Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 . jihglingar___________________________ Landsbankinn og útvarpsstöðin X-ið 97,7 stóðu fyrir aðventutónleikum í Loftkastal- anum fyrir ungu kynslóðina kvöldið fyrir Þorláksmessu. Þar komu fram nokkrar af „heitustu“ hljómsveitunum í dag, sveitunum sem krakkarnir ,Jila“ gjörsamlega í botn. Þetta voru Maus, Vínyll, Subterranean, Woofer, Soðin fiðla, Port og 200.000 nagl- bítar. Einnig var brettabúðin Týndi hlekkurinn með sýningu sem vakti óskipta athygli. Ljósmyndari DV, Hilmar Þór, var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir. ^Stemningin í Loftkastalanum var dúndur- góð, allir í sannkölluðu jólaskapi, hvort sem það voru tónlistarmennirnir eða tónleika- gestir. Unga kynslóðin enn og aftur til fyrirmyndar. Aðventutónleikar í Loftkastalanum Woofer úr Hafnarfirði er ein þeirra hljómsveita sem gefa tilefni til Sigcin^*~~— bjartsýni um framtíö íslenskrar voruá 09 Barry tónlistar. Söngkonan er Hildur á tónij!fgÖ,r meö tónleikan?! fjölmar9raaeiu^^^^^^* Einarsdóttir sem hér er í „action“ ó t0nleil<ana. n,e,k^a. Báöír, GengiS u 0ftka^lan sviöinu. Par fer mikið efni aö sögn soankans sen söng at kratti. Aöatsöngvann VínyH ste'^nSVefns og'S má' mikilli innlifun, e Einarsdóttir sem hér er í „action" á sviöinu. Þar fer mikiö efni aö sögn kunnugra. hin hliðin Berglind Skúladóttir, fimleikadrottning í Keflavík: Allir karlmenn „Það er alveg rosalega gaman að þjálfa og fullt af stórefnilegum fim- leikastúlkum í hópnum,“ sagði Berg- lind Skúladóttir, 16 ára fimleika- drottning í Keflavík. Hún hefur stundað fimleika síðan hún var 6 ára. Þá er hún einnig að þjálfa stúlk- ur frá 4-10 ára hjá Fimleikadeild Keflavíkur við mjög góðan orðstír. Hjá fimleikadeildinni er staðið vel að málum. Berglind segir að það eina sem þurfi að bæta sé aðstaðan. Hún á tvö systkini, systur og bróð- ur, og er hún í miðjunni. Foreldrar Berglindar eru Inga Lóa Guðmunds- dóttir og Skúli Skúlason. -ÆMK Fullt nafn: Berglind Skúladóttir. Fæðingardagur og ár: 1. febrúar 1981. Maki: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Nemi í Fjölbrautaskóla Suður- nesja, náttúrufræðibraut. Vinnur í jólafriinu í Samkaupum í Njarðvík. Laun: Fín. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei. Hvað flnnst þér skemmtilegast að gera? Að skemmta mér með vinum. Hvað finnst þér leiðinlegast? Þeg- ar allt gengur á afturfótunum hjá mér. Uppáhaldsmatur: Mömmumatur. Uppáhaldsdrykkur: Egils Kristall. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Steinunn Jónsdótt- ir, fimleikamaður í Keflavík. Uppáhaldstímarit: Séð og heyrt. Hver er fallegasti karl sem þú hef- ur séð? Allir karlmenn. Ertu hlynnt eða andvig ríkis- stjórninni? Hlutlaus. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Brad Pitt. Uppáhaldsleikari: Hilmir Snær. Uppáhaldsleikkona: Bryndís Jóna Magnúsdóttir, Keflavík. Uppáhaldssöngvari: Sá sem syngur óperulagið, ég veit ekki hvað hann heitir. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Pass. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Allar teiknimyndir yfirhöfuð. Uppáhaldssjónvarpsefni: Vinir. Uppáhaldsmatsölustaður/veit- ingahús: Glóðin í Keflavík, toppveit- ingastaður. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Sjálfsævisögur, þeirra sem eru eru fallegir búnir að lenda í nógu miklu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? FM 95,7. Uppáhaldsútvarpsmaður? Enginn sérstakui-. Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú mest á? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Stapinn í Njarðvík. Uppáhaldsfélag í iþróttum? Kefla- vík og Liverpool. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Bara að hafa það gott. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Vann og skemmti mér. Berglind Skúladóttir í Keflavík er ein af okk- ar bestu fimleikakon- um. Er líka farin aö miöla af þekkingu sinni til ungu kynslóðarinnar. DV-mynd Ægir Már

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.