Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Page 28
36 MÁNUDAGUR 9. MARS 1998 (í Klukkutímamas í farsímann Kjaftaglaðir farsímaeigend- ur geta farið að láta sig hlakka til. Þess verður kannski ekki langt að bíða að þeir geti talað klukkustund- um saman i farsímana sína, jafnvel heilu sólar- A' hringana, án þess að skipta um rafhlöður. Núna duga rafhlöðurn- ar ekki lengur en í svona tvo tíma. Tímaritið New Scientist sagði frá því um daginn að Bandaríkjamaðurinn Robert Hockney heíði fundið upp nýja orkuhlöðu sem notar metanol sem orkuuppsprettu. Með henni á að vera hægt að tala viðstöðulaust í 100 ^ klukkustundir. Vonast er til að frumgerð nýja orkubúntsins verði til- búin í lok næsta árs. Genasamskeyt- ing til bjargar umhverfinu Danskir umhverfisvinir tgera sér vonir um að nýtt rannsóknarverkefni á vegum Evrópusambandsins verði til að hreinsa alls kyns mengun, svo sem af völdum oliu, bens- íns, tjöru og annars óþverra, úr danskri mold. Nú eru mörg hundruð ferkílómetrar lands mengaðir af þessum völdum og þvi til lítils brúk- legir. Hreinsunin felst í svoköll- uðu genasplæsi þar sem erfðaefni er skeytt saman. í verkefninu er miðað að því að þróa bakteríur sem dreifa úr sér í jörðinni með plönturótum og hreinsa óþverrarnn. Ef það gengur r oftir verður ef til viU hægt að koma menguninni fyrir katt- arnef með handfyUi af plöntufræjum og boUafyUi af bakteríum. Rafstraumur vekur hlátur Hlátur hefur sjaldnast ver- ið settur í samband við raf- lost. Miklu fremur er raflost í hugum almennings tengt pyntingum af ýmsu tagi, lífg- un úr dauðadái í Bráðvakt- inni eða lækningu þunglynd- %issjúklinga. Vísindamenn við læknadeUd Kalifomíuháskóla í Los Angeles komust hins vegar að því að þeir gátu fengið 16 ára flogaveikisjúk- ling til að hlæja með því að örva með rafstraumi þann hluta heUa sjúklingsins sem tengist málhæfileikum og fæmi í höndum. í bréfl til vísindaritsins Nature segja visindamennim- ir að þeir hafi verið að örva heUa sjúklingsins til að kanna hvers vegna hann jrfengi þrálát krampaflog. Þeir tóku þá eftir því að lítUl hluti viðbótarhreyfisvæðis heUans framkaUaði hlátur í hvert skipti. Lengd og ákefð hlátur- kastsins fóru eftir því hversu sterkur rafstraumurinn var. Enn berast okkur góðar fráttir um hollustu rauðvínsins: Maðurinn með Ijáinn tekinn með hælkrók Vín er gott, vín er hoUt, og hananú! Franski vísindamaðurinn Serge Renaud varð fyrstur manna tU að færa sönnur á hollustu rauð- víns, einkum þó góð áhrif þess á hjartað. Nú hefur monsjúr Renaud gert enn merkari uppgötvun. Og hún er þessi: Tvö tU þrjú rauðvíns- glös á dag draga úr dauðsföUum af öUum völdum um hvorki meira né minna en þrjátíu prósent. Hann skrifaði grein um niðurstöður rann- sókna sinna í timaritið Epidemi- ology fyrir stuttu. „Mig hefur alltaf gmnað þetta. Vín veitir ekki aðeins vörn gegn hjartasjúkdómum heldur einnig gegn flestum tegundum krabba- meins,“ segir hann. Renaud er hjartasérfræðingur við Bordeaux- deild hinnar virtu rannsóknarstofn- unar INSERM. Rannsókn Renauds á 34.000 mið- aldra karlmönnum í Austur-Frakk- landi rennir stoðum undir það sem kaUað hefur verið „franska þver- stæðan" og felst í því að Frakkar, sem borða mikið af mettaðri fitu, verða engu að síður allra karla og kvenna elstir, eða næstum því. Nið- urstöðumar reyndust hinar sömu hvort sem mennirnir reyktu, höfðu aldrei reykt eða vom hættir. Þá var enginn munur á skrifstofuþrælum og verkamönnum. Nýlegar rannsóknir í Bandaríkj- unum leiddu í ljós að sjúss af næst- um því hvaða áfengi sem er getur dregið úr hættunni á hjarta- og æða- sjúkdómum. Fransmaðurinn Renaud heldur því fram að rauðvínið sé best, að sjálfsögðu vegna andoxunarefnanna Sálfræðingarnir vita hvað þeir syngja: Hlýðinn eiginmaður grund- völlur farsæls hjónabands Þar höfum við það, vísindalega staðfestingu á því sem við höfum lengi vitað: Karlar góðir, ef þið vilj- ið að hjónabandið endist eins lengi og til var stofnað er víst best að hlýða sinni heittelskuðu í einu og öUu. Og ekkert múður. Já, konurnar okkar hafa fengið í lið með sér heUan hóp sálfræðinga við Washingtonháskóla þar sem karlinn John Gottman er for- ustusauðurinn. Sálfræðing- ar þessir segja að hjón sem fylgja eftir tísku- straumum, eins og „virkri hlustun" eða öðram gagnvirkum aðferðum, til að jafna ágreining skUji ekkert minna en önnur hjón. „Þetta var það sem kom okk- ur einna mest á óvart í því hvernig best sé að jafna ágrein- ing í vel heppn- uðum hjóna- bönd- um,“ seg- ir Gottman. „Rannsóknir okkar benda til að virkri hlustun sé afar sjaldan beitt þegar hjón reyna að leysa ágreining sinn og ekki reyndist samband miUi virkrar hlustunar og farsæls hjónabands." Gottman og félagar hans fylgdust með 130 nýgiftum hjónum í sex ár, meðal annar með því hvernig þau fóru að þegar þau vom ekki á einu máli. Mörg hjónanna reyndu virka hlustun sem felur það til dæmis í sér að hvort hjónanna um sig um- orðar það sem hitt sagði til að sýna fram á að hinn aðilinn hefði ekki talað fyrir daufum eyr- um. Þessi hjón vom svo borin saman við hjón sem fylgst hafði verið með í eldri rannsókn á hjóna- bandsfarsæld. Sú rannsókn stóð yfir í þrettán ár. Þau hjón sem enn vom ham- ingjusamlega gift eftir þann tíma notuðu nær aldrei slíkar hlustunar- aðferðir, enda þær kannski mannin- um ekki eðlUegar. Það sem farsælu hjónaböndin í eldri hópnum áttu hins vegar öU sameiginlegt var að maðurinn var ætíð reiðubúinn að láta konuna hafa áhrif á sig. „Við komumst að því að aðeins . þeir nýkvæntu karlar sem láta kon- una hafa áhrif á sig eiga eftir að lifa í hamingjusömu og traustu hjóna- bandi,“ seg- ir sálfræð- ingurinn John Gott- man. Já, elsk- an, eins og skot! Leikararnir Paul Newman og Joanne Woodward hafa veriö gift hjóna lengst. Skyldi Paul vera hlýöinn og góöur? sem eru i vínþrúgunum. „Léttvín er veikara form af áfengi sem er líkamanum mikUvægt og ef það er drukkið í hófi með mat er upptaka þess auðveld," segir Re- naud. Hann varar hins vegar við of mik- Uli víndrykkju. Þá snúist góðir eig- inleikar þess upp í andhverfu sína, hættan aukist á því að viðkomandi deyi af völdum krabbameins eða lifrarsjúkdóma. Renaud á sök á þvi að vínfram- leiðslan í Kalifomiu tók mikinn kipp árið 1991. Þá útskýrði hann frönsku þverstæðuna í hinum vin- sæla fréttaskýringaþætti CBS-sjón- varpsstöðvarinnar, 60 mínútum. Og svona í lokin má geta þess að bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa nýlega veitt tveimur mUljónum doU- ara í styrki tU vísindamanna svo þeir geti kannað hvort hófleg áfeng- isneysla dragi úr beinþynningu í eldri konum. Niðurstöðum þeirra rannsókna verður áreiðanlega beðið með mikiUi eftirvæntingu. Radísurnar þrífast best á streitunni Hvað er betra en smástreita tU að gera okkur hæfari í lífs- baráttunni? Það virðist að minnsta kosti eiga við um græn- meti, að því er vísindamenn vestur í Kaliforníu skýrðu frá fyrir eigi alUöngu. Kannski á það ekki við aUar grænmetistegundir en að minnsta kosti vUltar radísur. Vísindamennirnir, sem starfa aUir við Kaliforníuháskóla í borginni Davis, komust að þvi að streita, eöa álag á blöð jurtar- innar, varð tU þess að hún fram- leiddi fleiri fræ. Vísindamennirnir, undir stjórn Anurags Agrawals, rækt- uðu nokkra reiti af radísum. í einum reitinum vom engin skorkvikindi, í þeim næsta vom blöð jurtarinnar klippt með skærum og í þeim þriðja vora radísurnar lokaðar inni í búri með fiðrildalirfum. Síðar var svo rannsakað hvers konar önn- ur kvikindi ógnuðu radísunum. Skemmst er frá því að segja að radísurnar sem höfðu lifað með lirfunum áttu í minni vandræð- um með aðra varga. Þeim fam- aðist meira að segja betur. Lauf þeirra framleiddu efni sem veittu þeim vörn og þær fram- leiddu fleiri fræ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.