Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 30
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997
*
34
viðtal
Irma, ekkja Islandsvinarins Grigols Mastjavarianis, komin til íslands ásamt dóttur þeirra:
Vió munum áreiðanlega flest
eftir honum Grigol Matsjavar-
iani, íslandsvininum sem upp á
eigin spýtur fór aö læra íslensku
í heimalandi sínu, Georgíu. Þeg-
ar þetta fréttist var honum og
eiginkonu hans, Irmu, boðið til
íslands af Davíð Oddssyni forr-
sœtisráðherra. Dvöldu þau hér
um hríð á meðan Grigol var við
frœðastörf. Þær hörmungarfrétt-
ir bárust síðan til landsins á
vormánuðum 1996 að Grigol
hefði farist í bílslysi í Tbílísí,
höfuðborg Georgíu og heimabœ
hans. Hann skildi eftir sig Irmu
og litla dóttur þeirra, Tamar.
Nú eru þær mæðgur komnar til
íslands og hafa verið hér frá því
í sumar en Irma hóf nám í ís-
lensku við Háskóla íslands í
haust.
Helgarblaðið heimsótti þær
skömmu fyrir jól þar sem þær búa í
Stúdentagörðunum. Búnar að koma
sér fyrir í lítilli íbúð sem vinir
þeirra og velunnarar hér á landi
hafa aðstoðað við að gera huggu-
lega.
„íslenskan er mjög erfitt tungu-
mál en þetta gengur bara ágætlega,"
sagði Irma þegar hún tók á móti
blaðamanni. Viðstaddur var fjöl-
skylduvinur þeirra, Guðni Th. Jó-
hannesson sagnfræðingur, sem var
einn þeirra fyrstu sem Grigol og
Irma kynntust hér á landi. í gegn-
um georgískan skólafélaga Guðna í
Englandi sendi Grigol honum bréf
og spurði hvemig hann gæti komið
til íslands og fengið vinnu. Þá hafði
hann laert íslensku eingöngu á því
að lesa íslendingasögurnar og fleira
lesefni sem Friðrik Þórðarson,
háskólakennari í Ósló, þá staddur í
Moggans og eftirleikinn muna flest-
ir. Ekki leið á löngu þar Grigol og
Irma voru komin til íslands í boði
stjómvalda.
Guðni var okkur til halds og
traust ef tungumálaörðugleikar
kæmu upp en þess þurfti varla,
Irma hefur greinilega náð ágætum
tökum á tungumálinu á þessum
stutta tíma. Hún hafði líka örlítið
kynnst íslenskunni þegar hún kom
hingað með Grigol.
Fylgist með okkur
„Það var mjög erfitt að koma
hingað aftur án hans en ég flnn
stundum fyrir honum. Hann er ör-
ugglega að fylgjast með okkur,“
sagði Irma en eitt er það sem Grigol
fmnst áreiðanlega vænt um. Hún
hefur staðið í því að koma eftirliggj-
andi verkum hans á prent í Georg-
íu. Það era þýðingar hans á
nokkrum Islendingasögum sem
komnar eru út í tveimur bókum,
m.a. Grænlendingasaga, Gunnlaugs
saga Ormstungu og Sturlunga. En
þetta er ekki allt. Hér á landi er ver-
ið að þýða georgísk ævintýri og
þjóðsögur sem Grigol hafði
framþýtt yfir á íslensku. Pjetur Haf-
steinn Lárasson vinnur að frágangi
þeirrar bókar.
„Það er betra fyrir mig að klára
þetta. Að koma þeim verkum út sem
hann hafði skrifað. Hann hefði vilj-
að það,“ sagði Irma.
Ekki eina fráfallið
Skyndilegt fráfall
Grigols var henni
skiljanlega erfitt. Hún
sagðist lengi á eftir
ekki hafa viljað hitta
fólk. Þá bjó hún ásamt
Tamar hjá öldruðum
foreldram Grigols sem
áttu mjög bágt. Ekki
bætti úr skák að eldri
sonur þeirra lést
nokkrum mánuðum
eftir dauða Grigols.
Irma flutti til foreldra
siirna fyrr á þessu ári
til að skipta um um-
hverfí og öðlast styrk
á ný. Síðan fór hún að
fá hringingar frá vin-
um á íslandi sem
vildu að hún kæmi
aftur þangað.
„Mér fannst vænt
um að fá þessar hringingar. Ég man
að þegar við Grigol giftum okkur
fann ég strax að það var fátt annað
sem komst að hjá Grigol en ísland
og aftur ísland. Við höfum mætt af-
skaplega miklum velvilja hérna og
hlýhug," sagði Irma.
Frá komu Grigols og Irmu til íslands fyrir fimm
árum. Davíö Oddsson og kona hans tóku á móti
þeim í Leifsstöö fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.
Grigol vissi varla hvernig hann átti að ávarpa Dav-
íö, kunni aöeins íslendingasögurnar og ávarpaði
hann „herra konung". DV-mynd ÆMK
Grigol og Irma kynntust í háskólanum í
Tbílísí í Georgíu 1988 og ári seinna
voru þau gift. Þaö var ást viö fyrstu
Sýn. DV-mynd GVA
Georg-
iu, lét
honum í
té. Það
varð úr
að Grigol
skrifaði
bréf sem
birtist
Velvak-
anda
Herra konungur!
Hún gat ekki annað en hlegið
þegar hún riíjaði upp
heimsókn þeirra
hingað. Davið
Oddsson tók á
móti þeim og
Grigol vissi
varla hvernig
hann átti að
heilsa hon-
um. Hafði eig-
inlega aldrei
heyrt ís-
Irmu og Tamar Matsjavariani líður vel á íslandi en þær hafa dvaliö hér í hálft ár. Irma aö læra íslensku í Háskólanum
og Tamar í Melaskólanum.
DV-mynd Hilmar Þór
notaðist við íslenskuna sem hann
hafði lært af fornbókmenntunum
og titlaði Daviö „herra konung".
Líklega sá eini sem hefur ávarpað
hann konung við opinberar mót-
tökuathafnir!
„Þegar við vorum búnir að vera
hérna um nokkurn tíma var fólk
farið að þekkja hann vel, enda
stór, dökkur og með skegg. Ég
man að einu sinni mætti honum
ungur piltur, hálfgerður pönkari,
sem bað hann að lána sér „sígar-
ettu“. Grigol leiðrétti hann og
sagði að hann ætti að segja „vind-
lingur". Strákurinn horfði á hann
og sagði: „Ó, já, þú ert þessi pró-
fessor frá Georgíu" Þetta fannst
okkur skemmtilegt," sagði Irma og
hló.
Ást við fyrstu sýn
Irma og Grigol giftu sig fyrir átta
árum. Þau höfðu kynnst árinu áður
í háskólanum í Tbilísí. Hún var í
málfræði og hann í lögfræði. „Þetta
var ást við fyrstu sýn,“ sagði Irma
og brosti blíðlega.
Ástin bar ávöxt skömmu eftir
giftinguna, hana Tamar, sem
fæddist 1990. Irma sagði að henni
liði vel hér á landi. Hún gengur í
Melaskóla og líkar mjög vel við
kennarana og krakkana.
„Ég óttaðist að henni myndi ekki
líða vel hérna. Að þurfa að skipta
um heimili, skóla og vini. En þetta
hefur gengið ótrúlega vel. Hún bíð-
ur spennt eftir jólunum," sagði
Irma en þær mæðgur þurfa í raun
að halda tvenn jól. Fyrst þau ís-
lensku en síðan þau georgísku í
janúar. Þar er reyndar gert meira
úr nýárshátíð en jólum.
Veislugleði í Georgíu
„Georgíumenn era veisluglaðir
og við höldum veislu nær látlaust
fyrstu tvær vikur mánaðarins,"
sagði Irma og tók fram að landar
sínir skemmtu sér öðravísi en ís-
lendingar. Drykkju meira af létt-
víni, enda gjöful vínræktarhérað til
staðar í Georgíu. Jólamaturinn ís-
lenski er allt annar en hún er vön. í
Georgíu er hann meira kryddaður
en svínakjöt þó algengt á borðum.
Ekki var úr vegi að spyrja hana
um jólasveininn í Georgíu. Hann
klæðist ekki ósvipað og nútíma jóla-
sveinn okkar íslendinga, í rauðum
klæðum og meö skegg. En hann er
bara ekki kallaður jólasveinn held-
ur Snjóa-afi. Er það góður karl sem
færir börnunum gjafir um jólin.
Þegar hún var spurð að lokum
hvað þær Tamar ætluðu að vera
lengi á íslandi sagðist Irma eiga er-
fitt með að svara. Hana langaði til
að klára námið og sjá svo til.
„Tamar líður vel héma en ef ég
verð kannski þrjú ár í viðbót verð-
ur mjög erfitt að snúa til baka til
Georgíu. Þá þarf hún að fara að
læra georgísku upp á nýtt. Það gæti
orðið erfitt," sagði Irma á meðan
Tamar tiplaði á tánum um íbúðina,
að farast úr jólaspenningi. Reyndi
að haga sér vel því hún hafði fengið
kartöflu í skóinn um morguninn!
-bjb