Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
55
Til hamingju
með afmælið
25. maí
85 ára
Ólöf Sigurbjörg Jóhannesdótt-
ir,
Gullsmára 11, Kópavogi.
80 ára
Sigurpáll Ámason,
Furulundi 6, Varmahlíð.
Þórður Arason,
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
75 ára
Gyða Amórsdóttir,
Þorragötu 9, Reykjavík.
60 ára
Guðjón Sveinsson,
Ásvegi 19, Breiðdalsvík.
Sólveig Jóhannsdóttir,
Ljósheimum 18a, Reykjavík.
50 ára
Helga Kristinsdóttir,
Víðinesi II, Hólahreppi.
Jóndóra E. Jónsdóttir,
Stuðlaseli 2,
Reykjavík.
Hún tekur á
móti gestum í
Safnaðarheim-
ili Seljakirkju
á afmælisdag-
inn, milli kl.
16 og 19.
Jóhanna E. Vilhelmsdóttir,
Dísarási 5,
Reykjavík.
Eiginmaður
hennar er Sig-
urjón Bolli
Sigurjónsson.
Þau verða
með opið hús
í Sunnusal
Hótel Sögu á afmælisdaginn,
milli kl. 17 og 19.
Helga Friðbjömsdóttir
Skógarstíg 1, Varmahlíð.
Walter Lesley,
Reykjanesvegi 2, Njarðvík.
Elín Agnarsdóttir,
Garðsenda 17, Reykjavík.
40 ára
Erna Stefánsdóttir,
Bakkavegi 14, Hnífsdal.
Pétur Óli Þorsteinsson,
Flúðaseli 74, Reykjavík.
Þorsteinn G. Benediktsson,
Vesturvangi 36, Hafnarfirði.
Þórarinn Örn Hallgrímsson,
Ásbraut 11, Kópavogi.
Öm Guðmundsson,
Hlaðhömrum 18, Reykjavík.
Karitas Hrönn Hauksdóttir,
Bjamastaðavör IV, Bessastaða-
hreppi.
Marc Einar Jóhannsson,
Laugavegi 140, Reykjavík.
Anna Heiðrún Jónsdóttir,
Höíðabraut 14, Akranesi.
Emelía Jóhannsdóttir,
Helgamagrastræti 7, Akureyri.
Áskrifendur
fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
550 5000
María Jóhannsdóttir
María Jóhannsdóttir, fyrrv.
stöðvarstjóri Pósts og síma á Flat-
eyri, Eyrarvegi 9, Flateyri, verður
níræð á morgun.
Starfsferill
María fæddist að Hólmum í
Reyðarfirði og ólst þar upp til sex
ára aldurs en síðan á Flateyri. Að
loknu skyldunámi stundaði hún
nám við Kvennaskólann í Reykja-
vík og við kvennaskóla í Noregi.
María vann við talsímaaf-
greiðslu á Flateyri og tók við starfi
stöðvarstjóra af móður sinni 1942.
Hún var stöðvarstjóri Pósts og
síma þar til hún lét af störfum
vegna aldurs 1977.
María hefur tekið virkan þátt í
félagsstörfum á Flateyri frá ungum
aldri. Hún er nú heiðursfélagi
kvenfélagsins Brynju, en var for-
maður félagsins í sautján ár. María
starfaði auk þess í slysavarnadeild-
inni Sæljós, Rauða kross-deildinni
á Flateyri og var einn af stofnend-
um Leikfélags Flateyrar. Hún hef-
ur tekið virkan þátt í tónlistarlífi á
Flateyri frá æskuárum, aðallega
sem undirleikari. Hún starfaði með
kirkjukór Flateyrar um árabil og
var orgelleikari við Flateyrar-
kirkju.
María hefur búið á Flateyri óslit-
ið frá því hún fluttist þangað 1913.
Fjölskylda
María giftist 29.9. 1938
Kristjáni Ebenezerssyni,
f. 18.10. 1897, d. 8.3. 1947,
skipstjóra. Hann var
sonur Ebenezers Sturlu-
sonar, skipstjóra á Flat-
eyri, og k.h., Friðriku
Halldórsdóttur, húsmóð-
ur frá Hóli á Hvilftar-
strönd í Önundafirði.
Börn Maríu og Krist-
jáns eru Jóhanna Guð-
rún, f. 11.3. 1941, nú sér-
kennsluráðgjafi við Skólaskrifstofu
Vestfjarða, áður kennari og skóla-
stjóri við Öskjuhlíðarskóla í Reykja-
vík, var gift Erlingi E. Halldórssyni
rithöfundi en þau skildu og eiga þau
tvö börn; Einar Oddur, f. 26.12. 1942,
alþm., kvæntur Sigrúnu Gerði Gísla-
dóttur hjúkrunarfræðingi og eiga
þau þrjú böm.
Börn Jóhönnu Guðrúnar og Erl-
ings eru Kristján, kvæntur Lesley
Wales og eru dætur þeirra Jóhanna
Guðrún og Katherine Barbara; Vig-
dís, gift Bjarna Harðarsyni skipstjóra
en dóttir þeirra er Júlía Ósk, auk
þess sem Vigdís á dótturina Maríu
Rut frá þvi áður.
Börn Einars Odds og Sigrúnar
Gerðu eru Brynhildur, nemi við HÍ;
Kristján Torfi, nemi í MH; Teitur
Björn, nemi í MR.
Systkini Maríu; Mar-
grét, f. 1904, var gift
Hallgrími Tulinius stór-
kaupmanni; Torfi, f.
1906, lögfræðingur, var
kvæntur Ólöfu Jónsdótt-
ur frá Seglbúðum;
Björn, f. 1911, verslunar-
maður, var kvæntur
Helgu L. Craig.
Fóstursystur Maríu
voru Jakobína Gríms-
dóttir, húsfreyja að
Burstarfelli í Vopna-
firði; Ingibjörg Thorarensen, hús-
freyja á Flateyri og í Reykjavík.
Systkini Maríu og fóstursystur eru
öll látin.
Foreldrar Maríu: Jóhann Lúter
Sveinbjarnarson, f. 9.3. 1854, d. 11.9.
1912, prestur að Hólmum í Reyðar-
firði, og s. k. h., Guðrún Torfadóttir,
f. 2.10. 1872, d. 7.8. 1956, húsfreyja að
Hólmum í Reyðarfirði og símstöðvar-
stjóri á Flateyri.
Ætt
Jóhann Lúter var sonur Svein-
bjarnar Magnússonar, b. í Skáleyj-
um, og Maríu Jónsdóttur, Ólafsson-
ar, bónda í Látrum, og k. h., Stein-
unnar Guðbrandsdóttur. Sveinbjörn
var sonur Magnúsar Einarssonar og
k. h., Sigríðar Einarsdóttir, systur
Þóru, Guðmundar og fleiri barna
hjónanna Einars Ólafssonar og k. h.,
Ástríðar Guðmundsdóttur er bjuggu
í Skáleyjum. Alsystir sr. Jóhanns var
Sigríður á Hvilft, amma Gunnlaugs
Finnssonar og þeirra systkina. Jó-
hann Lúter var fyrst aðstoðarprestur
að Hrafnagili í Eyjafirði, en prestur
og síðar prófastur að Hólmum í
Reyðarfirði til dauðadags.
Guðrún var fædd og uppalin á
Flateyri. Hún var dóttir Torfa Hall-
dórssonar, skipherra og skólastjóra
fyrsta íslenska sjómannaskólans, og
konu hans, Mariu Össurardóttur.'
Þau hjón voru bæði af vestfirskum
ættum, Torfi fæddur að Amarnesi,
Dýrafirði, og María fædd að Bæ, Súg-
andafirði (Arnardalsætt/Vigurætt).
Guðrún lauk handavinnukennar-
anámi í Noregi 1897. Hún var sím-
stöðvarstjóri á Flateyri 1913-1942.
Systkini Guðrúnar voru: Páll „at-
hafnaskáld", er dvaldist lengst af í
Kaupmannahöfn. Halldór, læknir, er
fluttist vestur um haf; Kristján, fram-
kvæmdastjóri á Sólbakka, Flateyri;
Ástríður, hjúkrunarkona, Sólbakka;
Ásgeir, skipstjóri á Sólbakka; Ólafur,
verslunarm. á Sólbakka, og Sigríður
Elín, húsmóðir.
María tekur á móti gestum í mat-
sal Kambs á Flateyri kl. 15.00 á af-
mælisdaginn.
María Jóhannsdóttir.
Dr. Gwyn Jones, fyrrv. prófessor í
Wales, til heimilis að Castle Cottage,
Sea View Place, Aberystwyth, Cer-
edigion, SY23 IDZ, er níræður í dag.
Starfsferill
Dr. Jones lauk BA-prófl frá Uni-
versity of Wales 1927 og MA-prófi það-
an 1929.
Dr. Gwyn var skólastjóri á árunum
1929-35, lektor við University College
of South Wales í Cardiff 1935-40, pró-
fessor í ensku og bókmenntmn við
University College of Wales, Aber-
Fréttir
Gwyn Jones
ystwyth 1940-64 og við
University College í Car-
diff, 1965-76. Þá var hann
Ida Beam gistiprófessor
við Iowa University 1982.
Dr. Gwyn hefur um
árabil verið einn virt-
asti fræðimaður Breta í
menningarsögu víkinga
og í íslenskum fornrit-
um en meðal rita hans
um þau efni má nefna
Kings, Beasts and Her-
oes, útg. 1972; A History
Gwyn Jones.
og the Vikings, útg.
1984, og The Norse Atl-
antic Saga, útg. 1986.
Hann hefur þýtt
fjölda íslendingasagna,
s.s. Egilssögu og Vatns-
dælasögu, og fjórar ís-
lendingasagna sem
komu út undir titlinum
Four Icelandic Sagas,
Hrafnkelssögu Freys-
goða, Kjalnesinga sögu,
Þorsteins sögu hvíta og
Vopnfirðingasögu. Þá er
Mesta athygli vakti glæsilegt brúðarpar. DV-myndir Melkorka
Glæsisýning í Búðardal
Gestum á Jörvagleði i Dölum kom
án efa mest á óvart glæsileg hár-
greiðslu- og förðunarsýning í umsjá
Jóhönnu B. Einarsdóttur og Sigrún-
ar Evu Þórisdóttur frá Hárhúsi
Hönnu í Búðardal og Önnu Lísu
Hilmarsdóttur sem sá um förðun.
Módelin, sem sýndu, voru 19 og með
umsjónarfólki og kynni tóku alls 24
þátt í sýningunni. Tæplega 300
manns sóttu kvöldskemmtunina og
að henni lokinni var stórdansleikur
með hinni vinsælu hljómsveit Pöp-
unum og hann sóttu hátt í 400
manns. MB
hann þýðandi Eiríkssögu rauða og
átta annarra íslendingasagna sem út
komu undir heitinu Eirik The Red‘
and Other Icelandic Sagas í bóka-
flokknum World’s Classics á vegum
Oxford University Press.
Dr. Jones var formaður Viking
Society for Northern Research
1950-52 er meölimur Arts Council
for Great Britain og formaður The
Welsh Arts Council 1957-67. Hann er
heiðursdoktor í bókmenntum við
University of Wales frá 1977; Uni-
versity of Nottingham frá 1978 og
University of Southhampton frá
1983. Hann var sæmdur riddara-
krossi íslensku fálkaorðunnar 1963,
er stórriddari breska heimsveldisins
frá 1965, voru veitt Christian Gauss-
verðlaunin 1973, og var sæmdur
stórriddarakrossi íslensku fálkaorð-
unnar 1987 fyrir fræðistörf sín er
lúta að íslenskri menningu og forn-
ritum.
Eiginkona hans er Mair Jones.
Útfararstofa
Líkkistuvinnustofa
Eyvindar Árnasonar
Stofnuð 1899
D.H. Osvaldsson
Vesturhlíð
S. 551-3485
(Sólarhringsþjónusta)
í