Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 JL>V Umferöardeild lögreglunnar í Reykjavík snæöir jólamat meö öllu tilheyrandi á hádegi á aöfangadag. Lögreglustjórinn Böövar Bragason lét sig ekki vanta í jólamatinn. Aöfangadagur er alla jafna mikill annadagur hjá umferöardeildinni, ekki síst viö kirkjugarða borgarinnar en þangaö leggja þúsundir leiö sína þennan dag. DV-mynd S Slökkviliösmenn á aöalvaröstöö viö Skógarhlíö skála f óáfengu rauövíni á miönætti aöfangadags. Jólamáltíöinni varö aö fresta um klukkustund vegna útkalls f Noröurbrún. Þar haföi kviknaö f út frá kerti en slökkviliösmönnum gekk vel aö ráöa niöurlögum eldsins og engin slys uröu á fólki. Slökkviliösmennirnir voru þvf glaöir f bragöi þegar þeir settust loks aö hátföarboröinu. DV-mynd S I fyrrakvöid var lögregla ásamt köfurum kölluð aö Kópavogshöfn en þar höföu menn séö torkennilegan hlut og Ijós viö enda bryggjunnar. Kafarar lögreglunnar fóru niöur og fundu rúllu fyrir vatnsslöngu og vasaljós sem logaöi á. Ekki er vitaö hvernig þessir hlutir lentu f sjónum en rannsókn stendur yfir. DV-mynd S SkagaJQöröur: 500 metra burt DV Fljótum: Skemmdir uröu á heimreið að bæj- unum Syðri- og Ytri-Húsabakka 1 Seyluhreppi nú fyrir jólin. Skemnid- imar urðu þegar gerði asahláku. Hér- aðsvötn og kvíslar úr þeim sem falla þarna skammt frá voru á ís. Talið er að klakastífla hafi myndast í vötnun- um og þegar hún brast hafi vatns- flaumurinn skolað veginum hreinlega í burtu á kafla. Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki áætlar að 4-500 metrar af vegi hafi skolað burt en heimreiðin er alls um sjö kílómetrar að lengd. Tjónið er áætlar á aðra milljón. Gísli Jónsson, bóndi á Ytri-Húsabakka, sagði að þrátt fyrir að vatnsflaumur- inn virðist hafa verið gríðarlegur hafi ekki orðið teijandi skemmdir aðrar en á veginum, nema eitthvað smávegis á girðingum. Hann sagði að meðan á viðgerð heimreiðarinnar stæði væri ekið eftir túnum og þurrum bökkum þannig að íbúamir á þessum tveimur bæjum kæmust til og frá heimilum sínum. -ÖÞ Slysadeild: Gengið vei „Hér var allt rólegt í gær, jóladag, en í dag er heimsóknum aðeins að fjölga. Það er fyrst og fremst fólk sem haldið hefur aftur af sér með smákvilla og þeir sem hafa veriö að skemmta sér,“ segir Gunnar Mýrdal á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur um ástandiö þar síöustu daga. Gunnar segir atburöi aðfaranætur annars í jólum hafa haft pústra, smáskurði og beinbrot i för með sér. Alvarlegast var hnífstungumálið í gærmorgun. Peningakassi í höfninni Lögreglan í Hafnarflrði hefur nú í vörslu sinni peningakassa sem fannst i höfninni i bænum á Þorláksmessu. Verið var aö gera við viðlegukantinn neðansjávar þegar kassinn fannst. Hann mun vera um 70 sentímetrar á hæö og 45-50 sentimetrar á hvorn kant. Hann var opinn og nánast tóm- ur. í honum voru aðeins tveir tómir bankapokar og einhver umsóknar- eyðublöð um starf. Kassinn virðist vera úr innbroti en ekkert hefur enn komið fram sem skýrir hvert það muni vera. -sv Neyðarhjálp úr noröri: Elliheimili innréttað fyrir söfnunarfé - íslendingar gáfu mest Ákveðið hefur verið að þær 1.5 milljónir króna sem fengust úr söfnuninni „Neyðarhjálp úr norðri" renni óskiptar til aldr- aðra í borginni Tlumacov í Móravíu í Tékklandi. Rauða krossinum i Tékklandi var af- hent í október söfnunarféð til að- stoðar fómarlömbum flóðanna í Móravíu og var það ósk forsvars- manna söfnunarinnar að pening- unum yrði varið þannig að fólk nyti góðs af en fæm ekki í stein- steypu. EUiheimilið í Tlumacov lagð- ist gjörsamlega í rúst í flóðunum í júlí. Endurbygging þess kostar rúmar 40 milljónir króna en íjár- gjöf íslendinga dugar til að kaupa allt innbú á elliheimilið sem mun hýsa 40 íbúa. Vígsla Tékknesk dagblöö og aörir fjölmiölar hafa fjallaö mikiö um söfnun „Neyöarhjálpar úr noröri" og hafa birt viötöl viö Önnu Kristine Magnúsdóttur vegna þeirrar stórgjafar sem íslendingar færöu fórn- arlömbum flóöanna í sumar. famflínVi/"* 'éexkmt kfvJ spfcí vulkány pod Prahou Twr.: ViocKmii heimilisins fer fram i júli 1998. Tékkneskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um stórgjöf ís- lendinga og segir Anna Kristine Magnúsdóttir, einn forsvarsmanna styrktartón- leikanna í haust, að Tékkum þyki mikið til þess koma að þessi fámenna eyþjóð skyldi hafa safnað svo miklum pen- ingmn sem raun bar vitni. Anna Kristine segir að til gamans megi geta að ekkert fé safnaðist á styrktartónleik- um Michaels Jacksons af sama tilefni þar sem kostnað- ur við tónleikahaldið var svo mikill að fórnarlömb flóð- anna fengu ekkert. -Sól. Keflavík: Einn inni eftir nóttina Töluverður erill var hjá lög- reglunni í Keflavík aðfaranótt annars í jólum. Skemmtistaðir voru opnaðir á miðnætti og fjöldi fólks dreif sig út til þess að sletta úr klaufunum. Nokkuö var um slagsmál að dansleikjunum lokn- um og einn vann sér inn vistun í fangageymslum lögreglu fram á morgun í gær. Hann var látinn laus þegar mesta víman var runnin af honum. Enginn meidd- ist alvarlega i slagsmálunum að sögn lögreglu. -sv Harður árekstur Harður árekstur varð á mót- um Suöurgötu og Brynjólfsgötu í Reykjavík í fyrrakvöld. Fimm manns voru fluttir á slysadeild en enginn reyndist alvarlega slasaður. Bílamir eru báðir ónýtir eftir skellinn. Flytja þurfti þá af vettvangi með kranabíl. Umferð hefur að öðru leyti gengið vel um hátíðamar að sögn lögreglu. -sv íslensku tónlistarverðlaunin: Samkeppni um verðlaunagrip Nú fer að styttast i að íslensku tón- listarverðlaunin fyrir árið 1997 verði veitt en það er gert í febrúar ár hvert. Tónlistarverðlaunin era á vegum DV og auka þau sífellt vægi sitt í íslensku tónlistarlífi. Segja má að þau séu að verða svipaöur atburöur í tónlistarlíf- inu hér á landi og t.d Brit-verðlaunin eru fyrir Breta. Nú býðst almenningi að taka þátt í samkeppni um hönnun verðlauna- grips íslensku tónlistarverðlaunanna. Gripurinn mun verða veittur þeim sem skara fram úr í íslensku tónlist- arlífi á árinu 1997 og næstu þrjú ár á eftir. Verðlaunin fyrir besta gripinn era 250.000 krónur, veitt af Landsbank- anum. Skilafrestur er til 5. janúar 1998 en fimm dögum eftir að hann rennur út mun sýning á öllum tillög- um sem í keppnina berast hefjast í Gallerii Geysi. Sýningin mun standa til 25. janúar. -KJA Með kúbein og sleggju Tvær konur á fertugsaldri vora staðnar að verki við að reyna að brjótast inn í verslunarhúsnæði í Kópavogi í gærmorgun. Konumar voru vopnaðar kúbeini og slag- hamri og vora komnar langleiðina inn í verslunina þegar lögreglan kom að þeim. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu í Kópavogi eru konumar báðar þekktar í fikni- efnaheiminum. Á þeim fundust sprautur og fikniefnaleifar. Þær vora í yfirheyrslu um miðjan dag í gær en síðan var gert ráð fyrir að þeim yrði sleppt úr haldi. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.