Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Síða 11
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
11
DV
Fréttir
Útflöggun heföi ekki
áhrif á stöðu áhafnar
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja um Guðbjörgu ÍS
„Við erum alltaf opnir fyrir þess-
um erlendu verkefnum. Við erum
að skoða þessi mál í Þýskalandi en
það liggur ekkert fyrir um hvað við
gerum. En hvað sem verður þá mun
það engin áhrif hafa á stöðu áhafn-
ar,“ segir Þorsteinn Már Baldvins-
son, framkvæmdastjóri Samherja
hf. á Akureyri um mögulega útflögg-
un Guðbjargar ÍS, til Þýskalands.
Eins og DV hefur greint frá er um
þriðjungur áhafnar Guggunnar
hættur eða að hætta störfum á skip-
inu, sumir eftir áratugastarf.
„Það er út af fyrir sig rétt að laun
hafa lækkað en það er fyrst og
fremst af markaðslegum ástæðum.
Þeir flokkar sem launin hafa að
hluta til byggst á hafa lækkað og
þess vegna hafa launin lækkað
verulega," segir Þorsteinn Már Þor-
steinn Már segir enga rækju hafa
verið selda af skipinu í gegnum
Royal Greenland, eins og fram kom
í samtali við Víði Ólafsson, fyrrver-
andi yfirvélstjóra. Þvert á móti hafi
rækjan af skipinu verið seld í gegn-
um Seif hf., svo sem var meðan
Hrönn hf. gerði skipið
út, og söluskrifstofa
Samherja hf. hafi síð-
an tekið við sölumál-
um. Ástæður verðfalls-
ins séu því eingöngu
markaðslegar og sú
staðreynd að rækjan á
Flæmska hattinum sé
ljósari og því ekki jafh
góð markaðsvara.
„Japansmarkaður
er erfiður og hefur
ekki jafnað sig eftir
fárið í fyrrasumar. Meðan
markaðurinn getur valið
um rækju vill hann síður
þessa rækju af Flæmska
hattinum vegna þess
hversu ljós hún er. Það
hefur allt verð lækkað
þegar á heildina er litið,“
segir Þorsteinn.
Um mannabreytingar
þær sem orðið hafa á skip-
inu segir Þorsteinn að
Þorsteinn Már Bald- ekki sé þar um óeðlilegar
vinsson. hreyfingar að ræða.
„Ég held að það séu um 5 menn
hættir fyrir utan þá sem eru að leita
sér menntunar og þá aðallega í Stýr-
imannaskólanum en sumir sögðu
upp og hættu áður en við tókum við
rekstrinum. Ég get ekki talið það
stóran hóp og við erum að komast
niður í þá tölu sem eru á öðrum
rækjuskipum," segir Þorsteinn og
nefnir að við sameiningu fyrirtækj-
anna hafi nokkur hluti áhafnar þeg-
ar búið annars staðar en á landinu
en á Vestfjörðum.
-rt
Morten og Niels Rydahl ásamt fjölskyldum í skútunni í smábátahöfninni í Keflavík rétt áður en þeir sigldu af stað til
Danmerkur. DV-mynd Ægir Már
Danskir bræður keyptu hér skútu og standsettu:
Flugu til Islands
vikulega í hálft ár
DV, Suðurnesjum:
„Það var mikil erfiðisvinna að
koma skútunni í stand en svo sann-
arlega þess virði,“ sögðu dönsku
bræðumir Morten og Niels Rydahl
við DV í smábátahöfhinni í Kefla-
vík. Þar voru þeir að leggja loka-
hönd á glæsilega skútu sína.
Skútan er 40 feta löng og bræð-
umir keyptu hana í Keflavík í jan-
úar, varla hálfkláraða. Bræðumir
eru báðir flugstjórar hjá SAS.
„Þegar við áttum frí, og það að-
eins í tvo daga, þá flugum við með
Flugleiðum nánast í hverri viku í
hálft ár til íslands til að vinna við
skútuna. Nú er hún tilbúin á sjóinn
og við munum sigla henni til Dan-
merkm-. Yfir vetrartímann höfum
við hana í Nice í Frakklandi. Þetta
er búinn að vera afar skemmtileg-
ur tími hér á íslandi," sögðu Mort-
en og Niels Rydahl. Þeir komu
hingað á annarri skútu 1996. Þá sáu
þeir skútuna sem þeir festu síðan
kaup á. -ÆMK
íslenska
grœnmetið
grillað
(O
I
i
s
I
°S
«
D
1
ÍSLENSK GARÐYRKJA
£attu/ jijL'v ú&o/ <le£'
Noröur Viking 97:
Skipaumferð bönnuð
Á vamaræfingunni Norður Vik-
ing 97 verður æfð lagning tundur-
dufla á æfingasvæði sem er um
1.000 metra langt og 500 metra
breitt. Öll skipaumferð verður
bönnuð á svæðinu, sem er SV af
Reykjanesi, á tímabilinu frá klukk-
an 8 að morgni þess 3. ágúst til
klukkan 12.
Æfingasvæðið er um 1,2 sjómílur
suðvestur af Reykjanesi og mun
varðskip verða á svæðinu til að l’eið-
beina sjófarendum sem ætla fyrir
Reykjanes á umræddu tímabili. Alls
Lágflug
*
Æfingasvæði,
4. ágúst kl. 8.15-16
5. ágúst kl. 10.15-13
nær lokun til 6 sjómílna radíusar út
frá punkti sem er á 63 gráðum 48
mínútum norður og 22 gráðum 44
mínútum vestur. -rt
tlLBOÐ
tlLBOÐ
49.900
29.930
IBERNA LBI-2610T
þvottavél
5 kg/ 1000 sn.
IBERNA IWD-5100TX
þvottavél/þurrkari
5 kg/ 1000 sn.
IBERNA LBI-218T
þvottavél
5 kg / 800 sn.
IBERNA ABI-25
tauþurrkari
5 kg/barki fylgir
IBERNA LSI-56W
uppþvottavél
5 kerfi / 12 manna
riiberno
VANDAÐAR VÉLAR
Á VÆGU VERÐI
p/FOniX
fra ll^- HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420