Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 54
“ mvndbönd
w ik;
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 THV
IN & OUT:
Sparkað út úr skápnum
Fyrrverandi nemandi enskukennarans Howards Bracketts (Kevin Kline) tilkynnir frammi fyrir alþjóð að lærifaðir sinn
sé hommi. Þetta gerist nokkrum dögum áður en Howard ætlar að giftast kærustunni, Emily Montgomery (Joan
Cusack).
Smábærinn Greenleaf hefur löng-
um verið hinn mesti rólyndisbær en
það er ekki laust við að íbúarnir
verði svolítið uppveðraðir yfir ósk-
arsverðlaunahátíðinni því að einn
af tilnefndum leikurum ólst upp í
Greenleaf. Bæjarbúum, og þá sér-
staklega enskukennaranum Howard
Brackett (Kevin Kline), til mikillar
gleði vinnur stjarnan og minnist
síns gamla læriföður í þakkarræð-
unni. Allir eru djúpt snortnir þar til
leikarinn upplýsir öllum að óvörum
að Howard sé hommi og það aðeins
nokkrum dögum áður en hann ætl-
ar að giftast kærustu sinni til
þriggja ára, Emily Montgomery
(Joan Cusack). Þar með er friðurinn
úti í Greenleaf og við tekur fjöl-
miðlasirkus af fjörugustu sort þar
sem æsifréttamaðurinn Peter Mall-
oy (Tom Selleck) er áberandi en
hann er staðráöinn í að ná safarik-
um játningum út úr Howard.
Hin hliðin á peningnum
Framleiðandanum Scott Rudin
datt í hug að gera mynd þar sem
hommi lendir í þeirri aðstöðu að
ljóstrað er upp um kynhneigð hans
í beinni sjónvarpsútsendingu. Hann
bar hugmyndina upp við handrits-
höfundinn Paul Rudnick sem sá fyr-
Fjölmiðlamenn koma í bæinn til að
ná safaríkum játningum út úr
Howard.
ir sér að uppljóstrunin yrði í vik-
unni þegar söguhetjan ætlar að gift-
ast og gamanmynd fór að fæðast.
Jafnframt ákváðu þeir að hafa
sögusviðið smábæ þar sem upp-
ljóstrunin hefði mun meiri áhrif á
einkalíf mannsins og bæjarlífið
heldur en ef sagan gerðist í stór-
borg. Sá kunni leikstjóri, Frank
Oz, var fenginn til að leikstýra en
hann varð strax hrifínn af hug-
myndinni. Margar góðar myndir
hafa verið gerðar sem fjalla á al-
varlegan hátt um viðbrögð samfé-
lagsins við samkynhneigð og
Frank Oz fannst því tilvalið að
snúa peningnum við og gera grín
að öllu saman. Frank Oz öðlaðist
fyrst frægð sem einn af höfundum
Prúðuleikaranna, en hann hefur
haslað sér völl sem kvikmynda-
leikstjóri hin síðari ár með mynd-
um eins og The Dark Crystal, The
Muppets Take Manhattan, Little
Shop of Horrors, Dirty Rotten
Scoundrels, What about Bob?,
Housesitter og The Indian in the
Cupboard.
Stjama myndarinnar er Kevin
Kline sem virðist jafnvígur á gam-
anleik og dramatík. Fyrsta kvik-
myndahlutverk hans var á móti
Meryl Streep í Sophie’s Choice.
Frammistaða hans í þeirri mynd
vakti gríðarlega athygli og hann
var tilnefndur til BAFTA og
Golden Globe verðlauna. Aðrar
myndir hans era meðal annars
Cry Freedom, Dave, Soapdish,
Princess Caraboo, The Ice Storm,
Fierce Creatures og A Fish Called
Wanda en fyrir þá síðastnefndu
hlaut hann óskarsverðlaun fyrir
besta leik í aukahlutverki. Þá hef-
ur hann leikið fyrir leikstjórann
Lawrence Kasdan í hvorki fleiri
né færri en fimm myndum: The
Big Chill, Silverado, I Love You to
Death, Grand Canyon og French
Kiss.
Gömul stjarna skín á ný
Joan Cusack hefur getið sér gott
orð fyrir gamanleik síðan hún kom
fyrst fram á sjónarsviðið í My
Bodyguard en hæst reis ferill
hennar með óskarsverðlaunatil-
nefningu fyrir Working Girl. Með-
al annarra mynda hennar eru
Sixteen Candles, Married to the
Mob, Say Anything, Broadcast
News, Men Don’t Leave, My Blue
Heaven, Toys, Corrina Corrina,
Nine Months, Two Much og Grosse
Pointe Blank.
Tom Selleck hefur leikið mörg
kvikmyndahlutverk en ferill hans
hófst i sjónvarpi þar sem hann lék
m.a. í átta ár í hinum vinsælu Magn-
um P.I. sjónvarpsþáttum. Meðal
þeirra kvikmynda sem hann hefur
leikið í eru Three Men and a Baby,
Her Alibi og Quigley Down Under.
í hlutverki móður Howards Brac-
ketts er Debbie Reynolds sem rétt
áður hafði leikið í Mother í sínu
fyrsta stóra hlutverki í aldarfjórðung
en hún var á yngri árum stórstjama í
kvikmyndaheiminum. Gullaldarár
hennar voru sjötti og sjöundi áratug-
urinn og var hún meðal annars til-
nefnd til óskarsverðlauna fyrir The
Unsinkable Molly Brown. Sú kynslóð
áhorfenda sem sækir kvikmyndahús í
dag kannast sennilega lítið við mynd-
ir hennar en hún öðlaðist þó ódauð-
leika þegar hún lék aðalkvenhlutverk-
ið á móti Gene Kelly í hinni klassísku
Singin’ in the Rain. -PJ
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður:
Stjörnustríð og Koppafeiti
„Uppáhaldsmyndin mín
er Star Wars, þá helst
fyrsta myndin af þeim
þremur sem komnar eru en serían
öll er í miklu uppáhaldi. Ég bíð
spenntur eftir
myndunum
þremur sem
eru á leið-
inni og hef
beðið eftir
þeim síðan ég
las árið 1980 að
það stæði til að
kvikmynda
fyrsta, ann-
an og þriðja
hluta sög-
unnar.
Ég var
náttúr-
lega lítill
strákur
á
móttækilegasta aldri
þegar ég sá myndina
fyrst og síðan hef ég alltaf hald-
ið mikið upp á hana. Þá var ég
líka mikill bíósjúklingur og fór á
bíó þrisvar í viku. Star Wars er sú
mynd sem ég hef séð oftast, þó
Grease veiti henni harða sam-
keppni hvað það varðar. Ég sá
hverja einustu sýningu þeirrar
myndar uppi á Akranesi á sínum
tíma; alls sjö sýningar en engin
mynd náði að slá það út. Síðan
hef ég séð hana ótal sinnum á
myndbandi. Annars fmnst
mér almennt mjög gaman
að horfa á tónlistarmyndir,
t.d. eins og Rokk í Reykja-
vík sem ég hef séð mjög oft.
En ef það er eitthvað
sem ég hata þá era það am-
erískar sjónvarpsmyndir
eins og þær sem vora um
tíma grasserandi á einni
frjálsu sjónvarpsstöðinni.
Þá er ég að tala um svona
illa gerðar sannsögulegar
vandamálamyndir um mæð-
ur sem lenda i vandræðum
með bömin sín eða eitt-
hvað í þeim dúr.“
; -kja
That Old Feeling Barbara The Winter Guest
Þaö er grínistinn og leikstjórinn Carl
Reiner sem stýrir hinum skemmtilegu
leikurum, Bette Midler og Dennis Farina,
í þessari farsakenndu gamanmynd þar
sem léttari hliðar
ástarinnar og
hjónabandsins
eru í brennidepli.
Lilly og Dan
hafa verið ham-
ingjusamlega
skilin í ein 14 ár
en eiga samt einn
hlut sameiginleg-
an fyrir utan auð-
vitað dótturina
sem þau eignuð-
ust: Þau þola ekki
hvort annað! Þau neyðast samt til að
standa augliti til auglitis i brúðkaupi dótt-
ur þeirra og slagsmál eru óumflýjanleg
bæði í oröi og á borði. Það kemur lika á
daginn aö um leið og þau mæta í brúð-
kaupið er eins og veislugestir sitji á púð-
urtunnum. Eins og gefur að skilja má litlu
muna að brúðkaupið og veislan fari út um
þúfur þrátt fyrir einlægar tilraunir dóttur-
innar til að stilla til friðar - þó ekki væri
nema í eins og einn klukkutima.
En þá gerist nokkuð óvænt! Ævafom
ástarneisti, sem allir, ekki síst Lilly og
Dan, héldu aö væri fyrir löngu kulnaður,
blossar skyndilega upp og verður að ótrú-
legu ástarbáli.
Aðalhlutverk: Bette Midler, Dennis
Farina, Paula Marshall og Danny
Nucci.
Leikstjóri: Carl Reiner.
Öllum leyfð.
Útgefandi: CIC myndbönd.
Útgáfudagur: 12. maí
Þessi snjalla og áhrifarika mynd Dan-
ans Nils Malmros hefur alls staðar fengið
frábæra dóma, unnið til margvíslegra við-
urkenninga og keppti um gullbjörninn á
kvikmyndahátið-
inni í Berlín.
Myndina byggir
hann á siðustu
skáldsögu fær-
eyska rithöfundar-
ins Jörgens- Frantz
Jacobsens sem lést
árið 1938.
Sagan gerist
áriö 1760 i Þórs-
höfn í Færeyjum.
Barbara Christina
Salling er 28 ára
gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur í
tvígang orðið ekkja eftir tvo presta. Bar-
bara er mikið náttúrubarn, heillandi og
ástríðufull kona sem á auðvelt með að
draga að sér athygli karla. En ástríðum
hennar eru engin takmörk sett og á því
hafa margir karlmenn, sem lagt hafa lag
sitt viö hana, farið flatt á.
Nýr prestur, sem kemur til Færeyja,
hinn 25 ára gamli Poul Aggersoe, verður
gagntekinn af Barböru þrátt fyrir aðvar-
anir sem honum berast. Hann fær líka
fljótlega aö kenna á ástríðum hennar þeg-
ar þrjú frönsk herskip koma til eyjanna.
Margar konur fleygja sér i fang hermann-
anna og þeirra á meðal er Barbara. Afleið-
ingin er sú aö ekki færri en sjö þessara
kvenna verða ófrískar - þó ekki Barbara.
Aðalhlutverk: Anneke von der
Lippe og Lars Simonsen.
Leikstjóri: Nils Malmros.
Aldurstakmark: 12 ára.
Útgefandi: Háskólabíó.
Útgáfudagur: 12 mai.
Hér er á ferðinni fyrsta mynd Alans
Rickmans sem er betur þekktur sem leik-
ari úr myndum eins og Sense and Sensi-
bility og Die Hard þar sem hann lék for-
ingja hryðjuverka-
mannanna.
Það er óhætt að
segja að leikstjóra-
ferill Rickmans
fari vel af stað þvi
The Winter Guest
hefur verið marg-
verðlaunuð að
undanfórnu og
fengiö mjög góða
dóma gagnrýn-
enda. Með aðal-
hlutverkin fara
Emma Thompson og móðir hennar Phyll-
ida Law. Myndin gerist í skosku sjávar-
þorpi einn kaldan dag um hávetur.
Frances (Thompson) hefur nýlega misst
eiginmann sinn og syrgir hann mjög.
Við kynnumst einnig syni Frances,
Alex, sem syrgir einnig fóður sinn mjög
en þennan dag hittir hann hina skemmti-
legu Nitu.
Á gangi með fram ströndinni rekumst
við einnig á hina ungu Sam og Tom. Þeir
hafa skrópað i skólanum því i dag hafa
þeir um annað að hugsa en lærdóm.
Að lokum kynnumst við einnig öldr-
uðum vinkonum, Lily og Chloe, sem lifa
bókstaflega fyrir jarðarfarir!
Vönduð og góð mynd sem veldur ekki
vonbrigðum.
Aðalhlutverk: Emma Thompson og
Phyllida Law.
Leikstjóri: Alan Rickman.
Öllum leyfð.
Útgefandi: Myndform.
Útgáfudagur: 12. maí.