Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1998, Side 48
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krðnur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 9. MARS 1998
Loðnuveiðin um helgina:
Góð þar til
brælan kom
Vel veiddist á loðnumiðunum um
helgina, eða þar til síðdegis í gær að
-ybræla fór að gera vart við sig suður
og suðaustur af landinu. Engu að síð-
ur voru hátt i 30 skip enn á miðunum
um fimmleytið í gær, samkvæmt upp-
lýsingum frá Tilkynningarskyldunni.
Góð veiði var á fóstudag og laugar-
dag. Skipin héldu sig þá einna helst í
kringum Vestmannaeyjar og suður
undan Hornafirði. Þá voru þau að fá
allt að 600 tonn í kasti. -bjb
Gafst upp
Þyrla Landhelgisgæslunnar var á
laugardaginn send til þess að sækja
franska ferðamanninn sem ætlaði að
ganga þvert yfir landið á snjóþrúg-
um. Maðurinn hafði verið tíu daga á
göngu þegar hann gafst upp, hlautur
^og kaldur, og sendi út neyðarkall.
* Þyrlan sótti manninn í skála á Kistu-
felli. Hann var kalinn á höndum og
fótum en ekki í lífshættu. -sv
Á stolnum bíl
Lögreglan í Reykjavík gómaði
pilta á stolnum bíl í Tryggvagötu á
laugardag. Piltarnir höfðu stolið
bílnum kvöldið áður fyrir utan mat-
sölustað við Rauðarárstíg. Eigend-
urnir voru inni að borða og höfðu
skilið lyklana eftir í jakkavasa í
jgfatahengi. Piltarnir voru með bílinn
“ um nóttina en til þeirra sást þar
sem þeir voru að skipta um dekk á
honum daginn eftir. Þeir höfðu þá
ekið á gangstéttarkant og skemmt
felgu. Að auki var bíllinn eitthvað
dældaður. Strákarnir voru ölvaðir.
Þeir eru próflausir og hafa margoft
komið við sögu lögreglunnar. -sv
Hettuklæddur
með hníf
Hettuklæddur maður réðst inn í
Selectbúðina við Suðurfell um
klukkan hálífimm aðfaranótt sunnu-
dags. Árásarmaðurinn ógnaði starfs-
fólki með hníf og tókst að hafa á
,, jtbrott með sér á milli 20 og 30 þúsund
' 'krónur. Hann var ófundinn þegar
DV talaði við lögreglu í gær. Þetta er
í annað sinn sem vopnaður maður
ræðst inni í þessa sömu búð. Búið er
að upplýsa fyrra innbrotið. -sv
Fjórar konur í
slagsmálum
Hringt var í lögregluna frá Kaffi
Reykjavík aðfaranótt sunnudags og
óskað eftir aðstoð þar sem þar log-
aði allt í slagsmálum á neðri hæð-
inni. Þegar lögreglan kom á staðinn
kom á móti þeim móður og másandi
dyravörður og sagði allt vera um
. garð gengið. Fjórar „kerlingar"
nefðu verið í hörkuslagsmálum. -sv
Sáttafundur í Karphúsinu í gær var árangurslaus. Hér ræöast þeir viö yfir kaffisopa, Helgi Laxdal, Þórir Einarsson rfkissáttasemjari og Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. DV-mynd Hilmar Þór
Sjómannaforystan greinir ráðherra frá afstöðu sinni í dag:
Við erum jákvæðir
- segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins
„Sjómannasamtökin ákváðu að
greina ekki frá þeirra sameigin-
legu afstöðu fyrr en á fundinum
með ráðherra. Ég held að sé þó
allt í lagi að segja að við séum al-
mennt jákvæðir. Fyrir hönd vél-
stjóra get ég sagt að við séum inn
á þeirri hugmyndafræði sem
þama er sett fram,“ sagði Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags
íslands, í samtali við DV í gær-
kvöld en á fundi í dag með Þor-
steini Pálssyni sjávarútvegsráð-
herra, ætla forystumenn sjó-
mannasamtakanna að greina frá
sameiginlegri afstöðu þeirra til
tillagna fiskverðsnefndar, þrí-
höfðanefndarinnar svokölluðu. Á
fundinum með Þorsteini mun
væntanlega skýrast hvort sam-
tökin verða við skilyrðum hans
um að afstýra boðuðu verkfalli
15. mars næstkomandi.
Fundað var hjá sáttasemjara i
sjómannadeiltmni í fjóra tíma í
gær án árangurs.
Af orðum Helga má ætla að
lending sé í augsýn hvað varðar
fiskverðsþáttinn I sjómannadeil-
unni en eftir er að semja við út-
vegsmenn um ýmis sérmál, m.a.
hlutaskiptakröfu vélstjóra, starfs-
aldurs- og orlofsmál og kaup-
tryggingu sjómanna.
Helgi vonaðist til þess að skrið-
ur kæmist á samningaviðræðum-
ar í Karphúsinu í dag en nýr
fundur hefur verið boðaður
klukkan tvö. -bjb
T-t
Fimm voru fluttir á slysadeild eftir árekstur við veginn yfir Gullinbrú í Grafarvogi í gærkvöld. DV-mynd s
Grafarvogur í gærkvöld:
Löng bílalest
eftir árekstur
Fimm voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur eftir árekstur við veginn yfir Gullin-
brú í Grafarvogi um kvöldmatarleytið í gærkvöld.
Fjórir fengu að fara heim að lokinni skoðun en ein-
um var haldið inni til frekari rannsóknar í nótt.
Loka þurfti veginum inn í Grafarvoginn og við það
myndaðist samfelld bílalest frá Víkurvegi og niður
í miðja Ártúnsbrekku. -sv
Veðrið á morgun:
Áfram
kalt
Á morgun er búist við norð-
lægri átt, golu eða kalda. Dálítil
él verða norðanlands en víða létt-
skýjað sunnanlands og vestan.
Frost verður 0 til 10 stig, mildast
við suðurströndina.
Veðrið í dag er á bls. 53.
Enn betra
bragð...
...enn meiri
angan
Nescafé
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 nv véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stæröir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar 14 línur
Aðeins kr. 10.925
u
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i