Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 52
■=> 2 Líí < § o hLÍO -> 2 m FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ Veðrið á morgun: Él fyrir norðan og austan Á morgun er gert ráð fyrir aust- lægri átt, golu eða kalda en stinn- ingskalda syðst á landinu. Dálítil él verða norðan- og austanlands og einnig við suðurströndina. Frost verður á bilinu 1 til 5 stig norðanlands, en hiti um frost- mark annars staðar. Veörið í dag er á bls. 49 , Hótel Holt: Skúli Þorvalds- son hættir Skúli Þorvaldsson sem stýrt hef- ur Hótel Holti um árabil hættir störfum þar um áramótin og tekur við stjóm fyrirtækis- ins Síld og fískur, auk þess sem hann er stjómarformaður bandarísku skyndi- bitakeðjunnar Arthur ■yft Treacher’s sem er að stórum hluta í eigu ís- skújj lendinga. Við stjórn Hótels Holts tekur Eiríkur Ingi Friðgeirs- son. Eiríkur Ingi hefur starfað á Hótel Holti undanfarin 11 ár sem matreiðslumaður en síðustu þrjú árin sem aðstoðarhótelstjóri. Sjá einnig ítarlegt viðtal við Skúla Þorvaldsson á síðu 31. -SÁ Þor- valdsson. LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 Ekki í lífs- hættu Karlmaður sem stunginn var með (pæe hnífi í húsi við Hverflsgötu í gær- morgun er ekki í lífshættu, að sögn læknis á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hann hlaut áverka á öðru lunga og eftir rannsókn var hann lagður inn á Landspítala til frekari aðhlynningar. Árásarmað- urinn náðist fljótt og var vistaður í fangageymslum lögreglu. Seinni part dags í gær var ástand hans slíkt, vegna neyslu áfengis og/eða vímuefna, að ekki hafði verið hægt að yfirheyra hann. Ekkert var þar af leiðandi vitað um orsök verknað- arins. Maðurinn er einn af þessum svokölluðu góðkunningjum lögregl- unnar. -sv Einbúinn látinn: Sala á stein olíu stöðvuð f Einbúinn í Böðvarsdal, Héðinn Hannesson, er látinn af völdum bmnasára sem hann hlaut á heimili sínu á aðfangadagskvöld. Tildrög slyssins voru þau að Héð- inn var staddur úti á hlaði og var að setja steinolíu á fjósalukt þegar eldur hljóp í fót hans með þeim afleið- ingum að hann brenndist illa. Hann náði að komast í síma Héðinn og gera lögreglu við- Hannesson. vart. Héðinn var fluttur í skyndi var tluttur i skyndi á heilsugæslustöðina á Vopnafirði en þar voru meiðsl hans talin það al- varleg að ákveðið var að flytja hann með sjúkraflugi á Landspítalann þar sem hann lést svo af völdum sára sinna á jóladag. Fyrr í þessum mánuði varð einnig eldsvoði í Böðvarsdal en þá brann íbúðarhús Héðins til kaldra kola þegar lukt sem hann var nýbú- inn að setja steinolíu á fuðraði upp í forstofu hússins. Héðinn brenndist þá nokkuð en var að ná heilsu þeg- ar hann fór heim í Böðvarsdal á að- fangadag. Þetta var fyrsti dagur Héðins heima við en komið hafði verið upp bráðabirgðahúsnæði í stað þess sem brann á jörðinni. Að sögn lögreglunnar á Vopna- firði er rannsókn málsins ekki lokið og verður steinolian tekin til frekari rannsóknar. Þá hefur lögreglan á Vopnafirði beint þeim tilmælum til olíusala á Vopnafirði að hætta sölu steinolíu á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Héðinn Hannesson var 68 ára að aldri þegar hann lést og hafði búið alla sína ævi í Böðvarsdal þar sem hann tók við búi af foreldrum sín- um. -aþ Reykjavíkur- apótek selt? Samkvæmt nýjustu fjárlögum hefur Háskóla íslands verið veitt heimild til að selja Reykjavíkurapó- tek, sem skólinn hefur rekið í ára- tugi. Ekki hafa enn verið teknar neinar ákvarðanir varðandi sölu þess en Ingjaldur Hannibalsson, dósent í viðskipta- og hagfræðideild, sagði að það yrði kannað strax í byrjun komandi árs. Ingjaldur sagði að jafnframt yrðu athugaðir aðrir möguleikar, til að mynda leiga rekstursins. Hann sagði að Háskólinn hefði ekki tapað á rekstri Reykjavíkurapóteks en ástæða þess að verið væri að kanna alla möguleika væri sú að allar að- stæður væru gjörbreyttar vegna hinnar miklu samkeppni sem nú væri í lyfsölu. -Sól. Ísaíjörður: og vopn Lögreglan á ísafirði handtók á Þor- láksmessu 22 ára karlmann á flugvell- inum í bænum. Hann var að koma frá Reykjavík og hafði í fórum sínum 15 grömm af amfetamíni og 2 g af maríjúana, auk áhalda til neyslu fikniefna. Hann viðurkenndi að hafa ætlað efnin til eigin neyslu og dreif- ingar. Hann hefur áður komið við sögu fikniefnamála. Sama dag var bifreið stöðvuð á Arnarnesi við Skutulsfjörð. Þar voru tveir menn á leið til ísafjarðar úr Reykjavik. í bilnum fundust fikniefni, 27,4 g af amfetamíni, skotvopn og skotfæri. Annar mannanna viður- kenndi að hafa ætlað efnin til eigin neyslu. Hvorugur þeirra hefur komið við sögu fikniefnamála áður. Tveir ' menn á ísafirði hafa verið yfirheyrðir í tengslum við málið. Allir mennirnir hafa verið látnir lausir. -sv ASTARÞRIHYRN- IN<5.URINN MEL B. FJOLNIR 0(3 LOKI! Það var handagangur í öskjunni fyrir utan kvikmyndahúsið Regnbogann í gærdag, annan t jóium. Þá var frumsýnd bíómynd þeirra Kryddstúlkna, Spice Worid. Biðröð hafði myndast langt upp eftir Hverfisgötunni, svo mikill var áhuginn á því að ná sér í miða á þessa vinsælu mynd. Svo skemmtilega vill Ifka til að Mel B., ein þeirra Kryddstúlkna, var stödd hér á landi skömmu fyrir jól. Ekki er þó vitað hvort hún ætlaði að eyða jólunum á íslandi. Mel B sækir ísland heim reglulega enda með íslenskan kærasta upp á arminn. DV-mynd Hilmar Þór FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Erfið helgi á slysavarðstofu „Þaö má lítið út af bregða. Ef eitt- hvað mikið myndi gerast færi hér allt úr skorðum og þá er hætt við því að fólk yrði að bíða lengi eftir að komast að,“ sagði Gunnar Mýrdal, vakthaf- andi sérfræðingur á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, um ástandið þar yfir hátíðisdagana. Gunnar segir ástandið vera mjög erfitt eftir að aðstoðarlæknar hættu störfum. Stöðugur straumur fólks hafi verið á slysadeild. „Það var ró- legt á jólanótt og jóladag en það var meiri traffik hér í dag,“ sagði Gunn- ar. „Það má búast við líflegri nóttu og helgin verður vafalaust erfið.“ „Reynslan er sú að dagamir eftir jól og hátíðar eru oft erfiðir. Fólk hef- ur beðið með sín veikindi heima fyr- ir og því má búast við enn meira álagi nú,“ sagði Árni Jón Geirsson, vakthafandi læknir á lyfjadeild Land- spítalans. „Það getur skapast mjög erfitt ástand þegar sérfræðingar þurfa nú að ganga vaktir sem unglæknar hafa sinnt.“ -Sól. Franklín Steiner í felum um jólin - mætti ekki til afplánunar á Þorláksmessu Franklín Steiner, sem átti að hefja afplánun dóms í fangelsi á Þorláks- messu, hefur verið í felmn yfir jólin. Þegar DV fór í prentun i gærkvöld hafði lögreglunni ekki tekist að hafa upp á Steiner. Lögreglan í Hafnarfirði staðfesti þetta og sagði að Franklín hefði ekki mætt til afplánunar eins og ráð var fyrir gert að morgni Þorláks- messu. Lögreglan fékk því fyrirmæli um að „svipast um eftir Steiner" eins og það var orðað. Sú eftirgrennslan hafði ekki skilað neinum árangri í gærkvöld. M.a var farið á heimili Steiners í Hafnarfirði og leitað en hann fannst ekki þar. Franklín mótmælti Eins og fram hefur komið í DV mótmælti Franklín Steiner því harðlega að þurfa að fara í fangelsi daginn fyrir jól. Franklín átti að mæta í Hegning- arhúsið við Skólavörðustig á Þor- láksmessu eins og áður segir. Þar átti hann að hefja afplánun á 20 mánaða dómi fyrir fikniefnamis- ferli. Gert var ráð fyrir að hann yrði síðan fluttur austur á Litla-Hraun eftir jólin. -EH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.