Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Síða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 DV
nn
Ummæli
Forsjáll for-
sætisráðherra
„Forsætisráöherrann er
ekki bara skemmtilegur, hann
er líka forsjáll,
sem sjá má á því
að hann lét
byggja perlu efst í
á Eskihliðinni
þegar hann var
um fertugt, til
að geta haldið
þjóðinni veislu
þegar hann yrði fimmtug-
ur.“
Árni Björnsson læknir, í DV.
H-veikin
„Á föstudaginn féll ég fyrir
H-veikinni (hiti, hósti, hor,
hæsi, höfuðverkur) og eftir
hetjulegt andóf fram á kvöld
gaf ég mig veirunum á vald.“
Auður Haralds rithöfundur, f
DV.
R-listinn og
prófkjörið
„R-listinn hafnar Framsókn-
arflokknum í forustusæti, Al- I
þýðuflokkurinn
hefur fallið úr
borgarstjóm og í
þeirra sætum
sitja nú fyrrver-
andi framsókn-
armaður og
ungur óháður,
sem kemur úr
Alþýðubandalaginu.“
Árni Sigfússon borgarfull-
trúi, i Morgunblaðinu.
Tekjuhæsta
vinnandi stéttin
„Sjómannastéttin er lang-
samlega tekjuhæst hinna
vinnandi stétta. Hún er skatt-1
frjáls. Þetta þýðir að vinnandi
alþýða með langtum lægri |
tekjur greiðir heilbrigðisþjón-
ustuna handa sjómannastétt-
inni og menntun barnanna og
margt annað."
Benjamín H. J. Eiríksson
hagfræðingur, í Morgunblað-
Daglegur vinningur
„Það er nú einu sinni svo að
þegar menn hafa komið sér
upp happdrætti
sem gefur vinn- f
ing daglega þá
sleppa þeir
ógjaman hnoss-
inu. Þaö versta
er að sjómenn
bera þungann
af því að
greiöa út vinninginn."
Guðjón Á. Kristjánsson,
form. Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, um
stöðuna f verkfallinu, i DV.
Suðurland
MÝRAR .. Lundareykjaclalur
r
^aUme.nd.arhraun
Jfcw'1ú<Éifí8liókuil
rsjukum Hrútfell „
LANGJÖKULL • . Baldheiöi Kerlingarfjoll
. „'0» ■■ -
•HOFSJÖKULL
jar
Hagafell
Skarðsheiöi
Bl&fell
vjA' - ... Sk - - ZJF‘ ; ,
Skjaldbreiður Lambahraun, -Bugur
Kvigindisfell . ' Biarnarfellr... f^
’ Leirársvélt-"''—'—Botnsglur MiÖdalsfjall • ; ^
ABJaneSAWaÍ KJðlur T**** • - /sK.dabúðaheiði
^ “ -i Apavatn
Reykjavík ' _ N . T , .úlfljótsvatn - = fl|"
^ Nesjavdfff 1Búrfe„ Aóraborg Vorðufell Ámes
Miðdalsheiöi bengi11 '< Hraunajaröir Hestvatn i Ð
Vif,„fe,i Reykjak0t Hvítá HeStfja'^ ' Hagi V
p V)'
Skarö
Ú
, ,, ■ ...urr.jar.uL ... . . Hestfjall Hagi 1
Vlfllsfell ... Mvila •; 'f' £
Meiíillinn Kotstiönd Hrqungeröi % vMafteinstunga
: Lambafellshraun M ‘Laugardælir . >5
Heiöffí hí-lc* - ■ < Hjatli Selfoss , f
Geitafell 'i.( \ Villmgaholt Kalfholt Art,ae”
Æ Ölfusa BREIAMMtíl
4 Ó I ' V"'-. .-.-r ”>•" \"'-T
Þorlákstiöfn
s/ Keldur |
Stokkseyri..
, . /Gaulverjabær
Hrútsvatn 'y p J v
\ ' Vetleifshoitshverfi 2
Þjórsá | Frakkavatn •. %.
«úl'
■Háfshverfi c,e'
A_____ I » 1
_Þ^kkvi#ær_
Broddi Kristjánsson, Islandsmeistari og landsliðsþjálfari í badminton:
Hef verið í badminton og á
hestbaki frá því ég var smágutti
Broddi Kristjánsson badminton-
spilari, sem í fyrra var ráðinn lands-
liðsþjálfari, er sigursælasti badmint-
onmaður sem við íslendingar höfum
átt. Broddi, sem kominn er hátt á
fertugsaldur, gerði sér lítið fyrir og
vann íslandsmeistaratitilinn í ein-
liðaleik í þrettánda sinn. í úrslitum
lék hann á móti ungum og efnileg-
um pilti, Sveini Sölvasyni, sem var
ekki fæddur þegar Broddi lék fyrst
með landsliði íslendinga. í stuttu
spjalli var Broddi fyrst spurður
hvenær hann ætlaði að setja enda-
punktinn á keppnisferilinn: „Það er
alltaf spuming hvenær maður á að
stoppa og ég geri mér grein fyrir að
ég verö ekki endalaust meðal þeirra
bestu, hef látið háfa eftir mér að nú
sé nóg komið og þá á ég við einliða-
leikinn. Ég hef fullan hug á því að
halda áfram I tvíliðaleik. Ég mun
samt halda áfram aö keppa í einliða-
leik þetta tímabil."
í fyrra var Broddi valinn lands-
liðsþjálfari og var hann spurður
hvað fram undan væri í þeim efn-
um: „Þetta er virkilega spennandi
starf og hef ég verið með hóp af bad-
mintonspilurum í þjálfun í vetur.
Framundan er hörð keppni í Thom-
as Cup. Fer ég með tíu manna lið,
fimm stráka og fimm stelpur. Þar
munu strákamir heyja keppni við
Frakkland, Slóveníu og Lettlandi
og það lið sem vinnur riðilinn
kemst síðan í úrslit. Frökkum er
raðað fyrir ofan okkur í styrk-
leikaröð en við ætlum okkur að
vinna
riðilinn og Broddi Kristjánsson.
komast í úrslit. Sjálfur er ég ekki
hluti af þessum tíu manna landsliðs-
hópi en kem til með að keppa ef ég
sé fram á að ég styrki liðið. Stelp-
urnar munu keppa gegn Eistlandi,
Suður-Afríku og Póllandi."
Það er sjaldgæft að keppnismenn í
einstaklingsíþróttum haldi sér jafn
lengi í hópi þeirra bestu eins og
Maður dagsins
Broddi hefur gert: „Ég hef þegar á
heildina er litið verið heppinn með
meiðsli, að vísu var
ég meiddur í októ-
ber og nóvember
í fyrra, en hef
náð mér.“
Broddi segir ,
breiddina vera
meiri í bad-
minton nú en
áður: „Það er í
raun aðeins
eitt fé-
lag, TBR, sem getur boðið upp á
bestu aðstöðu fyrir badmintonfólk.
Til okkar sækir mikið af ungu fólki
sem svo skilar sér inn í keppnisliðin
enda er unnið gott unglingastarf hjá
TBR. Þegar ég var að byrja sem smá-
gutti var ekki til sú aðstaða sem við
höium i dag og því er breiddin mun
meiri nú og hefur verið að aukast."
Broddi er lærður íþróttakennari
og starfar í Snælandsskóla. Hann á
sér eitt annað áhugamál sem hann
hefur stundað jafn lengi og badmint-
onið: „Ég er búinn að vera í hesta-
mennskunni alveg frá þvi
ég var smákrakki.
*V Fjölskylda mín hef-
* ur alltaf átt hesta og
var ég fljótur að fá
áhuga á hestum og sá
áhugi hefur ekk-
ert minnkað
I með árunum
h. þótt ég hafi
ekki sinnt
hesta-
mennskunni
jafn mikið og
badmintoninu.
Það verður sjáif-
sagt einhver
breyting á því á
næstu árum.“
Eiginkona
Brodda er
Helga Þóra
Þórarinsdóttir
og eiga þau
einn þriggja
ára son.
-HK
Sandfok hefur fariö illa meö
íslenska náttúru eins og
sést á þessari mynd.
Sandgræðsla
Sandur þar sem áður var
gróður er algeng sjón á ís-
landi og er miklu fjármagni
eytt árlega i vemdun nátt-
úrunnar og uppgræðslu.
Svo vitað sé var fyrst hreyft
við sandgræðslu á Islandi
árið 1745. Þá gaf stjórnin út
fyrirmæli um stöðvun sand-
Blessuð veröld
foks í Vestmannaeyjum
með hleðslu grjótgarða og
sáningu mels. Nokkrum
árum síðar lét Björn Hall-
dórsson í Sauðlauksdal
hlaða 700 metra langan
sandvarnar- og túngarð og
sáði melfræi.
Til loka 19. aldar var lítið
gert að þvi að græða sanda
og blásna mela, enda var
óhægt um vik að friða lönd-
in þar til gaddavírinn kom
til sögu. Árið 1886 gerði Sæ-
mundur Eyjólfsson tilraim
til þess að græða Stjórn-
arsand með áveitu en sú til-
raun mistókst.
1907 hófst skipuleg sand-
græðsla hér á landi og lög
um sandgræðslu voru sett
1914. í framhaldi af því hafa
blásin svæði verið friðuð
með girðingum, reistir
skjólgarðar, áburður borin
á svæði og sáð í þau.
Myndgátan
Maður minnist konu sinnar
í bænum sínum
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Hár og hitt
Annnað kvöld verður sýning á
glæpsamlega gamanleiknum Hár og
hitt eftir Paul Portner sem hefur
gengið í Borgaleikhúsinu frá því í
sumar og er sýningaíjöldinn kom-
inn á sjötta
tug. Það er
Gísli Rúnar
Jónsson
sem þýöir
og staðfær-
ir.
Leikritið
gerist á
hárgeiðslu-
stofunni
Hár og hitt
þar sem
Bonni ræð-
ur ríkjum
ásamt Hófi,
aðstoðar-
stúlku
sinni. Skömmu eftir að leikurinn
hefst er framið morð í íbúð á næstu
hæð fyrir ofan hárgreiðslustofuna.
Fórnarlambið er píanóleikarinn
Karólína Hjálmtýsdóttir. Bonni og
Dramatískir atburðir
gerast á hárgreiðslu-
stofunni Hár og hitt.
Leikhús
Hófi liggja undir grun ásamt tveim-
ur viðskiptavinum stofunnar, þeim
Arnmundi Bachman antíksala og
hinni stórættuðu Gullveigu
Sjöbeck. Það kemur í hlut rann-
sóknarlögreglumannanna Hans
Maack og Grétars Tómassonar að
finna hvert þeirra er morðinginn en
öll hafa þau ástæðu til að myrða
Karólínu.
Leikarar eru Edda Björgvinsdótt-
ir, Ellert A. Ingimundarson, Guð-
laug Elísabet Ólafsdóttir, Jóhann G.
Jóhannsson, Kjartan Bjargmunds-
son og Þórhallur Gunnarsson.
Bridge
Norðmaðurinn Geir Helgemo er
fastagestur í bridgedálkum víða um
heim fyrir snilldartilþrif sín við borð-
ið. Kanadíski dálkahöfundurinn Ray
Clee greindi frá þessu spili sem hann
sá til Norðmannsins i keppni í Banda-
ríkjunum. Helgemo lenti í dobluðum
samningi á Qórða sagnstigi sem hefði
átt að fara niður en hann nýtti sér
mistök andstæðinganna í vöminni til
fullnustu. Sagnir gengu þannig:
* KD54
«* D632
♦ 3
4 10532
4 963
V -
♦ KD85
* ÁK8764
N
V A
S
4 Á1087
44 ÁG54
4 762
* D9
4 G2
«4 K10987
4 ÁG1094
* G
Norður austur suður vestur
pass pass 1» 2 4
3 4 Dobl 3 «4 4 4
Dobl p/h
Vörnin byrjaði á því að spila tígli á
ásinn, tigulgosa til baka og norður
trompaði gosa Helgemos. Norður var
ekki tilbúinn að ráðast á hálit og spil-
aði sig út á trompi. Helgemo drap
heima á ás, spilaði laufl á drottningu
og síðan lagði Helgemo gildruna, spii-
aði lágu hjarta frá blindum. Suður
gerði þau mistök að setja kónginn.
Helgemo trompaði, spilaði trompum í
botn og staðan var þessi:
4 KD5
M D6
•f -
4
4 963
♦ D8
4 -
N
V A
S
4 A108
«4 ÁG
4 -
4 -
4 G2
4 1094
4 -
Nú var tíguldrottningunni spilað og
norður lenti í óverjandi þvingun. Það
dugar norðri ekki að henda háspaða
því sagnhafi getur aUtaf látið norður
lenda inni á háspaðann. Norður gat
hins vegar hnekkt spilinu þrátt fyrir
mistök suðurs. Hann varð að henda
háspaða einum slag fyrr og eiga eftir
K54 og D6 í fimm spUa endastöðu. Þá
hefði hann getað hent spaðakóngnum
í tiguldrottninguna! -ís