Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 26
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 26 unglingar Ungur fatahönnuður vekur athygli heima og erlendis: Sendir bráðlega sýnishorn til London Ungur fatahönnuöur hefur að undanförnu vakið mikla athygli. Rut Hermannsdóttir heitir stúlkan en hún er 21 árs nemi í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ. Rut hefur haldið nokkrar tískusýningar. Hún hélt tískusýningu um síðustu helgi í Kolaportinu þar sem viðstatt var fjölmenni. Rut vissi ekki margt um hönnun á fatnaði fyrr en hún settist á nám- skeið fyrir níu mánuðum í FG. Ný- lega var orðin skylda að taka listfog í skólanum. Fyrir tilviljun fór hún í fatasaum og þá kviknaði áhugi hennar á saumaskap. Hún hannar, sníður og saumar fötin sjálf. „Ég ákvað að halda tískusýningu þar sem þetta hafði gengið svo vel hjá mér. Það voru margir sem hvöttu mig til þess að sýna fotin,“ segir Rut. Sumt af tískusýningafólkinu eru kunningjar Rutar en aðrir eru frá skóla John Casablanca. Rut tók einnig þátt i Facett-fata- hönnunarkeppninni og varð þar í öðru sæti. Hún hefur auk þess hald- ið tískusýningu á Hótel ís- landi. á Mýrdalsjökli fyrir nokkrum vik- um en þar voru sýnd föt frá Rut. Hún hefur öðlast sambönd hjá fyrir- tæki í London og sendir þangað fót bráðlega til prufu. „Ég ætla að halda áfram á þessari braut þó svo ég hætti í FG. Ég hef hugsað mér að fara síðar til Bandaríkj- anna í nám í fatahönn- un,“ segir Rut. -em Látlaus en fallegur kvöldkjóll sem sýndur var í Kolaportinu. rn hliðin Rut ásamt einni fyrirsætunni sinni. DV-myndir Sigrún Lovísa Haukur Ingi Guðnason, markakóngur IBK: Mamma er sætust Haukur Ingi er einn af stórhættulegustu sóknarmönnum landsins og þvf hafa varnarmenn og markveröir fengiö aö finna fyrir í upphafi móts. DV-mynd ÆMK DV. Suðtimesjum:______________________ „Toppurinn er að komast út í at- vinnumennskuna. En ég verð fyrst og fremst að standa mig vel með Keflavíkurliðinu og landsliðinu í sumar,“ sagði Haukur Ingi Guðna- son, hinn stórefnilegi knattspyrnu- maður i Keflavík, sem spilar í efstu deild íslandsmótsins. Að loknum tveimur umferðum er hann markahæstur meö þrjú mörk. Þá er hann unglingalands- liðsmaður undir 18 ára og er fyrir- liði þess. Haukur Ingi er einn af stórhættulegustu sóknarmönnum landsins og því hafa vamarmenn og markverðir fengiö að finna fyr- ir í upphafi móts. Hann hefur yfir að ráða ótrúlegum baráttuvilja, gríðarlegum sprengikraft og leikni. Haukur Ingi er sonur eins þekktasta knattspyrnumanns landsins, Guðna Kjartanssonar, fyrrum landsliðsþjálfara og lands- liösmanns í knattspymu, auk þess hefur Guðni þjálfað þekkt liö hér á landi. Haukur Ingi sýnir á sér hina hliðina. Fullt nafn: Haukur Ingi Guðna- son. Fæðingardagur og ár: 8. septem- ber 1978. Maki: Ég á unnustu sem heitir Steinunn Jónsdóttir. Böm: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Nemi, vinn í sumar á iþróttavellinum í Keflavík. Laun: Of lág. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? 50 krónur í happaþrennu. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að sigra í knattspyrnu. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að tapa leik. Uppáhaldsmatur: Kjúklingur og ég fæ ég mér hann alltaf fyrir leik. Uppáhaldsdrykkur: Sprite'. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Knattspymu- mennirnir í Keflavík, Jóhann B. Guðmundsson og Eysteinn Hauks- son. Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið og DV. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan unnustuna? Mamma. Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Johan Cruyff. Uppáhaldsleikari: Gary Oldman. Uppáhaldsleikkona: Uma Thur- man. Uppáhaldssöngvari: Michael Stipe í Rem. Uppáhaldsstj órnmálamaður: Enginn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Æðsti strumpur. Uppáhaldssjónvarpsefhi: íþrótt- ir. Uppáhaldsmatsölustaður/veit- ingahús: Olsen Olsen í Keflavík. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Hún heitir Maradona, hönd guðs. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Eng- inn. Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú mest á? Horfi aðeins meira á Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjami Felixson. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Enginn. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Ég var að bíða eftir þessari spum- ingu. Þau eru Keflavík og Arsenal. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Ná sem lengst í knattspymu. Hvað ætlar þú að gera í sumar- fríinu? Spila með Keflavík og taka þátt í Evrópukeppni undir 18 ára í sumar. -ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.