Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 34
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 42 &idge Kjördæmamót BSÍ 1997: Norðurland eystra sigraði Kjördæmamót Bridgesambands- ins var að þessu sinni spilað á Siglufirði og var mótið aldrei þessu vant tvisýnt og spennandi. Sveit Norðurlands eystra fór þó með sig- ur af hólmi enda skartaði sveitin fjórum nýkrýndum íslandsmeistur- Umsjón — Stefán Guðjohnsen um, Antoni, Sigurbimi, Pétri og Magnúsi. Einnig kom þar að verki framkvæmdastjóri Bridgesam- bandsins, Jakob Kristinsson, banda- rískur leiftur-lifemaster með meiru. Fleiri góðir bridgespilarar stóðu að sigrinum, enda leyfilegt að nota 24 spilara, þó ekki nema 8 frá sama bridgefélagi á svæðinu. Austfjarðakjördæmi varð í öðra sæti en sveit Reykjavíkur varð að láta sér lynda þriðja sætið. Sveit Reykjaneskjördæmis varð í fjórða sæti, sveit Suðurlandskjördæmis í fimmta, sveit Norðurlands vestra í sjötta, sveit Vesturlandskjördæmis í því sjöunda og Vestfirðingar ráku lestina. Mér hefur í gegnum árin þótt hlutur Reykjavíkur frekar rýr, sér- staklega sé tekið tillit til þess að landslið okkar era undantekningar- lítið skipuð spiluram frá Reykjavík. Þeir sjást hins vegar sjaldan í kjör- dæmamótum, hverju sem um er að kenna. Ertu mei vandamál í harsuerii ? Reyndu BIO+ finnsku hársnyrtivörurnar. Pær virka gegn: PSORIASIS EXEMI FLÖSÍI SKÁN KLÁÐA HÁRLOSI BIO+ frábær lausn á vandamálum í hársverði. Sölustaðir: Apótek og hársnyrtistofur Hvammstangahreppur Á Hvammstanga eru eftirtalin störf laus til umsóknar: Grunnskóli Hvammstanga íþróttakennari og almennur kennari. íþróttir, heimilisfræði, tölvufræði, tón- mennt o.fl. Leikskólinn Ásgarður Leikskólakennari eða starfsmaður með sambærilega menntun eða starfs- reynslu. Nánari upplýsingar veita skólastjóri grunnskólans, S: 4512417, leikskóla- stjóri, s. 4512343, og sveitarstjóri, s. 4512353. Umsóknarfrestur ertil 30. maí nk. Umsóknir berist til skrifstofu Hvammstangahrepps, Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga, fax. 4512307. Hvammstangi er vaxandi bær miösvæöis á milli Akureyrar og Reykjavikur, og samgöngur greiöar. Hvammstangi er ekki á jaröskjálftasvæöi né snjóflóöa- hættusvæöi. Á Hvammstanga er mjög fjölbreytt þjónusta, atvinnulff og félags- Iff. Hvammstangi er þvf kjörinn staöur til búsetu. Velkomin á Hvammstanga ER GRASIÐ GRÆNNA HINUMEGIN VIÐ HÓLINN? VIÐ LEYSUM MÁLIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ ÚÐA FLJÓTANDI NÆRINGU* Á GRAS OG RUNNA BJÓÐUM EINNIG UPP Á: • MOSAEYÐIN GU • EYÐINGU ÁILLGRESI • TRJÁÚÐUN • EITRUN FYRIR ROÐAMAUR OFL. LEITIÐ UPPLÝSINGA. ' iTilþrifvhf GARÐAÞJÓNUSTA S: 568-3184 OG 897-1092 *GRÓÐURNÆRING ER NOTUÐ Á GÓLFVELLI OG LISTIGARÐA VÍÐA UM HEIM En skoðum eitt spil frá mótinu. Það kom fyrir milli sveita Norður- lands eystra og Norðurlands vestra í síðustu umferðinni: S/0 * AD65 »K65 + AKG * 652 é 93 »G102 + D84 * AD974 N + K84 V 83 + 1096532 * 103 + G1072 «+ AD974 + 7 * KG8 A borði 1 í opnum sal sátu n-s Jakob Kristinsson og Pétur Guð- jónsson en a-v Jón Sigurbjömsson og Björk Jónsdóttir. Sagnir gengu þannig: Suður Vestur Norður Austur 2V* pass 2G** pass 3+*** pass 3G pass pass pass * Flannery 11-15 HP ** Spyr *** 4-5- 1-3 Ef einhverjir vita ekki hvað Flannery er þá lofar opnunin fjór- Jakob Kristinsson, bandarískur leiftur-lifemaster og kjördæmameistari. Ukák um spöðum og fimm hjörtum. Jón spilaði út tígultíu og Jakob fór inn á hjarta og svínaði spaða. Hann tók síðan níu næstu slagi og fékk 460. í lokaða salnum var mikið mann- val, m.a. 75% síðasta landsliðs yngri spilara. Þar sátu n-s Steinar Jóns- son og Jón Öm Bemdsen en a-v Magnús Magnússon og Sigurbjöm Haraldsson. Suður opnaði á einu hjarta og ICE- Relay-kerfið náði að stoppa í fjórum spöðum. Skipting suðurs lá ljós fyrir og laufútspilið blasti við. Magnús spilaði því laufatíu og Sigurbjöm tók drottningu og ás og gaf Magnúsi stungu. Trompkóngurinn var síðan fjórði slagur vamarinnar. Einn niður og 50 í viðbót til Norðurlands eystra. Það voru 11 impar, leikurinn vannst 25-5 og mótið um leið. Alþjóðlega Aruna-skákmótið í Kaupmannahöfn: Dimmblár skuggi yfir glæstum sigri Jóhanns - Bragi og Guðjón Heiðar skólaskákmeistarar íslands Meðan Garrí Kasparov glímdi við ofurkraft tölvunnar Dimmblá í New York sátu stórmeistaramir Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson að tafli í Kaupmannahöfn, þar sem þeir tóku þátt í alþjóðlegu skákmóti skákklúbbsins „K-41“. Á mótinu, sem var af 10. styrkleikafloki FIDE, tefldu þrtr stórmeistarar, sex alþjóð- legir meistarar og einn titillaus skákmaður. Tveir dönsku keppend- anna, Sune Berg Hansen og Erling Mortensen, kepptu að því að ná lokaáfanga að stórmeistaratitli en til þess þurftu þeir 6 vinninga úr 9 skáikum. Dönum tókst ekki að fjölga stór- meisturum sínum á mótinu, sem sóttu ekki gull í greipar landans. Margeir varð reyndar að sætta sig við 50% vinningshlutfall en Jóhann sigraði glæsilega - varð hálfum öðr- um vinningi fyrir ofan næsta mann, sem er dágóð fjarlægð á svo stuttu móti. Jóhann vann sex skákir og gerði þrjú jafntefli - við Margeir í 2. umferð og síðan í tveimur síðustu skákum sínum. Lokastaðan varð þessi: 1. Jóhann Hjartarson 7,5 vinning- ar úr 9 skákum 2. Henrik Danielsen (Danmörku) 6 v. 3. Andrei Sokolovs (Lettlandi) 5,5 v. 4. Ludger Keitlinghaus (Þýska- landi) 5 v. 5. -6. Margeir Pétursson og Sune Berg Hansen (Danmörku) 4,5 v. 7.-8. Erling Mortensen og Jacob Aagard (Danmörku) 4 v. 9. Hillarp-Persson (Svíþjóð) 3 v. 10. Flemming Fuglsang (Dan- mörku) 1 v. Jóhann vann flestar skákir sínar í endatafli, þar sem hann saumaði jafnt og þétt að mótherjanum. Und- antekning frá þessu var eftirfarandi skák, sem tefld var í 7. umferð, þar sem Jóhann lagði grunn að sigrin- um í miðtaflinu. Þetta var um margt dæmigerð skák fyrir spænska byrjun, þar sem betri skákmaðurinn yfirspilar þann veik- ari í þungri stöðubaráttunni. Þegar Daninn ætlar að sleppa með skrekk- inn með lítilli leikfléttu spinnur Jó- hann laglegan vef og hvitur á sér ekki viðreisnar von. Hvítt: Flemming Fuglsang Svart: Jóhann Hjartarson Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d6 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rg5 Hf8 12. Rf3 He8 13. Rbd2 Hvítur sýnir enga linkind og hafnar þráleik með 13. Rg5. Jóhann slær ekki hendinni á móti þessum möguleika, því að jafntefli í skák- inni hefði tryggt honum sigur á mótinu. 13. - Bf8 14. a3 g6 15. d5 Rb8 16. a4 Byrjunartaflmennska hvíts er ekki mjög sannfærandi, sbr. 14. og nú 16. leik hans. 16. - Rbd7 17. Bc2 c6 18. c4 bxc4 19. dxc6 Bxc6 20. Rxc4 Dc7 21. Bg5 h6 22. Bd2 Hac8 23. Hcl Db8 24. Ba5 He6 25. Bc3 Fjórir biskupsleikir í síðustu fimm leikjum sýna ráðleysi hvíts. Svartur hefur smám saman bætt stöðuna. 25. - Da8 26. Rfd2 d5! 27. Rxe5? Hvítur fómar manni um stundar- sakir en hefur ekki reiknað afleið- ingarnar nægilega vel. Nú hefst hröð atburðarás, sem Jóhann stýrir listilega. Enn var möguleiki að halda í horfinu með 27. exd5. 27. - Rxe5 28. exd5 Rxd5! Nú strandar 29. Hxe5 á millileikn- um 29. - Rxc3. 29. Bxe5 Hce8 30. Rf3 Leppunin á e-linunni er óþægileg. Hvítur átti ekki aðra kosti en þenn- an - svara má 30. Rc4 með 30. - Bg7. Bd6 40. Bf4 Bxf4 41. Hxf4 Hd5 42. f3 Hg5+ Freistandi en trúlega er 42. - Dg3+ 43. Kfl He5! einfaldari leið til vinnings. 43. Kf2 Dh2+ 44. Ke3 Hc5! 45. Hc4 Ekki 45. Dxc5 Dgl+ og drottning- in fellur. Hvítur hefur afstýrt því að verða mát en situr von bráðar uppi með gjörtapað endatafl. 45. - De5+ 46. Kf2 Hxc4 47. Dxc4 Dxb2+ 48. Kg3 De5+ 49. Kf2 Da5 50. Db3 Dc5+ 51. Kg3 Dd6+ 52. Kg2 h5 53. Dc4 Dd2+ 54. Kg3 Del+ 55. Kg2 a5 56. Dc8+ Kg7 57. Dc3+ Dxc3 Umsjón Jón LÁrnason Aftur eini leikurinn en nú fer uppskerutíminn í hönd. 31. - Bxf3 32. gxf3 Hd8! 33. Bd2 Hxel+ 34. Dxel Rxc2 35. Hxc2 Dxí3 36. Hc3 Dd5! 37. Hc2 Þvingað - ef 37. Be3 þá 37. - Bb4 o.s.frv. 37. - Dd3! 38. Dcl Dxh3 39. Hc4 - Síðasti leikur hvíts flokkast undir danska kímnigáfu og eftir að hafa séð mótleik svarts gafst hann upp með bros á vör. Bragi og Guðjón Heiðar Islandsmeistarar íslandsmótinu í einstakl- ingskeppni í skólaskák, sem fram fór á Akranesi, lauk með sigri Braga Þorfinnssonar í eldri flokki og Guðjóns Heiðars Valgarðssonar í yngri flokki. Þeir eru því íslands- meistarar í skólaskák 1997. Bragi sigraði glæsilega í eldri flokki, vann allar skákir sínar 11 að tölu. Þetta er frábær árangur hjá Braga, ekki síst þar sem mótið var mjög vel skipað. Davíð Kjartansson varð í 2. sæti með 9 vinninga, Berg- steinn Einarsson varð í 3. sæti með 8,5 v. og 4.-5. sæti deildu Hjalti Rún- ar Ómarsson og Stefán Kristjánsson með 7 v. Þeir era allir úr Reykjavík, nema Hjalti Rúnar, sem býr í Kópa- vogi. Guðjón Heiðar hlaut 9,5 v. af 11 mögulegum í yngri flokki. Næstur kom Halldór Brynjar Halldórsson, Norðurlandi eystra, og siðan komu Birkir Örn Hreinsson, Reykjavík, og Bjöm ívar Karlsson, Suðurlandi, sem fengu 8 v.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.