Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 24. MAI 1997
mik_________________________________________________________________
Mæðgin frá Sigiufirði saman í skóla á Sauðárkróki:
Hvaða stelpu ertu
að tala við?
DV, Sauðárkróki:____________________
Tvo síðustu vetur hafa mæðgin
frá Siglufirði verið meðal nemenda
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
á Sauöárkróki, þau Margrét St.
Þórðardóttir og Rafn Rafnsson. Það
er trúlega fátítt að mæðgin sitji
saman á skólabekk og hvað þá að
þau sæki skólann í annað hérað.
„Fyrsta daginn og vikuna í skól-
anum var ég komin á fremsta hlunn
með að pakka saman og fara heim.
Mér leið eins og ég væri amma
krakkanna í skólanum og mundi
aldrei komast í gegnum þetta, en
síðan lagaöist þetta fljótt. Mér finnst
þetta hafa verið frábær tími hérna.
Krakkarnir og allir í skólanum eru
mér svo góðir að það er hreint ótrú-
legt. Sérstaklega eru það krakkam-
ir frá Siglufirði, Elva og Ásta frá
Hofsósi og krakkarnir, sem hafa
verið með mér í vistaríbúðinni, sem
hafa reynst mér vel. Þegar ég kom í
skólann átti ég tvö böm en núna
hafa um 10 hæst við,“ segir Margrét
í samtali við DV.
Hún er komin vel á veg með nám-
ið, lýkur stúdentsprófinu um næstu
jóí og fer meira að segja í útskriftar-
ferð með stúdentsefnunum núna í
vor.
Margrét var búin að ljúka nokkr-
um einingum í framhaldsdeildinni
á Siglufirði áður en hún byrjaði í
fjölbrautaskólanum og flýtti þannig
fyrir náminu. Þetta segist hún hafa
gert til þess að fría son sinn frá því
að vera í sama bekk og hún! Eins
hafi þau komist að samkomulagi
um að hann yrði á heimavistinni og
hún í vistaríbúð úti í bæ.
„Sonur minn vildi fara í heima-
vistarskóla og ég vildi ekki ræna
hann því frelsi sem því fylgir, í
stað þess að hafa mig stöðugt
yfir sér,“ segir Margrét, sem er
37 ára gömul en sonurinn er 17
ára. Rafn segir að hann hafi
oft í byrjun skólavertíðar verið
spurður að því hvaða stelpa
þetta væri sem hann hafi verið
að tala við. Og þegar hann
sagði að þetta væri
mamma sín, þá var
hváð við.
Aðspurð
hvort það hafi
ekki verið
erfitt að
sækja skóla í
annað hérað
frá heimili
sínu, eiga
auk þess ann-
an yngri son
heima og
vera þar að
auki nýskil-
in, segir Margrét að móðir sín hafi
hlaupið undir bagga, yngri sonur-
inn sé hjá henni og þau uni sér
mjög vel saman. Svo fari hún heim
á Siglufjörð um hverja helgi.
„Ég hef líka verið svo sérstaklega
heppin með það hvað strákarnir
mínir eru duglegir.
Það er t.d. langt
síðan að Rafn fór að sjá um sig að
miklu leyti og hann hefur þurft að
sjá um heimilisverk sem krakkar á
hans aldri þurfa ekki að hugsa um.“
Útrúleg
sjúkrasaga
Þegar Margrét er
spurð hvað hafi
ildið því að hún
ákvað að drífa
sig í nám gef-
ur að heyra
ótrúlega
sjúkra-
sögu.
„Ég
fæddist
mjaðmalið, algjörlega vinstra megin
og illa í lið hægra megin. Þetta hef-
ur plagað mig illilega síðustu árin.
Ég var á hækjum í tæp fimm ár eft-
ir aðgerðir og hef þurft að liggja
inni á sjúkrastofnunum í lengri og
skemmri tíma, allt upp í sjö mánuði
á hælinu í Hveragerði. Þetta er
meira að segja ekki búið hjá mér.
Það er yfirvofandi að ég þurfi að
fara í eina aðgerð í viðbót. Veikind-
in gerðu það að verkum að mér
gafst nógur tími til að hugsa. Ég fór
að velta lífinu alvarlega fyrir mér,
hvað ég vildi gera í framtíðinni. Það
er ástæðan fyrir því að ég ákvað að
drífa mig í skólann."
Hvað tæki við eftir stúdentsprófið
sagði Margrét óákveðið. Hún mundi
væntanlega gangast undir próf í há-
skólanum sem segði til um það hvar
hæfileikar hennar fælust, en einnig
blundaði það talsvert í henni að
flytja til Danmerkur til náms og
vinnu.
-ÞÁ
Mæðginin Rafn Rafns-
son og Margrét St.
Þórðardóttir frá Siglu-
firði hafa verið saman í
fjölbrautaskóla á Sauð-
árkróki síðustu tvö
árin.
DV-mynd ÞÁ
erlend bóksjá
Metsölukiljur
I •••••••••• #••••
Bretland
Skáldsögur:
1. Terry Pratchett:
Feet of Clay.
2. John Grisham:
Runaway Jury.
3. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
4. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patient.
5. Danielle Steel:
Mallce.
6. Meave Blnchy:
Evenlng Class.
7. Ben Elton:
Popcorn.
8. Jllly Cooper:
Apasslonata.
9. Tom Sharpe:
The Mldden.
10. Nlck Hornby:
Hlgh Fldellty.
Rlt almenns eðlis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Nlck Hornby:
Fever Pltch.
3. The Art Book.
4. The Spice Girls:
Glrl Power.
5. Paul Wllson:
A Llttle Book of Calm.
6. Wlll Huttonn:
The State to Come.
7. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
8. Labour Party Manlfesto 1997.
9. Herodotus:
Tales From Herodotus.
10. Grlff Rhys Jones ritstjórl:
The Nation's Favourlte Poems.
Innbundnar skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Partner.
2. Wllbur Smlth:
Birds of Prey.
3. Danlelle Steel:
The Ranch.
4. Arthur C. Clarke:
3001: The Rnal Odyssey.
5. Patrlcia D. Cornwell:
Hornet's Nest.
Innbundin rit almenns eðlls:
1. Jean-Dominlque Bauby:
The Dlving-Bell and the Butterfly.
2. Tlm Smlt:
The Lost Gardens of Hellgan.
3. Dava Sobel:
Longltude.
4. John Updlke:
Golf Dreams.
5. Scott Adams:
The Dilbert Prlnclple.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Stærstu verálaunin
IMPAC-verðlaunin eru kennd við Dublin á írlandi.
Spænski rithöfundurinn
Javier Marias hefur fengið
svonefnd IMPAC-verðlaun
fyrir skáldsögu sína „A He-
art so White“ en þetta eru
hæstu peningaverðlaun
sem veitt eru fyrir eina bók;
eitt hundrað þúsund sterl-
ingspund.
Verðlaun þessi eru kennd
við Dublin, höfuðborg ír-
lands. Þau hófu göngu sína
á síðasta ári. Þá fékk þau
ástralski höfundurinn Dav-
id Malouf fyrir skáldsöguna
„Remembering Babylon"
sem hafði reyndar áður
fengið góðar viðtökur hjá
lesendum og gagnrýnend-
um.
Það eru bókasafnsfræð-
ingar víðs vegar að úr
heiminum sem fá að tiln-
efna bækur til þessara verð-
launa. Eins og við mátti bú-
ast hafði dómnefndin úr
fjölmörgum bókum að velja
nú eins og í fyrra. Gerð var
tillaga um 113 skáldsögur
frá 49 þjóðlöndum. Úr þess-
um hópi voru valdar átta sögur sem
komust i eins konar undanúrslit;
vinningshafinn kom svo úr þeim
hópi.
Ensk-amerísk áhrif
Marias er tiltölulega ungur rit-
höfundur, fæddur árið 1951, og einn
þeirra sem sett hafa nýjan svip á
spænskar bókmenntir eftir fall
spænska einræðisherrans Francós.
Hann ólst að verulegu leyti upp í
Bandaríkjunum en þangað hraktist
faðir hans undan Francó-stjóminni.
Bandarískra og enskra áhrifa gætir
mjög í verkum hans, enda hefur
Marias líka verið mikilvirkur þýð-
andi engilsaxneskra bókmennta á
spænsku og hlotið verðlaun fyrir.
Tvær fyrstu skáldsögur hans gerast
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
í Bandaríkjunum. Enn önnur gerist
í Oxford á Englandi. Marias hefur
hlotið margvísleg bókmenntaverð-
laun fyrir sögur sínar sem hafa selst
vel víða á meginlandi Evrópu, t.d. í
Þýskalandi, Frakklandi og á Italiu.
Vinningsskáldsagan er byggð upp
eins og spennusaga og íjallar um
leyndarmál sem fjölskyldufaðirinn
afhjúpar smám saman í samtölum
við tengdadóttur sina. Sögumaður-
inn, sonurinn í fjölskyldunni, er
þulur hjá Sameinuðu þjóðunum og
hann gælir við smáatriðin í proust-
neskum stíl, að sögn gagnrýnenda.
Keppinautarnir
Þær sjö skáldsögur sem
komust í úrslit en náðu ekki
að vinna verðlaunin eftir-
sóttu eru;
„A Fine Ballance" eftir
Robinson Mistry. Hann er
af indverskum ættum en
býr í Toronto í Kanada.
Þetta er önnur skáldsaga
hans og gerist á Indlandi.
Hún komst líka í úrslit hjá
dómnefnd Booker-verðlaun-
anna í fyrra en hafði ekki
sigur.
„Reservation Blues“ eftir
Sherman Alexie sem er
bandarískur indíáni. Þar
segir frá þjóðfrægum blús-
ara sem hefur gert samning
við djöfulinn en er síðan
myrtur.
„The Good Negress“ eftir
A.J. Verdelle. Þetta er fyrsta
skáldsaga hennar og
þroskasaga ungrar svert-
ingastelpu sem elst upp í
sveitum Virginíu á sjöunda
áratug aldarinnar.
„Declares Pereira" eftir Antonio
Tabucchi frá ítcdiu. Hann er kunnur
höfundur i heimalandi sínu og fjall-
ar i skáldsögunni, sem gerist í
Portúgal á millistríðsárunum, um
miðaldra lögreglufréttamann sem
getur ekki lengur sætt sig þegjandi
við lygar stjómvalda í einræðisrík-
inu.
„Novel Without a Name“ eftir
Víetnamann Duong Thu Huong.
Þetta er ljóðræn skáldsaga sem ger-
ist á tímum Víetnamstríðsins.
„Tiler’s Aftemoon“ eftir sænska
rithöfundinn Lars Gustafsson sem
býr reyndar í Bandaríkjunum. Þar
segir frá einum eftirmiðdegi í lífi
aldraðs manns sem þarf að takast á
við fortíð sína.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mary Hlgglns Clark:
Moonllght Becomes You.
2. Sherl Reynolds:
The Rapture of Canaan.
3. Nora Roberts:
Montana Sky.
í 4. John Grlsham:
The Runaway Jury.
5. Ursula Hegl:
Stones From the Rlver.
6. Robln Cook:
Invaslon.
7. Wally Lamb:
She's Come Undone.
8. Belva Plain:
Promlses.
9. John Sandford:
Sudden Prey.
10. Amanda Quick:
Mlschlef.
11. James Patterson:
See How They Run.
12. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
13. Dean Kootz:
Tlcktock.
14. Ellzabeth Lowell:
Where the Heart Is.
15. John Saul:
The Blackstone Chronlcles: Parts
1-4.
Rit almenns eðlis:
1. James McBride:
The Color of Water.
2. Andrew Well:
Spontaneous Heallng.
3. Mary Pipher:
Reviving Ophella.
4. Jonathan Harr:
A Clvil Actlon.
5. Carmen R. Berry & T. Traeder:
Glrlfriends.
6. Vincent Bugliosl:
Outrage.
■ 7. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
8. Kathleen Norrls:
The Clolster Walk
v 9. Danalel Jonah Goldhagen:
Hltler's Willlng Executloners.
10. Jon Krakauer:
Into the Wlld.
11. Carl Sagan:
The Demon-Haunted World.
12. Jeff Foxworthy:
No Shlrt, No Shoes ... No Probleml
13. Mary Karr:
The Liar’s Club.
14. Kay Redfield Jamlson:
An Unqulet Mind.
15. Laura Schleslnger:
How Could You Do That?!
(Byggt á New York Tlmes Book Review)