Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Síða 24
24
Fréttir
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Fram síur eru í
takt við tímann.
Gerðu kröfur
veldu Fram síur!
FRAM
SFRAM ábyigö
jnausf^
Sími 535 9000
Fax 535 9040
www.frameurope.nl
Erum flutt að Helluhrauni
10, Hafnarfirði
Hillukerfi, gínur.
Fataslár, margar geröir
Panilplötur — fylgihlutir
Herðatré, mátunarspeglar, sérsmíði
á innréttingum. Verðtilboð.
Sendum í póstkröfu
HCÍ l^ltlehf. heildverslun
Helluhrauni 10 - Sími 565 0980
Egilsstaðir:
Skemmtibátur á Fljótið
Stofnað var nýlega á Egilsstöðum
einkahlutafélag til að undirbúa
kaup og rekstur skemmtibáts á Lag-
arfljóti. Á fundinum voru 30 manns
og var áhugi mikill.
Þeir sem staðið hafa að undirbún-
ingi hafa verið að skoða bát sem
tekur 130 farþega og er til sölu Sví-
þjóð. Er forkaupsréttur á honum
þar til í apríl. Á vegum hins nýja
hlutafélags verður nú farið að at-
huga um leyfi og leita eftir fjáifest-
um.
Lausleg athugun gerir ráð fyrir
50 milljóna króna fjárfestingu. Fé-
lagið heitir Lagarfljótsormurinn og
trúlega fær skipið líka það nafn.
Bátur með því nafni var notaður á
Fljótinu til vöruflutninga á fyrstu
áratugum aldarinar og voru fluttar
vörur frá Egilsstöðum upp eftir
Fljóti að Brekku í Fljótsdal.
Nú eru líkur á að þráðurinn verði
tekin upp að nýju með skemmti-
ferðaskipi. Þar verða veitingar um
borð og leiðsögumaður en beggja
vegna Fljóts er krökkt af sögu- og
Forráðamenn félagsins. Frá vinstri Bjarni Björgvinsson lögfræðingur, Benedikt Vilhjálmsson rafeindavirki og Örn
Þóröarson ráðgjafi. DV-mynd Sigrún
sagnaslóðum, að ógleymdum sjálf- tækifæri til að mynda orminn og takast mætti að draga þessa sögu-
um orminum. Þarna gefst gullið líka mætti taka með öngul og færi ef legu skepnu úr djúpinu. -SB
A-flokka framboð í Snæfellsbæ?
- en G-listi í Grundarfirði
DV, Vesturlandi:
Svo kann að fara að A-flokkarnir,
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og
óháðir, bjóði fram sameiginlegan
lista við bæjarstjórnarkosningar i
Snæfellsbæ.
„Við erum að hóa fólki saman en
þetta hefur dregist vegna þorra-
blóta. Ef til kemur verða þetta Al-
þýðuflokkur, Alþýðubandalag og
óháðir en verður opið fyrir alla sem
vilja vera með,“ sagði Drífa Skúla-
dóttir, eini fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í bæjarstjórn Snæfellsbæjar.
Alþýðubandalag myndar meiri-
hluta með sjálfstæðismönnum sem
hafa fjóra fulltrúa og framsóknar-
mönnum sem hafa tvo fulltrúa. AI-
þýðuflokksmenn eru í minnihluta
með tvo menn. A-flokkarnir hafa
því þrjá menn í hæjarstjórn Snæ-
fellsbæjar nú en Alþýðubandalagið
vantaði aðeins þrjú atkvæði upp á
að fá tvo menn kjörna við síðustu
bæjarstjórnarkosningar.
Þá hefur þegar verið ákveðið að
bjóða fram G-lista Alþýðubandalags-
ins í Grundarflrði. Langt er síðan
Alþýðuflokkurinn hefur boðið þar
fram. Alþýðubandalagið á þrjá
menn í hreppsnefnd Eyrarsveitar og
hefur verið gerð könnun á fylgi ein-
staklinga flokksins til framboðs.
-DVÓ
Skátavígsla í Heydalakirkju
Skátavígsla var viö messu hjá séra Gunnlaugi Stefánssyni i Heydalakirkju sunnudaginn 22. febrúar. 14 börn á aldrinum 7-10 ára tóku þá ylfingavígslu og
tveir krakkar, 11 og 12 ára, unnu skátaheitið. Skátafélagið Farfuglar var formlega stofnaö 22. febrúar 1997 en hefur starfað í þrjú ár. Á myndinni eru krakk-
arnir ásamt Elínu Traustadóttur félagsforingja og Mörtu Hermannsdóttur flokksforingja. DV-mynd Hanna, Breiðdalsvík
Fréttir, viðtöl, ferðir, bílar,
kvikmyndir, myndbönd,
Barna-DV og margt fleira
Helgarblað DV
er sniðið fyrir
alla fjölskylduna
segir allt sem segja þarf
Hvaltj arðargöng:
Opnuö 10. júlí
DV, Akranesi:
Hópar manna eru við margvís-
leg störf á mörgum stöðum í
Hvalfjaröargöngunum en áform-
að er að þau verði opnuð fyrir
umferð 10. júlí. Verið er að setja
steypu í mót í suðurhluta gang-
anna og steypa upp eina af 4
spennistöðvum fyrir rafmagn.
Mikil raforka verður notuð í
göngunum. í suðurhlutanum er
verið að undirbúa sjálfa akbraut-
ina fyrir malbikun og vinna við
lagnir. Verkið er lengra komið í
norðurhlutanum. Búið er að mal-
bika akbraut niður undir botn og
vaskir menn hamast við að
klæða loft og veggi ganganna á
tveimur stöðum samtímis.
Miðja vegu milli botns og norð-
urmunna ganganna er verið að
festa dropavöm á bergið, fóðring-
armottur til að koma í veg fyrir
að það sáralitla vatn, sem á ann-
að borð lekur úr berginu, fari á
sjálfa akbrautina. Eftir að mott-
umar em komnar á sinn stað er
sprautað á þær sex sentímetra
þykku lagi af sementsblöndu.
Nær nyrðri munna er verið að
festa grindur á bergið og á grind-
urnar er festur dúkur. Þetta er
líka lekavöm og bergið er ótrú-
lega þurrt. Vatnsleki í Hvalflarð-
argöngum er aðeins 5 lítrar á
sekúndu. Til samanburðar leka
um 150 lítrar af vatni í Ólafsflarð-
argöngum á sekúndu og 1000 lítr-
ar á sekúndu í Vestflarðagöng-
um.