Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Qupperneq 20
20 frettaljos LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 Síendurteknar stórdeilur um nýbyggingar í gömlum hverfum: Ekkert deiliskipulag skapar úlfúfl Lóðin við Laugaveg 53. Skipulagsnefnd hefur samþykkt byggingu nýs húss. íbúar hússins á myndinni, sem tilheyrir Grettisgötu, telja að húsið muni byrgja þeim útsýni og sólarsýn. Árekstrar af þessu tagi milli íbúa og húsbyggjenda og borgaryfirvalda hafa veriö tíðir undanfarið. Síendurtekin upphlaup og vand- ræði í sambandi við nýbyggingar í eldri hverfum Reykjavíkur hafa ver- ið í fréttum fjölmiðla síðustu mán- uði og er skammt að minnast fyrir- hugaðrar nýbyggingar við Lauga- veg 53 sem nýlega var samþykkt í skipulagsnefnd borgarinnar eftir hatrammar deilur bæði innan nefndarinnar og við íbúana í húsun- um á bak við nýbygginguna og til- heyra Grettisgötunni. Þá er ekki langt síðan önnur nýbygging við Grettisgötuna komst í fjölmiðla vegna hatrammra deilna íbúasam- taka á Skólavörðuholti við borgaryf- irvöld. Enn varð upphlaup vegna fyrirhugaðrar stórbyggingar við Skúlagötu í haust og nú í desember stöðvaði umhverflsráðuneytið ný- byggingu húss við Þórsgötu. Endurtekin upphlaup I þessari grein verður ekki tæm- andi upptalning á þeim deilum sem sprottið hafa síðustu mánuði vegna nýbygginga í gömlu hverfunum. Af nógu er af taka og því aðeins stiklað á þeim viðburðum sem mest áber- andi hafa verið í fjölmiðlum. Allar þessar deilur eru af sömu rót runnar: íbúar grannhúsa ný- bygginganna telja að nýbygging muni byrgja þeim útsýni og sólar- sýn og þrengja að þeim að öðru leyti. í sambandi við endurteknar uppákomur af þessu tagi bendir allt í sömu átt: Það vantar deiliskipulag fyrir eldri hverfin, þ.e.a.s. Skugga- hverfið, Þingholtin, miðbæinn og vesturbæinn. Væri til deiliskipulag er ólíklegra að endurteknar uppá- komur af þessu tagi ættu sér stað. Að minnsta kosti er líklegt að þær yrðu færri og ekki jafn hatrammar. Hörkudeilur Deilan um byggingu verslunar- húss við Laugaveg 53 er hat- rammasta deilan af þessu tagi en tvö önnur nýleg dæmi um árekstra af þessu tagi milli húsbyggjenda, skipulagsyfirvalda og ibúa er fyrir- huguð bygging stórhýsis við Skúla- götu framan viö blokk með íbúðum eldri borgara og fyrr var nefnd og húsbygging viö Þórsgötu. Við Skúlagötuna er byrjað að reisa hús sem íbúamir fullyrða að sé í fyrsta lagi stærra en byggingar- reiturinn er sem það á að standa á. Því til viðbótar verði húsið mun hærra en reglur leyfi. Sú umfram- hæð segir talsmaður íbúanna að sé fengin með því að hártoga bygginga- reglugerð og kalla efstu hæðimar eitthvað annað en hæðir og að kalla neðstu hæðina kjallara þótt hún sé öll ofanjarðar. Talsmaðurinn er gamalreyndur byggingameistari. Þórsgata 2 Síðasta dæmið af þessum toga er bygging á lóð við Þórsgötu 2. Sú bygging var stöðvuð af umhverfis- ráðuneytinu fyrir skemmstu eftir að íbúar í nágrenninu höfðu kært teikningar af húsinu. Ásteytingar- steinninn var þar sá að horn hins fyrirhugaða húss skagaði út á móti húsi við Óðinsgötuna. Uppákoman oli húsbyggjandanum miklum vand- ræðum, eins og fram kemur í frétt DV þann 20. desember og þurfti hann að láta breyta teikningum á nýjan leik og sækja svo enn um byggingarleyfi. Við vanda húsbyggj- andans bætist það að ný bygginga- lög taka gildi um áramótin og sam- kvæmt þeim ber að leggja teikning- ar fyrir skipulags- og umferðar- nefndir og skipulagsnefnd ber síðan að kynna nágrönnum þær. Þessi framgangsmáti tekur samkvæmt lögunum 28 daga. Geri nágrannar athugasemdir enn á ný þarf skipulagsnefnd að taka afstöðu til þeirra. Síðan þarf hún að senda málið til byggingar- nefndar sem tekur endanlega af- stöðu til málsins. Allt þetta ferli mun því standa fram í febrúar og fái húsbyggjandinn leyfi eftir þetta getur hann loks byrjað framkvæmd- ir á ný í febrúar. Hvað er deiliskipulag? Deiliskipulag er í rauninni innra skipulag hvers hverfis eða svæðis fyrir sig. Aðalskipulag tekur til heildarmyndarinnar, hvernig byggðin er hugsuð, hvar íbúðir skulu vera og hvar atvinnustarf- semi og hvernig byggðin á að liggja í landslaginu og samgönguleiðir vera að henni og innan hennar. Deiliskipulagið tekur síðan til nánari útfærslu hverfisins, hvað hús mega vera há o.s.frv. og hvern- ig götumyndin á að líta út í megin- atriðum. Þegar engin fyrirmæli um slíkt liggja fyrir, þ.e.a.s. ekkert deiliskipulag fyrirfmnst, er hættan augljós á því að deilur rísi um ný- byggingar, eða þá að hreinlega verði slys og hús rísi sem eru í litlu sam- ræmi við það sem fyrir er, eins og fiölmörg dæmi eru um í miðbænum. í flestum evrópskum borgum er í gildi deiliskipulag fyrir eldri hverfi og í því er mælt fyrir um hvemig hús eigi að vera, hversu há o.s.frv. Um leið og gamalt hús er rifið og nýtt byggt, vita menn nákvæmlega að hverju þeir ganga, bæði hús- byggjandinn og nágrannarnir. Laugavegur 53 Byggingin fyrirhugaða að Lauga- vegi 53 er sem fyrr segir alvarleg- asti áreksturinn sem orðið hefur á árinu. Á því svæði sem lóðin til- heyrir eru um 70 íbúðir og nánustu grannar nýbyggingarinnar eru mjög ósáttir viö hæð og fyrirferð hennar. —ft. AJft..ÉI!nlp"?r~ ■ Innlent fréttaljós -------- ' ",..........— Stefan Asgrimsson Umfangið sé þvilíkt að það byrgi þeim útsýni og myrkvi nánasta um- hverfi þeirra auk þess sem aðgengi og aðkoma verði stórum erfiðari. Kaupmenn og þeir sem reka at- vinnustarfsemi við Laugaveginn og i miðbænum almennt benda á hinn bóginn á að endumýjun verði að gerast í takt við nútímakröfur og ef ekki megi endumýja nokkum skap- aöan hlut á miðbæjarsvæðinu þá einfaldlega lognist það út af og breytist smám saman i niðumítt ör- birgðarhverfi. Báðir hafa mikið til síns máls: Miðbæjarsvæðið er í flestra huga svæði þar sem er verslun, þjónusta og íbúðir. Á slíku svæði eru vissir annmarkar hvað varðar búsetu, ekki sist fyrir barnafólk, en íbúarn- ir ganga sjaldnast að þeim gruflandi, enda vita þeir líka að bú- setu í sliku hverfi fylgja líka ótví- ræðir kostir, svo sem þeir að stutt er í alla þjónustu sem er í göngu- færi. Þó að íbúamir geti ekki vænst sömu aöstöðu þar eins og í úthverf- um borgarinnar, þar sem eru leik- svæði og öryggi fyrir böm, hefur búsetan ótvíræða kosti en nábýli at- vinnurekstrarins og íbúðabyggðar- innar kallar líka á umburðarlyndi af beggja hálfu. Það þarf að taka til- lit til íbúanna og húseigna þeirra, að ekki sé að þeim þrengt. Því hlýt- ur að teljast eðlilegt að taka tillit til íbúðabyggðarinnar og að þar sé birta, öryggi og umhverfið ofbjóði ekki íbúðarhúsunum, eins og Guð- rún Jónsdóttir arkitekt orðar það við DV. Sex bakhús Á Laugavegi 53 em sex hús sem standa á bak við hið fyrirhugaða hús við Laugaveg. Guðrún Jónsdótt- ir, sem sæti á í skipulagsnefnd borg- arinnar fyrir R-listann, lagði þar fram tillögu að breytingum á ný- byggingunni sem gekk lengra en sú sem nefndin samþykkti á dögunum gegn mótatkvæðum Guðrúnar og annars fulltrúa R-listans. Hún segir að til að forðast að nýbyggingin byrgi fyrir útsýni frá húsinu hefði þurft að stalla nýja húsið niður til samræmis við það og hin húsin sem á bak við það verða. Sátt um meginlínuna Almennt má segja að íbúar og þeir sem stunda atvinnustarfsemi í gömlu hverfunum séu sammála um að þau endumýist eðlilega og að ný hús séu byggð í stað úr sér geng- inna húsa og auðra lóða. Búseta fólks í verslunarhverfum styrkir líka hverfin og dregur úr hættu á því að þau verði herfang drykkju- og húsbrotaskríls eftir lok- un verslana og fyrirtækja. Skortur á skýrum fyrir fram samþykktum og ákveðmnn línum kallar hins vegar á endurtekna árekstra vegna ný- bygginga miUi íbúa og atvinnurek- enda sem þó eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Varðandi bygginguna að Lauga- vegi 53 gerði Guðrún Jónsdóttir þá tillögu í skipulagsnefnd að hún yrði lækkuö eða stölluð til austurs inn í baklóðina og þar með skyggði hún síður á útsýni íbúanna i bakgarðin- um sem tilheyra Grettisgötunni. Húsið er í raun þrjár hæðir þvi að bílageymsla undir því er að mestu ofanjarðar. Síðan kemur önnur hæðin og þá sú þriðja sem Guðrún lagði til að yrði um 200 fermetrum minni og yrði stölluð. Deiliskipulag er eins konar stefnumörkun og ítrekun aðalskipu- lags. Scunkvæmt því er bygginga- magni innan hvers reits skipt upp milli lóða og fyrir fram ákveðið hvar á að byggja, hvaða lóðir á að rýma. Sú stefnumörkun sem í deiliskipulagi felst er ekki til og þess vegna komast allir málsaðilar, borgaryfirvöld, húsbyggjendur og íbúar gömlu hverfanna, æ ofan í æ í sama vandann. En hvernig á að vinna deiliskipu- lag? Guðrún telur eðlilegast að vinna það út frá vilja þess fólks sem býr og starfar í viðkomandi hverfi og skipulagsfræðingar og arkitektar tækju síðan við og útfærðu þá vinnu. Deiliskipulag sem unnið væri á þann hátt að yfirvöld ákveða einhliða hvemig hlutimir eiga að vera gæti hins vegar viðhaldið vanda af því tagi sem nú er glímt við og hér hefur verið gerður að umtalsefni. Þess vegna væri eðlileg- ast að vinna frumdrög slíks skipu- lags í samráði við íbúa, bæöi sam- tök þeirra og einstaklinga, sem og þá sem atvinnurekstur stunda. Út frá slíkri undirbúningsvinnu myndu síðan skipulagsfræðingar og arkitektar vinna. Með þessu móti ætti að vera auðveldara að ná sátt um endurbætur gamalla hverfa án þess að allt fari í bál og brand. Sátt um meginlínurnar væri einfaldlega til fyrir fram og hagsmunir allra viðkomandi tryggðir innan þeirra meginlína. Ekkert deiliskipulag er til fyrir gömlu hverfin í borginni. Þess vegna hefur komiö upp ósamræmi milli nýbygginga og eldri húsa jafnframt því sem uppbygging og endurnýjun í gamla bænum tefst vegna deilna. Línur eru ekki nægilega skýrar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.