Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
27
+ðtal
Hermann getur orðið meðal þeirra bestu í ensku knattspyrnunni:
Framtíðarmaður
- segir Steve CoppeL framkvæmdastjóri Crystal Palace
Steve Coppel er framkvæmda-
stjóri Crystal Palace. DV hitti hann
að máli eftir stutta æfingu á æfinga-
svæði félagsins í Mitcham daginn
fyrir leikinn gegn Liverpool um síð-
ustu helgi. Hann brást vel við
beiðni um stutt spjall um íslenska
knattspyrnumanninn sem leikur
með liði hans. Coppel lék sjálfur um
árabil í ensku knattspyrnunni, m.a.
með Manchester United og enska
landsliðinu, og þykir vera að gera
góða hluti með Crystal Palace.
Coppel leyndi engu um ánægju sína
með Vestmannaeyinginn unga,
bæði sem leikmann og ekki síður
sem manneskju.
„Hermann hefur staðið sig afar
vel og hefur tekið meiri framforum
en nokkur hér gat ímyndað sér eða
þorað að vona. Hann kemur hingað
23 ára gamall frá 5.000 manna
byggðarlagi, í London búa um 11
milljónir manna og maður verður
að gera ráð fyrir að margt geti trufl-
að unga menn við slíkar aðstæður,
heimþráin t.d. Ég reiknaði því ekk-
ert frekar með því að geta notað
hann á þessu tímabili en mér til
mikillar furðu hefur hann náð að
laga sig að öllu hér á ótrúlega
skömmum tíma,“ segir Steve um
strákinn og er ekkert að skafa af
þvi.
Margir vilja starfið
Steve segir að Hermann komi úr
áhugamannaknattspyrnu þar sem
áhorfendur séu yfírleitt í kringum
þúsund. Hann hafi varla leikið á
grasvöllum í meira en fjóra mánuði
á ári og leikmenn sem komi úr slík-
um aðstæðum þurfi yfirleitt alveg
eitt tímabil til þess að venjast
breyttum aðstæðum. Þeir fari yflr-
leitt ekki að sýna sitt besta fyrr en
að fyrsta tímabilinu liðnu og því
eigi Hermann mikið inni. Það von-
ar hann að minnsta kosti.
„Hér skipta áhorfendur oft tugum
þúsunda á leikjum og Hermann á í
harðri samkeppni. Þeir eru ófáir
sem sækjast stíft eftir starfinu hans
á vellinum. Hermann hefur vissu-
lega gert mistök eins og aðrir en
hann lærir af þeim. Fram til þessa
hefur strákurinn spjarað sig í gegn-
um þetta allt,“ segir framkvæmda-
stjórinn.
Aðspurður hvernig það hefði
komið upp að Crystal Palace fékk
augastað á Hermanni segir Coppel
að forseti félagsins eigi góðan vin
sem sé kvæntur íslenskri konu.
Hún hafi spurst fyrir og menn hafi
bent á Hermann. Hann segir að
Dave Basset hafi verið fram-
kvæmdastjóri þá og honum hafi
ekki likað við Hermann. Honum
hafi fundist að það sem þeir þegar
hefðu væri jafngott. Sjálfum fannst
Steve Hermann betri en það sem
þeir voru með. Hann sá strákinn
síðan spila í Keflavík á liðnu sumri
og varð ekki fyrir neinum vonbrigð-
um. Forsetinn hafi aðeins fengið að
kynnast honum og líkað vel við
hann sem manneskju. Menn hafi
séð í honum saklausan ungan mann
sem því miður sé sjaldséð í London.
Stendur ekki á sama
„Hermann hefur líka fallið vel
inn í liðið. Hann er vinstrifótarmað-
ur og getur því líka spilað stöðu
vinstri bakvarðar. Við höfum bara
einn í þeirri stöðu í liðinu og því
gefur hann okkur meiri breidd.
Hann er góður skallamaður og
snöggur en það sem er þó mest um
vert; honum stendur ekki á sama.
Atvinnumenn þurfa að láta hjartað
fylgja sér til þess liðs sem þeir fara.
Hermann vill gera vel, fyrir sjálfan
sig, félagið og ekki síst félagana í
liðinu."
Aðspurður hversu langt Her-
mann gæti náð á næstu árum sagð-
ist Coppel ekki vera í neinum vafa
um að hann gæti náð eins langt og
hann sjálfur vildi. Hann hefði sann-
arlega hæfileikana til þess að verða
meðal þeirra bestu í deildinni. Allt
væri þetta þó undir honum sjálfum
komið hvernig hann brygðist við og
hvernig lífið þróaðist.
„Hvað svo sem verður mun hann
geta séð vel fyrir sér sem knatt-
spyrnumaður hér. Hann hefur
reynst okkur vel og gefið okkur
margt. Það sem hann kemur með í
Steve Coppel er hæstánægöur meö Hermann Hreiöarsson og hælir hon-
um í hástert í samtali við DV. DV-myndir Pjetur
fótboltann er sakleysið sem svo
sannarlega á heima i honum. At-
vinnumenn eru of oft of miklir at-
vinnumenn. Hermann á það til að
sparka á milli með krökkunum í
hverfinu og það þykir okkur vænt
um. Slíkt gera atvinnumenn aldrei í
dag,“ segir Coppel og bætir við að
Hermanni hafi ekki fylgt nein vand-
ræði. Hann hafi einu sinni komið
tíu mínútum of seint, það sé allt of
sumt.
„Hann hlýtur að sakna margs frá
íslandi en þegar ég spurði hvort
hann væri haldinn einhverri heim-
þrá neitaði hann því. Það er gott
fyrir okkur. Hann má fá heimþrá í
júni,“ sagði þessi skemmtilegi fram-
kvæmdastjóri í viðtali við DV.
-sv
Kaup aldarinnar
í breskum fjölmiðlum hefur verið
rætt um kaup aldarinnar þegar C.
Palace keypti Hermann en drengur-
inn segist ekki láta athyglina trufla
sig.
„Ég verð feginn ef þeir segja það
þegar tímabilinu lýkur. Ég er héma
til þess að læra. Heima var ég að
vinna í síldarfrystingu, loðnu-
bræðslu, netagerð og ýmsu öðru og
það þarf varla að fara um það mörg-
um orðum hversu mikil forréttindi
það eru að fá að lifa af því að spila
fótbolta. Um leið og hægt er að ein-
beita sér að þessu breytist allt. Þá
láta framfarirnar ekki á sér standa.
Þetta er hreint út sagt frábært, að
fá borgað fyrir að spila fótbolta og
hafa meira að segja meira upp úr
því en á vertíð. Þá vann maður tólf
tíma á sólarhring og svitnaði eins
og á fimm æfingum."
Þekkja gallana
Aðspurður hvað þurfi til þess að
hann geti endað á meðal þeirra
bestu segir Hermann að sjálfsgagn-
rýni leiki þar stórt hlutverk. Hann
þurfi að læra að þekkja gallana og
vinna í þeim. Geri hann það og
leggi sig fram eins og hann frekast
geti sé varla hægt að ætlast til að
hann geri meira. Þá verði hann
bara að sjá hvert það skili honum.
Hann segist lítið spá í framhaldið í
fótboltanum, ný lið eða þess háttar.
Hann ætli fyrst að standa sig hjá C.
Palace.
Unnusta Hermanns er knatt-
spyrnukonan Ragna Lóa Stefáns-
dóttir sem komst í fréttir eftir al-
varlegt fótbrot í leik í sumar sem
leið. Hún veiktist alvarlega í kjöl-
farið og var vart hugað líf fyrst á
eftir. Allar aðstæður hafa hagað því
þannig að hún fylgdi unnustanum
ekki utan, hefur reyndað skroppið
nokkrum sinnum og dvelur ytra nú
um jólin.
Lifnar yfir heimilinu
„Maður hefur ekkert verið að
svekkja sig á þessu og þegar allt er
skoðað má kannski segja að þetta
hafa verið ágætt svona. Ragna Lóa á
tvö börn á skólaaldri og maður þarf
tima til þess að finna heppilegt hús-
næði í barnvænu hverfi. Við stefn-
um að því að hún flytji utan með
börnin í haust og þá lifnar yfir
heimilinu. Maðm- hefm- vissulega
verið nokkuð mikið einn fram til
þessa,“ segir Hermann Hreiðarsson
sem fagnar veru Stefáns Þórðarson-
ar hjá félaginu. Hann geti alltaf far-
ið með honum heim á hótel eftir æf-
ingar til þess að fá sér að borða. -sv
í skólann
kr. 96.900
Raðgreiðslur
nnKim
Stórhöfða 16
sími: 587-1135
jMENSWEAR
LAUGAVEGI 61 • SÍMI 551 8001 • OPIÐ FRÁ 10:00-22:00