Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 Fréttir i>v Fulltrúi Alþýðubandalags hjá Pósti og síma: Studdi hækkunina unni. Hins vegar hefði hún viljað óska þess að stjómin hefði komið fram með þær hækkunartillögur sem Halldór Blöndal samgönguráðherra kynnti eftir fimd sinn með Davíð Oddssyni forsætisráðherra. „Við hefðum einnig viljað að betur yrði staðið að kynningu þessara breytinga. Ég sé ekki heldur ástæðuna fyrir þessari leynd á forsendumun fyrir gjaldskrárbreytingum fyrirtækisins,“ segir Elín Björg. -Sól - segir Elín Björg Jónsdóttir Elín Björg Jónsdóttir, fulltrúi Alþýðu- bandalags í stjóm Pósts og síma hf., segist hafa greitt atkvæði sitt með tillögum um gjaldskrárbreytingar fyrirtækisins á símtöl- um innanlands. Þessar breytingar hafi leg- ið fyrir stjóminni í vor og stjómarmenn hafi reynt að vinna sig út úr þeim skref fyr- ir skref. Elín Björg segist hafa verið fylgjandi ákvörðun Alþingis vun jöfmm símakostnað- ar í landinu þó svo að hún hafl ekki verið ánægð með þær miklu hækkanir sem lagðar voru fram. „Ástæðan fyrir því að ég studdi tillögu stjómarinnar var sú að ég taldi að mér hefði tek- ist að ná fram ákveðnum þætti sem mér fannst mjög mikilvæg- ur - það er að 200 skref væm Elín Björg Jónsdóttir innifalin í fastagjaldinu," segir Elín Björg. „Mér fannst að það yrði að gerast vegna þeirra fjöl- mörgu sem nota símann sem ör- yggistæki.“ Eftir að hafa náð þessu fram segist Elín Björg telja að það hefði verið óheiðarlegt af henni gagnvart samstarfsmönnum sín- um í stjórninni að hafna tillög- Helgi Steingrímsson, forstjóri Reiknistofu bankanna, um „hrunið“ í gær: Forstjóri Hagkaups: Vonum aö þetta séu bara eftirskjálftar Metafli hjá línubátnum Skarfi „Það var ágætis afli hjá bátunum. Það er greinilegt að þaö er gífúrlegt magn af þorski hér á ferðinni," seg- ir Pétur Jóhannsson, skipstjóri á Skarfi GK sem landaði 70 tonnum af þorski eftir þrjá daga á veiðum út af Seyðisflrði. Aflinn nemur 375 kíló á bala að jafnaði sem er fáheyrt. Pétur segir að síld sé að ganga á slóðinni. „Við beittum blóðsíld sem hefur gefið vel,“ segir hann. „Þetta sannar það sem ég hef haldið ff am að það er allt fullt af þorski," segir Pétur. -rt Eiríkur Sigurðsson í 10-11 um Reiknistofubilunina: Kerfið ræður ekki við kortin „Þetta kom mismunandi mikið niöur á verslunum okkar. Þetta er mjög alvarlegt ef þetta heldur svona áfram. Bankarnir verða að fara að taka á þessu máh. Það er timi til kominn," sagði Eiríkur Sigurðsson hjá 10-11 verslununum við DV um bilunina hjá Reikni- stofu bankanna. Hann telur að kerfið ráöi ekki við öll þau kort sem „dælt hefur veriö inn á markaðinn“. „Menn eru auðvitað búnir að vera að vinna í þessu vandamáli,“ sagði Eiríkur. „En að vandræði komi upp um hver einustu mán- aðamót er mjög alvarlegt. Bank- arnir eru með ákveðna þjónustu sem er ekki í lagi. Menn verða að taka sig á. Ég held að aðalatriðið sé aö það var tekið allt of seint á þessu. Það átti að vera búið að taka á þessu miklu fyrr. Þaö er dælt endalaust af kortum inn á markaðinn með mikilli tækni sem kerfið ræður ekkert við. Auðvitað er þetta alvar- legt. Menn standa ekki í stykkinu og hafa verið sofandi of lengi. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði Eiríkur. -Ótt Eiríkur Sigurðsson. „Upp úr klukkan eitt kom upp vandamál í rekstri okkar aðal- gagnagrunns. Það leiddi til þess að hraðbankar og þjónustusími urðu úti, sem og debetkort, sá hluti þeirra sem nefnist síhringikort. Vandamálið var viðvarandi þang- að til klukkan fjögur. Þá komust hraðbankar í gagnið nema að því leyti að þá var ekki hægt að nota síhringikortiö í svokölluðum pos- um,“ sagði Helgi Steingrímsson, forstjóri Reiknistofu bankanna, við DV, aðspurður mn þau vandamál sem upp komu í bönkum, spari- sjóðum, verslunum og víðar í gær þegar bilun varð í hugbúnað- arkerfi reiknistofunnar. „Að sjálfsögðu hefur þetta íþyngt afgreiðslu í bönkum og sparisjóð- um,“ sagði Helgi. „En það vinnur vaskur hópur manna að því að finna út úr þessum vandamálum, bæði hér heima og erlendis, af hálfu þeirra aðila sem hafa selt okkur hugbúnaðinn.“ - Nú hafa síendurtekin vandamál skapast undanfarin mánaðamót. Er þetta ekki orðið alvarlegt? „Þaö hafa komið upp vandamál um mánaðamótin. Mikið rétt. Þau hafa verið af ýmsum toga. Hluti vandans hefur verið sá að þurft hef- ur að stækka okkar megintölvu. Það var gert um næstsíðustu helgi og gekk vel. Orsaka vandans nú er ekki að leita í tölvunni sjálfri held- ur í hugbúnaðinum.“ - Menn eru að láta þau orð faila nú að ástandið sé orðið óþolandi. Vandamálið sé orðið of langvarandi. Áfengis- og byssu- þjófar teknir Brotist var inn í þrjú herbergi á Hótel Loftleiðum aðfaranótt laugar- dags. Stolið var áfengi úr mínibörum herbergjanna. Lögregla handtók karlmann skömmu síðar í nágrenni hótelsins. Viðurkenndi hann að hafa stolið áfenginu. Sömu nótt handtók lögregla karl- mann með stolinn riffil fyrir utan veitingahús í borginni. Maðurinn hafði stolið rifflinum úr íbúð við Vesturás á fimmtudagskvöld. -RR Fjöldi manns lenti í vandræðum með debetkortin sín í gær vegna vandamála sem upp komu í Reiknistofu bankanna. DV-mynd E.ÓI. endur og aðra. Mun þetta vandamál endurtaka sig um næstu mánaða- mót? „Það eru okkur vonbrigði að þetta kom upp núna. Sannarlega áttu menn ekki von á því. En vandamál gera ekki boð á undan sér. Ég vonast ein- dregið til að þetta gerist ekki um næstu mánaðamót. En það er svo í þessum rekstri að afskaplega erfitt er að fullyrða nokkuð í því sambandi," sagði Helgi Steingrimsson. -Ótt - Getur þú sagt til um hve oft vandamál hafa komiö upp hjá Reiknistofunni frá áramótum? „Ég get ekki sagt um það. Stund- um stendur þetta yfir í mjög skamman tíma, bara nokkrar mín- útur, þannig að það væri ekki eðh- legt að nefna slík tilvik sérstak- lega.“ - Hvað segiö þið á þessari stundu við alla viðskiptavini banka og sparisjóða, verslana, verslunareig- „Við höfum staðið frammi fyrir því gagnvart breytingum á okkar tölvubúnaði aö fara einnig í gegn- um stórar breytingar á okkar hug- búnaði sem óhjákvæmilega hefúr fylgt. Við lítum svo á að hér sé um að ræða eftirskjálfta af þeim breyt- ingum. Við vonum að það sé ekki annað." Oþolandi „Við höfum lent í því að allt hefur farið til andskotans. Þetta er óþolandi. Það hefúr tekið allt of langan tima að koma þessum breytingum á koppinn," sagði Óskar Magn- ússon, for- stjóri Hag- kaups, um bilunina hjá Reiknistofú bankanna. Óskar sagði að bil- unin hefði ekki komið beint niður á Hagkaups- verslununum í gær. Undanfama daga hefði hins vegar orðið vart við vandkvæði vegna lokunar Reiknistofunnar fyrir rúmri viku. „Á Orku-bensínstöðyjinum er þetta búið að vera skélfilegt þeg- ar bilanir verða,“ sagði óskar. „Á þessum bensínstöðvum höf- um við orðið af miklum við- skiptum og fyrir verulegum óþægindum. Þar er ekki gott við það að eiga þegar kort .yirka ekki og stöðvarnar eru ójnann- aðar. Við höfum verið að gefa Reiknistofunni tækifæri til að koma þessum hlutum i lag. Þeir lokuðu á sunnudeginum fyrir rúmri viku. Það átti að duga. En sú lokun hefur greinilega ekki dugað. Það eru ennþá vand- kvæði sem við höfum orðið vör við undanfama daga,“ sagði Óskar Magnússon. -Ótt Stuttar fréttir Rifrildi Hörö deila er milli borgar- stjóra og fjármálaráðherra um Sjúkrahús Reykjavíkur. Fjár- málaráðherra segir borgarstjóra ekki hafa gert minnstu tilraun til að reka spítalann innan eigin áætlana. Borgarstjóri mótmælir því. RÚV sagði frá. Lög gegn spilakössum Guðrún Helgadóttir mælir á Alþingi fyrir frumvarpi sem bannar spilakassa. Einar Oddur Kristjánsson þingmaður segir að verði frumvarpið að lögum muni það kippa fótunum undan SVFÍ, SÁÁ, Landsbjörg og fleiri liknarfélögum. Verkfallsfjón íslensk fiskútflutningsfyrir- tæki gætu tapað miklu á verk- falli franskra flutningabUstjóra sem nú stendur yfir. Stöö 2 sagði frá. Álverskostnaður Kostnaöur iðnaðarráðuneytis- ins vegna álversins, sem aldrei var byggt á KeUisnesi, er kom- mn í 1,5 milljarða króna. Skelfi- legt og óþolandi sóun segir Hjör- leifur Guttormsson alþingismað- ur við Stöð 2. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.