Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 20 Iföéttir „Það er almennt álitið að um- hverfisráðuneytið hafi beðið veru- legan álitshnekk i vetur. Mat manna á Guðmundi Bjamasyni umhverfís- ráðherra, er það að hann hafi ekki valdið þeim erfiðum málum sem upp hafa komið.“ Þessi innmæli heimild- armanns DV endurspegla vel þau neikvæðu viðhorf sem víða eru uppi í garö umhverfisráðherra og ráðu- neytisins sem hann stýrir. Fjöldi óþægilegra mála Guðmundur Bjamason umhverfis- ráðherra og ráðuneyti hans hafa mikið verið til umfjöllunar í fjöl- miðlum allt frá því að hann tók við embætti. Miklar deilur hafa spunn- ist í kringum hann og störf hans. Fjöldi óþægilegra mála hefur komið upp og fjöldi ákvarðana ráðherra hefur vakið hörð viðbrögð, bæði á Alþingi og ekki síður úti í þjóðfélag- inu. Nýjast dæmið og það alvarleg- asta er örugglega kr"f" Hjörleifs Guttorms- sonar alþlingis- manns um að Gu* varlega röskun á högum 30 starfs- manna stofnunarinnar og fjöl- skyldna þeirra, alls yfir 130 manns. Forseti borgarstjómar sagði ákvörð- unina valdnýðslu. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga, sagði við DV í vik- unni að staða málsins væri óbreytt. Unnið væri að því að breyta húsnæð- inu á Akranesi og starfsmenn hefðu tima til 1. janúar á næsta ári að svara því hvort þeir ætluðu að flytja með fýrirtækinu. Ágúst sagðist ekki vita betur en að fyrri yfirlýsingar fólksins stæðumst um að það ætlaði sér ekki að flytjast með. Skipulagsslys á Hveravöllum í júlí 1996 var engu minni deila uppi í fjölmiðlum. Samvinnunefnd um heildarskipulag á miðhálendinu var að störfum og á sama tíma úr- skurðaöi Guðmundur Bjamason um- hverfisráðherra að Svínavatnshrepp- ur hefði rétt til að gera aðalskipulag á Hveravöllum. Þetta þótti mörgum afar hæpin ákvörðun. Ferðafélag ís- lands fór fram á það í byrjun ársins að aðalskipulagið yrði ógilt en Guð- mundur neitaði. Félagið benti á að ef haldið yrði fram fyrirhug- uðum framkvæmdum væri mikil hætta á skipulögðu um- hverfisslysi á svæðinu. „Skúffuráðuneyti" Málinu er enn ekki lokið en Ferðafélagsmenn óttast að starfsemi þeirra á staðnum verði látin víkja fyrir hags- maður Alþýðubandalagsins við DV um málið. Starfsleyfi í skjóli nætur Álverið á Gmndartanga hefur oll- ið miklu írafári frá því að það komst á dagskrá. Hér er auðvitað átt við ál- verið á Grundartanga. Leyfisveiting- in fór þveröfugt ofan í þingheim. „Þingmönnum þótti afar vont þeg- ar hann gaf út starfsleyfi fyrir ál- verið á Grundartanga, nánast í skjóli nætur,“ sagði þingmaður sem þekkir Fréttaljós Svanur Valgeirsson vel til ráðuneytisins við DV. Þessi orð eru léttvæg þegar höfð er í huga hörð gagnrýni Hjörleifs Guttormssonar í þinginu í siðustu viku. Þar kvartaði þingmaðurinn undan málsmeðferðinni allri og krafðist þess að innhverfisráðherra segði af sér. Hann sak- aði ráðherra um að hafa brotið lög í munum Svínvetninga. Umhverfisráöuneytið viö Vonarstræti. mundur segi af sér ráðherradómi. Krafan kom upp í umræðum á loka- dögum þingsins. Landmælingar í loft upp í júlí á liðnu ári fór allt í háaloft vegna ákvörðunar Guðmundar Bjamasonar um að flytja Landmæl- ingar íslands upp á Akranes. Starfs- mönnum var mjög heitt í hamsi vegna þessa og töluðu um að veriö væri aö eyðileggja áratuga þekkingu og atgervi. „Það munu mjög fáir ef nokkur af okkur starfa hjá Land- mælingum íslands ef stofnunin tek- ur til starfa á Akranesi 1. janúar 1999,“ sagði starfsmaöur við DV 6. júlí í fyrra. Talað var um að beinn heildarkostnaður við flutningana upp á Skaga yrði aldrei undir 200 milljónum. Úbreytt ástand Borgarsfjóm Reykjavíkur reis öll upp gegn ákvörðunum ráðherrans og samþykkti einróma mótmæli gegn flutningunum. Hún taldi þá al- í mnræðunni um Hvéra- velli hefur verið talað um að hagsmunir umhverfisráð- herra og landbúnaðar- ráðherra skarist og þá sé „skúfíú- ráðneytið" látið gjalda fyrir. Því hefur nefnilega þráfald- lega verið haldið fram að bænda- ráðherrann Guð- mundur Bjama- son hafi hvorki tíma né áhuga á málefnum um- hverfisráðu- neytisins. „Ég held að þetta sé einmitt hluti af því að mál hafa ekki þró- ast eins og mér þætti eðli- legt í ráðu- neytinu. Það getur ekki far- ið saman að stýra þessum tveimur ráðu- neytum. Hagsmunimir hljóta að skarast," segir Margrét Frí- manssdóttir, for Landmælingar íslands viö Laugaveg. tvígang og sagði með ólíkindum að hann hefði leyft sér að gefa út starfs- leyfið áður en frestur til athuga- semda rann út. Hjörleifur hefúr og sagt að þetta mál beri allt merki póli- tískra inngripa til þess að knýja fram afgreiðslu af hálfu fram- kvæmdavaldsins. Gengið hafi verið gegn rétti almennings til íhlutunar. Hjörleifur sagði opinberlega á sínum tíma að eftir útgáfuna á starfsleyfinu hefði hann upplifað það óþægilega sterkt að hann byggi ekki í réttar- ríki. Reynt hafi verið að hindra að- gang og afskipti réttra aðila að mál- inu æ ofan í æ og að reglugerðar- valdi hafi verið beitt gegn lögum til þess að taka mikilvægar ákvarðanir. Klúður í strandinu tíma, gróðm-spjöll hefðu verið unnin á staðnum og að stjómvöld hefðu fallið á prófinu. „Þeir sem áttu að grípa inn í at- burðarásina hafa ýmist ekki gert það eða allt of seint. Málið hefur bara snúist um krónur og aura og enginn hefur greinilega þorað að taka af skarið,“ sagði Heimir í lok mars. Ráðuneytinu ekki treyst Ýmis önnur mál hafa komið upp á yfirborðið sem mönnum þykja bera vott um getuleysi ráðuneytisins. Eitt slíkt er frumvarp til laga um þjóðlend- ur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Ekki náðist að afgreiða málið en það vakti athygli stjómarandstöðuþingmanna að for- sætisráðuneytið færi með málið. „Þetta er alveg dæmigert mál sem á heima í umhverfisráðuneytinu en svo virðist sem því sé ekki treyst fyr- ir því. Ég held að þetta sé nokkuð lýsandi fyrir það orðspor sem fer af ráðuneytinu," sagði stjómarand- stöðuþingmaðm- við DV fyrir skömmu. Það fór fyrir brjóstið á þeim sem gagnrýnt hafa ráðuneytið í vetur að heyra Guðmund Bjamason umhverf- isráðherra segja í sjónvarpi fyrir nokkm að hann hefði ekki haft tíma til að setja á fót nefnd sem fjalla átti um erfðabreyttar örverur. Eftirlits- stofnun EFTA þrýstir á að sett verði lög um málið hér á landi. Svo margt þykir mönnum hafa komið illa mrn- ið úr ráðueytinu að á Alþingi hefur verið uppi krafa úr stjómarandstöðu að láta gera stjómsýslulega endur- skoðun á ráðuneytinu. Fræ, tré og rusl „Eitt af vandamálum ráðuneytis- ins er að lög um umhverfismat hafa „Þaö sem mér gremst þó mest er að íslensk stjómvöld skuli ekki frá fyrstu tíð hafa tekið af skarið með hvað gert yrði, hvemig að allri hreinsun og olíulosun yrði staðið og þar fram eftir göt- unum. Þau gátu síðan sótt kostnað- inn til eigenda og tryggingar- aðila skipsins. Þetta gerðu þau ekki og standa uppi á nýju fotum keis- arans og eru eitthvað að reyna að klóra yfir það,“ sagði Heimir Hafsteins- son, Oddviti í Þykkvabæ, í samtali við DV í kjölfar strands Vikartinds í Háfs- fjöru. Mörg stór orð hafa fallið frá því að Vikartindur strandaði og mörg þeirra hafa beinst beint að um- hverfisráðherra. Talað var um eina sorgarsögu í sam- bandi við hreinsunarmál. Hún hefði tekið allt of langan ekki fengið það vægi sem þau eiga að hafa,“ segir Margrét Frímannsdóttir. Hún er ósátt við hvemig margt hef- ur þróast í ráðuneytinu og segir það eiga langt í land með að hafa það vægi í umverfismálum sem það eigi að hafa. „Ráðuneytið hefur vaxið að um- fangi en svo virðist sem séum enn á því stigi að umhverfismál snúist enn fyrst og fremst um að sá fræi, planta trjám og tína msl. Það er áberandi hversu illa við höfum verið í stakk búin til þess að til þess að takast á við þau alþjóðlegu verkefhi á sviði umhverfismála sem við höfum feng- ið og samninga sem við höfum und- irgengist," segir Margrét. Annar þingmaður sem DV ræddi við sagðist óttast að að ráðherrann hefði ekki nægilegan áhuga og að að- stoðarmennimir hefðu nægan tíma til að sinna þeim verkefnum sem þeim væri ætlað. Hann segir ráðu- neytisstjórann t.d. vera stóran hluta ársins úti í löndum að sinna sér- fræðistörfum sem ráðuneytisstjórar eigi ekki að vera með. Hann hafi mikinn áhuga á málefnum sem varða mengun hafsins," sagði áhrifa- maður í pólitíkinni við DV.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.