Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 46
54 afmæli LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 Sóley Ragnarsdóttir Sóley Ragnarsdóttir myndlista- kennari, Logafold 76, Reykjavík, er fímmtug í dag. Starfsferill Sóley fæddist að Höfðabrekku í Mýrdal og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla verknáms 1964 og myndlistakenn- araprófi frá Myndlista og handíða- skóla íslands 1986. Sóley flutti í Vík í Mýrdal 1964 og var ritari kaupfélagsstjóra Kaupfé- lags Vestur-Skaftfellinga í Vík 1964-66. Hún flutti til Reykjavíkur 1974 þar sem hún hóf störf hjá Skýrr við gagnaskráningu. Hún varð verk- stjóri yfir skráningardeild 1975, vann hjá borgarbókhaldi Reykjavík- urborgar 1979-81, hóf þá stöif hjá ferðaskrifstofunni Úrvali þar sem hún vann þar til hún hóf nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Með náminu stundaði Sóley ýmis störf, s.s. við ræstingar, verslunar- störf og vann á ferðaskrifstofu á sumrin. Hún var myndlistakennari við Hólabrekkuskóla 1987-89 og 1990-92, var deildarfóstra á leikskó- lanum Foldakoti 1993-94 og kenndi auk þess myndlist við Engjaskóla í Hafnarfirði en hefur verið myndlistakennari við Árbæjarskóla frá 1994. Sóley sat um skeið í stjórn Starfsmannafé- lags Skýrr og sat í full- trúaráði Starfsmanna- félags Reykjavíkurborg- ar í nokkur ár. Fjölskylda Sambýlismaður Sól- eyjar frá 1978 og eiginmaður hennar frá 24.4. 1996 er Guðmundur Bogas- son, f. 20.9.1945, grafiskur hönnuður og leigubílstjóri. Hann er sonur Boga Eggertssonar frá Laugardæl- um, verkstjóra við Áburðarverk- smiðjuna í Gufunesi, og Hólmfríðar Guðmundsdóttur frá Læk í Flóa, húsmóður. Sóley giftist 23.4. 1965, ísleifi Guð- mannssyni frá Jórvík í Alftaveri, Þau skildu 1973. Synir Sóleyjar og ísleifs eru Trausti, f. 25.6. 1966, eigandi verk- stæðisins og verktakafyrirtækisins Fjölverk-verktakar, búsettur í Hafn- arfirði en sambýliskona hans er Hafdís Rósa Jónasdóttir og eiga þau tvö böm; Guðmann, f. 27.1. 1970, búsettur í Reykjavík, eigandi Fjöl- verk-verktakar en sam- býliskona hans er Benný Benediktsdóttir og eiga þau eitt bam; Ásgeir Logi, f. 8.2. 1972, bakari og aðstoðarverk- stjóri hjá kexverksmiðj- unni Frón, og er kona hans Helga Karlsdóttir og eiga þau tvö böm. Böm Sóleyjar og Guð- mundar era Sverrir, f. 19.5. 1987, grunnskólanemi; Hólmfríður, f. 19.1. 1989, grannskólanemi. Systkini Sóleyjar eru Reynir Ragnarsson, f. 16.1. 1934, lögreglu- varðstjóri í Vík í Mýrdal; Þorsteinn Viðar Ragnarsson, f. 1.10. 1936, blikksmiður og starfsmaður á Grandartanga, búsettur á Akranesi; Valdís Ragnarsdóttir, f. 20.10. 1939, forvörður og kaupmaður í Reykja- vík; Björk Ragnarsdóttir, f. 17.5. 1944, d. 6.7. 1963; Guðrún Salóme Ragnarsdóttir, f. 23.7. 1945, ferða- þjónustubóndi í Efri- Vík í Land- broti. Foreldrar Sóleyjar: Ásgeir Ragnar Þorsteinsson, f. 5.9. 1908, fyrrv. skip- stjóri, bóndi að Höfðabrekku og rit- höfundur, og Guðrún Lilja Gisla- dóttir, f. 23.7. 1909, húsfreyja. Ætt Ásgeir var sonur Þorsteins, báta- formanns í Tröð og víðar við Djúp, Ásgeirssonar, b. á Eiði, Pálssonar, b. á Kambsnesi, Ásgeirssonar, b. og hreppstjóra á Amgerðareyri, Ás- geirssonar. Móðir Páls var María Pálsdóttir, b. og hreppstjóra í Arnar- dal, Halldórssonar, og Margrétar Guðmundsdóttur, hreppsstjóra í Amardal, Bárðarsonar, ættfoður Arnardalsættarinnar, Ulugasonar. Móðir Ásgeirs var Rebekka, dóttir Bjama, b. og hreppsstjóra í Nesi í Grunnavík, bróður Jóns, afa Kristj- áns Ragnarssonar, framkvæmda- stjóra LÍÚ. Bjami var sonur Jakobs, b. í Nesi í Grunnavík, Tómassonar, bróður Tómasar, afa Hjálmars R. Bárðarsonar, fyrrv. siglingamála- stjóra. Guðrún er dóttir Gísla Ámasonar frá Hergilsey Gíslasonar. Móðir Guðrúnar var Kristjánsína Bjarna- dóttir. Sóley tekur á móti vinum og vandamönnum i hádegis-morgun- verð á afmælisdaginn kl. 11.00-16.00. Sóley Ragnarsdóttir. Guðmundur Pálmi Kristinsson Guðmundur Pálmi Kristinsson, forstöðumaður byggingadeildar borgarverkfræðings, Vesturbergi 17, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1967, sveinsprófi í húsasmíði 1969, öðlaðist meistararéttindi 1978, lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1970, lauk prófi í byggingarverk- fræði frá LTH í Svíþjóð 1972. Þá stundaði hann eftirmenntun í við- haldi og endurbyggingu húsa á Norðurlöndum 1979, hefur farið í ýmsar náms- og kynnisferðir til Norðurlandanna og víðar og hefur sótt flest endurmenntunarnámskeið HÍ í fasteignamati húsa Guðmundur var verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun bygginga- riðnaðarins 1972-78, deildarstjóri kostnaðardeildar hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins 1978- 84 og er forstöðu- maður byggingardeild- ar borgarverkfræðings frá 1984. Þá var Guðmundur kennari við Meistara- skóla Iðnskólans í Reykjavík 1972-75, um- sjónarkennari Meist- araskólans 1975-82, stundakennari í fram- kvæmdafræði við TÍ 1979- 89, kennari á námskeiðum hjá End- urmenntunarstofnun HÍ, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins, hjá Meistarafélagi múr- ara og Múrarafélagi Reykjvíkur 1980- 95. Guðmundur sat í stjórn Stéttarfé- lags verkfræðinga 1976-77, var fram- kvæmdastjóri Steinsteypufélags ís- lands 1974-78, sat í endurmenntun- ardeild iðnaðarins á vegum iðnaðar- ráðuneytisins 1975-78, i byggingar- vísiiöiuiiefnd Hagstofu íslands 1982-94, hefur setið í BSTR Staðlaráðs íslands frá 1990 á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, var fuil- trúi Rannsóknastoftiun- ar byggingariðnaðarins í NBS-BP 1991-93, situr í Viðeyjamefnd frá 1984 og hefur setið í ýmsum nefndum Reykjavíkur- borgar. Hann var gerður að Melvin Johns félaga í Lionshreyfingunni 1995. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 4.1. 1971 Ragnheiði Karlsdóttur, f. 20.1. 1951, leiðbeinanda. Hún er dóttir Karls Kristjáns Ragnarssonar, matsveins og rammagerðarmanns á Akranesi, og k.h., Ernu Guðbjargar Bene- dediktsdóttur húsmóður. Börn Guðmundar og Ragnheiðar era Ólafía, f. 4.8. 1970, búsett í Reykjavík; Karl, f. 29.10. 1972, bú- settur í Reykjavík; Kristinn, f. 8.4. 1980; Pálmi Öm, f. 23.10. 1982. Systir Guðmundar er Sigríður Hrönn Kristinsdóttir, f. 11.9. 1954, starfsmaður hjá Þjóðhagsstofnun, búsett í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar era Krist- inn Guðmundsson, f. 5.10. 1925, húsasmíðameistari í Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Ólafía Pálsdóttir, f. 23.12. 1927, húsmóðir. Ætt Kristinn er sonur Guðmundar Ámasonar, b. á Núpi undir Eyja- fjöllum, og Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju. Ólafia er dóttir Páls Guðmunds- sonar, b. á Fit undir Eyjafjöllum, og k.h., Jóhönnu Ólafsdóttur. Guðmundur er að heiman. Björn Eiríksson Bjöm Eiríksson bifvélavirki, Urð- arbraut 11, Blönduósi, er sjötugur í dag. Starfsferill Björn fæddist að Hæli en býr nú á Blönduósi. Björn er bifvélavirki að mennt og heíúr lengst af starfað hjá Vélsmiðjunni Vísi, síðar Vélsmiðju Húnvetninga og nú hjá Árvirkni á Blönduósi. Fjölskylda Bjöm kvæntist 31.12. 1950 Öldu Theódórsdótt- ur, f. 17.7. 1932, verslun- armanni hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Blöndu- ósi. Foreldrar hennar eru Stefanía Guð- mundsdóttir húsmóðir og Theódór Kristjáns- son verkamaður. Böm Björns og Öldu Björn Eiríksson. eru Vigdís Bjömsdóttir, f. 9.12. 1951, hjúkranar- fræðingur, hennar mað- ur er Albert Stefánsson, f. 9.4. 1949, þjónn, böm þeirra eru Björn, Ragn- ar og Alda; Eiríkur Ingi, f. 30.6. 1956, húsasmíða- meistari, kona hans er Kristín Guðmannsdótt- ir, f. 17.12. 1958, banka- starfsmaður, börn þeirra eru Marsibil Björk, Björn Sindri og Agnar Logi. Systir Björns var Ingibjörg Theód- óra, f. 28.5. 1926, d. 12.8. 1926. Foreldrar Bjöms vora Eiríkur Halldórsson, f. 29.2. 1892, d. 26.8. 1971, bóndi og verkamaður, og Vig- dís Björnsdóttir, f. 21.8. 1896. d. 14.3. 1979, kennari. Þau vóru búsett að Hólabaki í Sveinsstaðahreppi. Björn verður-að heiman á afmæl- isdaginn. Guðbjörg Bárðardóttir Guðbjörg Bárðardóttir húsmóðir, Miðholti 13, Mosfellsbæ, er áttræð á morgun. Fjölskylda Guðbjörg fæddist að Gröf i Grundarfirði og ólst þar upp. Hún giftist Sigurgísla Melberg Sigurjónssyni, f. 29.6.1919, sælgætis- gerðarmanni og matsveini. Foreldr- ar hans voru Sigurjón Lárusson, vélstjóri í Hafnarfirði, og Gíslína S. Gísladóttir húsmóðir. Börn Guðbjargar og Sigurgísla eru Svavar Símonarson, f. 14.8. 1937, sjómaður; Jóhanna Mel- berg Sigurgísladóttir, f. 31.10. 1940, búsett í Dan- mörku, hennar maður er Svend Madsen og eiga þau þrjár dætur; Gíslína M. Sigurgísladóttir, f. 22.6. 1943, og á hún eina dóttur; Unnur M. Sig- urgísladóttir, f. 11.11. 1950, hennar maður er Guðbjörg Báröardóttir. Pétur Óskarsson og eiga þau eitt bam; Bára M. Sigurgísladótt- ir, f. 16.10.57, hennar maður er Páll E. Hall- dórsson og eiga þau fjögur böm. Systkini Guðbjargar eru Þorsteinn, f. 13.04. 1916, skipstjóri í Grundarfirði, nú lát- inn; Unnur, f. 16.8. 1914, húsmóðir, nú lát- in; Oliver f. 27.7. 1921, nú látinn; Oliver, f. 21.7. 1922, vél- stjóri í Reykjavík. Foreldrar Guðbjargar voru Bárð- ur Þorsteinsson, f. 6.6. 1882, d. 16.3. 1962, oddviti í Grundarfirði í Eyrar- sveit, og Jóhanna Magnúsdóttir, f. 27.1. 1889, d. 5.1.1931, húsmóðir. Þau voru búsett að Gröf í Grundarfirði. Seinni kona Bárðar var Kristbjörg Rögnvaldsdóttir, f. 3.11. 1894, d. 3.2. 1986, ljósmóðir. Guðbjörg verður að heiman á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 24. maí ára Sigrún Guð- jónsdóttir, Suðurgötu 8, Seyðisfirði. 85 ára Ingimundur Kristjánsson, Borgarbraut 65, Borgamesi. Guðlaug Magnúsdóttir, Rauðarárstíg 40, Reykjavík. 80 ára Guðrún Magnúsdóttir, Fossi, Saurbæjarhreppi. 75 ára Unnur Jónsdóttir, Kleppsvegi 62, Reykjavík. Haraldur Brynjólfsson, Aflagranda 40, Reykjavík. 70 ára Eivor Jónsson, Melasíðu 6c, Akureyri. 60 ára Bjöm Finnbogason, Þvergötu 4, ísafirði. Björn Sigurbjörnsson, Hlíð, Skagahreppi. Guðrún Árnadóttir, Nesgötu 27, Neskaupstað. 50 ára Gísli Guðmundsson, Hraunbæ 62, Reykjavík, Guðmundur Víðir Gimnlaugs- son, Heiðarlundi 3f, Akureyri. 40 ára Bergsteinn Karlsson, Garðarsbraut 75, Húsavík. Pálmi Ragnarsson, Garðakoti II, Hólahreppi. Sigurbjörn Björnsson, Vallarbarði 9, Hafnarfirði. Birna Guðmundsdóttir, Egilsstöðum I, Villingaholtshreppi. Jóhann Ásgeirsson, Njálsgötu 80, Reykjavík. Böðvar Hreinn Finnbogason, Birkimel 14, Varmahlíð. Dagný Jónsdóttir, Melhúsum, Bessastaðahreppi. Valdimar Ingi Gunnarsson, Drápuhlíð 11, Reykjavík. [W////1 P staðgreiðslu- og greiðslukorta- afsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smáauglýsingar DV 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.