Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 11
jLj’ST LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
11
i&iðsljós
Gamanleikarinn Jerry Seinfeld:
Hófst með
því að sleikia
Jerry Seinfeld ætti að vera íslend-
ingum vel kunnur. Ekki aðeins hef-
ur hann verið reglulega á dagskrá
Stöðvar 2 undanfarin ár heldur brá
honum fyrir á götum Reykjavíkur á
dögunum. DV hitti kappann um síð-
ustu helgi, birti þá stutt spjall viö
hann og smellti af honum mynd.
Þættirnir með Jerry Seinfeld
heita einfaldlega Seinfeld eftir
stjömunni sjálfri. Seinfeld þykir
óhemju snjall en um leið sérstakur
gamanleikari. Hæfileiki hans til
þess að fá fólk til að skella hressi-
lega upp úr þykir einstakur.
Seinfeld og handritshöfundur
þáttanna, Larry David, þykja hafa
búið til einstakt sjónarhorn á full-
orðinn piparsvein með því að
skyggnast inn í sálartetur gaman-
leikarans. Brugðið er upp mynd af
uppákomum og vandamálum þar
sem við sögu kemur vinátta karl-
manna, rómantik, framapot og ým-
islegt fleira.
Sigurganga
Ferill Seinfelds sem gamanleik-
ara hefur verið ein sigur-
ganga. Árin 1992 og 1993
fékk hann bandarísku
gleðiverðlaunin (Comedy
Awards) fyrir leik í gam-
anþáttum. Þrátt fyrir
miklar annir við leik í
sjónvarpsþáttum er hann
einn eftirsóttasti og vin-
sælasti „stand up“-gaman-
leikari í Bandaríkjunum.
Jerry Seinfeld fæddist í
Brooklynhverfi í New
York og sem
ungur
drengúr
heillaðist
hann af
gamanlei-
kurum í
varpinu. Hann hefur sagst muna eft-
ir því að foreldrar hans hafi sagt við
hann að starf þessara manna væri
einungis fólgið í því að koma fram
fyrir fólk og vera fyndnir.
„Ég átti erfitt með að trúa því þá
og spurði hvort þeir gerðu virkilega
ekkert annað. Það gat ekki verið
satt,“ segir Jerry.
Frussaði mjólk og kexi
„Ég vissi það sem ungur patti að
ég yrði gamanleikari. Ég man eftir
því að hafa fengið vin minn til þess
að hlæja svo rosalega að hann fruss-
aði mjólk og kexi yfir mig allan. Ég
sleikti það. Þannig byrjaði þetta
allt,“ segir Jerry sem viðurkennir
að þrátt fyrir vinsældir Seinfelds
hafi hann mest gaman af því að
koma fram fyrir áhorfendur á sviði.
Jerry nam í Queens College, vann
skamma hríð við að selja ljósaperur
í gegnum síma og síðar sem götusali
þar sem verslað var með skartgripi.
Öll þessi ár missti Seinfeld aldrei
sjónar af draumnum um að verða
gamanleikari.
„Allt mitt líf hefur snúist um
að reyna að hlæja. Ég er al-
tekinn cif þessum hlát-
uraugnablikum. Þegar
maður hlær yfirgefur
maður likamann. Maður
yfirgefur jörðina. Hlátur
er ótrúlegt fyrirbrigði,“
segir gamanleikarinn
skemmtilegi, Jerry Sein-
feld.
-sv
sjón-
Jerry Seinfeld er einn vinsælasti „stand up“-gamanleikari í Bandaríkjunum.
Hann var á íslandi á dögunum og þá tók Sveinn Þormóðsson, Ijósmyndari
DV, þessa mynd.
Prinsessa í Pakistan
Díana prinsessa situr ekki auðum höndum þrátt fyrir að vera farin frá Kalla
og hans fjölskyldu. Síðastliðinn fimmtudag fiaug hún til Pakistan til að að-
stoða við fjársöfnun til stuðnings krabbameinsspítala í Lahore. Myndin er
tekin á flugvelli borgarinnar. Meðal þeirra sem tóku á móti Díönu voru Imran
Khan, fyrrum krikket-hetja Pakistana, og bresk kona hans.
Símamynd Reuter
FÁÐU ÞÉR MIÐA FYRIR K L. 20.20