Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Síða 2
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
a fréttir
Nýtt tæki i barattu
gegn ölvunarakstri
- öndunarsýni veröa tekin hjá grunuðum ökumönnum
Lögreglan hefur tekið í notkun
nýtt tæki í baráttunni gegn ölvun-
arakstri. Um er að ræða mjög full-
komna öndunarsýnamæla frá
Bandaríkjunum sem Umferðarráð
festi kaup á.
Með breytingum á umferðarlög-
um á síðasta vori var veitt heimild
til að beita nýrri tækni til að
ákvarða áfengisáhrif hjá ökumönn-
um. Hingað til hefur verið tekið
blóðsýni úr ökumönnum en með
þessari breytingu verða öndunar-
sýni jafngild blóðsýnum. Mæling í
öndunarsýnamælunum er talin
vera mjög nákvæm. Kostir eru líka
þeir að með þessu nýja tæki fá lög-
reglumenn og grunaðir ökumenn
strax upplýsingar um niðurstöðu
rannsóknar á öndunarsýni. Ekki
þarf að fara með viökomandi í fylgd
lögreglu til læknis. Auk þess á
málarekstur aö taka mun skemmri
tíma en áður.
-RR
Nýja tækið i baráttunni gegn ölvunarakstri var afhent í gær. Hér sjást Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og Bogi
Nilsson, ríkislögreglustjóri og verðandi ríkissaksóknari. DV-mynd S
Nýbyggingin við Þórsgötu 2:
Lóöarhafinn breytti teikningunum
Lóðarhafi að Þórsgötu 2 hefur
breytt teikningum að nýbyggingu
sem þar á að rísa. Er það gert í kjöl-
far þess að umhverfisráöherra felidi
úr gildi byggingarleyfi hans vegna
kæru frá íbúum við Óðinsgötu, eins
og DV greindi frá. Byggingarfulltrúi
ríkisins stöðvaöi framkvæmdir við
nýbygginguna eftir að umhverfis-
ráðherra hafði fellt leyfiö úr gildi.
Lóðahafinn hefur breytt teikn-
ingunum þannig að dregiö var úr
áhrifum á vesturhomi byggingar-
innar gagnvart Óðinsgötu 7. Hann
Teikningum nýbyggingar að Þórs-
götu 2 hefur nú verið breytt í kjölfar
kæru nágranna. DV-mynd BG
j5§|§g|gigg
hefúr nú sótt um byggingarleyfi á
nýjan leik. Málinu var frestað í
byggingamefnd, en vísað til skipu-
lags- og umferðamefndar. Þar verð-
ur það tekið fyrir og samkvæmt
nýjum byggingarlögum, sem taka
gildi um áramótin, mun henni bera
að kynna það fyrir nágrönnum
Þórsgötu 2. Sú kynning tekur 28
daga og geri nágrannar einhverjar
athugasemdir þarf skipulagsnefnd
að fara yfir þær og taka afstöðu til
þeirra. Síðan fer málið til bygging-
arnefndar sem tekur endanlega af-
stöðu til málsins. Þetta ferli stend-
ur a.m.k. fram í febrúar en þá fyrst
getur lóðarhafinn hafið fram-
kvæmdir, að því tilskildu að hann
fái leyfi. -JSS
Schengen-samningurinn:
blóra við stjórnarskrána
Varla í
Schengen-samkomulagið myndi
ekki standast ákvæöi íslensku
stjórnarskrárinnar ef svið
Schengen- ?amningsins um ytri
landamæri Evrópu yröi lagt til
ESB og ísland nyti ekki sérstakra
undanþága varðandi valdsvið
stofnana ESB. Schengen-samning-
urinn brýtur ekki í bága við
ákvæöi stjórnarskrárinnar ef hann
verður óbreyttur frá núverandi
gerö og heldur ekki þó aö
Schengen-sviðiö yrði lagt undir
ESB og ísland fengi m.a. aðild að
þeim alþjóðastofnunum sem um
Schengen-mál fialla.
Þetta eru niöurstööur lagapró-
fessoranna Davíðs Þórs Björgvins-
sonar, Stefáns Más Stefánssonar og
Viðars Más Matthíassonar sem
fengnar eru að beiðni utanríkis-
ráðherra, sem fól þeim sl. sumar
að taka saman álitsgerð um hvort
væntanlegt samkomulag við ESB
um Schengen-samninginn kunni
aö brjóta i bága við stjómar-
skrána.
-SÁ
Hátíð í Belfast:
Benjamín
dúfa vann
Kvikmyndin Benjamín dúfa fékk
fyrstu verðlaun á kvikmyndahátíð í
Belfast á N-írlandi um síðustu helgi.
Hátíðin heitir Cinemagic
Intemational Festival for Young
People og er haldin árlega og er mjög
fjölsótt.
Kvikmyndin er byggð á sam-
nefndri sögu Friðriks Erlingssonar.
Leikstjóri er Gísli Snær Erlingsson
og kvikmyndatökumaöur var Bald-
ur Hrafhkell Jónsson. Á hátiöinni
voru fimm myndir tilnefndar til
verðlauna. Friörik Erlingsson sagði
í samtali við DV að hann væri mjög
ánægöur með gengi myndarinnar á
hátíöinni, ekki síst vegna þess að
um hefði verið að ræða viðburð í
enskumælandi heimshluta -SÁ
Lögreglan hafði nóg að gera við að stöðva ökumenn fyrir of hraðan akstur á Sæbraut i gær. Margir ökumenn voru
stöðvaðir og sektaðir fyrir að tylla fæti of fast á bensíngjöfina. Lögreglan heldur uppi öflugu eftirliti í umferðinni
þessa dagana enda mikil umferð í jólaösinni. DV-mynd S
stuttar fréttir
Landsvirkjun lánshæf
Matsfyrirtækið Moody’s In-
vestors Services hefur gefið
Landsvirkjun lánshæfieinkunn-
ina Aa3 um langtímalán og ein-
kunnina Pl um skammtímalán.
Landsvirkjun hefúr þar með
fengið sömu lánshæfieinkunn og
íslenska ríkiö. Stjórnendur
Landsvirkjtmar telja þessa ein-
kunnagjöf þýðingarmikla fyrir
starfsemi fyrirtækisins.
Gunnarsstofnun
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra hefur sett reglur um
stofnun Gunn-
ars Gunnarsson-
ar rithöfundar
að
Skriðuklaustri.
Hlutverk stofn-
unarinnar er
m.a, að leggja
rækt við bók-
menntir með
áherslu á rit-
verk og ævi Gunnars skálds Gunn-
arssonar, reka dvalarstað fyrir
lista- og fræðimenn og stuðla að at-
vinnuþróun á Austurlandi.
Minna atvinnuleysi
Atvinnuleysi á landinu í nóvem-
ber jafngildir því aö 4006 manns
hafi veriff atvinnulausir að jafn-
aði, eða um 3% mannafla á vinnu-
markaði. Á sama tima i fyrra voru
5169 manns án vinnu. Atvinnu-
lausir nú eru hlutfallslega flestir á
höfúðborgarsvæðinu, 3,5%, en
fæstir á Vestfjörðum, 0,9%.
Móðgun við notendur
Kristinn H. Gunnarsson alþing-
ismaður gagn-
rýndi stjóm-
endur Ríkis-
útvarpsins
harölega á Al-
þingi í gær.
Hann sagði þá
hafa veitt fjár-
laganefnd
ófúllnægjandi
svör við kröf-
um um umbætur á dreifikerfi út-
varpsins. Svörin hafi verið hrein
móðgun við notendur.
Blindir gefa gleraugu
Blindrafélagið hefúr gefið öll-
um gnmnskólanemendum sem
fæddir eru árið 1985 hlífðargler-
augu og hafa grunnskólar lands-
ins afhent þau. Gleraugun eru til
að vemda augu krakkanna gegn
áramótaflugeldum.
Jafnréttisáætlun
Páll Pétursson félagsmálaráö-
herra hefur
lagt fram
þingsályktun-
artillögu um
fjögurra ára
framkvæmda-
áætlun um að
koma á jafii-
rétti kynj-
anna þar sem
raunverulegt kynjajafnrétti hafi
enn ekki náð fram aö ganga.
Færri teknir fullir
Fyrstu 18 daga desembermán-
aðar hafa 42 verið teknir fýrir að
aka ölvaðir. Á sama tíma í fyrra
vom þeir 62, eða um 32% fleiri.
Þetta kemur fram í frétt frá VÍS
og Sjóvá-Almennum.
Sjúklingar greiöi meira
Heilbrigðis- og tryggingaráöu-
neytið hefur gefið út nýja reglu-
gerö um hlutdeild sjúídinga í
lyfjakostnaði. Hlutdeild þeirra
hækkar um 5%. í frétt frá ráðu-
neytinu er talið að greiðslur
sjúklinga muni ekki hækka
verulega þrátt fyrir breytinguna.
Esra til ríkissaksóknara
Rannsókn lögreglu á meintu
prentlagabroti Esra Péturssonar
vegna upplýsinga I sjálfsævisögu
hans er lokið og hefur málinu
verið vísaö til ríkissaksóknara.
Lögreglustjóraembættið taldi
ekki grundvöll fyrir því að gera
upplag bókarinnar upptækt. -SÁ