Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 TIV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimaslða: httpY/www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftan/erð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Túrbínur komandi aldar Heimurinn stendur á barmi byltingar. Að sönnu ekki þeirrar gerðar sem Marx og Engels prédikuðu, heldur af tæknilegum toga. Hraðstígar breytingar á sviði upplýsingatækni eru að bylta veröld þeirra sem komust til vits og ára á líðandi öld. Fyrir milljarðafyrirtækiö sem Ólafur Jóhann Ólafsson stýrir senn á Wall Street skiptir ekki máli hvort hann er staddur á Manhattan eða í Skuggahverfmu. Tæknin gerir honum kleift að vera í jafn nánu sambandi við starfsmenn og viðskiptavini á hvorum staðnum sem er. Upplýsingatæknin hefur skorið á íjötur íjarlægðarinnar. Landfræðileg einangrun hefur torveldað íslendingum að njóta forskotsins sem þeir hafa í krafti frábærs skólakerfis og menningarlegra hefða. Þetta forskot hefur til dæmis fært þeim fleiri tölvur og meira tölvulæsi en flestum öðrum þjóðum. íslendingar verða að búa sig undir möguleikana sem opnast þegar upplýsinga- byltingin tætir einangrun þeirra endanlega sundur. Hugvitið má rækta eins og urt í aldingarði. Það þarf hins vegar áburð og aðra virkt. Jarðvegurinn er fyrir hendi: Fádæma vinnusemi, gamalgrónar lærdómshefðir og útsjónarsemi sem þróaðist í fámenni harðbýls og einangraðs lands. Fiskurinn, fallvötnin og fegurð landsins eru að sönnu mikilvæg. Brátt mun þó skiljast að mengun af völdum þrávirkra efna er líkleg til að veikja undirstöður norðlægra fisksöluþjóða, nýir orkugjafar kunna að úrelda fallvötnin sem alþjóðlega markaðsvöru og við höfum ekki þurft hjálp til að spilla náttúru landsins. Auðlind framtíðarinnar eru hinar hljóðlátu túrbínur í kolli kynslóðanna sem ekki eru komnar á legg. Upplýsingatækni næstu aldar mun gera okkur kleift að dreifa afurðum þeirra, íslensku hugviti, á alþjóðlegan markað sem innan skamms verður heimurinn allur. Stjórnvöld, meira og minna ólæs á tölvur og fákunnandi um möguleika upplýsingatækninnar, skilja þetta ekki. Þau eru föst í slorinu og sjá varla fram fyrir rollurassana. Þau lifa í fortíðinni og skilja ekki framtíðina. Samanburðurinn er sláandi. Háskóladeildir sem eiga að sinna kennslu og rann- sóknum í tölvutengdum vísindum eru að grotna niður vegna skorts á fjármagni og tækjum. Á sama tíma er milljörðum ausið í ósamkeppnishæfan landbúnað sem á núverandi formi er ekki líklegur til að lifa langt fram á næstu öld, og til að greiða niður sjávarútveg. í dag kostar hið opinbera nær engu til rannsókna á sólrisugreinum hugbúnaðarvísindanna. Á meðan þeim er haldið í svelti borga skattgreiðendur fyrir fokdýrar rannsóknarstofnanir til að styrkja framleiðslu á landbúnaðarvörum sem hægt er að kaupa erlendis frá á miklu lægra verði. Útgerðin skilar meiri hagnaði en nokkru sinni en skattgreiðendur borga þó stórkostlegar upphæðir með henni. Úr þeirra vasa kemur hluti af launum sjómanna í formi skattaafsláttar, sem útgerðin ætti vitaskuld að greiða sjálf. Þeir borga líka fyrir rannsóknir sem skipta sköpum fyrir þróun og velferð sjávarútvegs á íslandi. Þetta er kolröng forgangsröðun. Það er heimska að eyða margfalt hærri upphæðum í rannsóknir á úreltum landbúnaði en sólrisugreinum framtíðarinnar. Það er óráðsía að láta sjávarútveginn ekki greiða fyrir eigin rannsóknir, svo ekki sé minnst á kvótann sjálfan. Það þarf hins vegar pólitískan kjark til að breyta þessu. Hann er ekki fyrir hendi í dag. Á meðan bíða túrbínurnar ógangsettar og framtíðin dankast. Össur Skarphéðinsson Markaðstorg hugmyndanna Evrópskt samfélag byggir á óskráðum sáttmála fólks og fjár- magns um velferðarríkið: jafnan rétt allra til að njóta menntunar, heilsugæzlu og almannatrygginga. í Evrópu unnu jafnaðarmenn (sósíal- demókratar) hugmyndafræðistrið 20ustu aldar. Velferðarríkið var fest í sessi eftir stríð. Gullöld þess stóð frá 1950 til 1970. Þjóðir Evrópu voru ungar og hagvöxturinn malaði gull. Hagvöxturinn stóð undir vaxandi útgjöldum. Kerfið var í jafnvægi. Enn í dag nýtur kerfið stuðnings yfirgnæfandi meirihluta kjósenda. Evrópumenn liða engum stjóm- málaflokki að rústa velferðarkerfið. Leiðtogafundur Evrópusam- bandsins um atvinnuleysisháskann fyrir mánuði í Lúxemborg hefur hleypt nýju lífi í umræðuna um framtíð velferðarríkisins. Þrátt fyrir uppgang i heimshagkerfmu (líka í ESB) sækist seint að kveða niður at- vinnuleysið (yfir 30 milljónir at- vinnulausra - nærri því allir íbúar Spánar). Þessi tala ein og sér nægir til að fylla menn efasemdum um framtíð „kerfisins". Öldmn Evrópu- þjóða og Cárhagsbyrðar vegna at- vinnuleysis og lífeyrisbóta vekja upp efasemdir um samkeppnishæfni Evrópusambandsins á alþjóðavædd- um samkeppnismarkaði heimsins. Þemað um hnignun gömlu Evrópu - um „Untergang des Abendlandes" - er aftur í tízku. Japan hefur beðið hnekki í tvo áratugi hafa andstæðingar veiferðarríkisins bent á hraðvaxtar- löndin í Asíu sem fyrirmynd. Tuttugasta og fyrsta öldin yrði öld Asíu. En Japan hf. - rikiskapítal- isminn að hætti Japana - hefur beð- ið mikinn hnekki. Káin þrjú - kvótakerfi klíkuveldis og kerfisspill- ingar - em ekki kennitölur framtíð- arinnar. Þessi ríki em i pólitískri Erlend tíðindi Jón Baldvin Hannibalsson tilvistarkreppu og í alþjóölegri gjör- gæzlu. Eftiröpim vestrænnar tækni var grædd á lénsveldi liðinnar tíðar. Standa þá ekki Bandaríkin - „gamli, góði Yankeekapitalisminn" - uppi sem hinn mikli sigurvegari 20ustu aldar? Er það ekki ameríska öldin sem bíður okkar, undir óskor- aðri forystu eina risaveldisins sem eftir er? Margir vilja trúa því. Lífs- seigla og kraftur hins ameríska kapítalisma lætur ekki að sér hæða. Á sl. 4 árum hefur bandaríska hag- kerfið skapað 12 milljónir nýrra starfa; á sama tíma hefur Evrópa glatað 2 miUjónum starfa. Vaxtar- broddur framfaranna í Bandaríkj- unrnn er lítil hátækni- eða þjónustu- fyrirtæki. Forstjórinn er frjáls að þvi að ráða eða reka starfsfólk að vild. Verkalýðsfélög þrífast ekki - eða breytast í bófafélög. Forstjórinn á greiðan aðgang að ódým áhættu- fjármagni og hlutafé. Heimamarkað- urinn býður upp á stærðarhag- kvæmni sem er nóg veganesti til að sigra heiminn. Skuggahliðarnar En Robert Reich, fyrrv. atvinnu- málaráðherra Clintons forseta, er ekki sannfærður um að yfirburðir amerísks kapítalisma standist til lengdar. Hann bendir á skuggahlið- arnar. Meirihluti hinna nýju starfa era láglaunastörf ófaglærðra. Þrátt fyrir hagvöxtinn hafa lífskjör 60% bandarískra fiölskyldna versnað á sl. áratug. Þeim sem búa undir fá- tæktarmörkum fiölgar ískyggilega. Sá hluti ríkustu þjóðar heims, sem hefur hvorki efni á almennilegri menntun eða boðlegri heilsugæzlu, er ótrúlega stór. Þjóðfélagiö snýst um hámarkshagnað, en hefur „ekki efni á“ lágmarksþjónustu. Misskipt- ing eigna og tekna tendrar falda elda sundurvirkni og óánægju. Roosevelt, eitt af mikilmennum ald- arinnar,' forðaði bandarískum kapítalisma frá hruni heimskrepp- unnar á sínum tíma. Þarf ekki Am- eríka annan „New Deal“? Evrópumenn leita nú lausna sem duga til að varðveita velferðarríkið, en lækka tilkostnaðinn og deila hon- um miili einstaklinganna sem njóta, fyrirtækjanna og ríkisins. Lausnirn- ar er að finna ekki aðeins í skyldum (ríkisins) við einstaklinginn, heldur líka í skyldum einstaklingsins við aðstandendur og afkomendur. Það á ekki að borga mönnum fyrir iðju- leysi heldur fyrir nám og starf. Austurrikismenn, Danir, Bretar, Hollendingar, Portúgalir og írar hafa tekið upp nýjar aðferðir við að reka velferðarþjónustuna á grund- velli samkeppni miili hins opinbera og einkageirans - og með minni til- kostnaði. Viðnámið gegn nauðsyn- legum breytingum er á undanhaldi. Það er of snemmt að afskrifa gömlu Evrópu. Fréttir af lamandi uppdrátt- arsýki hennar era stórlega ýktar. Hver veit nema siðmenntuð samfé- lög, sem taka mark á kristilegu sið- gæði, geti átt framtíðina fyrir sér? Frá atvinnumálaráöstefnu ráöamanna Evrópusambandsríkjanna í Lúxemborg í síöasta mánuöi. Reuter-mynd skoðanir annarra Evrópa taki þátt „Með því að framlengja dvöl bandarískra her- manna í Bosníu kann Bill Clinton Bandaríkjaforseti að vera að varðveita óstöðugan frið. En friðargæsla NATO-hermanna leysir ekki ein pólítísk, efnahags- leg og þjóðemisleg vandamál Bosníu. Það yrði auð- veldara fyrir Bandarikjamenn að styðja ákvörðun Clintons ef þeir héldu að hann hefði á takteinum raunverulega lausn og ef þeir væru vissir um að Evrópa tæki á sig meiri ábyrgð.“ Úr forystugrein New York Times 21. des. Eftirmaður Mandela „Fátæklingar S-Afríku voru þolinmóðir vegna hrifningar sinnar á Mandela. Almenningur virðir hinn lærða Mbeki en hann er ekki ástsæll. Hætta er á aö hann svari nýjum þrýstingi frá fátæklingum með valdbeitingu eða lýðskrumi.“ Úr forystugrein New York Times 22. des. DV Jeltsín og KGB „Borís Jeltsín, forseti Rússlands, er kominn á fætur eftir veirusýkingu en fyrir helgi komst hann með naumindum niður á fætuma er hann tók nokk- ur söguleg danspor með því að fjalla um rússnesku leyniþjónustuna KGB, í vikulegri útvarpsræðu sinni. KGB er ekki lengur til heldur hefur leyni- þjónustunni verið skipt í þrjár stofhanir. Jeltsín fullyrti að fullt eftirlit væri meö þeim og aö þær væru ekki lengur ríki í ríkinu. Forsetinn sagði að verkefnin núna væru að berjast gegn hryðjuverk- um og koma í veg fyrir smygl á hemaðarlega mik- ilvægum málmum og gimsteinum. En það er ekki langt síðan Jeltsín nefndi annað verkefiii, iönaðar- njósnir erlendis, til þess að koma efnahag Rúss- lands i gang.“ Úr forystugrein Aftenposten 22. desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.