Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 26 1 )aður ársins Maður ársins í íslensku viðskiptalífi: Þeir sem fylgjast með atvinnu- og viðskiptalifmu hafa orðið vitni að góöu gengi Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað, en fyrirtækið hélt upp á 40 ára afmæli sitt þann 11. desember sl. Rekstur fyrirtækisins hefur imdanfar- ið ár verið mjög traustur og fréttnæm- ar uppákomur í rekstri þess óþekktar. Fyrirtækið hefur jafnt og stöðugt eflst frá upphafi og það er nú eitt af öflug- ustu sjávarútvegsfyrirtækjum lands- ins og ekkert bendir til annars en það haldi sínum hlut í náinni framtíð. Undanfarin ár hefur fyrirtækið fjár- fest gríðarlega í nýrri tækni og tækja- búnaði á sjó og landi. í þeim verkum hefúr verið farið fram af skynsemi og framsýni með þeim árangri að skulda- staða fýrirtækisins hefur ekki breyst. Finnbogi Jónsson hefur verið fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins síðan árið 1986. Hann hefúr sýnt og sannað hæfhi sína sem farsæO stjómandi þessa gamalgróna fyrirtækis því að undir hans stjóm hefur það dafnað sem aldrei fyrr. Það var mat dóm- nefndar að Finnbogi væri vel að Við- skiptaverðlaununum DV, Stöðvar 2 og Viðskiptablaðsins 1997 kominn og að titlinum „Maður ársins í íslensku við- skiptalífi". Finnbogi Jónsson er í helg- arviðtali DV og hann var fyrst spurð- ur hver væri galdurinn við hið góða gengi fyrirtækisins: „Við höfum sjálfsagt verið heppnir í ákvörðumun og hitt á rétta hluti á hverjum tíma. Við höfum reynt að laga okkur að því starfsumhverfi sem sjávarútveginum hefúr verið skapað. Við fækkuðum skipum strax þegar ljóst var að horfúr vora á miklum samdrætti í þorskveiðunum. Við byggðum mjög mikið á þorski áöur og gerðum út þrjá togara sem vora að stórum hluta á þorskveiðum, auk tveggja loðnuskipa. Togurunum var fækkað, við sameinuðum aflaheimild- ir og hösluðum okkur völl í rækju- veiðum þegar ódýrt var að fjárfesta í rækjukvóta. Jafnframt keyptum við verulegar aflaheimildir í loðnu og juk- um þær um 50% á þessi tvö loðnuskip sem við gerum út. í stuttu máli höfúm við reynt að aðlaga flotann kvótastöðu okkar á hverjum tíma. Þetta tel ég að hafi skipt miklu máli í okkar rekstri. Kvótakerfið hefúr boðið upp á hag- ræðingarmöguleika og þessa mögu- leika höfum við nýtt eins og kostur er og reynt að ná sem mestum verðmæt- um út úr þeim aflaheimildum sem við höfúm haft á hverjum tíma. Þessu til viðbótar höfum við haft afburðagott fólk bæði til sjós og lands til að nýta þessi tækifæri. Það hefur skipt sköp- um.“ Miklar fjárfestingar en góð afkoma - Síldarvinnslan hefur fjárfest verulega undanfarin ár án þess að þess sjái merki í skuldastöðu fyrir- tækisins. Á þessu ári og í fyrra hef- ur fiskimjölsverksmiðjan verið end- urnýjuð frá grunni og nýtt fullkomið fiskiðjuver verið tekið í notkun. Þrátt fyrir þessa miklu fjárfestingu var afkoman mjög góð í fyrra og stefnir i að verða það einnig á þessu ári. Finnbogi kveðst aðspurður ekki telja að stjórnendur Síldarvinnsl- unnar séu eitthvaö skynsamari en almennt gerist. Hins vegar hafl lengst af verið farið mjög varlega i fjárfestingum. „Á árunum 1986-1990 var staða félagsins þannig að við máttum alls ekki misstíga okkur á nokkum hátt 1 því sem við vorum að gera. Það var ekki fjárfest nema það stórum og mjög tryggum kjarna þess. Þótt starfsmannastefha fyrirtækisins sé ekki sérstaklega skjalfest þá sé hún vissulega fýrir hendi og til í fram- kvæmd. „Við erum t.d. með sveigjan- lega stefnu gagnvart starfslokum hjá almennum starfsmönnum, en ég hef sagt, bæði í gamni og alvöra að við miðum við að vinna helst ekki lengur en til 86 árs aldurs," segir Finnbogi. Aðspurður um hver sé uppskriftin að góðu fýrirtæki segir hann: „Ég held að gott fýrirtæki sé þar sem starfsfólki liður vel og finnur fýrir ör- yggi, þar sem starfsfólk hefur það að markmiði að fýrirtækið gangi vel og skili góðri afkomu, þar sem allir stefna að sama marki, róa í sömu átt.“ - Hvemig á rekstrarumhverfið að vera? „Það þarf að vera stöðugt svo hægt sé að skipuleggja reksturinn nokkur ár fram í tímann. Við þurfum að vita um hvaða reglur og lög menn eiga að búa við og vinna eftir. Efnahagsum- hverfið þarf vitanlega að vera stöðugt eins og nú er, sem er auðvitað stór- kostlegur ávinningur frá því sem var fýrir nokkrum árum. Það er allt ann- að að reka fýrirtæki nú en þegar hér ríkti bullandi verðbólga og allt var á fljúgandi ferð. Það skiptir miklu máli að geta gert áætlanir fram í tímann sem líklegar era til að standast og jafnframt lagt eithvað til hliðar til þróunar og nýsköpunar sem ekki er mögulegt í hinu tilvikinu. Þá skiptir það sköpum fyrir okkur að búa við fiskveiðistjómunarkerfi sem ekki er háð stöðugum breyting- um. Það hefur sýnt sig að núverandi veiðistjómunarkerfi hefur gefið möguleika til hagræðingar í rekstri sem er að mínu mati meginástæöan fýrir því að sjávarútvegurinn hefur komist út úr þeim mikla samdrætti sem var í þorskveiðunum fýrir nokkrum árum. Sjávarútvegurinn hefði ekki lifað af, og varla þjóðarbúið heldur, ef ekki hefði verið möguleiki til að hagræða í skjóli kerfisins. Ég óttast hins vegar hvert sú umræða sem uppi er um fiskveiðistjómunar- kerfið leiðir. Samt sem áður held ég að þegar upp er staðið séu menn svo skynsamir að þeir sjái að aflamarks- kerfið skiptir sköpum til að unnt sé að reka fýrirtækin með sæmilegri hag- kvæmni. Síðan geta menn auðvitað deilt um það hvort útgeröin eða eig- endur útgerðarfyrirtækja greiði nægi- lega mikla skatta eða ekki. Það er hins vegar allt annað mál.“ - Sérðu fyrir þér einhveijar breyt- ingar sem gætu orðið af pólitískum rótum? Telurðu stjómmálaástandið það traust að núverandi stöðugleika verði viðhaldið? „Ég verð að játa það að vera dálítið smeykur, sérstaklega í ljósi yfirlýs- inga sumra stjómmálamanna sem era hreinlega skelfilegar og benda ekki til þess að þeir séu í miklu jarð- sambandi við undirstöðuframleiösl- una í landinu." - Era þeir nógu framsýnir? „Ef til vill ekki. Ef svo er kann það að stafa af starfsumhverfi stjómmála- manna. Það kann að vera að vandi þeirra felist í því að þeir leyfi sér ekki að horfa fram á við í þeim mæli sem þeir þyrftu og ættu að gera.“ - Hvemig sérðu framtíðar efna- hags- og viðskiptaumhverfi fýrir þér? „Ég trúi því að stöðugleikinn haldi áfram. Ég held að allir sjái hversu mikilvægur hann er og að honum verði viðhaldið. Ég held að við fórum varla inn á þær gömlu brautir sem við fetuðum áður.“ - Hvemig sérðu framtíð SOdar- vinnslunnar fyrir þér á næstu árum, jafrivel næstu fjöratíu árum? „Ég sé Síldarvinnsluna fyrir mér þannig að hún verði áfram eitt af öfl- ugri fýrirtækjum í sjávarútvegi á fs- landi og með margar stoðir undir rekstrinum, eins og verið hefur ein- kenni í rekstri fýrirtækisins, það er að segja fjölbreyttur rekstur. Ég trúi því að hún haldi áfram að eflast og starfsemin komi til með að víkka bæði rekstrarlega og landfræðilega með auknu samstarfi við önnur fýrir- tæki í sjávarútvegi. Slík þróun er að mínu mati nauðsynleg til að unnt sé að sinna betur hvers konar þróunar- og nýsköpunarstarfi, ráða fleira fólk með fjölbreyttari menntim til starfa og sækja á ný mið með aukna verð- mætasköpun fýrir fyrirtækin og þjóð- arbúið í huga.“ Akureyríngur—verkfræðingur —hagfræðingur „Ég er Akureyringur, fæddur þar og uppalinn, Eskfirðingur í aðra ættina en ísfirðingur í hina,“ segir Finnbogi aðspurður um uppruna og feril áður en hann tók við stjóm Síldar- vinnslunnar. „Ég varð stúdent frá Menntaskólan- um á Akureyri 1970. Eftir stúdentspróf kenndi ég í eitt ár við gagnfræðaskól- ann og iðnskólann í Vest- mannaeyjum en fór síðan í Háskólann og lauk fýrri- hlutaprófi í eðlisverkfræði 1973 og fór að þvi loknu til Sviþjóðar og lauk prófúm í eðlisverkfræði frá tæknihá- skólanum í Lundi og jafh- framt prófi í rekstrarhag- fræði frá háskólanum í Lundi 1978. Aö náminu loknu starfaði ég í iðn- aðarráðuneytinu í fjcgur ár sem deild- arstjóri. Síðan var ég næstu fjögur árin framkvæmdastjóri Iðnþróunarfé- lags Eyjafjarðar á Akureyri en tók við starfi sem framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar 1. júlí 1986.“ Eiginkona Finnboga er Sveinborg Sveinsdóttir, geðhjúkrunaröæðingur úr Vestmannaeyjum, og eiga þau tvær dætur; Esther, 28 ára viðskipta- fræðinema og Rögnu, 21 árs, sálfræði- nema í Háskóla íslands. Spurður um áhugamál utan starfs- ins kveðst Finnbogi áhugamaður um hvers konar veiði. Hann fer nokkuð í veiði á sumrin, bæði lax- og silungs- veiði sem hann segist hafa afspymu- gaman af. Enn fremur reyni hann að ganga á fjöll og skjóta fugl að vetr- inum, þótt tími til þess sé minni en hann gjaman vildi. Þá hafi þau hjón- in ánægju af því að ferðast og heim- sækja önnur lönd. Finnbogi kveðst ekki treysta sér til aö nefiia sérstaka uppáhaldsstaði á ís- landi eða erlendis, en segir þó, þegar á hann er gengið, að Selá í Vopnafirði sé honum ofarlega í huga sem skemmtileg á og þangað fari hann ár- lega í veiði í góðra vina hópi. -SÁ „Kvótakerfið hefur boöiö upp á hagræöingarmöguleika og þessa möguleika höfum viö nýtt eins og kostur er og reynt aö ná sem mestum verömætum út úr þeim aflaheimildum sem viö höfum haft á hverjum tíma," segir Finnbogi Jónsson. DV-mynd ÞÖK væri nánast 100% öruggt að að við- komandi framkvæmd skilaði vera- legum arði. Síðustu fjárfestingar hafa verið mjög miklar en þó hefur verið farið varlega að því leyti að stefnt hefur verið að þvi að halda skuldastöðunni óbreyttri og það hef- ur tekist. Nettóskuldir fyrirtækisins hafa ekki aukist þrátt fyrir þessar gífurlegu fjárfestingar. Fjárfesting- arnar hafa einfaldlega verið tak- markaðar við rekstrarhagnað fyrir- tækisins og nýtt inngreitt hlutafé. Endurbæturnar á fiskimjölsverk- smiðjunni vora langstærsta fjárfest- ingin í fyrra, en sú framkvæmd var orðin mjög aðkallandi. Það þurfti að endurnýja tæki og búnað og leysa úr mengunarmálum verksmiðjunnar. Þessi fjárfesting hefur komið mjög vel út og verksmiðjan hefur verið að framleiöa mun verðmætari afurðir en áður. Við erum því farnir að gera mun meira úr þeim aflaheimildum sem við höfum, enda er mikilvægara að auka verömætin fremur en magn- ið. Stærsta fjárfestingin í ár er nýja frystihúsiö. Það er enn ekki farið að skila svo miklu, enda glænýtt. Við erum þó búin að sjá nú í haust að við getum gert þar góöa hluti svo framar- lega sem við höfúm hráefni," segir Finnbogi. Samræmdar endurbætur til sjós og lands Ofannefiidar fjárfestingar era ekki þær einu sem ráðist hefúr verið í hjá Sfldarvinnslunni að undanfómu því að undanfarin ár hafa skip fyrirtækis- ins verið endurbætt stórlega. „Þær endurbætur hafa verið aðdragandi uppbyggingarinnar í landi, því að til að framleiöa hágæða fiskimjöl þarf að koma með kælda loðnu að landi. Við fórum því út i miklar endurbætur á Beiti fýrir nokkrum árum, settum í hann sjókælibúnað og útbjuggum hann þannig að hann gæti einnig sfimdað veiðar með flottrolli. Það hefúr sýnt sig að sú fjárfesting hefúr skilað sér mjög vel og Beitir, sem er með 1100 tonna burðargetu er annað aflahæsta skipið á þessu ári með rétt um 69 þúsund tonn af loðnu, kolmunna og sild. Til samanburðar ber aflahæsta skipið, Hólmaborgin 2600 tonn eða meira en helmingi meira. Þessi fjárfesting hefur því skil- að sér mjög vel.“ - Starfsfólk Síldarvinnslunnar er almennt ánægt með að starfa hjá fýr- irtækinu og ber yfirstjóminni vel sögu og árekstrar era fátíðir. Aö- spurður um starfsmannastefnu fýrir- tækisins segir Finnbogi að fýrirtækið sé heppið með starfsfólk og búi að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.