Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 46
k 50
lyndbönd
MYNDBMDA
Hollywood Confidential ★ii
Einkaspæjari með samvisku
Stan Navarro rekur einkaspæjaraþjónustu fyrir
ríka fólkið í Hollywood. Hann fær heldur ógeðfellt
mál á sina könnu, en kemst ekki hjá því að fást við
það sökum fjárskorts, þar sem hann sér fram á að
missa mikil viðskipti ef hann vinnur ekki verkið.
Þessi mynd er með allra rólegasta móti. Atburðarásin er hæg og stemn-
ingin blúsuð. Persónusköpun er sterk, en flashback-senur eru heldur
mikið notaðar til að útskýra fortíð þeirra. Gæðaleikarinn Edward
James Olmos túlkar hinn lífsþreytta Stan Navarro á sinn vandaða og
nákvæma hátt, og aðrir leikarar ráða einnig vel við sín hlutverk. Þá er
myndmál notað vel í myndinni. Þrátt fyrir marga kosti nær myndin
ekki aiveg flugi og er þar mest um að kenna slöku handriti. Sögufléttan
er afar veikburða og stendur ekki undir mynd af þessu tagi. Öll vand-
virknin í leik, leikstjórn og myndatöku verður því eins og fallegar um-
búðir utan um fremur ómerkilegan pakka. Þrátt fyrir hæga atburðarás
er myndin innan við 90 mínútur að lengd, sem gefur til kynna hversu
rýrt innihaldið er.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Reynaldo Villalobos. Aðalhlutverk: Ed-
ward James Olmos. Bandarísk, 1995. Lengd: 88 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Con Air ***
Fantar og fúlmenni í flugvél
Cameron Poe fær reynslulausn eftir langa fangelsis-
vist. Á leið heim til konu sinnar og dóttur fær hann
far með fangaflutningavél, en í henni eru saman
komnir flestir af illskeyttustu afbrotamönnum lands-
ins sem taka sig til og ná vélinni á sitt vald. Poe reyn-
ir að halda sér og saklausum á lífi án þess að vekja
grunsemdir skúrkanna. Mynd þessi er yfirgengileg
hasarmynd af betri sortinni. Hún hefur sömu galla og
aðrar hasarmyndir frá Hollywood; grunna persónu-
sköpun, heimskulegan söguþráð, bjánaleg hasaratriði
og asnalega fimmaurabrandara. í þessu tilviki vinnur
allt þetta einhvern veginn með myndinni sem virkar eins og kómísk rús-
síbanaferð. Klisjurnar eru matreiddar þannig að þær kitla hláturtaugam-
ar fremur en fara í einhverjar aðrar taugar. Nicolas Cage er sallafm hetja,
lítur út eins og Rambo og talar eins og Elvis. Illmennin eru síðan hvert
öðru skemmtilegra. Fyrir utan foringjann John Malkovich má nefna Steve
Buscemi, Ving Rhames og Danny Trejo, sem allir skapa eftirminnilega
óþokka. Þessi mynd er heimskuleg og gjörsamlega innihaldslaus, en það
er allt í lagi, því hún skemmtir áhorfandanum prýðilega.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Simon West. Aðalhlutverk: Nicolas
Cage, John Cusack og John Malkovich. Bandarísk, 1996. Lengd: 111 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Morðsaga
Fyrsta íslenska kvikmyndin *
Fyrsta íslenska kvikmyndin í fullri lengd fjallar
um heldur óheilbrigða fjölskyldu. Dóttirin er að vísu
tiitölulega eðlileg unglingsstúlka, en móðirin er
heimavinnandi fyllibytta og fjölskyldufaöirinn
stjórnar heimilinu með harðri hendi. Hann beitir
konu sina og dóttur andlegu og líkamlegu ofbeldi og
hefur óheilbrigðar hneigðir til dóttur sinnar. Þegar
hann eitt kvöldið lætur undan fýsnum sínum drepa
þær hann og losa sig við líkið. Því miður fyrir ís-
lenska kvikmyndasögu er myndin hreinasta drasl.
Myndataka er hugmyndasnauð og hljóðið gæti varla
verið verra þótt því væri bara sleppt. Fjárskortur af-
sakar kannski þessa galla að einhverju leyti (alls ekki öllu), en hann af-
sakar ekki hina gallana, sem eru m.a. lélegur og tilgerðarlegur leikur og
einfeldningslegt handrit. Mörg atriðin virðast vera þarna eingöngu sem
uppfyllingarefni. Allt sameinast þetta um að skapa lélega, langdregna og
leiðinlega mynd. Það eina merkilega við þessa mynd er frumkvöðuls-
hlutverk hennar í íslenskri kvikmyndasögu.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Reynir Oddsson. Aðalhlutverk: Guðrún
Ásmundsdóttir, Steindór Hjörleifsson og Þóra Sigurþórsdóttir. íslensk,
1977. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Kolya
Óskarsverðlaunamynd ***
Tónlistarmaðurinn Louka lifir kvensömu pipar-
sveinslífi, en hann á í stöðugum fjárhagsvandræð-
um. Til að leysa úr þeim giftist hann rússneskri
konu fyrir peninga, svo að hún geti fengið tékkneskt
vegabréf. Eftir aðeins nokkra daga flýr hún land og
Louka situr uppi með son hennar, Kolya. Louka vill
ekkert með strákpattann hafa, strákurinn vill auð-
vitað vera hjá sínum ættingjum, og í þokkabót tala
þeir mismunandi tungumál. Með tímanum myndast
þó samband milli þeirra og viðhorf Louka til lífsins
breyíast allverulega. Leikaramir sem leika Louka og
Kolya ná mjög vel saman og sérstaklega er strákur-
inn skemmtilegur. Zdenék Svérák er einnig góður en hann er þó heldur
afalegur til að vera trúverðugur kvennabósi. Kolya er ansi falleg mynd
og mörg atriðin eru skemmtileg og eftirminnileg. Sagan er heldur fyrir-
sjáanleg og kemur lítið á óvart. Kolya er vel þess virði að sjá, en besta
erlenda myndin 1996? Langt frá því.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Jan Sverák. Aðalhlutverk: Zdenék
Svérák, Andrej Chalimon og Libuse Safránková. Tékknesk, 1996. Lengd:
105 mín. Öllum leyfð. -PJ
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997
SÆTI FYRRI i VIKA J 1 VIKUR Á LISTAj 1 J TITILL j ÚTGEF. J ' TEG. j j
1 ! Ný i 1 i Con Air | Sam-myndbönd 1 Spenna
2 i Ný j , i 1 i j i Fierce Creatures j j ClC-myndbönd J J j Gaman ) :
3 1 2 j L j 2 1 Dante's Peak j ClC-myndbönd J Spenna
4 j ) 5 j i > j 2 i j > One Fine Day j J Skífan J j J Gaman j
5 í 1 j . 1 j 4 ) Liar Liar i ClC-myndbönd j Gaman
6 j í 4 j - > i 2 i First Strike j Myndform J j Spenna
7 i 3 i 5 i The Fifth Element J Skífan J Spenna
8 i . J j i : 4 : j J Trial and Error j Myndform ) J Gaman j
9 j 7 i 3 i Jungle 2 Jungle J Sam-myndbönd j Gaman
10 j 8 j ! e ! j > Bulletproof J ) ClC-myndbönd J J j Spenna )
11 j Ný > i 1 j 1 > Ghosts From the Past Skífan J Spenna
12 J < 9 j i > i 5 > i > Private Parts J j Sam-myndbönd J J Gaman J
13 j 10 j 7 > Shadow Conspiracy J j Myndform j Spenna
14 | » \ > i 2 ; Gotti j j Sam-myndbönd i J ClC-myndbönd ) ! Spenna
15 i 11 i 9 i The Saint J Spenna
16 i 13 J j j J 7 ‘ J 7 l l J Anaconda j Skífan j j Spenna i
17 i 16 i 2 i Ernest Goe's to Afrika j Bergvík j Gaman
18 j j 14 j i 8 i j J Scream J J Skífan j j J Spenna J
19 i Ný j i J j 1 J Kolya j Háskólabíó j Gaman
20 j j J 1 3 ; The Shining J J Sam-myndbönd J ! Spenna
Tvær nýjar myndir koma stormandi inn á listann
þessa vikuna, háspennumyndin Con Air og gaman-
myndin Fierce Creatures sem er með sama úrvals-
hópi leikara og léku í hinni eftirminnilegu gaman-
mynd, A Fish Called Wanda. Á myndinni má sjá
Nicolas Cage bjarga sér úr logandi víti í Con Air.
Vert er að benda á tvær aðrar myndir sem koma inn
á listann, báðar eftirtektarveröar, svo ekki sé meira
sagt. í tíunda sæti er nýjasta kvikmynd Rob Reiner,
Ghost from the Past, þar sem hann segir frá fræg-
um réttarhöldum, og í nítjánda sæti er svo verð-
launamyndin Kolya sem engir unnendur góðra
mynda mega láta fram hjá sér fara.
2. til 8. desember
Con Air
Nicolas Cage og
John Malcovich
Cameron Poe er á
leið heim til konu
sinnar og dóttur eftir
fangavist. Ásamt Poe
eru í flugvélinni
nokkrir af iilræmd-
ustu og hættulegustu
glæpamönnum Banda-
ríkjanna og það líður
ekki á löngu þar til
komið er upp algjört
neyðarástand i vél-
inni. Sá sem stendur
fyrir uppþotinu, Cyrus
Grissom, hefur brátt
alla vélina á sínu
valdi. Það kemur í
hlut Poe að koma í veg
fyrir áætlanir Gris-
soms. Á meðan berst
leyniþjónustumaður-
inn Larkin af öllum
mætti gegn því á jörðu
niðri að heryfirvöld
skjóti flugvélina niður.
Fierce
Creatures
John Cleese og
Kevin Kline
Hrokagikkurinn
Rod McCain eignast
Marwood-dýragarðinn
i Englandi fyrir lítið
fé. Hann þekkir ekkert
annað en að græða og i
því skyni sendir hann
hina kynþokkafullu
Willu og son sinn,
nautnasegginn Vince,
til Englands. Þegar
þau mæta á staðinn
komast þau að því að
framkvæmdastjórinn
hefur þegar tekið til
sinna ráða. Héðan i frá
skulu eingöngu grimm
og hættuleg dýr vera
til sýnis. Þessi ákvörð-
un mætir haröri and-
stöðu hjá starfsmönn-
um dýragarðsins sem
eru undir forystu skor-
dýrafræðings sem
gengur undir nafninu
„Padda“.
Dante s Peak
Pierce Brosnan
og Linda
Hamilton
Síöasta uppgötvun
jaröfræðingsins
Harrys Daltons hefur
leitt hann til ferða-
mannabæjarins Dan-
te’s Peak en þar hafa
sérkennilegar jarð-
hræringar vakið at-
hygli. Um leiö og
Harry kynnist bæjar-
stjóranum, Rachel,
sem er einstæð móðir
og rekur kaffihús i
bænum, grunar hann
hvað i vændum er,
enda bendir röð óút-
skýranlegra atvika til
þess að náttúran sjálf
sé um það bil að fara
að láta á sér kræla.
Aðvörunarorðum hans
er þó ekki sinnt og er
aðalástæðan að þá
væri ferðamannaþjón-
ustan i hættu.
One Fine Day
George Clooney
og Michelle
Pfeiffer
One Fine Day gerist
i New York. Michele
Pfeiffer leikur móður
sem gerir sitt besta til
að standa sig í móður-
hlutverkinu en hún er
einnig með hugann við
eigin frama. George
Clooney er harðsnúinn
blaðamaður, dæmi-
gerður helgarpabbi
sem vill vera laus við
barnið sitt þegar hann
er í vinnunni. Leiðir
þeirra liggja saman
þegar þau taka saman
bU með krakkana i
skólann. Þegar þau
rugla saman GSM-sim-
um sínum tekur at-
burðarásin á sig gam-
ansama mynd og mik-
ill misskilningur verð-
ur.
Liar Liar
Jim Carrey og
Jennifer Tilly
Fletcher er
hraðmæltur lögfræð-
ingur og óforhetranleg-
ur lygari. Ungur sonur
hans, Max, sem býr
hjá mömmu sinni, hef-
ur margsinnis orðið að
sitja heima þegar faðir
hans hefur svikið lof-
orö sin. Þegar Max
blæs á kertin á flmm
ára afmæli sínu á
hann sér aðeins eina
ósk: Að pabbi hans
hætti að ljúga þó ekki
væri nema í einn sól-
arhring. Og viti menn.
Óskin rætist og Flet-
cher kemst að því sér
tU hrellingar að
skyndUega getur hann
ekki sagt ósatt orð og
það líður ekki á löngu
þar tU lögfræðiferill-
inn er i hættu.