Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 JLlV
e útlönd
Stuttar fréttir
m
Fleiri morö
:
3
Maður sem ítalska lögreglan
grunai- um aö hafa myrt sex
vændiskonur og tvo öryggisveröi
á ítölsku rívíerunni kann að
tengjast sjö morðum til viðbótar.
Vistvæn drottning
Elísabet Englandsdrottning
gerðist græn á fimmtudag þegar
hún fór í
stutta ökuferð
í leigubíl sem
gengur fyrir
vistvænu elds-
neyti. Bílaflota
drottningar
hefur einnig
verið breytt
svo hann geti
einnig gengið fyrir eldsneytinu
vistæna, fljótandi gasi. Áfylling-
arstöð hefur verið komið fyrir
við Buckinghamhöll.
Bakteríur í fiskafurðum
Heilbrigðisyflrvöld í Dan-
mörku hafa ekkert aðhafst vegna
lífshættulegra baktería sem hafa
fundist í fiskafurðum frá
ákveðnu fyrirtæki. Vitaö hefur
verið um vandann um nokkurt
skeið, segir Jyllands-Posten.
Megrun og meiöyröi
Framleiðandi megrunarlyfsins
Nupo í Danmörku hefúr höfðað
meiðyrðamál gegn starfsmönn-
um danska útvarpsins. í þætti
héldu þeir fram aö framleiöand-
inn hefði prettað neytendur.
í eölilegt horf
Lífið í Danmörku er óðum að
færast i eðlilegt horf eftir verk-
fallið. Danir geta fengið nægan
mat og bensín í dag.
Kveikt í barni
Portúgölsk kona hefur verið
handtekin fyrir að binda 11 ára
gamla stúlku, hella yfir hana
bensíni og kveikja í. Barnið, sem
er dóttir kvænts ástmanns kon-
unnar, er í lífshættu.
Kohl og hálmstráið
Helmut Kohl Þýskalandskansl-
ari greip feginshendi þær fréttir í
gær að at-
vinnuleysingj-
um hefði fækk-
að í síðasta
mánuði og
sagði þetta til
merkis um
efnahagsbata.
Kanslarinn og
1 menn hans vonast til að þetta
verði þeim til framdráttar í kosn-
| ingunum í haust.
Hafna milligöngu
Júgóslavnesk stjómvöld til-
kynntu í gær að þau höfnuðu
milligöngu erlendra aðila í deil-
unni í Kosovo í Serbíu þar sem
albanski meirihlutinn vill aukna
sjálfstjórn. Þar með blæs stjórnin
í Belgrad á hótanir helstu rikja
heims um að stöðva alla erlenda
| fjárfestingu í Serbíu.
Slagurinn um RR:
VW yfirbauð
BMW
Reuters-fréttastofan hafði í gær eft-
ir talsmönnum Vickers-verksmiðj-
anna, sem meðal annars framleiða
hinn heimsþekkta bíl, Rolls Royce, að
ákveðið væri að selja Rolls Royce bíla-
deildina Volkswagen í Wolfsburg í
Þýskalandi en ekki BMW-bílaverk-
smiðjunum í Múnchen eins og áður
stóð til.
Blaðafulltrúi Vickers, Brig Daniels,
sagði að samkomulag hefði náðst um
kaupverðið. Það væri 430 milljónir
punda staðgreiðsla eða 90 milljónum
pundum hærra en tilboð BMW hefði
veriö. Brig Daniels sagði við frétta-
mann Reuters að hluthafar myndu
greiða atkvæði um söluna til VW á
framhaldsaðalfundi Vickers sem hald-
inn yrði í byrjun júní.
Allt viö sama heygaröshorniö í Miö-Austurlöndum:
Netanyahu ekki
til Washington
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, verður ekki í Was-
hington á mánudag til að sitja mik-
ilvægan fund um frið í Mið-Austur-
löndum með þeim Bill Clinton
Bandaríkjaforseta og Yasser Arafat,
forseta Palestínumanna.
„Líkumar á því að við komum til
fundarins á mánudag eru engar,“
sagði David Bar-illan, fjölmiðlafull-
trúi Netanyahus, í samtali við
fréttamann Reuters eftir fund Net-
anyahus með Dennis Ross, sendi-
manni Bandarikjastjórnar í Mið-
Austurlöndum.
Bar-illan vildi ekkert segja um
hvort ísraelsmenn ætluðu að reyna
að fá fundinum frestað.
Hann sagði að ísraelsk stjómvöld
hefðu ekki fengið nægan tíma til að
jafna ágreining sinn við bandarísk
stjórnvöld. Bandaríkjamenn lögðu
fram tillögu á friðarfundi í Lundún-
um síðastliðinn mánudag þar sem
ísraelum er gert að skila Palestínu-
mönnum þrettán prósentum lands á
Vesturbakkanum. Því höfnuðu ísra-
elsmenn alfarið. Clinton boðaði því
til fundarins í Washington. Palest-
ínumenn samþykktu aftur á móti
tillögu Bandarikjamanna.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sendi Dennis
Ross til Jerúsalem í þeirri von aö
honum tækist að fá ísraelsk stjórn-
völd til að fallast á fund leiðtoganna
þriggja í Washington. Ross var í ísr-
ael í nótt og ætlaði aftur að reyna að
fá ísraela til að koma vestur.
Það fór vel á með þessum tveimur konum, annarri þýskri en hinni franskri, sem hittust á miðri Evrópubrúnni yfir ána
Rín, milli Strassborgar í Frakklandi og Kehl í Þýskalandi. Konurnar tóku þátt í mótmælaaðgerðum atvinnuleysingja
frá þessum tveimur voldugustu löndum Evrópusambandsins í gær. Milli 500 og 600 manns mótmæltu miklu atvinnu-
leysi í löndunum tveimur. Símamynd Reuter
Myrtur yfirmaður lífvarða páfa sagður njósnari Stasi:
Ekki orðum á það eyðandi
- segir talsmaður páfagarös
Talsmaður páfagarðs vísaði í gær
alfarið á bug fréttum í dagblaöi í
Berlín að Alois Estermann, yfirmað-
ur svissnesku lífvarðanna í páfa-
garði sem var myrtur ásamt eigin-
konu sinni á mánudagskvöld, hefði
verið njósnari austur-þýsku leyni-
þjónustunnar Stasi.
„Það er ekki orðum eyðandi á
þessa kenningu. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem dónaskapur er skrif-
aður um heiðarlegan mann,“ sagði
Navarro-Valls, talsmaður páfa.
Berlínarblaðið Kurier hafði það
eftir heimildarmönnum í Þýska-
landi að Estermann hefði sjö sinn-
um veitt Stasi upplýsingar um páfa-
garð á árunum 1980 til 1984. Upplýs-
ingunum kom hann um borð í næt-
urlestina milli Rómar og Innsbruck
í Austurríki þar sem starfsmaður
Stasi tók við þeim. Kurier sagði að
Estermann hefði tekið að sér njósn-
imar til að bæta sér upp lág laun
sem hann fékk sem lífvörður páfa.
í netútgáfu ítalska blaðsins La
Republica í gær sagði að talsmaður
skjalasafns Stasi hefði staðfest að
austur-þýska leyniþjónustan hefði
haft á sínum snærum útsendara
sem gekk undir nafninu Werder.
Fjölskylda eiginkonu Estermanns
vísaði fréttum þýska blaðsins
einnig á bug í gær. „Þetta er algjör
firra og móðgun við minningu
Alois," sagði fjölskyldan.
Það var einn undirmanna Ester-
manns, Cédric Tornay, sem skaut
hann og eiginkonu hans til bana á
mánudagskvöld. Að sögn páfagarðs
gerði hann það í stundarbrjálæði.
Tornay svipti sig síðan lífi á eftir.
Kauphallir og vöruverð erlendis
London
Frankfurt
ciyw\ DAX-40
DUUw 40000-,
20000. F
5110,88 M A M
Tokyo
NlkHslj
180 S
Hong Kong
Hang Seng
20000 |
Hráolía
20
15
10
5 H
0 S
$/
tunnop
13,81
M A M
Svíadrottning
vill herta bar-
áttu gegn dópi
Silvía Svíadrottning hefur
hvatt til þess að baráttan gegn
| fíkniefnum verði hert til muna.
í Drottningu
brá þegar
hún sá niður-
stöðu nýrrar
könnunar þar
sem fram
kemur að
fíkniefna-
| neysla
sænskra táninga hefur aukist.
Sjálf á drottning tvö böm á tán-
I ingsaldri.
| Könnunin leiddi í ljós að níu
| prósent fimmtán ára pilta og
I sex prósent stúlkna höfðu
| fiktað með fíkniefni.
„Þetta er skelfilegt. Viö verð-
um að gera eitthvað," sagði
j drottning á ráðstefhu um ung-
menni og fikniefni í Stokk-
hólmi, aö þvi er blaðið Ex-
pressen skýrði frá í gær.
!! Þúsund fuglar
fylltu húsið
Þeim brá heldur betur í brún
hjónum einum í Pasadena í
Kalifomíu sem snem heim eft-
ir nokkurra daga fjarveru.
Húsið þeirra var bókstaflega
fullt af fuglum.
Nágrannar hjónanna höfðu
samband við slökkvilið bæjar-
ins á mánudagskvöld og
skýrðu frá þvi að heilu flokk-
arnh- af svölungum hefðu horf-
ið niður um stromp hússins.
Slökkviliösmenn fóm á vett-
: vang og hjónin komu aðvífandi
skömmu síðar.
3j „Þegar slökkviliðsmennirnir
fóru inn í húsið voru þar rúm-
lega þúsund svölungar og þeir
höfðu ollið nokkrum skemmd-
1 um á innbúinu," sagði Joe
i' Nestor, varðstjóri í slökkviliði
j Pasadena.
Bítlum tókst
að stöðva út-
gáfu laga
Bítlunum þremur sem eftir
1 lifa, svo og Yoko Ono, ekkju
Johns Lennons, hefur tekist að
stöðva útgáfu laga frá árdögum
hljpmsveitarinnar.
DómstóU í Lundúnum fyrir-
skipaði útgáfufyrirtæki að af-
henda öU eintök upptöku ann-
ars tónlistarmanns af leik Bítl-
anna í Þýskalandi fyrir 36 ár-
um. Þá voru Bítlarnir ekki enn
I orðnir heimsfrægir.
Maðurinn sem tók leik Bítl-
8 anna upp sagði fyrir rétti að
hann hefði spurt John Lennon
eftir á hvað gera ætti við upp-
| tökuna. Að hans sögn sagði
Lennon að hann mætti gera
við hana það sem hann vildi.
Neyðarástandi
iýst yfir á ham-
farasvæðunum
| Ríkisstjórn Romanos Prodis
I á Ítalíu lýsti í gær yfir neyðar-
I ástandi í þremur héruðum á
| Suður-Ítalíu
J þar sem aur-
skriður hafa
orðið tugum
| manna að
bana undan-
farna daga.
Þá hét stjórn-
in því að
veita sem svarar rúmum
tveimur miUjörðum íslenskra
| króna í fyrstu aðstoð til endur-
I uppbyggingar á hamfarasvæð-
| unum.
Síðdegis í gær hafði verið
j staðfest að 87 fórust og 107 var
j: saknað.
Bandarískir hermenn hófu
fj þátttöku í björgunaraðgerðun-
I um í gær.