Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 2
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 DV
2 *•téttir
*★ ★----
Friður 200 í írak:
Hættið að drepa
börnin mín
- sagði íslenski jólasveinninn á Habbiniya-flugvelli
„Flugiö er ákall til alþjóða-
samtaka um að aflétta yið-
skiptabanni á írak,“ sagði Ást-
þór Magnússon við íréttamann
Reuters á Habbiniya-flugvelli
um 100 km norðvestan viö
Bagdad, höfuðborg íraks í gær-
dag.
Ástþór Magnússon og sam-
tök hans, Friöur 2000, leigðu
rússneska flugvél til að fljúga
með jólagjafir og hjálpargögn
til bama í írak. Flugið tafðist
vegna vélarbilunar og varð
önnur flugvél með hjálpargögn
á vegum rússneskra þing-
manna undir handarjaðri þjóð-
emissinnans Shírínovskís á
undan véi Ástþórs. Hún lenti í
Bagdad í fyrrakvöld en auk
hjálpargagna vom í þeirri vél
21 rússneskur þingmaður,
samkvæmt fréttum Reuters.
Flugvél Friðar 2000 og ítal-
skra samtaka, sem kalla sig
Bridge to Bagdad, lenti um
tvöleytið í gær í írak eftir að
hafa flogið frá Lúxemborg og
millilent í Brindisi á S-Ítalíu og
Ástþór Mapnússon, t.h., ásamt Kristjáni Árnasyni á Keflavikurflugvelli áður en þeir lögðu
af stað til Iraks. Kristján kemur fram sem jólasveinninn en hann hefur ieikið jólasvein í
28 ár. DV-mynd ÆMK
á Kýpur þar sem tekið var
eldsneyti.
Vél friðar 2000 lagði af stað
frá Kýpur laust eftir kl. 10 í
gærmorgun og lenti í írak
um eittleytið. Fréttamenn
írösku fréttastofunnar INA
og fleiri fréttamenn tóku á
móti vélinni sem kynnt hefur
verið í írak sem hjálparflug
jólasveinsins. Þegar vélin
hafði verið stöðvuð steig
Kristján Ámason út úr henni
klæddur sem jólasveinn og
sagði við fréttamenn að
boðskapur jólasveinsins væri
þessi: Hættið að drepa börnin
mín. Ástþór sagði við kom-
una til íraks að skilaboö sín
til Bandaríkjamanna væm
einföld: Þeir ættu að hætta að
nota böm i pólitískum til-
gangi. „Böm era ekki póli-
tískt vopn,“ sagði Ástþór og
sagði að stöðva yrði við-
skiptabann á bamamat, lyf
og nauðsynjar fyrir almenn-
ing. Almenningur ætti engan
þátt í milliríkjadeilum. -SÁ
17 ára piltur ákærður fyrir þrjár stórfelldar og hrottafengnar líkamsárásir:
Hnífstunga, keðjuhögg
og sparkað í andlit
- á fjórtánda mánuð leið frá fyrstu árás þangað til ákæra var gefin út
Piltrn-, sem varð 17 ára í haust,
hefur verið ákærður fyrir þrjár
óhugnanlegar líkamsárásir - tvær
sem áttu sér stað seint á árinu 1996
og eina í ágúst síðastliðnum.
Athygli vekur að frá því að fyrsta
árásin átti sér stað, þegar pilturinn
var nýoröinn 16 ára, leið á fjórtánda
mánuð þangað til áltæra var gefin
út. Árásarmálin þijú era nú öll til
meðferðar í Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Fjórða árásarmálið á hendur
sama pilti er hins vegar enn í meö-
ferð hjá ákæravaidi.
í fyrstu árásinni, sem ákæravald-
ið telur allar stórfelldar, er piltin-
um, sem er sonur margdæmds af-
brotamanns, gefið að sök að hafa
slegið roskinn mann í andlit og höf-
uð meö keðju vafða um hönd sér.
Hann var að ráöast á manninn með
félaga sínum á föstudagskvöldi við
verslunarmiðstöðina Eiðistorgi.
Hinn roskni maður, sem er á sjö-
tugsaldri, hraktist undan höggum
piltanna með þeim afleiðingum að
hann festi fót í reiðhjólagrind, féll
aftur yfir sig með þeim afleiðingum
að snerist upp á fótinn þannig að
hann ökklabrotnaði. Félaga um-
rædds pilts er síðan gefið að sök að
hafa hrifsað poka af hinum slasaða
manni sem í var bjór og áfengi.
Önnur stórfellda líkamsárásin
átti sér stað við dómhúsið við Lækj-
artorg aðfaranótt laugardagsins 7.
desember 1996 - önnur árásin I lok
síðasta árs sem nú fyrst er verið aö
taka til dómsmeðferðar. Þar er pilt-
inum gefið að sök að hafa ráðist á
mann, tekið hann hálstaki, skellt
honum í götuna um leið og hann
sparkaði í andlit hans - afleiðing-
araar urðu nefbrot og skurður á
nefi þess sem ráðist var á. Maður-
inn krefst tæplega hálfrar milljónar
króna í skaðabætur.
Snemma morguns sunnudaginn
3. ágúst veittist pilturinn að manni
á Lækjartorgi og stakk hann með
hnífi í lærið. Maðurinn fékk djúpan
skurð og missti einn lítra af blóði.
Hann krefst 223 þúsund króna í
skaðabætur.
Eins og fyrr segir er fjórða lík-
amsárásarmálið til meðferðar á
hendur sama pilti hjá ákæravald-
inu. Búist er við að það verði dæmt
með framangreindum þremur lík-
amsárásum. -Ótt
Gleöin skin úr andliti kvikmyndaieikstjórans Ara Kristinssonar sem heldur
stoltur utan um aöallelkkonur kvikmyndarinnar Stikkfrí, þær Freydfsi Krist-
ófersdóttur og Bergþóru Aradóttur, rétt fyrir frumsýningu f gær. Freydfs er
aö þreyta frumraun sfna á hvfta tjaldinu en Bergþóra hefur áöur leikiö f Tár
úr Steini. Stikkfrf er gamansöm fjölskyldumynd og er sýnd í Stjörnubíói og
Háskólabfói. DV-mynd Hilmar Þór
Umboðsmaður Alþingis:
Afgreiðsla allt
of seinvirk
- óánægja vegna biðtima
Töluverðrar óánægju gætir með
störf umboðsmanns Alþingis vegna
þess langa tima sem getur tekið frá
því að mál era send til h^ns til af-
greiðslu og þar til umsogn berst.
Einn viðmælanda DV sagðist hafa
staðfestingu um það fyrir níu
um að öll nauðsynleg
;jöl vegna kvörtunar hans hefðu
>rist, en síðan ekki söguna meir.
Sá sagöi mjög bagalegt aö af-
greiðsla mála drægist sem raun
bæri vitni því oft væri um að ræða
einhvem úrskurð í launamálum eða
réttindi starfsmanna og fólk hefði
ekki ráð á að bíða svo lengi eftir að
komast til botns í þeim málum.
Gaukur Jörandsson, umboðsmað-
ur Alþingis, neitar að ræða um störf
sín viö fjölmiðla. Á skrifstofú hans
fengust þær upplýsingar að ekki
væri til nein samantekt um hversu
langan tíma það tæki að meðaltali
að afgreiða þau mál sem send væra
til umsagnar umboðsmanns.
í skýrslu umboðsmanns Alþingis
fyrir árið 1996, sem gefin var út í
september, kemur fram að 334 mál
hefðu verið skráð hjá hjá honum,
eða tæplega 30 mál á mánuði að
meðaltali. Alls vora 334 mál til af-
greiðslu á árinu og 144 mál vora óaf-
greidd frá árinu 1995. 347 mál vora
afgreidd á síðasta ári en 131 mál var
enn óleyst i byrjun árs 1997. Svo
virðist sem erfiðlega gangi að anna
þeim mikla fjölda mála sem koma
inn á borð umboðsmanns, a.m.k.
innan eðlilegra tímamarka.
-Sól.
stuttar fréttir
Fáir nautnaseggir
Djúpavogshreppur býöur nem-
| endum 7.-9. bekkjar grannskólans
til veislu í dag. Verið er að verð-
jlauna nemenduma fyrir hve fáir
jþeirra reykja og drekka. RÚV
j sagði frá.
Hamlet og Oaisy
I Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær-
kvöldi Hamlet eftir Shakespeare
sem er jólaleikrit leikhússins.
j Leikfélag Akureyrar frumsýndi
; sitt jólaleikrit sem er Á ferð með
Daisy. Það verk hefur ekki verið
áður sýnt hér á landi.
Lengur frjósamar
íslenskar hryssur era
fijósamastar eftir sex vetra aldur
| og eru lengur frjósamar en gengur
jog gerist um erlend hrossakyn,
i eða jafnvel ffarn yfir 20 vetra ald-
; ur. RÚV hefur þetta eftir tímarit-
i inu Eiðfaxa.
Friður 2000 vill Reykholt
Samtök Ástþórs
j Magnússonar, Frið-
ur 2000 hafa sótt
um að fá húsa-
’ kynni Reykholts-
skóla í Borgarfirði
j til að reka þar frið-
j ar- og fræðslusetur.
Lægri farmtryggingar
j Samtök verslunarinnar hafa
i samið við tryggingamiðlunarfyrir-
tækiö Alþjóðlega miðlun um að
j tryggja farm sem félagsmenn sam;
j takanna flytja til og frá landinu. í
5 frétt frá samtökum verslunarinnar
I segir aö samist hafi um verulega
; lægri farmtryggingar en hingað til
hafi sést hérlendis.
Gjaldfrestur
Borgarráð hefur samþykkt að
stefna að þvi að öldruðum verði
í veittur gjaldfrestur á fasteigna-
j gjöldum og komi gjöldin fyrst til
greiöslu þegar dánarbú viðkom-
j andi kemur til skipta, eða fasteign-
fii er seld af öðram ástæðum.
Friðlýst hús skattfrjáls
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu Ingibjargar
í Sólrúnar Gísla-
j dóttur borgar-
jstjóra um að þeir
| sem búi í friðlýst-
j um húsum geti
! fengið fasteigna-
jskatta af húsun-
j um fellda niður að uppfylltum
I ákveðnum skilyrðum.
Áhugi fjárfesta
Útlendingum, sem spyrjast fyrir
um fjárfestingar hér á landi, fer
jflölgandi að sögn Útflutningsráös.
I í fyrra bárast um 70 slíkar fyrir-
| spumir en i ár verða þær yfu 100.
j Snyrtivörur úr hreistri
Erlent fyrirtæki hefur áhuga á
: að vinna sérstakar snyrtivörur úr
| sildarhreistri hér á landi. Efniö
j sem það hyggst búa til er mjög eðl-
islétt og kallast Pearl Essence sam-
j kvæmt upplýsingum RÚV.
Örlagarík mistök
Örlagaríkustu stjómmálamistök
1 sem Islendingar
s hafa gert var aö
halda óbreyttri
kjördæmaskipan
I frá 1874 þegar
j heimastjórn var
innleidd árið 1904,
1 segir Gylfi Þ.
j Gíslason, fyrrv. ráðherra, við Vís-
j bendingu. Hann segir að nú verði
í að breyta kjördæmaskipan enn en
j vonandi þannig að hún verði einn
i af homsteinum heilbrigðs lýðræðis.
Mismunun leiðrétt
Samkeppnisráð hefur úrskurð-
j að að Skráningarstofúnni hf. beri
aö tilgreina vátryggjandann FÍB
j tryggingu, IBEX á eyðublaði fyrir
I tilkynningu um eigendaskipti öku-
j tækis. Skráningarstofan hefur
j ekki gert það hingað til vegna and-
jstöðu annarra tryggingafélaga og
j samtaka þeirra, SÍT. -SÁ
I
I
<
I
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<