Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 11
DV LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 11 „Þú mættir fara að taka bílinn i gegn,“ sagði konan við mig fyrr í vikunni. „Þú ert alveg hættur að nenna að hreinsa hann, hvort sem er að utan eða innan.“ Vorið hef- ur þessi áhrif á konur. Þegar sól- in fer að hækka á lofti vaknar ein- hver hreinlætishvöt i þeim. Þær fara út í garð að laga til í beðum og reka fljótt augun í rúður með vetrarskít. Allt þetta ber að þrífa. Það er í lagi meðan þær gera það sjálfar og raunar ekki nema sjálfsagt mál að styðja þær tU góðra verka. Það felst aðallega í því að þvælast ekki fyrir í vor- hreingerningunum. Ég hef þvi sloppið við gluggaþvott og tiltekt í beðum. Það er verra með bUinn. Krafan er sú að ég þvoi hann og bóni að utan og hreinsi að innan. BUar safna á sig tjöru og öðrum óþverra yfir vetrarmánuðina. Þá eru þeir yflrleitt blautir að innan milli þess sem allt frýs fast. Með- an þetta ástand varir þýðir lítið að tala um þvott og bónun. Vetrarrökin gUda hins vegar ekki lengur eftir að vorið er geng- ið í garð. Maímánuður er þeirrar náttúru að vera sólríkur. Þá fer ekkert á miUi mála hvort heimU- isbíllinn hefur fengið sitt þrifa- bað. Á árum áður var ég þokka- lega duglegur við bUþvotta og leiddist raunar ekki að bóna far- artækið. Þá var ég með heldur meiri bíladellu en ég er i dag. Forráttindalaus Framan af i sambúð okkar hjóna naut ég þeirra forréttinda að bíUinn tUheyrði fremur karlin- um á heimUinu en konunni. Ég fór á honum í vinnuna en konan, sem raunar þurfti miklu meira á bUnum að halda en ég, sat eftir án farartækis. Þar kom að við ástandið varð ekki unað. Við keyptum okkur annan bíl, lítinn og lipran. Enn eimdi eftir af for- réttindum karla á heimUinu. Ég hafði hinn raunverulega heimUis- bíl til umráða en konan ók pút- unni. En aUt er breytingum háð. Þar kom að börnin uxu úr grasi og fengu bUpróf. Þróunin varð smám saman sú að þeir uppkomnu fengu pútuna en konan færði sig yfir á heimUisbílinn. Ég sat eftir forréttindalaus og þar með bU- laus. Seinni árin hef ég því sætt lagi og fengið að sitja í hjá þeim sem eiga leið í og úr vinnu eða annað sem ég þarf að skjótast. Þótt erfitt sé að kyngja þessu fyrir gamlan forréttindaskarf viður- kenni ég innra með mér að þessi skipan mála er eðlileg. Fari ég á bU í vinnuna árla morguns stend- ur sá hinn sami óhreyfður tU kvölds. Kona og börn eru aftur á móti á eUífu flandri. Saklausar fyrirspurnir Þessi staða þarf þó ekki að vera að öUu leyti bölvuð. Þar sem ég ræð ekki lengur beint yfir bU hef ég um leið reynt að afsala mér ábyrgð á því sem fylgir bUeign- inni. Áður sá ég um að fara með bUinn í smurningu og þvoði hann og bónaði eftir atvikum reglulega. Ég leit á bUinn sem mína eign. Það geri ég vart lengur. Stundum, þá er ég fæ að Ujóta með í bílnum hjá frúnni, spyr ég sakleysislega hvort hún hafi látið smyrja, yfir- fara bremsurnar eða stilla gang- inn í vagninum. Þá kemur fyrir að ég geri athugasemdir við um- gengni í fjölskyldubílnum, sparka í tómar gosQöskur sem rúUa und- an framsætunum og pota í sæl- gætisbréf í öskubakka eða á mælaborði. Konan bendir mér góðfúslega á aö tala um þetta við krakkana. Hún hafi hvorki drukk- ið úr gosUöskunum né úðað í sig sætindunum. Hlutverk sædjöfulsins „Er þetta ekki þinn bíll?“ spyr ég og læt hana aðeins finna fyrir vonlítiUi stöðu minni í lífinu. BUl- Laugardagspistill Jónas Haraldsson inn er nefnilega síðasta vígi karl- mannsins. Hvað sem líður eUífum frásögnum af bágri stöðu kvenna í jafnréttismálum þá eru þessar elskur smám saman að mala okk- ur. Þess er ekki langt að bíða að eina hlutverk karla verði viðhald kynstofnsins. Við verðum í svip- uðu hlutverki og karlkyn þess merka fisks sædjöfuls. Karlinn sá er örsmár og hangir á kviði kerlu sinnar. Hans hlutverk er eitt og aðeins eitt, að frjóvga egg kerling- ar. Sumar konur eru raunar komn- ar svo langt í þankagangi sínum að efast jafnvel um þetta hlutverk karla. Spor í þá átt sjást í fréttum af svokallaðri fuUnægingarpiUu kvenna. Allt er það hjal ógnvekj- andi enda leggst lítið fyrir kapp- ana nái það lyf útbreiðslu að marki. Bíll í smugu Konan lætur sem hún heyri ekki sárar athugasemdir hins bU- lausa manns. Þótt hún ráði yfir bílnum telur hún smáatriði eins og smurningu, bremsuborða og vélarstillingu sér óviðkomandi. Sama gUdir um þvott og bónun bílsins. Hún viU gjarnan þvo stofugluggana okkar í vorbirtunni en heldur fast við þá sannfæringu að bílþvotturinn sé utan síns verksviðs. Vorhreingerning heimilisbíls- ins lendir því í eins konar smugu þar sem enginn hefur lögsögu. Eins og staðan er í dag eru þó lík- ur á því að ég taki á mig ábyrgð- ina og drífi í vorhreingerningu fyrir þjóðhátíðardaginn. Við get- um ekki farið í bæinn og minnst sjálfstæðisbaráttu Jóns Sigurðs- sonar á vetrarskítugum bil. Lítið gagn er í ungviðinu á heimUinu í þessum efnum. Það telur sig að- eins hafa skyldur gagnvart litlu pútunni. Heimilisbíllinn sé á ábyrgð foreldranna. Bíladella Þótt heldur dragi úr bíladeUu með aldrinum er hún lífseig í ís- lendingum eins og sjá má á bUa- Uotanum á götunum. Ég hef róast dálítið með árunum og sætti mig við að konan keyri mig í sama bilnum ár eftir ár. Stundum horfi ég þó á bílaauglýsingar og hugsa með mér að gaman væri að eiga hann þennan. Lengra nær það þó ekki. Bíladella er smitandi fyrir- brigði og ég hef lúmskt gaman af að fylgjast með bömum okkar hjóna þegar nær dregur bílprófs- aldri og ekki síður eftir að stóra áfanganum er náð, sjálfu bUpróf- inu. Bílprófinu fylgir mikill spenningur. Með því má segja að bömin stígi inn i heim fuhorð- inna. Þeim er treyst tU þess að fara út í umferðina. Þau verða að spjara sig. Krakkarnir sjá eðlUega aðeins hina jákvæðu hlið málsins, frelsið sem fylgir því að aka af stað einn og óstuddur. Fyrir for- eldrana er tímabUið fremur tengt kvíða og eilífum viðvörunum. Miðaldra í æfing- arakstri Eftir að reglum um ökukennslu var breytt gafst foreldrum tæki- færi til þess að leiðbeina börnum sínum fyrir bUpróf í svoköUuðum æfingarakstri. Það reyndi ég ný- lega í fyrsta sinn. Sú breyting er af hinu góða. Ungmennið fær æf- ingu án þess að vera að stelast og foreldrar geta fylgst með. í okkar tilfeUi gekk þetta aUt að óskum. Það eina sem þurfti að muna var að festa grænan borða aftan á bíl- inn sem gaf æfingaraksturinn tU kynna. Fyrir kom, eftir æfingarakstur, að borðinn gleymdist aftan á bUn- um. Við þær aðstæður skildi ég ekkert í samborgurum mínum. Venjulega þarf maður sífeUt aö varast fanta og svíðinga í umferð- inni. Þeir aka þvert í veg fyrir mann, gefa ekki stefnuljós og sveifla sér í stórsvigi miUi ak- reina. Svo var aUs ekki ef borðinn góði gleymdist á bUnum. Þá fór enginn fram úr og enginn svínaði. Því ver tekið af þolinmæði ef mað- ur gleymdi sér undir stýri og hugsaði um eitthvað aUt annað en aksturinn. Þá er bUar voru hlið við hlið á ljósum brostu aðrir öku- menn uppörvandi til þessa mið- aldra manns sem sýnUega var að vanda sig sem mest hann mátti í æfingarakstrinum. Eina vonin Þrá hins unga ökumanns að fá að keyra er mín eina von til þess að koma mér undan vorhrein- gerningunni á heimilisbílnum. Það kann vera að mér takist, gegn loforði um lán á bUnum, að fá hann glansandi og nýbónaðan til baka. Það verður hver að nýta sér þá aðstöðu sem hann hefur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.