Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Page 2
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 T>V 2 kfáéttir Böðvari Bragasyni lögreglustjóra veitt hálfs árs veikindaleyfi: Átta af hverjum tíu vilja afsögn Böðvars - samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV Samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV vilja átta af hverjum tíu íslend- ingum, 18 ára og eldri, að Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykja- vík, segi af sér í kjölfar nýlegrar skýrslu setts ríkislögreglustjóra, Ragnars Hall. í skýrslunni var emb- ættið m.a. gert ábyrgt fyrir því að ekki tókst að útskýra hvarf 3,5 kg af fíkniefnum úr vörslu lögreglunnar. Þetta eru athyglisverðar upplýsing- ar í ljósi þeirra tíðinda frá því í gær þegar Þorsteinn Pálsson dómsmála- ráðherra veitti Böðvari hálfs árs leyfi frá störfum vegna veikinda. Nýskipaður varalögreglustjóri, Ge- org Lárusson, mun gegna störfúm Böðvars á meðan. Skoðanakönnunin var gerð sl. þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Úrtakiö var 1200 manns á kosning- aaldri, jafnt skipt á milli höfuðborg- arsvæðisins og landsbyggðarinnar sem og kynja. Spurt var: „Ertu fylgj- andi eða andvígur því að lögreglu- stjórinn í Reykjavík, Böðvar Braga- son, segi af sér í kjölfar skýrslu setts ríkislögreglustjóra, Ragnars Hall?“ Sé tekið mið af svörum allra í könnuninni sögðust 65,3 prósent vera fylgjandi því að Böðvar segði Á Böðvar Bragason að segj 6/5'98 Svör allra Óákv./sv. ekkl Þeir sem tóku afstöðu Andvígir Andvlglr Fylgjandl Fylgjandi af sér, 14,7 prósent voru því andvíg, 18,8 prósent voru óákveðin og 1,2 prósent vildu ekki svara spurning- unni. Alls tóku því 80 prósent úr- taksins afstöðu til afsagnar eða ekki afsagnar lögreglustjórans, sem verð- ur að teljast mikil þátttaka. Ef aðeins eru teknir þeir sem af- stöðu tóku þá voru 81,6 prósent fylgjandi afsögn og 18,4 prósent henni andvíg. Afstaðan eins eftir búsetu Athygli vekur að litlu breytti í svörum fólks hvort það bjó á lands- byggðinni eða höfúðborgarsvæðinu. Skiptingin eftir búsetu er jöfn hvort sem um er að ræða hóp fylgjenda af- sagnar, andstæðinga hennar, óá- kveðinna eða þeirra sem neituðu að svara. Fyrirfram mátti kannski reikna með annarri afstöðu á lands- byggðinni, þar sem spurt var um embætti lögreglustjórans i Reykja- vík, en svo varð raunin ekki. Þegar afstaða þátttakenda í könn- uninni er skoðuð eftir kynjum kem- ur í ljós að Böðvar nýtur meiri stuðnings kynbræðra sinna. ívið fleiri karlar en konur voru á því að Böðvar ætti að sitja áfram í emb- ætti. Mun fleiri konur voru hins vegar óákveðnar í afstöðu sinni. í hópi þeirra sem vildu afsögn var kynjaskiptingin jöfn. -bjb Sorgbitið söngfólk: Bergljótu ekki haggað DV, Ósló: „Ég hef auðvitað fengiö mikla gagnrýni fyrir að fella Bergensöng- inn út af dagskránni en líka hrós,“ segir Bergljót Jónsdóttir, lista- hátíðarstjóri í Bergen í Nor- egi, eftir aö hafa móðgað bæjar- búa svo herfi- lega að þess er krafist að stjómvöld grípi inn í og beiti valdi til að koma þjóðsöng Bergen aftur á sinn stað. Bergljót hefur viðurkennt í sam- tölum við fjölmiðla að viöbrögðin hafi verið meiri en hún átti von á. Engu að síður hafi hún reiknað með mótmælum. Mótmælin breyti hins vegar engu um að söngurinn sá ama verður ekki sunginn við opnun listahátíðarinnar. Ástæðan er sú að í ár er ætlunin að minnast tónskáldsins Edvards Grieg sérstak- lega og þá er ekki pláss fyrir aðra tónlist við opnun hátíðarinnar. Listafólk, jafnt sem allur al- menningur, hefur síðustu tvo daga óspart látið í ljós vanþóknun sína á ráðabmggi Bergljótar. Jafnvel bæj- arstjóminni er ofboöið og fólk raul- ar nú sönginn umdeilda á götum úti og er sem skelfingu lostið. í fjölmiölum í Bergen er talað um að menningararfur bæjarbúa sé í hættu, andlegt líf fólks á hverf- anda hveli og minnt á aö í 40 ár hafi Noregskonungar kyijað með þegnum sínum þennan söng við opnun sinnar árlegu listahátíðar. Um ágæti tónlistarinnar efast eng- inn bæjarbúi - hvað sem aðrir gera. GK Bergljót Jónsdóttir. ísaQaröarbær: Danadrottning í afmæli forseta DV ísafjarðarbæ: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, mun á afmælisdaginn sinn, 14. maí, bjóða Margréti Þór- hildi Danadrottningu í skoðunar- ferð til Vestfjarða og kvöldverð í Neðstakaupstað á ísafirði. Áætlað er að flugvél þjóðhöfðingjanna og fylgdarliðs lendi á Þingeyrarflug- velli kl. 14:15 fimmtudaginn 14. maí. Þaðan verður haldið að Þing- eyrarkirkju, en Ólafur ólst að hluta til upp á Þingeyri sem kunn- ugt er. Eftir skoðun á Þingeyri verður haldið að Holti í Önundar- Ólafur Ragnar Margrét Þórhildur Grímsson. Danadrottning. firði til sr. Gunnars og frú Ágústu. Þaðan veröur ekið út á Flateyri í skoðunarferð. Þá verður haldið til ísafjarðar, fæðingarbæjar forset- ans, og einnig mun vera á döfinni aö heimsækja Bolungarvík. Óopinberri heimsókn Dana- drottningar og forseta Islands til Vestfjarða lýkur svo með kvöld- verði í Neðstakaupstað á ísafirði sem er jafnframt elstu húsaþyrp- ing á íslandi. Þessi hús eru einmitt frá þeim tímum er Dánir réðu yfir íslandi og voru umsvifamiklir í verslun og viöskiptum á ísafirði sem þá var annar stærsti bær landsins. Þjóðhöfðingjamir munu síðan halda á brott með flugvél frá ísafirði kl. 22.15. -HKr. Varnarlínur burt Hagmunaaðilar í hestamennsku funduðu með yfirdýralækni í gær. DV-mynd ÞÖK Samstaða náðist í helstu málum á lokuðum fundi hagsmunaaðila í hestamennsku, dýralækna og yfir- dýralæknis í landbúnaðarráðuneyt- inu í gær. Fundarmenn skiptust á skoðun- um um mörg málefni. Það kom þó greinilega fram í máli allra fundar- manna að vamarlínur væra orönar óþarfar vegna þess að svæði innan þeirra væra oröin sýkt. Menn vildu láta dagsetja hvenær vamarlínur yrðu teknar úr gildi. Lögð var áhersla á að gera það sem fyrst. Halldór Runólfsson yfirdýralækn- ir sagðist ætla að vinna í þeim mál- um um helgina og ákveöa hvenær það yrði gert. „Við munum funda um þetta í landbúnaðarráðuneytinu um helgina," sagði Halldór. Alger samstaða var á fundinum um að halda landsmótið og gera það með sem glæsilegustum hætti. Aðspurður um hvort fara ætti fram lögreglurannsókn eftir að hitasótt kom upp á bæ í Skagafirði sagöi Halldór: „Dýralæknir fór á staðinn og tal- aði við þennan mann. Það bendir ekki til þess að þetta hafi verið gert með vilja. Það eru komnar fram kröfur um lögreglurannsókn. Við biðjum lögfræðing okkar í ráðuneytinu að skoða þau mál.“ -RR stuttar fréttir Vetnishópur Hópur frá Benz-Chrysler og 1 kanadíska fyrirtækinu Ballard í standa nú í samningum við ís- lensk stjómvöld um umfangs- mikla vetnisframleiðslu. RÚV sagðifrá. Félagsmálastjóraályktun Samtök félagsmálasljóra hafa lýst áhyggjum sínum af því að fjöldi sveitarfélaga hafi ekki kom- | ið á lögbundinni félagsþjónustu ; eða faglegri bamavemd. Þetta á ■' aðallega við um smærri þéttbýl- ; iskjama og lanbúnaðarhémð. Óháðir mótmæla Félag óháðra I borgara mót- mælir því að | listabókstafn- 1 um H verði út- | deilt til Hafhar- fjarðarlistans j þar sem Ellert •| Borgar Þor- ís vajdsson situr efstur. Félagið seg- 1 ir að það hafi notað listabókstaf- j inn góða í kosningum fyrri ára. Hljóðmengun Umhverfisáhrif af breikkun | Gullinbrúar munu aðallega felast j í hljóðmengun í nágrenni götunn- ;; ar. Loftmengun mun verða innan j þeirra marka sem sett em í meng- I unarvamameglugerð. Þetta kem- { ur fram í athugun Skipulagsstofn- í unnar. Landinn í sund Sunnudaginn 10. maí verður Heilsuhúsið 25 ára og af því tilefni j hyggjast aðstandendur fyrirtækis- ins bjóða öllum landsmönnum í | sund í Laugardal á afmælisdag- l inn. Fjölbreytt dagskrá með tón- I list og veitingum verður allan ? daginn í Laugardalslauginni. Sjálfboðaliðar Rauði Krossinn opnaði nýja j sjálfboðamiðstöð á fóstudag en þá I var alþjóðadagur Rauða krossins. ! Þar verða sjálfboðamiðlun, ung- ! mennastarf og Vinalinan til húsa : í framtíðinni. Hampiöjan seiur Hampiðjan hefur selt öll hluta- bréf sín i Haraldi Böðvarssyni hf„ í að nafhvirði 5,9 mibjarða króna! Sölúhagnaður hlutabréfanna var um 15 milljónir króna þegar tekið j hefur verið tillit til tekjuskatts. Viöskiptavefur Vísis sagði frá. Ekki ég Flugleiðir hafa sent frá sér yfir- s lýsingu þar í sem bent er á að fyrirmæli bandarískra j flugmálayfir- valda um að sérstök skoðun verði gerð á raflögnum við f eldsneytisgeyma Boeing 737-flug- j véla sem eiga 50 þúsund flugtíma j að baki. Engar flugvélar félagsins af þessari gerð hafa náð 50 þúsund í flugtimum. Aöstoöarkaupfélagsstjóri Þórarinn E. Sveinsson hefur | verið ráðinn aðstoðarkaupfélags- | stjóri KEA. Þórarinn verður því ■ staðgengill kaupfélagssfjóra og j ráðgjafi um ytri og innri þróun matvælaframleiðslu fyrirtækis- ' ins. Gulli á Matthildi Gunnlaugur Helgason útvarps- maður hefur ákveðið aö :! fara yfir á út- S varpsstöðina : Matthildi en !í hannhefurséð um þætti á !j Bylgunni að j undanfómu. s Gunnlaugur mun starfa að dag- g skrárgerð og útsendingastjómun j áMatthfldi. Kennaraiaust s: Um 90 grunnskóiakennarar ; hafa afhent bæjarstjóra Akur- ! eyrar uppsagnarbréf og vflja i hærri kjör. Dagur sagði frá.-JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.