Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 JjV T^eifkjauík 5Ó8 4848 16" m/tveim áleggsteg. aðeins 940 kr. 18” m/þrem áleggsteg. 12” hvítlauksbrauð, 21. Coke og hvítlauksolía aðeins 1890 kr. 18" m/tveim áleggsteg. aðeins 1080 kr. 16" m/þrem áleggsteg aðeins 1280 kr. GARÐ- 7. - 10. maí Nú er rétti tíminn til að huga að grasflötinni oa undirbúa hana fyrir sumarið. Við eiaum ráð við ýmsum vandamálum og ráSleggjum þér hvaða áburð skal nota, hve mikið og hversu oft. Við kappkostum að eiaa allt sem til þarf á góðu verði og bjóðum að auki ýmsar vörur á tilbooi á garðvinnudögum. TILBOÐ: Nú skaltu herja á mosann í grasflötinni Gróðurkalk heldur mosanum í skefjum sé þaö nota& á hverju vori. 10 kg á 425 kr.; 25 kg á 845 kr. Köfnunarefnisríkur áburður fyrir grasflötina: Graskorn 5 kg á 295 kr. Fyrir trjágró&urinn: Trjákorn 5 kg. á 295 kr. Bresku EXPERT metsölubækurnar um gar&rækt. WEEDAR er efni sem hreinsar grasflötina af fíflum, skri&sóleyjum og ö&rum óvelkomnum tvíkímblö&ungum. 250 ml á 995 kr. ADLUS verkfæri Margskonar garðverkfæri á góðu verði Dæmi: Mosahrífur, verð frá 1 .944 kr. 14 tinda garðhrífur 1 .071 kr. Hiólbörur frá Ginge í Danmöfku, léltar, sterkar, galvaniseraðar. 85 I, léttar í garðinn 4*980 kr. 100 I, stærri ogsterkari 6.490 kr. 115 I í hesthúsið 8.920 kr. KOMIÐ A GARÐVINNUDAGANA, GERIÐ GOÐ KAUP OG FÁIÐ RÉTTU RÁÐIN í KAUPBÆTI! SÉRFRÆÐINGAR veita viðskiptavinum okkar faglega ráðgjöf um garðyrkju, tæki og tól. Opið laugardaa kl.l0-18 og sunnudag Id. 11-16 RÁÐGJÚF SÉRFRÆBINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT GROÐURVORUR VERSLUN SÖLUFÉLAQS GARÐYRKJUMANNA Smiöjuvegi 5, Kópavogi, síml: 554 321 1 (viðtal *★ * Yngsta konan í atvinnufluginu á íslandi: Draumurinn að fljúga með pabba - segir Ragnheiður Guðjónsdóttir, flugmaður hjá FÍ „Þetta hefur gengið mjög vel, svo- lítill fiðringur í maganum íyrst en hann er farinn," segir Ragnheiður Guðjónsdóttir, yngsta konan sem starfar sem atvinnuflugmaður hér á landi. Hún var eina konan í hópi nokkurra flugmanna sem Flugleiðir réðu til sin á nýliðnum vetri og nokkrar vikur eru síðan hún fór að fljúga Fokker-vélum Flugfélags ís- lands. Var „lánuð“ þangað frá Flug- leiðum eins og hún orðar það. Hún er ein 12 íslenskra kvenna sem hafa atvinnuflugmannsréttindi, þar af eru 6 starfandi í dag; 5 hjá Flugleið- um og ein hjá Atlanta. Ragnheiður er fædd og uppalin í Fossvoginum og verður 23 ára núna í sumar. Hún var í rauninni alin upp i fluginu því faðir hennar, Guð- jón Ólafsson, hefur verið í fluginu hátt í 40 ár, þar af í 20 ár sem flug- stjóri hjá Flugleiðum. Hann á nokk- ur ár eftir í fluginu og draumur Ragnheiðar er að fá að fljúga með pabba „gamla“. Nauðlending gerði útslagið „Þegar ég var pínulítil ætlaði ég aldrei að verða flugmaður. Eins og vinkonur minar stóð frekar til að vinna í sjoppu, verða hárgreiðslu- kona eða flugfreyja. Eftir því sem ég stækkaði fór flugið að heilla mig meira. Þó að það hljómi nú undar- lega þá gerði það útslagið þegar pabbi nauðlenti Fokker-vél á Kefla- víkurflugvelli árið 1981. Ég man hvað mér fannst það stórmerkilegt að þetta væri hægt og fór að spá í hvort flugið gæti ekki bara verið svolítið skemmtilegt," segir Ragn- heiður. Þegar hún hafði aldur til kom því ekkert annað til greina en að læra að fljúga. Átján ára fór hún í sinn fyrsta flugtíma og á sama ári tók hún einkaflugmannsprófið. Sam- hliða því námi var hún í Verslunar- skólanum og var fyrsti nemandi skólans til að fá flugnámið metið til stúdentsprófs. Naut hún þar dyggr- ar aðstoðar Baldurs Sveinssonar, kennslustjóra skólans og mikils flugáhugamanns. í dag tíðkast það víða í framhaldsskólum að flugnám sé metið til eininga. Eftir að Ragnheiður kláraði einkaflugmannsprófið varð hún að klára stúdentsprófið til að fá at- vinnuflugmannsréttindi. Slík skil- yrði eru ekki lengur sett í dag. 100 tímar á 20 dögum Að loknu stúdentsprófi vorið 1995 tók hún sér hlé frá flugnámi og vann nokkra mánuði á Landsspítal- anum. í ársbyrjun 1996 hóf hún að læra til atviimuflugmannsréttinda hjá Flugskóla íslands. Er námskeið- inu lauk í júní það ár skellti hún sér til Flórída til að næla sér í banda- rísk flugréttindi. Vildi hafa slíkt próf upp á vasann fengi hún ekki vinnu hér á landi. En það rættist úr því. „Þegar ég heyrði að Flugleiðir áformuðu að ráða nýja flugmenn þá fór ég á fullt að safna flugtímum. Fór aftur til Flórída og keypti mér tíma á tveggja hreyfla vél. Náði 100 tímum á 20 dögum sem er auðvitað geggjun,“ segir Ragnheiður og bros- ir. Hún sótti um hjá Flugleiðum og tók próf ásamt 100 öðrum. Á meðan hún beið eftir svari notaði hún tím- ann og kenndi flug hjá flugskólan- um Flugmennt. Síðan komst hún áfram í næstu umferð ásamt 50 öðr- um flugmönmnn og tók próf í flug- hermi. Að því loknu var umsækj- endum fækkað um 10 og 40 flug- menn teknir í viðtal. Ragnheiður var í þeim hópi. Dofin í símanum „Síðan var hringt i mig 15. sept- ember í fyrra. Ég var ein heima og man að þetta var klukkan ellefu. Ég ætlaði ekki að trúa því þegar mér var sagt að ég hefði verið ráðin. Það kom löng þögn og flugrekstrarstjór- inn spurði hvort ég væri ekki ánægð. Ég var svo dofin að ég kom varla upp orði.“ Hátt 130 flugmenn voru ráðnir og var Ragnheiður eina konan i þeim hópi. Við tók strangur undirbún- ingstími þar sem flugmennirnir fóru m.a. til Maastricht í Hollandi að æfa sig í flughermi. Fyrsta ferð Ragnheiðar á Fokker var 20. apríl sl. i áætlunarflugi Flugfélags ís- lands til Akureyrar. Hlupu í burtu „Þetta var mjög eftirminnileg ferð,“ segir Ragnheiður og hlær. Um borð var stór hópur múslíma frá Afríku sem fóru í dagsferð til Akur- eyrar. „Þeir framkvæmdu einhverja trúarathöfn á leiðinni og ég veit ekki hvort þeir vissu að kona stjómaði vélinni. Þegar ég kom út úr vélinni á Akureyri voru tveir þeirra fyrir utan að taka myndir. Þeir krossuðu sig í bak og fyrir og hlupu í burtu þegar þeir sáu mig!“ Frá því hún byrjaði að fljúga Fokkerunum eru komnir hátt í 40 flugtímar. Þjálfunarflugstjórinn ný- búinn að „sleppa henni lausri". „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt. Það er alveg ótrúlegt hvað fiugstjórarnir vita og eru stöð- ugt að auka vitneskju manns um ókyrrð og ýmislegt fleira sem teng- ist fluginu. Það er því nóg eftir að læra,“ segir Ragnheiður. Flugmenn fljótir að gagnrýna Hún vonast til að fá að fljúga hér innanlands í einhver ár. Þannig fái hún bestu reynsluna. Síðan er óhjá- kvæmilegt að millilandaflugið taki við á þotunum. Hún bíður þess með mikilli eftirvæntingu. Eins og kom fram hér á undan eru aðeins 12 konur með atvinnu- flugmannsréttindi hér á landi. Því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.