Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 A T 1 Fr A íslenskir flugáhugamenn ætla aö skoöa Airbus-flugvélaverksmiöjurnar. Á myndinni er A3XX risaþotan en Airbus mun hugsanlega tilkynna um smíöi hennar á Parísaflugsýningunni en þangaö leggja flugáhugamennirnir einnig leiö sfna. Alþjóðaflugsýningin i Paris, Cargolux-flugfelagið og flugvéla- verksmiðjur Airbus og ATR í borg- inni Toulouse í Suður-Frakklandi verða meðal þeirra staða sem ís- lenskir flugáhugamenn hyggjast heimsækja í sérstakri hópferð til Mið-Evrópu dagana 20-24. júní. Fyrsta flugs félagið, sem er félag flugáhugamanna, gengst fyrir ferð- inni og fararstjórar eru þeir Gunnar Þorsteinsson ritstjóri og Ómar Ragnarsson fréttamaður, báðir landskunnir fyrir sína yfirgrips- miklu þekkingu á flestu er lýtur að flugmálum. Flogið verður frá íslandi að morgni fóstudagsins 20. júní. Þann dag verður starfsemi Cargolux-flug- félagsins á Findel-flugvelli skoðuð í fylgd íslenskra flugmanna hjá félag- inu. Um kvöldið verður ekið með rútu til Parísar og þar gist næstu tvær nætur. „Við höfum einu sinni áður heimsótt Cargolux og þá var tekið á móti okkur eins og þjóðhöfð- ingjum," segir Gunnar Þorsteins- son. Hann bætir við að í síðustu ferð hafi farþegum þótt heimsóknin til Cargolux jafnáhugaverð og sjálf al- þjóðaflugsýningin í París. Dagana 21. og 22. júní verður dvalið í París. Það eru lokadagar al- þjóðaflugsýningarinnar í París sem nú er haldin í 42. skipti. Parísarflug- sýningin er langstærsta og glæsileg- asta alþjóðaflugsýning í heimi. Að þessu sinni munu 1.750 fyrirtæki frá 41 landi sýna framleiðslu sína og reiknað er með yfir 400.000 gesturn frá 144 löndum til Parísar þá viku sem sýningin stendur yfir. Sýndar verða 224 flugvélar af öllum stærð- um og gerðum og 3-4 klukkustunda flugsýning verður á hverjum degi. „Sjón verður sögu ríkari í París þessa tvo daga og íslendingar fengu nasasjón af þvi í frægum sjónvarps- þætti sem Ómar Ragnarsson gerði um sýninguna árið 1995.“ Airbus-verksmiðjurnar Um kvöldið þann 22. júní verður haldið til borgarinnar Toulouse í Suður-Frakklandi en hún er gjarnan nefnd hátækniborg Evrópu. Þar eru Airbus-flugvélaverksmiðjurnar þar sem smíðaðar eru samnefndar far- þegaþotur og ATR-verksmiðjumar, sem smíða 40-70 sæta skrúfuþotur. „Okkur hefur verið boðið að eyða einum degi í þessum heimsþekktu flugvélaverksmiðjum og ekki mun veita af, því margt áhugavert er að sjá í jafnhátæknivæddri iðngrein og flugvéMramleiðsla er,“ segir Gunn- ar. Síðdegis þennan sama dag held- ur hópurinn til Lúxemborgar og þar verður gist um nóttina. Fyrir hádegi þann 24. júni gefst farþegum kostur á að versla í Lúx- emborg en haldið verður til íslands skömmu eftir hádegið. „Þetta verður sérstök og fjölbreytt ferð. Við bjóðum í einum pakka skoðunarferð um flugfélag sem ís- lendingar hafa alltaf haft taugar til, stærstu alþjóðaflugsýningu í heimi og skoðunarferð um tvær af þekkt- ustu flugvélaverksmiðjum heims. Þetta er áhugaverður kostur sem ís- lenskum ferðamönnum býðst afar sjaldan og þvi er rétt að láta hann ekki fljúga frá sér,“ segir Gunnar að lokum. Ferðin er opin öllum og mun kosta 45.000-50.000 krónur en endan- legt verð liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað. Unnt er að greiða ferðina með raðgreiðslum. Frekari upplýsingar um ferðina gefur Fyrsta flugs félagið í síma 561 2900 eða símboða 846 0490, alla daga vik- unnar frá kl. 9 til 22. -ÍS Nokkurgóð ráð fyrir ferðamenn Ekki treysta myndum í aug- lýsingabæklingum. Myndir ljúga oft og glamúrinn og flott- heitin eru ekki eins mikil þeg- ar á staðinn er komið og myndirnar sína. Þetta á sér- staklega við þegar bóka á gist- ingu á hóteli. Taktu verðmæti og hluti sem þú getur ekki verið án meö þér í handfarangur þegar þú tékkar þig inn í flugvél. Þetta á t.d. við um dýrar myndavélar, kreditkort, lyf, gleraugu, linsur o.fl. Ekki kaupa hluti sem eru þungir og erfitt að bera. Á löngum ferðalögum er þreyt- andi aö þurfa að burðast með mikinn farangur. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með að áætlunartími flug- vélar standi. Það er leiðinlegt að þurfa að bíða timunum saman eftir flugi og jafhvel er enn leiðinlegra að koma of seint og missa af flugvélinni. Sól án áfengis Ný ferðaskrifstofa, ÍT- ferðir, sem sérhæflr sig í ferðalögum iþróttahópa ásamt frí- og skemmtiferð- um fyrir alls konar sér- hópa, ætlar að bjóða óvenjulegar sólarlandaferð- ir í sumar og haust. Margar fjölskyldur, félagar, pör, vinir og fleiri kjósa að eyða frítíma sínum, innan lands sem utan, án áfengis og annarra vímuefna. Því ætla ÍT-ferðir að bjóða upp á ferðir við þeirra hæfi. Fyrsta ferðin er fyrirhug- uð 10.-17. júní ef næg þátt- taka fæst og er fórinni heit- ið til Mallorca. Flogið verð- ur í beinu leiguflugi Sam- vinnuferða-Landsýnar, samstarfsaðila ÍT, og gist á góðu íbúðahóteli á Cala d’Or. Boðið er upp á fræð- andi skoðunarferðir á aðra staði en hingað til hefur tíðkast hjá íslenskum ferða- skrifstofum, farið saman út Þaö er enginn vandi aö skemmta sér í sólinni án að borða á kvöldin og margt áfengis. fleira. Sneitt verður hjá áfengistengdu umhverfi en í staðinn blandað geði við íbúa Mallorca. Læknatúlkur og reyndur áfengisráðgjafi verða á staðnum, einnig reynslu- mikill fararstjóri. Þeir gista með hópnum og verða alltaf til taks. Aðeins 25 sæti verða í boði í júní- ferðina, en fleiri í ferðun- imi sem ráðgerðar eru í haust. Verðið er krónur 39.700 miðað við 4 saman í tveggja herbergja íbúð. Við þetta bætist flugvallar- skattur, 2.440 krónur. Fjöl- skylduverð 35.700 miðað við 2 fullorðna og 2 börn. Innifalið í þessum verðum er flug Keflavík-Palma- Keflavík, akstur mflli flug- vallar og hótels, gisting, sérhæfð fararstjórn, ráð- gjöf og fundir á staðnum. -ÍS Starfsmenn samgöngufyrir- tækja hjá hinu opinbera á Ítalíu fóru í sólarhringsverkfall í síð- ustu viku og lamaði það mest- allt samgöngukerfi stærstu borga landsins. íbúar þurftu að treysta á einka- og leigubifreið- ar og allsherjar öngþveiti skap- aðist á meðan á verkfallsað- gerðum stóð. Neyðarþjónusta Um síðustu helgi var aðeins starfrækt neyðarþjónusta í belgískum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum vegna verkfalls lækna þar í landi. Samningur Yfirvöld í Hong Kong og á Filippseyjum hafa náð sam- komulagi um að viðhalda öllu tengiflugi á milli landanna þrátt fyrir aö Kínverjar muni taka í sínar hendur stjóm Hong Kong frá 1. júlí næstkomandi. Á síðasta ári ferðuðust 1,7 milljón- ir manna á flugleiðum land- anna. Mánudagur til mæðu Algjört neyðarástand mynd- aðist í belgísku borginni Bruss- el síðastliðinn mánudag þegar starfsmenn í samgöngumálum efndu til verkfalls með engum fyrirvara. Fjöldinn allur af strætisvögnum, sporvögnum og neðanjarðarlestum var stöðvað- ur á punktinum og tugþúsundir manna lentu í hinum mestu vandræðum með að komast Árleg fjölgun Því er spáð að 230 milljónir Bandaríkjamanna verði á far- aldsfæti fram í septembermán- uð og myndi það vera fjölgun ferðamanna um 2% frá því í fyrra. Batnandi efnahagsástand | í landinu er ein meginástæða þess að Bandaríkjamenn eru duglegri að ferðast. Viðurkenna vandræði EÁstand í flugmálum í Ind- landi er með því versta sem ger- ; ist. Mönnum er í fersku minni eitt mannskæðasta flugslys sög- unnar í nóvember síðastliðn- um, nálægt Delhi, þegar tvær flugvélar rákust saman með þeim afleiðingum að 349 farþeg- ar létu lífið. Indversk flugmála- yfirvöld hafa viðurkennt að síð- an það slys varð hafi 10 sinnum legið við árekstri í lofti í ind- verskri lofthelgi, þar af eitt til- vik aðeins fjórum dögum eftir hið mannskæða slys. Lélegum radarbúnaði og yfirkeyrðum og illa þjálfuðum flugumferðar- stjórum er að mestu kennt um j ástandið. Hættulegt Hættulegt er talið að sigla á gríska Eyjahafinu, nálægt landamærum Albaníu. Fjöl- mörg tilvik eru skráð um ferða- langa sem hafa verið rændir af albönskum sjóræningjum og breskur ferðamaður var skot- • inn til bana í síðasta mánuði í átökum við sjóræningjana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.