Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 JLÍ’V Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skritstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpJ/www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. Það kostar klof að ríða röftum Nokkur atriði benda til, að Bandaríkin valdi ekki for- ustuhlutverki sínu sem eina heimsveldið eftir fall Sovét- ríkjanna. í vaxandi mæli eru Bandaríkjamenn farnir að draga sig inn í skel og láta öðrum og einbeittari aðilum eftir leikvelli og vígvelli veraldarsögunnar. Þar með eru Bandaríkin að hverfa aftur til fyrri sjón- armiða. Þau voru einangrunarsinnuð, áður en þau voru dregin út í aðild að tveimur heimsstyrjöldum á þessari öld. Áður töldu menn að þetta nýja himnaríki á jörð ætti ekki að sinna erjum gamla heimsins. Bandarískir fjölmiðlar endurspegla áhugaleysi al- mennings á erlendum málum og bandarískir þingmenn telja sér vænlegt til framdráttar í kosningum að reka einangrunarstefnu. Með sífelldum hótunum hafa þeir kjarklítinn forseta meira eða minna í gíslingu. Nú er svo komið, að Bandaríkin neita beint eða óbeint að taka þátt í margvíslegu samstarfi ríkja, með tilvísun til þess, að slíkt fáist ekki samþykkt í þinginu. Eða þá að stjórnarerindrekar reyna að hafa sitt fram á alþjóðavett- vangi með því að nota þingið sem Grýlu. Bandaríkin menga andrúmsloftið tvöfalt meira á hvern íbúa landsins en Evrópumenn gera. Samt vildu sendimenn Bandaríkjanna á mengunarfundinum í Kyoto ekki ganga eins langt og Evrópumenn í aðgerðum gegn mengun og fengu dregið úr markmiðunum. Það fylgir sögunni, að niðurstaða fundarins í Kyoto verði ekki lögð fyrir bandaríska þingið, því að þar verði hún felld. Þess í stað ætlar forsetinn að setja málið í salt og bíða betri tíma með blóm í haga. Þetta er skólabókar- dæmi um kjarkleysi framkvæmdavalds. Bandaríkin greiða ekki skuldir sínar við Sameinuðu þjóðirnar, en vilja samt nota samtökin sér til framdrátt- ar gegn einkaóvinum sínum á borð við Persa. Aftur er vísað til bandaríska þingsins, sem gerir þó ekki annað en að meta, hvað sé hægt að bjóða kjósendum. Bandaríkjastjórn neitar að taka meira en málamynda- þátt í kostnaði við stækkun Atlantshafsbandalagsins og vísar til þess, að bandariska þingið muni ekki telja slíkt vera boðlegt kjósendum. Evrópuríkin verði að fara að sjá meira um sig sjálf, sem vel má satt vera. Ef bandarískir kjósendur láta ekki bjóða sér að taka til jafns við aðra þátt í kostnaði við rekstur Sameinuðu þjóðanna, við minnkun á mengun andrúmsloftsins og við stækkun Atlantshafsbandalagsins, er forustuhlut- verk Bandaríkjanna á fjölþjóðavettvangi að molna. Bandaríkin eru um það bil að koma sér út úr húsi hjá samanlögðum ríkjum íslams. Ráðstefna á vegum Banda- ríkjanna um efnahagsmál Miðausturlanda var hunzuð af fyrrverandi bandamönnum þeirra úr Persaflóastríðinu, svo sem Egyptalandi og Marokkó. Þetta stafar af innanríkismálum vestra. Þeirra vegna draga Bandaríkin taum ísraels gegn Palestínu. Öflugur þrýstihópur í Bandaríkjunum ræður stefnunni, þótt það geri þeim ókleift að hafa hemil á stjórn ísraels og skaði þannig heimsveldishagsmuni Bandaríkjanna. í hernaði hafa Bandaríkin átt erfitt síðustu áratugina. Þau flúðu af hólmi í Víetnam, Líbanon og Sómalíu. Og yfirburðir þeirra í hernaðartækni munu mega sín minna, þegar kjarna- og efnavopn dreifast svo mjög um heiminn, að þau komast í hendur skæruliða. Þegar hverfulir kjósendur þola ekki að sjá hermenn sína falla á skjánum, er ríkisvald þeirra að molna sem heimsveldi. Það kostar nefnilega klof að ríða röftum. Jónas Kristjánsson Bráðavaktin Við 19da stræti í Washington, á leiðinni frá sendiráði íslands við 15da stræti í áttina að Hvíta hús- inu, er skrifstofubygging, sem til- sýndar gæti verið tryggingarfélag í minni kantinum. Ef nánar er að gáð er það ekki svo fjarri lagi. Því að þetta er eins konar slysavarð- stofa eða gjörgæsludeild heims- hagkerfisins: Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn, öðru nafni IMF. Þeir sem þarna grúfa sig yfir tölvuskjáina eru um eitt þúsund talnabryðjar (öðru nafni hagfræð- ingar) af öllum heimshornum. Þeir eru á bráðavaktinni allan sól- arhringinn. Ef ríkisstjórnum 180 aðildarríkja hlekkist á í hagsveifl- unni eru björgunarleiðangrar sendir á staðinn með röntgen (greiningu), blóð (skammtímalán) og fyrirmæli um endurhæfingu (kerfisbreytingar). Ríkisstjórnir borga fyrir læknismeðferðina með því að afsala sér efnahagslegu full- veldi meðan á meðferð stendur. Þjóðir í gjörgæslu Sjötíu og fimm aðildarþjóðir eru nú í gjörgæslu, í misjafnlega alvarlegu ástandi. Frá Albaníu til Zimbabwe og allt þar á milli. Rússland og A-Evrópa eins og hún leggur sig. Nýjustu innlagnir á bráðavaktina eru hagvaxtarvilli- dýrin frá Asíu, sem áður léku sér spræk og frjáls í frumskóginum. M.a.s. Japan h/f þurfti mikið blóð um daginn. S-Kórea er hins vegar þegar komin í súrefniskassann. Sérfræðingarnir á bráðavakt- inni varðveita sjúkrasögu sjúk- linga sinna (betur en Esra) út yfir gröf og dauða. Þeir birta ekki sjúkraskýrslur sínar. En þeir krefjast skilyrðislausrar hlýðni af þeim tæplega tveimur milljörðum jarðarbúa, sem nú sæta meðferð. Ella er læknismeðferð einfaldlega hafnað. Gjörgæslan hefur nú um 200 milljarða dala til ráðstöfunar. Ríkisstjómir sem hafa sólundað lánstrausti sínu eða em komnar í gin lánahákarlanna á frjálsum markaði hafa ekki efni á að hafna læknisráðum IMF. En það kostar þá frelsið - sem ekki kunna hvort eð er með það að fara. Eyða um efni fram Syndir ríkisstjórna era eins og venjulega að eyða um efni fram. Hallarekstur, viðskiptahalli, skuldasöfnun, seðlaprentun, verð- bólga. Þetta endar í fjárflótta og gengisfellingum. Það þýðir verð- bólgu, okurvexti, samdrátt, skatta- hækkanir og atvinnuleysi fyrir al- menning. Og ríkisstjórnir leita aldrei á náðir slysadeíldar fyrr en um seinan. Þá er venjulega búið að nota öll kvalastillandi lyf sem tiltæk eru: Styrki, niðurgreiðslur, kvótakerfi, millifærslur - öll þessi gömlu og ofnotuðu fúkkalyf vemdarstefnunnar, sem voru ær og kýr þjóðríkisins fyrir daga al- Erlend tíðindi Jón Baldvin Hannibalsson þjóðavæðingar. En nú duga þau ekki lengur. Sjúklingurinn hefur smám saman byggt upp mótefni - er kominn með ofnæmi. Lyfseðill bráðavaktarinnar er satt að segja alltaf sá sami: Hættið hallarekstri. Leggið af styrki og niðurgreiðslur. Skerið niður út- gjöld eða hækkið skatta. Skráið gengið rétt (eða leggið af veik- burða gjaldmiðla). Seljið vernduð ríkisfyrirtæki (t.d. P&S). Opnið fyrir samkeppni, sérstaklega á fjármála- og fjarskiptamörkuðum. Ella verður ykkur ekki bjargað. Var einhver að spyrja um lýð- ræði? Fáktækur maður er ófrjáls maður. Þjóðir eru undir sömu sök seldar. Fullveldið mælist í gjald- eyrisforðanum. Framfarir töfðust En hvemig hafa læknisráðin gefist í reynd? Misjafnlega. Þeir klikkuðu í Rússlandi og fyrrum samveldislöndum, með því að hengja þau aftan í ónýta rúblu. Þar með töfðust framfarir í ára- tug. Albanía og Búlgaría misstu meðvitund í höndunum á þeim. Þeir voru gripnir sofandi á vakt- inni með Mexíkó 94 - en tóku sig á og redduðu sjúklingnum á sein- ustu stundu. Hvað með Asíu? Fyr- ir fáeinum mánuðum hældu sér- fræðingarnir Asíuríkjum upp í hástert, í ársskýrslum sínum, fyr- ir heilbrigt líferni. Nú heimta þeir allt í einu innlögn í súrefniskassa. Landlækni þætti það skrýtið. Hvað er að? Bráðavaktin í Was- hington hefur ekkert að kenna As- íubúum í hagfræði: Þeir höfðu hagstæðan viðskiptajöfnuð, tekju- afgang í ríkisbúskapnum, hátt spamaðarhlutfall, lága verðbólgu og sterka samkeppnisstöðu á út- flutningsmörkuðum. Hvað var þá að? Pólitík. Sjúkdómurinn flokk- ast undir K-in þrjú í anatómíunni: Kvótakerfi, klíkuveldi og kerfís- spilling. Við þessum (pólitísku) meinsemdum kann bráðavaktin engin ráð. En þessar memsemdir geta dregið til dauða - nema farið sé í uppskurð. Michel Camdessus, framkvæmdastjóri Alþjóöa gjaldeyrissjóösins, IMF, í ræöustóli í Hong Kong fyrr í vetur. Símamynd Reuter Qíoðanir annarra Nýir menn í Afríku „Stór hluti Afríku hefúr í minna mæli en önnur j lönd fengið að njóta alþjóðlegra fjárfestinga og mörg I Afríkulönd era að hruni komin vegna blóðugra ætt- flokkaátaka. En á síðasta ári varð hagvöxturinn meiri, í prósentum talið, en manngjölgunin í 33 löndun sunnan Sahara . Hagvöxturinn varð sjö pró- sent eöa meiri í fimm þeirra. Hópur nýrra leiðtoga I hefur komið í stað gamalla harðstjóra og í sumum tilvikum hafa þeir reynt að koma á nýjum siðum.“ j Úr forystugiein Washington Post 17. desember. Auga með Microsoft „Þaö er rétt hjá bandaríska dómsmálaráðuneyt- Iinu að hafa vökult auga á Microsoft. Það getur eng- inn ásakað fynrtæki sem skapar sér einokunar- stöðu vegna einstakrar framleiðslu. Málunum er öðruvísi farið sé einokunarstöðunni náð með harka- legum viðskiptaaðferðum eins og virðist vera hjá | Microsoft. Heimurinn hefur fengið mikið vegna liHiiMglBMiiigMniii-ir-iiniiriiir'MviiriiimnnfiiiwmwriTi'-11 ■...nfwnniinniii Microsoft en á á hættu að tapa því öllu og meiru verði niðurstaöan sú að frjáls samkeppni verði und- ir.“ Úr forystugrein Jyllands-Posten 15. desember. íranir víkja ekki „Það er erfitt að túlka skilaboðin frá Teheran en það er enn erfiðara að ala von í brjósti um að yfir- völd í íran óski í raun og veru að taka upp stefnu sem umheimurinn sættir sig við. Mohammed Khatami forseti gat þess fyrir nokkrum dögum að þjóð sín hefði áhuga á betri samskiptum við „hina stóru amerísku þjóð“ en bætti því við stjórnmála- menn Bandaríkjanna kæmu því miður í veg fyrir viðleitni í þá átt. Fyrra atriði yfirlýsingarinnar má með góðum vilja túlka sem að Khatami geti verið svolítið frjálslyndari en stjórnin sem hann stýrir. Seinna atriðið er í þágu byltingaraafla innan stjóm- arinnar, prestanna sem líta á Bandaríkin sem djöf- ulinn.“ Úr forystugrein Aftenposten 18. desember. mmmmmmsm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.