Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 18
18
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 TIV
★
it
★
gurílífi
Kristján Jóhannsson óperusöngvari hvflir gjarnan hugann við matseldina:
Rólegheit fyrir tónleika
„Flesta daga vakna ég um
klukkan níu en þá daga sem ég
er aö syngja stelst ég til að sofa
svolítiö lengur. Þennan fimmtu-
dag voru tónleikar um kvöldið
og ég hvíldi mig fram undir hálf-
ellefu. Þá fór ég fram úr og þáði
gott ítalskt mokkakaffi af kon-
unni minni og fékk mér góða
samloku með. Eftir það fékk ég
að vera nokkuð í fríi, settist í
góðan stól og fór yfir texta. Þar á
meðal voru textar sem ég ætlaði
að syngja um kvöldið og eins leit
ég í bók með nýrri óperu sem ég
mun syngja í á Ítalíu um miðjan
febrúar. Það er La Giokonda eft-
ir tónskáldið Ponchielli.
Eftir að hafa legið yfir textun-
um í um tvo tíma tók ég mig til
og lagaði góðan spagettirétt. Ég
reyni að borða um fjórum tímum
fyrir tónleika og þá helst pasta.
Það er auðmelt og ef passað er
upp á sósuna fer þetta vel í
mann. Ég reyni að hafa sem
mest grænmeti í henni þegar ég
er aö fara á sviö. Ég nýt þess að
stússa í eldhúsinu. Maður nær
aö hvíla hugann við matseldina
og ég legg mig yfirleitt allan í
verkið. Mér finnst gott að láta
hæla mér og því meiri alúð sem
ég legg í matseldina því meira
hól fæ ég. Það kitlar alltaf hé-
gómagimdina.
Sleppi rauðvíninu
í þennan rétt notaði ég ólífuol-
íu, mikinn hvítlauk, rauðan pip-
ar, tvo súputeninga, grænmetist-
ening og kjötkraft, aila þrjá lit-
ina af papriku, hálft glas af
hvítvíni og afhýdda, ítalska
tómata í dós. Þetta setti ég á
stóra pönnu og gætti þess vel að
láta ekki brenna. Spagettíið var
soðið við hliðina í 6% til 7 mín.
og þegar mér fannst það vera að
verða fullsoðið sigtaði ég það og
hellti því út á pönnuna. Þar lét
ég það veltast í sósunni á vægum
hita í 1 til 2 mín. til þess að það
gæti drukkið í sig sósuna. Þetta
bragðaðist allt saman mjög vel
með parmesanosti og, fyrir þá
sem vildu, einu glasi af góðu
rauðvíni. Sjálfur sleppi ég rauð-
víninu ef ég er að fara að syngja.
Eftir matinn tók við rólegur
tími fram að sturtu. Mér þótti
gott að fá að skipta um svo sem
eins og eina kúkableiu á dóttm--
inni. Það er ekki til siðs á Ítalíu
að karlmenn geri það. Þeim
finnst það ógeðslegt og skilja
ekki þegar ég er að segja þeim að
þetta geri ekkert nema styrkja
samband milli barns og föður.
I mörgæsarfötin
Ég sönglaði í sturtunni og yfir
rakstrinum, settist litla stimd
yfir textrnn, klæddi mig í mör-
gæsarfótin og gerði mig kláran í
að fara í Hallgrímskirkju. Ég
neita því ekki að smáfiðringur
hafi farið um magann en ég er að
jafnaði ekkert stressaður. Ég var
það á sínmn tíma eins og allir
þegar þeir vita ekki fúllkomlega
hvað þeir eru að gera. Klukku-
tíma áður en tónleikamir byrj-
uðu var ég mættur í kirkjuna,
hitaði mig í um tíu til fimmtán
mínútur og var síðan klár í slag-
Kristjón Jóhannsson ætlaði að halda tvenna tónleika hér á landi en vegna
gríðarlegrar eftirspurnar urðu þeir fimm.
DV-mynd BG
inn. Þar sem þetta hefur verið
mikil töm, 5 tónleikar á 6 dög-
um, þurfti ég ekki á eins mikilli
upphitun að halda.
Tónleikamir gengu mjög vel,
stemningin var fín og ég held að
allir hafi unað sælir við sitt. Á
Ítalíu er hefð að rífa í sig mat og
drekka vel af víni eftir tónleika
en ég er steinhættur öllu slíku.
Þetta er svo óhollt. Mér finnst
miklu betra að setjast niður í ró-
legheitum með vinum og kunn-
ingjum eöa eiginkonunni, lesa
bók eða gera eitthvað slíkt til
þess að ná mér niður. Þetta
kvöld var haldið kveðjuhóf með
Mótettukómum, Herði Áskels-
syni og hinum frábæra skipu-
leggjanda, Jóni Karlssyni í Ið-
unni. Hann á engan sinn líka í
því aö skipuleggja svona hluti
svo virkilegm- sómi sé að.
Við hjónakomin vorrnn komin
heim mn miðnætti, ánægð eftir
góðan dag. Mér finnst allt and-
rúmsloft hér mim jákvæðara en
áður. Fólk virðist sáttara og
bjartsýnna og ég vona að það
stafi af því góða efnahagsástandi
sem hér er. Fjölskylda mín kom
hingað með jákvæðum huga og
við voram ákveðin í að láta ekk-
ert raska ró okkar. Það hefur
ekki komið til þess enn og við
munum hvíla í faðmi tengdafjöl-
skyldu minnar um jól og halda
svo norður í land um áramótin.
Þar ætlum við bræður að reyta
rjúpur í bílskúmum og snæða
þær síðan á gamlárskvöld."
Finnur þú fimm breytingar? 443
„Ég hef fundiö upp gaskveikjara sem aðeins þarf áfyllingu ó 87 ára
fresti.“
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrír getraun nr. 441 eru:
1. verölaun:
Rósa Eðvaldsdóttir,
Blómvangi 11.
220 Hafnarfjörður.
2. verölaun:
Valtýr Sæmundsson,
Markariandi 15.
765 Djúpavogur.
Myndimar tvær virðast viö fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriöi skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafiii þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, aö
verðmæti kr. 3.490,-
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamfr verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 443
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík