Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 10
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997
Gítarleikarinn Friðrik Karlsson gerir það gott í London:
iðtal
★ ★
Friðrik er ánægður í London. Hann segir að með breyttum lífsstfi hafi honum auðnast að láta drauma sína rætast.
DV-myndir Pjetur
Breyttur lífsstíll
„Ég er ofsalega ánægður með að
ég skyldi láta verða af því að flytja
hingað út þegar tækifærið kom.
Mér fannst ég eiginlega vera búinn
að gera allt heima á íslandi, var far-
inn að fást viö ýmsa aðra hluti með
tónlistinni og ég hugsa að ég hefði
lagt gítarinn svolítið frá mér ef
þetta hefði ekki komið upp. Hann
hefði lent í aukahlutverki. Mér
fmnst þaö fáránlegt þegar ég hugsa
um það í dag en samt er ég ekki frá
því að þannig hefði getað farið,“
segir gítarleikarinn Friðrik Karls-
son þegar hann sest niður með
blaöamanni og ljósmyndara DV á
kaffihúsi gegnt heimili hans í Ful-
ham-hverfinu í London, hverfi sem
kallað hefur veriö Litla-Reykjavík
af því að þar búa svo margir íslend-
ingar. Á borðið koma stórir bollar
með rjúkandi cappucino og Friðrik
svarar því hvað hann sé að fást við
þessa dagana.
Söngleikir og plötur
„Fasta vinnan mín felst í aö spila
í Jesus Christ Superstar- söngleikn-
um og öðrum verkefnum fyrir fyrir-
tækið sem setur hann upp. Það fyr-
irtæki á Andrew Loyd Webber og
hann er einmitt að fara að frum-
sýna nýjan söngleik sem hann
samdi i samvinnu við Jim Steinman
(þeim sama og samdi allt fyrir
Meatloaf). Þar mun ég a.m.k. spila
til að byrja með. Síðan mun ég spila
fyrstu tvo mánuðina i söngleiknum
Saturday Night Fever og í nýjum
Elton John-söngleik í lok ársins. Þá
hef ég veriö að spila í nokkrum
bíómyndum, t.d. í teiknimyndinni
Hercules og nýrri Cats-bíómynd, og
loks inn á plötur með hinum og
þessum hljómsveitum og tónlistar-
mönnum.“
Friðrik spilar í leikhúsinu allt að
6 daga í viku en þegar hann þarf að
sinna einhverju öðru getur hann
fengið sig lausan. Hann hefur gert
samninga við leikhúsin um að hann
eigi sæti fyrsta gítarleikara á með-
an sýningin gangi en vilji hann
losna kvöld og kvöld hafi hann
fimm gítarleikara til þess að leysa
sig af. Búið er að bjóða honum að
opna þrjá söngleiki 1998 en hann
mun síðan væntanlega aðeins kom-
ast yfir aö spila í einum þeirra. En
hvað kom til að hann ákvað að
flytja út.
Einn fyrir fjóra
„Ég kynntist upptökustjóranum
Nigel Wright þegar hann var með
Mezzoforte á sínum tíma. Hann
hafði fengið mig nokkrum sinnum
út til þess að spila í hinum og þess-
um verkefnum en þegar hann bað
mig að koma og spila í Evítu stakk
hann upp á að ég flyttist bara út.
Hann hefði nóg fyrir mig að gera,“
segir Friðrik og bætir við að það
hafi síður en svo verið einfóld
ákvörðun fyrir þau Steindóru konu
hans að flytja út. Þau hafi veriö
búin að koma sér vel fyrir á íslandi,
verið orðin nokkuð fost í þessu
hefðbundna mynstri og ekki verið
viss um að þau væru tilbúin til þess
að byrja á öllu upp á nýtt.
„Það sem togaði mest í að koma
hingað út var aö ég sá fram á að
hæfileikar mínir og allt það sem ég
hef lært gæti nýst mér hér, mun
meira en heima. Hér hef ég verið að
spila inn á kántríplötu, í sjónvarp-
inu með Jose Carreras, þessa söng-
leikjatónlist, popp, rokk, djass og í
raun allan skalann. Fjölbreytnin er
svo mikil. Ég hef í gegnum tíðina
reynt að tileinka mér sem flesta
stíla og tel fjölhæfnina reyndar vera
minn helsta styrk í þessu," segir
Friðrik og til staðfestingar á því má
benda á að áður en hann fór út var
upptökustjórinn sem hann vinnur
fyrir með fjóra gítarleikara, hvem
góðan á sínu sviði. Nú lætur hann
sér nægja einn gitarleikara, Friðrik
Karlsson frá íslandi.
Nýjar áskoranir
Friðrik segir mjög mikilvægt að
geta brugðið sér á milli ólíkra stíla
í tónlistinni, meira að segja sé það
nauðsynlegt ætli menn sér eitthvað
að endast í þessu. Menn geti verið
góðir i einu og það sé gott og bless-
að meðan það sé vinsælt. Svo detti
það úr tísku og þá er sá hinn sami
búinn að vera, auk þess sem það sé
miklu skemmtilegra að fá að vinna
við nýja og spennandi hluti. Hann
verði leiður á því að vera alltaf í þvi
sama. Hann segir sífellt nýjar áskor-
anir koma upp á borðið. Hann sé
alltaf að reyna að bæta við sig, taki
ákveðnar stefnur fyrir og æfi og æfi.
Það hafi hann t.d. þurft að gera þeg-
ar vinnan við kántríplötuna kom
upp. Hann hafi í fyrstu ætlað að
vísa henni frá sér en ákvað síðan
bara að kaupa sér banjó og ein-
henda sér í að ná fullum tökum á
kántríinu.
„Þetta er tamavinna. Stundum er
mjög mikið að gera, upptökur ffá kl.
tíu á morgnana til fimm og síðan
leikhúsin á kvöldin. Það er rólegt
inni á milli og þá er gott að hafa
þessa fóstu vinnu í leikhúsunum.
Þegar mikið er að gera verður mað-
ur að vera allsgáður og hafa athygl-
ina í lagi. Þá gengur þetta upp.“
Breyttur lífsstíll
Hugleiðsla er efst á áhugalista
Friðriks þessa dagana. Hann byrj-
aði á námskeiði til þess að læra
slökun en sá þá hversu öflugt tæki
hugleiðslan er. Hann segir að rótin
hafi verið mikil vinna og mikið
álag. Hann hafi ákveðið að prófa
þetta og fundið strax hvað þetta
hjálpaði sér mikið.
„Einn þáttur í þessu er það um-
hverfi sem ég er að vinna i. Margt af
þessu fólki, sem maður þarf að
vinna með, er illa farið af brenni-
víns- og eiturlyfjaneyslu og á stund-
um er erfitt að vinna með því. Þá
hjálpar hugleiðslan til og maður
lærir að temja sér þá þolinmæði
sem þarf.“
Friðrik segir að í framhaldi af
hugleiðslunni hafi mataræðið verið
tekið í gegn og nú sé bara borðað
grænmetisfæði á heimilinu. Hann
hafi í raun skipt algerlega um lífs-
stíl og þvi þakki hann það sem hann
sé að gera i dag. Hann hafi reynt að
temja sér jákvæðari hugsunarhátt,
sé sífellt að minna sig á aö hann geti
hitt og þetta. Heima á íslandi sé allt
of mikið um neikvæðni þar sem fólk
drepi drauma sína í fæðingu af þvi
að það trúi því ekki að mögulegt sé
að láta þá rætast. Þetta segir hann
allt vera spumingu um hugarfar.
Mezzoforte að þakka
„Heima er mikið af hæfileikaríku
fólki sem alveg getur staðið sig vel i
útiöndum. Það eina sem þar vantar
er hugarfarið. Sjáðu t.d. Björk. Hún
er dæmi um listamann sem flytur út
og ákveður að kíla á þetta. Ég er
nokkuð viss um að margir hafi sagt
við hana áður að þetta þýddi ekkert
fyrir hana. Hún sýnir síðan bara
fram á annað og lætur drauma sína
rætast i stað þess að bíða eftir því
að einhver annar eða einhverjar
ytri aðstæður geri það fyrir hana.
Hún hefur verið mikil landkynning
fyrir okkur.“
Friðrik segist nokkuð viss um að
hann muni veröa eitthvað áfram í
London. Hann þakkar spiliríinu
með Mezzoforte að miklu leyti
hversu vel hann hafi komist áfram,
segir þá félaga stefna á að gera plötu
á næstunni og bandið sé síður en
svo að leggja upp laupana. Sveitin
verði örugglega fjörutíu ára.
„Annars hugsa ég að ég eigi eftir
að snúa mér meira að hugsleiðsl-
unni í framtíðinni. Ég er farinn að
gera mína eigin tónlist sem er á
þessum andlegu nótum og hef feng-
ið mjög góð viðbrögð við plötunni
sem ég sendi frá mér fyrir jólin. Ég
finn mig rosalega vel í þessu og á án
efa eftir að gera meira svona," segir
Friðrik sem búinn er að koma sér
upp sínu eigin hljóðveri heima, seg-
ir reyndar ansi þröngt um þau hjón
og því séu þau að hugsa um að
stækka eitthvað við sig.
Ekki frægt andlit
„í nýaldarbransanum hefur verið
viðloðandi sú hugsun að það sé ljótt
að græða peninga. Margir hafa ver-
ið í þessu bara út á bisnesinn en þar
sem ég er á kafi í hugleiðslunni
sjálfri tel ég mig nokk vita hvað það
er sem fólk vill fá að heyra. Ég nota
gítarinn mikið, spila á rafmagnssít-
ar og síðan á hljómborð. Ég fylgist
mjög vel með í því sem er almennt
að gerast þessa dagana í tónlistinni,
kaupi mikið af plötum og horfi mik-
ið á MTV og því held ég að ég geti
alveg elst vel í þessu. Ég lifi vel af
því að spila tónlist og er að þreifa
fyrir mér með eigin lög á mörkuð-
um hingað og þangað. Hvar þau
enda og hvert framhaldið verður
mun bara koma í ljós,“ segir Friðrik
Karlsson, leyndardómsfullur á svip,
og vætir við að hann hafi engan
áhuga á því að verða eitthvað þekkt
andlit. Þaö skipti hann hins vegar
miklu máli að menn þekki hann og
hans vinnu af góðu. -sv