Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1997, Síða 63
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
F
I
I
l
l
I
l
I
l
j
»
I
i
»
»
»
»
»
viðtal
67
Mér er það alveg ljóst að
þetta er diskur sem mun
ekki falla öllum í geð. Unga
fólkið grettir sig yfir fiðlunni en
flestir þeir sem komið hafa til min
hafa lýst yfir ánægju með hann.
Flestir tala um að þetta sé svona
diskur sem þeir geti hugsað sér að
gefa móður sinni. Það finnst mér
ágætt og í raun nokkuð fyndið því
ég hugsaði með mér frá upphafi
að ég vildi gera disk sem mamma
mín yrði ánægð með,“ segir Dan
Cassidy, bandarískur fiðluleikari,
sem starfað hefur hér á landi í
nokkurn tíma. Hann sendi frá sér
geisladiskinn, On the Fiddle, á
haustdögum.
Dan var fyrstu tuttugu ár ævi
sinnar í Ameriku, fluttist þá til
Evrópu með fiðluna og hefur æ
síðan verið á faraldsfæti. Hann
hefur búið í Þýskalandi og Bret-
landi, fór í smátima aftur vestur
og lagði fiðluna til hliðar í ein
þrjú ár. Hann fór að vinna á skrif-
stofu og greip bara í hana sem
aukabúgrein. En síðan fór hann
að klæja verulega í fiðlufinguma.
Vinur hans var í skóla með ís-
lenskum tónlistarmanni, Stefáni
Ingólfssyni, í Los Angeles og þá
kviknaði hugmynd um að prófa
að fara til íslands. Dan Cassidy meö fiðluna
ína. Meö nýja disknum vildi hann kynna fiöluna fyrir íslendingum.
sem allir þekkja," segir Dan og er
ekki frá því að það hafi tekist.
Sá einstaklingur sem mest áhrif
hefur haft á Dan Cassidy er fiðlu-
leikarinn og íslandsvinurinn
Stephan Grappelli sem nú er ný-
látinn. Aðspurður hvers slags tón-
list sé á diskinum segist hanri'
hafa sett eitthvað af öllu á hann,
þar sé allt nema rokk. Það eina
sem tengi lögin saman sé að hann
spili á fiðluna í þeim öllum, ýmist
þar sem hann leikur listir sínar
með fiðluna í forgrunni eða undir
í söng.
Tileinkaður systurinni
„Ég tileinka diskinn systur
minni sem lést úr krabbameini
fyrir ári. Hún er án efa besta söng-
kona sem ég hef þekkt og nafp.
hennar, Eva Cassidy, er vel þekkt
í Ameríku. Hún syngur lög á plöt-
unni. Því miður hitti ég hana lítið
síðustu árin en ég á efni sem hún
gerði áður en hún dó og meö nýj-
ustu tækni get ég bætt fiðlunni
við það sem hún hafði gert,“ segir
Dan og það er greinilegt að hann
hefur verið nátengdur systur
sinni.
Dan segist áreiðanlega eiga eft-
ir að gera fleiri plötur og stefnir að
því að mennta sig pínulítið meira í
klassísku hlið tónlistarinnar.
Hann segist vel geta hugsað sér að
kenna og á ekki von á öðru en að
hann verði áfram á íslandi. Hér
líði honum vel.
„Síðustu orð systur minnar^.
voru að ég væri mjög góður fiðlu-
leikari og að ég gæti spilað með
þeim sem ég vildi. Það gaf mér
aukið sjálfstraust og mig lcmgar
til þess að gefa meira út af efhi
með okkur saman,“ segir þessi
viðkunnanlegi fiðluleikari. Disk-
urinn er hinn áheyrilegasti, Ijúfur
og notalegur og það er greinilegt
að hér er mjög góður tónlistarmað-
ur á ferð.
-sv
Fannst Island stórkostlegasta land sem hann hafði komið til:
Góður fyrir mæður
- segir fiðluleikarinn Dan Cassidy um nýja geisladiskinn sinn
Varð að flytja
„Ég hafði verið í ferðabransan-
um og gat því fengið ódýran flug-
miða. Því ekki að komahérna við
og skemmta sér svolítið? Síðan
var eitthvað við þetta land sem
gerði það að verkum að mér
fannst ég þurfa að flytja hingað.
Mér fannst strax að þetta væri
stórkostlegasta land sem ég hefði
komið til. Hér fannst mér að ég
gæti byrjað í tónlistinni aftur.“
Dan segir það hafa tekið
nokkurn tíma að komast inn í
bransann hér. Það sé ekki fyrr en
fyrir um tveimur árum sem hann
hafi farið að njóta virðingar. Aðal-
vinnan hans hefur verið að spila
með Pöpunum og síðan hefur hann
verið fenginn til þess að spila inn á
hinar og þessar hljómplötur.
„Einn góöan veðurdag fannst mér
vera kominn tími til þess að ég
sýndi hvað í mér býr. Ég var ekki
viss um hvemig ég ætlaði að borga
fyrir þaö en ég ætlaði að gefa út
disk. Fiðlan er ekki mjög vinsæl hér
og mér fannst að ég þyrfti að reyna
að breyta því, leyfa fólki að heyra
aðra hlið á henni en þá klassísku
FJORÐA UTKALLSBOK OTTARS SVEINSSONAR
TEtÉis: i efstii sætum
.. IIII PTO I I I I I O *T" fl
METSOLULISTA
DV OG MBL.
OTTAR SVEINSSON
ALLIR LESA
ISLENSKA
BÓKAÚTGÁFAN
SÍÐUMÚLA 11, stmi 581 3999
Ingvi Hallgrlt
á Dísatleih *. ■
og óvart skili
eftir úti ÍAtlar
ui Ih-Lir a liug, t„
losa flæktan spilvír.
í Vikartindí.
var vio pao av íai
oogum i mars.
Uji.
t-