Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Page 16
LAUGARDAGUR 7. JUNI 1997 16 Island og Nepal eru eins og hvítt og svart: Greiddi már einu sinni viku - segir Anna Svavarsdóttir, nýkomin úr ævintýraferð „Þegar maður er búinn að vera í þessu umhverfi og vinna við þessar aðstæður í dálítinn tíma hættir maður að kippa sér upp við hið óvænta. Ég týndi dýnunni minni í byrjun febrúar og svaf eftir það bara á sandinum. Það þýðir ekkert að vera með eitthvað pjatt þama. Ætli ég segi nokkuð mjög ósatt þó ég segi að ég hafi ekki greitt mér nema einu sinni í viku,“ segir Anna Svavarsdóttir, 23 ára íslendingur sem nýkomin er heim af fjögurra mánaða námskeiði í bátasiglingmn í Nepal. Anna vann með Bátafólkinu í Hvítá sl. sumar og þar kynntist hún tveimur Nepölum. Hún segir það síðan einhvem veginn hafa æxlast lag. Á meðan ég var úti var afar heitt og gott veður og því notuðumst við ekki við tjöld, sváfum bara í svefnpokunum utan dyra.“ Gróf klósettholu1 Á námskeiðinu var Anna í sjö manna hópi fólks frá ýmsum lönd- mn. Hún segir að honum hafi bara verið skellt út á á og þar hafi hann verið þessa fjóra mánuði. Ár séu flokkaðar eftir erfiðleikastuðli frá 1-6. Þær sem hafi stuðulinn 6 séu þær sem enginn fari niður. Komist einhver niður á verði hún þar með að á með stuðulinn 5. Anna segir Hvítá hafa stuðulinn 2-3. „Þetta voru býsna erfiðar aðstæð- Á Holy Festival nota innfæddir litaduft í miklu magni, skvetta hver á annan og gera sér glaöan dag. Félagar Önnu stilltu sér upp á mynd, sumir hverjir með afar bleikt hár. Anna krýpur fyrir framan og sendir kveðju heim. þannig að hún ákvað að drífa sig með þeim út í janúar síðastliðnum. Viðra fýluna úr svefnpokanum Anna kom heim um liðna helgi og var nýbúin að nudda stírumar úr augunum þegar DV sló á þráðinn til hennar á mánudaginn var. Hún var að „viðra fýluna úr svefnpokanum og þvo fötin sín“ og reiknar svo með að halda í Skagafjörðinn þar sem hún gerir ráð fyrir að vinna við bátasiglingar á Austari-Jökulsá í sumar. „Það er hræðilega erfitt að út- skýra Nepal. ísland og Nepal era eins og hvítt og svart, afskaplega ólík. Samt er sumt svo líkt, hrikaleg náttúra og óskaplega fallegt lands- ur og í raun var ég að gera allt aðra hluti en í bátaferðunum hér heima. Ég hafði áður komið á þessar slóðir, þá reyndar bara í skemmtiferð, og vissi því nokkuð út í hvað ég var að fara. Á námskeiðinu lærðum við allt um það hvemig á að panta mat- inn sem fara á meö og pakka honum niður í tunnu þannig að hann end- ist eins lengi og þarf hverju sinni. Við lærðu að grafa klósettholur, gera við báta og ýmislegt fleira." Áin refsar Aðspurð hvaða gagn hún hafi haft af þessari ferð segist Anna nú vera komin með plagg um að hún geti eitthvað. Þarna hafi hún verið að vinna verk sem sýni henni að hún geti unnið undir pressu. „Maður þarf að vera vakandi fyr- ir því óvænta. Vaktin stendur allan sólarhringinn meðan maður þarf að líta eftir viðskiptavinunum. Ég lærði margt af því álagi sem starf- inu fylgdi. Þetta er gott fyrir sjálfs- traustið en þeir sem ofmetnast geta verið vissir um að áin refs- ar þeim,“ segir Anna. Hún segir að eftir því sem á námskeiðið í Nepal hafi liðið hafi hópnum verið falin meiri og meiri ábyrgð. Prófraun hans hafi siðan verið að sjá um ferð hóps viðskiptavina niður á. Anna segist í raun aldrei hafa komist í hann krappan enda séu öryggiskröfur gríðarlega harðar og miklar hjá þeim fyrirtækjum sem í þessu standa. Gíra sig niður „Við fengum svínslega erfitt skriflegt próf og þar var spurt um ótrúlegustu atriði sem okk- ur fannst ósanngjarnt og smá- munasamt aö vera að spyrja um. Það fyndna var síðan að í lokaferð- inni kom nánast allt það fyrir sem spurt var um, t.d. hvað maður myndi gera ef eins metra langt gat kæmi á bátinn og ekkert efni væri til viðgerðar. Þessu varð maður að svara á prófinu og vandamálið urð- um við síðan að leysa í raun þegar út í alvörana var komið.“ Anna segir Nepal vera yndislegt land og fólkið dásamlega afslappað og gott. Andrúmsloftið sé svo nota- legt. Allir hluti taki sinn tima og því sé eins gott fyrir íslendinginn að gíra sig svolítið niður ætli hann sér að þrauka á þessum stað. Margir grétu Anna viðurkennir fúslega að í bátasiglingum í Nepal hafi hún áreiðanlega komist mjög nærri því sem flesta ævintýramenn og skrifstofublækur dreymir um. Hún segir því til staðfestingar að margt fólk sem fari í þessari ferðir gráti síðasta daginn. Því þyki svo miður að ferðin skuli vera á enda. „Þegar maður er búinn að venjast hlutunum í Nepal jafnast ekkert á við það að dvelja þar. Maður verður að venja sig við að einföldustu hlutir geta tekið ótrúlega langan tíma. Samgöng- umar era afar frumstæðar og erfiðar en andrúmsloftið dásam- legt. Það er kannski ekki fyrir alla að standa í þessu en ég kunni því vel að sofa undir ber- um himni, þvo fötin annað veifið og greiða mér ef ég mundi eftir því,“ segir Anna sem hefur fengið boð um að vinna við bátasiglingar í Nepal á næstu vertíð, eftir að monsúnrign- ingunum linnir í haust. -sv Anna Svavarsdóttir er nýkomin heim af nám- skeiði í bátasiglingum í Nepal. Hún var með bleikt hár í langan tíma eftir hátíð Nepalbúa þar sem ungir og aldnir skvetta litadufti hver á ann- an. Allir nema Ijóshærða stúlkan frá íslandi náðu að þvo litinn úr hárinu á sér. Árnar eru sumar hverjar nokkuð erfiðar og þurfa bátsverjar á stundum á allri sinni einbeitingu að halda til þess að halda fleyinu á réttum kili. Hér er farið niður flúð í Karneli sem kölluð er Gods House. I I habitat KRINGLUNNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.