Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Page 6
6 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 stuttar fréttir Nýjasta vélin fórst Boeing 737-300 vélin frá Singa- púr, sem fórst með 104 innan- borðs yfir Indónesíu í gær, var nýjasta vél flugfélagsins Singa- pores SilkAir. Vélin var aðeins 10 mánaða. Saknaði Chelsea ~T~~, Bill Clinton fSjjtfljfflHfe Bandaríkjaforseti ‘ *í-: greinir frá því í g , viðtali sem birtist '' | í gær að hann ■jjS t hefði fundið fyrir 1 söknuði þegar —I Chelsea dóttir hans flutti að heiman til að heíja nám við Stanfordháskólann í Kaliforníu. Forsetinn sagði einnig að eitt af brýnustu verkum hans nú væri að fá köttinn Socks og hundinn Buddy til að búa saman í friði. Stærrí þorskkvóti Sjávarútvegsráðherrar Evrópu- sambandsins náðu í gær sam- komulagi um veiðikvóta næsta árs. Samkvæmt því verður heim- ilaður stærri þorskkvóti í Norð- ursjó. Hallasýning Aöstoðarforsætisráðherra íraks, Tareq Aziz, sýndi í gær fréttamönnum tvær hallir Sadd- ams íraksforseta í Bagdad. Havel til Kanarí Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, fer í dag í þriggja vikna frí til Kanaríeyja samkvæmt læknis- ráði. Mun hann dvelja í bústað Spánarkonungs. Svíi í gíslingu Maður sem talinn var vopn- aður tók starfsmann sænska sendiráðsins í Moskvu í gíslingu í gær. Krafðist maðurinn 3 milljóna dollara í lausnargjald. Botha mætti ekki P.W. Botha, fyrrverandi forseti S-Afi-íku, mætti ekki hjá Sann- leiks- og sáttanefndinni í gær. Var þetta í þriðja sinn sem hann mætti ekki og var gefin út hand- tökuskipun á hann. Til Bandaríkjaforseta Forsætisráð- herra Bandaríkj- anna, Benjamin Netanyahu og Yasser Arafat, leið- togi Palestínu, hafa þegið boð um aö hitta Bill Clin- ton Bandaríkjaforseta snemma á næsta ári. Lengri hvíld Læknar sem rannsökuðu Jeltsín Rússlandsforseta í gær, mæltu með því að hann dveldi viku til viðbótar á hvíldarheimili. Reuter Dansk-kanadískt samstarf Danir og Kanadamenn hafa gert með sér samning um kvikmynda- gerð og framleiðslu kvikmynda fyr- ir kvikmyndahús og myndbönd. Menningarmálaráðherra Dana og sendiherra Kanada í Danmörku, Brian E. Baker, undirrituðu samn- inginn nýlega. Samkvæmt samningnum fá danskir og kanadískir kvikmynda- gerðarmenn gagnkvæman rétt til opinberra styrkja. Tvö dönsk kvik- myndafyrirtæki, Latema Film og Egmont Imagination, hafa ýtt á að þessi samningur taki gildi því að bæði fyrirtækin undirbúa fram- leiðslu á kvikmynd og sjónvarps- myndum í samvinnu við kanadíska aðila. Kanadamenn hafa staðið framarlega í kvikmyndagerö, eink- um í gerð fræöslumynda. Vagga kvikmyndagerðar er hins vegar tal- in vera í Danmörku en Danir voru öflugasta kvikmyndaþjóðin á tímum þöglu myndanna og urðu kvik- myndaver Nordisk Film i Valby fyr- irmynd kvikmyndaveranna í Hollywood. Nýr leiðtogi Afríska þjóðarráðsins: Engar þvinganir - til að breyta viðhorfum hvítra Thabo Mbeki tekur við formennsku Afríska þjóðarráösins af Nelson Mandela. Símamynd Reuter. Hinn nýi leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins í Suður-Afríku, Thabo Mbeki, ætlar sjálfur að leiða barátt- una fyrir því að breyta viðhorfum hvítra. Hann ætlar sérstaklega að beina athyglinni að stórfyrirtækjun- um til þess að hvetja til fjárfestinga og auka skilning á markmiðum rík- isstjórnarinnar. Mbeki segir að þrátt fyrir aug- ljósa andstöðu hvítra við hina nýju stjórn ætli hann ekki að grípa til lagabreytinga. Hann ætlar til dæm- is ekki að þvinga fyrirtæki til að láta fé af hendi rakna til menntunar blökkumanna eða bæta skilyrði þeirra á annan hátt. Búist er við að Mbeki, sem er 55 ára, verði forseti S-Afríku þegar Nelson Mandela lælnr af embætti 1999. Hann er varaforseti landsins og það er í raun hann sem stýrir daglegum ríkisrekstri. Augljóst þyk- ir að hann hafi lengi stefnt að for- setaembættinu. Faðir Mbekis, sem er kennari, var á sjötta áratugnum einn af þekktustu leiðtogum Afríska þjóðar- ráðsins. Árið 1962 flúði Thabo Mbeki til Bretlands. Nokkrum árum seinna útskrifaðist hann frá Sussex háskólanum með mastersgráðu í hagfræði. Á námsárunum starfaði hann fyrir útlagastjórn Afríska þjóðarráðsins. Eftir að náminu í Bretlandi lauk var Mbeki eitt ár í herþjálfun í Sovétríkjunum. Hann gekk síðan í kommúnistaflokkinn í Suður-Afríku og varð varð hægri hönd Olivers Tambos, þáverandi forseta Afríska þjóðarráðsins. En það var ekki fyrr en 1984 sem Mbeki kom fyrst fram í sviðsljósið er hann var tilnefndur opinber tals- maður Afríska þjóðarráðsins. Þá hafði starfsemi ráðsins veriö bönn- uð í 25 ár, Nelson Mandela sat enn í fangelsi og áróðursvél yfirvalda lýsti ráðinu sem kommúnískum hryðjuverkasamtökum. Mbeki kom öðruvísi fyrir en hvitir bjuggust við af talsmanni Afríska þjóðarráðsins. Hann var nú- tímalegur, menntaður og yfirvegað- ur. Hann hafði auk þess mikla út- geislun. Ári eftir tilnefninguna sem talsmaður ráðsins var Mbeki í for- svari nefndar sem átti viðræður við hvíta kaupsýslumenn í Sambíu. Tveimur árum seinna var aftur fundað með hvítum og í þetta sinn með breiðari hópi. Þáverandi forseti S-Afríku, P.W. Botha, varð ösku- reiður. Hann sá þá líklega fyrir sér upphafið að endalokum stjómar hvítra. Þegar Mandela var látinn laus 1990 hvarf Mbeki úr sviðsljós- inu en hélt stöðu sinni í innsta hring. Nú er hann kominn í sviðs- ljósið á ný. Reuter í þorramatinn Pólitík DV, Ósló: „Þetta er bara hinn pólítíski veruleiki. Við viljum selja og Islend- ingar vilja kaupa en við getum tæp- ast hætt á að grafa undan stefnu okkar í hvalveiðimálum meö því að heimila útflutning,“ segir Hallvard P. Johannsen, deildarstjóri í norska sjávarútvegsráðuneytinu, við DV um þá ósk Nóatúns að fá 100 tonn af hvalspiki keypt í Noregi. í Noregi eru nú rúmlega 700 tonn af spiki í frysti en vegna alþjóðlegs banns á viðskiptum með hvalafurð- ir er ólíklegt að norska sjávarút- vegsráðuneytið gefi leyfi fyrir út- flutningi. Norðmenn hafa ekki sam- þykkt viðskiptabanniö en vilja samt ekki ögra almenningsálitinu í heim- inum. íslendingar verða því að not- ast við „pólitískan veruleika" í stað hvalspiks á þorranum nú eins og imdanfarin ár. „Við höfum ekki afgreitt málið endanlega og það verður trúlega ekki gert fyrr en eftir áramótin þegar sjávarútvegsráðherrann kemur úr jólafrii,“ segir Hcillvard. Hann sagði þó að stefna Noregs í útflutningsmálinu væri skýr eftir aö Angelsen sjávarútvegsráðherra sagði á ársfundi hrefnuveiðimanna að ekki yrði um útflutning að ræða í bráð. GK Kauphallir og vöruverð erlendis New York 8500 iDowJoncs 8000 7500 7000 6500 ?D2U,Ha S 0 N D London 5500 j R-SE100 |gg j 5000 ( 4500 4000j 5168,3 c ; 0 N D Sykur 400 200 ý 306,2 $/t ™ o * N D Kafff 2000 1500 1000 500 0 1812 $/t S 0 N D Bertsín 95 okí. 220 160 $/‘ S 0 N D Tokyo 180 Nlkkel 170 H 160 150 140 16161,64 B 0 N D Bensín 98 okt. 220 Hráolia 25 15 /' io jjjj 5 í; 0 17,23 $/ S tjinna S 0 N D Aflífa gæludýr af ótta við fuglaflensu Yfirvöld í Hong Kong gáfú í gær út yfirlýsingu um að ekki j væri mikil hætta af fúglaflens- unni sem tveir hafa látist úr. í yf- irlýsingunni sagði að Hong Kong s væri ekki hættusvæði fyrir ferða- I menn. Hópar ferðamanna eru / farnir að aflýsa ferðum til Hong j Kong. | Yfirlýsingin var gefm út um leið og flensufræðingur frá Al- ' þjóðaheilbrigðismálastofnuninni Íkom til Hong Kong til að aðstoða við að koma í veg fyrir út- breiðslu flensunnar. Lítil hætta væri á að fá flensuna létu menn vera að gæla við fugla og þvægju sér um hendur. Bent var á að Íekki heföi verið staðfest að flens- an bærist milli manna. Tveir Hong Kong búar hafa látist af völdum fuglaflensu og átta smit- ast. Fleiri hafa látið aflífa gælu- dýr sín en venjulega og er ástæð- | an talin ótti við smit. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- ; in sagði einnig í gær ástæðulaust aö óttast að flensan yrði faraldur. Draugurí j háskólanum í Cambridge Dularfull vera gengur nú aftur ií í Cambridge-háskólanum. Óró- ! legir prófessorar vilja nú fá að- :j stoð særingamanns. Þrír aðilar, i sem taldir eru áreiðanlegir, hafa ’ sagst hafa séð drauginn. Einum í þeirra, sem hafði setið við vinnu j: síðla kvölds, sagðist svo frá: „Það fyrsta sem ég tók eftir jj var að það var mjög kalt í her- jj berginu þó að kveikt hefði verið upp í því. Ég heyrði hávaða en hélt að það væri í miðstöðvar- kerfinu. Svo fann ég fyrir nær- veru einhvers og sneri mér við. í fjarlægu horni herbergisins var vingjarnleg vera.“ Talið er að það sé Francis Dawes, sem hengdi sig eftir um- j deildar skólakosningar á 18. öld, 1 sem gangi aftur. Dawes liggur ' grafinn í kirkjugarði við hliðina J á háskólanum. Minni lífvarðar Díönu lagast ekkert Lífvörður Diönu prinsessu, í Trevor Rees-Jones, var yfirheyrð- J ur í gær í París í þriðja sinn um • mögulega ástæðu bílslyssins sem * olli dauða prinsessunnar og ást- j manns hennar. Lífvörðurinn var ; yfirheyrður í tvær klukkustund- j ir en kvaðst ekkert muna um at- j vikin sem leiddu til bílslyssins. Rannsóknaraðilar eru sann- j færðir um að bíllinn sem prinsessan var í hafi lent í f árekstri við annan bíl. Tuttugu j og fjórir lögreglumenn vinna enn að rannsókn málsins. Rees-Jones virtist utan við sig | er hann kom til Parísar í gær. ' Djúp rauð ör voru í kringum j: vinsfr-a auga lífvarðarins og ; vinstra megin á andliti hans. Hástéttirnar velja sór labrador íbúar í hástéttahverfum Stokk- hólms fá sér labradorhund en : scháfer er algengasta hundateg- | undin i verkamannahverfum, að því er sænska dagblaðið Dagens Nyheter greinir frá. Labradorinn þykir hreinlegur og glæsilegur en scháferinn gagnlegur til margs. Flestir smáhundar í Stokkhólmi eru í hverfinu j Östermalm sem þykir fínt hverfi. Talsmaður sænsks hundafé- lags kveðst telja að þrátt fyrir I þessar staðreyndir láti menn hjartað ráða þegar þeir kaupa sér j hund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.