amfetamíni og 3 grömm af hassi.
Guðjón Marteinsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
og lyfti henni upp þannig að hún
skall niður á þakið. Tveir lögreglu-
menn voru í bifreiðinni. Náðu þeir
að forða sér, og annar þeirra að
bjarga sér á hlaupum undan lyftar-
anum. Halldór Öm réðst að nýju
með lyftaranum á lögreglubiffeið-
ina, velti henni og skemmdi enn
frekar.
Einnig ók Halldór Örn lyftaran-
Slökkviliðsmenn frá Norðurlönd-
unum halda þessa dagana árlega
námsdaga sína í Reykjavik. Þar
bera menn saman bækur sinar og
miðla upplýsingum sín í milli. Guð-
mimdur Jónsson, varaformaður
Brunavarðafélags Reykjavíkur, seg-
ir íslendinga standa félögum sínum
framar á ýmsum sviðum.
„Við erum fremstir hvað varðar
sjúkraflutninga. Þar getum við
um í gegnum grindverk við hús-
næði Pósts og síma, á ljósastaur og
hann ók ítrekað á anddyri lögreglu-
stöðvarinnar og olli þar stór-
skemmdum. Þá ók hann á a.m.k.
fjórar bifreiðir sem urðu á vegi
hans og velti einni þeirra með
lyftaragafflinum en í bifreiðinni
voru þrjú ungmenni.
-gk
miðlað félögum okkar ýmsu. Þá
búum við að mikilli reynslu á björg-
un mannslífa við erfiðar aðstæður,"
segir Guðmundur og vísar til snjó-
flóðanna í Súðavík og á Flateyri.
Alls sitja 85 norrænir brunaverð-
ir á námsdögunum. Brunaverðir
koma saman á 12 ára fresti. Nám-
stefhunni, sem hófst í gær, lýkur á
mánudag.
-rt
Ný staða
Enn hefur ekki verið hægt
að landa úr Bessa ÍS í Grund-
arfjarðarhöfn. Verkfallsverðir
færðu bíla sína undan löndun-
arkrananum í gær og lokuðu í
staðinn ysta hluta bryggjunnar
með því að leggja þvert fyrir
hana. í fréttum RÚV.
Mótmæla mengun
íbúar við Miklubraut í
Reykjavík stöðvuðu umferð á
gatnamótum Lönguhlíðar og
Miklubrautar kl. 17 í gær. Þeir
mótmæla óþolandi og heilsu-
spillandi ástandi, sem þeir
telja sig búa við, af völdum
hávaða og loftmengunar frá
urnferð. RÚV sagði frá.
Ný björgunarskip
Tvö ný björgunarskip Slysa-
vamafélags íslands komu til
hafnar í gær en þau lögðu af
stað frá Bremen 16. maí sl.
Áhafnir þeirra eru íslenskar.
Skipin verða til sýnis við flot-
bryggjuna við Ægisgarð í dag.
Bylgjan sagði frá.
Gagnlegur fundur
Formlegur samningafundur
milli islenskra, danskra, fær-
eyskra og grænlenskra emb-
ættismanna var sl. mánudag
haldinn um afmörkun land-
svæðanna milli íslands og
Grænlands og íslands og Fær-
eyja. Bylgjan sagði frá.
Norskur sjónvarps-
hnöttur
Fjarskiptahnötturinn Þór II
er kominn á loft. Hann er sá
fyrsti sem smíðaður er í Noregi
og kostaði u.þ.b. 10 milljarða.
Hnötftirinn er í eigu Telenors
og í honum verður sjónvarps-
efhi dreift á 15 venjulegum rás-
um og 75 stafrænum rásum.
Talið er að útsendingar frá
honum náist þokkalega á ís-
landi. RÚV segir frá. -VÁ
Grunaðir ódæðismenn á Vegas:
Dæmdir fyrir
annað sakamál
Það var hátíðarbragur á slökkviliðsmönnum þegar árlegir námsdagar nor-
rænna brunavarða hófust í gær. Lúörasveit lék viö setninguna. Miklar um-
ræður eru alla dagana um málefni slökkviliðsmanna. DV-mynd S
íslendingar fremstir
í sjúkraflutningum