Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Side 47
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 51 ■v Tyrkir banna reykingar Tyrkir hafa ákveðið að láta ekki sitt eftir liggja í að banna reykingar á opinberum stöðum. Nú er bannað að reykja á skrifstofúm þar sem fleiri en fjórir starfa. Þá er bannað að reykja í abnenningsfarartækjum, á íþróttaleikvöngum, á sjúkrahús- um, í skólum og á stöðum þar sem menningarlegir atburðir fara fram. Glæpatíðni eykst í Mexíkó Mexíkó-borg hefúr ailtaf haft slæmt orð á sér þegar glæpi ber á góma. Borgarbúum og ferðamönn- um til skelfíngar hefúr glæpum í borginni flölgað um þriðjung M því á síðasta ári. Vasa- og töskuþjóf- ar eru afar kræfir í borginni einnig hafa óprúttnir náungar fúndið nýja leið til að rýja ferðamenn inn að skinninu. Þjófamir byija á því að ræna leigubílum og síðan er haldið á túristaveiðar. Ferðamenn sem hafa lent í slíkum leigubílum segja farir sínar ekki sléttar því ekið er með þá á milli hraðbanka þar sem þeir eru neyddir til að taka út á kort sín þangað til ekkert er eftir. Hraðlest til London Senma í mánuöinum verður ný hraðlest á miili Heathrow-flugvailar og miðborgar London sett af stað. Fyrirhugað var að lestin hæfi ferðir fýrir nokkru síðan en öryggisatriö- um hefúr verið ábótavant. Þeim at- riðum hefúr nú verið kippt í liðinn og reiknað er með að full áætlun verði komin í gagnið í júní næsta sumar. Lestarferðimar verða á miili Paddington og Heathrow og er gert ráð fyrir því að ferðatíminn verði mun styttri en nú er. Þrír tenórar í París Nú hefúr verið ákveðið að tenór- amir þrír, Carreras, Domingo og Pavarotti, muni koma fiam á opn- unarhátíö heimsmeistarakeppninn- ar í knattspymu. Opnunar- hátíðin mun farafram þann 10. júní á næsta ári, á Mars-vell- inum sem er staðsettur við hliö Eif- feltumsins. Yfirvöld í París gera ráö fyrir miklum straumi ferðamanna dagana sem keppnin stendur yfir og hafa gefið út yfírlýs- ingu þess efnis að mikiö verði um dýrðir og eiga þá ekki bara við sparklistina heldur hefúr fjöldinn allur af listamönnum verið boðaður til borgarinnar til þess að skemmta fólki á milli leikja. Þeir sem hyggjast sækja leiki keppninnar þurfa að bóka sig hiö fyrsta því nú þegar era hótel á þeim stöðum sem keppnin fer Mm í Frakklandi aö verða fullbókuö. @.afyr:Háloftaveiki eða timbur- menn Nýjar rannsóknir í Bandaríkjun- um hafa leitt í ljós að fjöldi fólks sem dvelur á skíðastöðum sem em ofar en 2600 metrar yfir sjó þjáist af háloftaveiki. Sérfræðingamir segja ferðamenn oft ekki átta sig á hvað amar að enda telji flestir sig vera með timburmenn. Háloftaveiki get- ur verið alvarleg og kann að draga menn til dauða. Því er fólk sem dvelur á fjöllum hvatt til að leita læknis ef það finnur fyrir óþægind- um og slappleika. Gljúfrin þrjú undir vatn í Sichuan-héraði í Kína em þrjú undurfogur gijúfúr í Yangtseánni sem hingað til hafa laðað til sín ferðamenn i miklum mæli. Dagar gljúfranna era hins vegar taldir því á næsta ári hyggja Kínveijar á mikla stíflugerð í ánni og þá munu gljúfrin tæmast. Ferðaskrifstofan Explore Worldwide hyggur á sið- ustu ferðina að gljúfrunum í núver- andi mynd þann 23. apríl næstkom- andi. Ferðin tekur sextán daga og verður meðal annars farið i þriggja daga siglingu um gljúfiin. Drangaskörð á Ströndum. DV-mynd GVA KápUVfrá kr. 7.900 Jakkarfrá kr. 6.900 fjlpUVfrá kr. 6.900 Pelsarfrá kr. 9900 Nylon-jakkar frá kr. 6.900 Mörg sttiö — margir litit ffíáfiusalan Snorrabraut 56 562 4362 K ;T Strandasýsla: Ferðaþjónusta í örum vexti DV, Hólmavík: Kynningarátak ferðaþjónustuað- ila um kosti Strandasýslu sem án- ingarstaðar áhugafólks um útivist og unnenda náttúrufegurðar var haldið með fúiltrúum frá velflestum fiölmiðlum landsins 6. desember á Drangsnesi. Opnun upplýsingamið- stöðvar á Hólmavík, þátttaka í at- vinnuvegasýningu og útihátíðir var meðal þess sem fram kom á fjöl- mennum fúndinum sem Ferðamála- félag Strandasýslu stóð fyrir. Dorothee Lubecki ferðamálafull- trúi sagði frá fjölmörgum atriöum sem unnið er að hjá Atvinnuþróun- arfélagi Vestfjarða þar sem hún er starfsmaður. Þættir sem skapa fleiri störf í ferðaþjónustu svo og bætt að- gengi ferðafólks að helstu náttúru- perlum svæðisins er veigamikill þáttur. Hvað Strandasýslu áhrærir voru merktar 2 gönguleiðir og hald- ið vel sótt hleðslunámskeið. Ferða- fulltrúinn telur að slík verkefni falli velaö framtíðarskipán svæöisins. Á fundinum flutti erindi Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi ferðamálaráðs, um umhverfisstjóm- un fyrirtækja. Fór yfir helstu þætti þeirra umhverfisbætandi að- gerða,sem stjómendur bæði stórra og smárra fyrirtækja þyrftu af mörgum ástæðum að huga betur að og bæta. Vera meðvitaðri um hversu þýðingarmikið það er á þess- um tímum. Á fundinum var staðfest aö Jón Jónsson, þjóðfræðingur frá Steina- dal, sem mest og best hefur í ræðu og riti bent á þá kosti sem Stranda- sýsla hefúr sem útivistarsvæöi, mun næsta sumar halda áfram því starfi sem hann hefur unnið aö tvö imdan- farandi sumur fyrir Héraðsnefnd Strandasýslu og ferðamálafélagið. Elín S. Óladóttir hótelstýra, Laugar- hóli, er formaður félagsins. -Guðfinnur Sendum í póstkröfu, sími 566-8977 SONY Playstation 14.490: hvaðT annaðT ?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.