Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 9. MAI 1998
%rir 15 árum
Útsýnarkvöld voru hér áður ár-
viss viðburður í skemmtanalifi höf-
uðborgarinnar á vegum samnefndr-
ar ferðaskrifstofu. Fyrir nákvæm-
lega 15 árum, þann 9. maí 1983, var
á baksíðu DV sagt frá kjöri á herra
og ungfrú Útsýn það ár. Þetta voru
þau Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir
og Sigurður Matthíasson sem að
sjálfsögðu voru á mynd með Ingólfi
Guðbrandssyni, þá forstjóra Útsýn-
ar. Þau fengu flest stig keppenda frá
dómnefndinni eftir að hafa sprang-
að um sviðið í sundfótum og kvöld-
klæðnaði.
Þessi mynd vakti forvitni okkar á
að hafa uppi á herranum og ung-
frúnni. Öll vitum við að Ingólfur er
enn í ferðabransanum en hvað
skyldi hafa orðið um Guðlaugu og
Sigurð? Við fundum þau fljótlega
þar sem bæði eru þau búsett i borg-
inni, Guðlaug Stella að kenna í
Húsaskóla í Grafarvogi og Sigurður
að reka verslunina Svefn og heilsu í
Listhúsinu í Laugardal.
mig upp,“ sagði Sigurður er
hann var spurður hvernig
þátttaka hans kom til á Út-
sýnarkvöldinu á gamla
Broadway-skemmtistaðn-
um. Kona Sigurðar er El-
ísabet Traustadóttir en
hún var á sínum tíma feg-
urðardrottning íslands og á
fullu í fyrirsætustörfum. Þau
eiga í dag tvö börn, Matthías, 10
ára, og Aldísi, 8 ára.
Eftir Útsýnarkvöldiö tók
Sigurður að sér nokkur
fyrirsætustörf, einkum
er hann dvaldi í Nor-
egi um skeið. Margir
kannast eflaust við
Sigurð úr íþróttun-
um en hann var
mjög góður
körfuknattleiks-
maður, há-
stökkvari og spjót-
kastari, stökk m.a.
1,85 m í hástökki án
Fimmtán árum síöar og enn í fínu
formi! Guölaug Stella og Siguröur
höföu ekki hist í langan tíma þegar
DV kom þeim saman í vikunni.
DV-mynd Hilmar Þór
Herra og ungfrú Útsýn 1983 kjörin á Útsýnarkvöldi:
Tækifæri til ferðalaga
Plataður af frúnni
„Ég var plataður í þetta. Konan
mín kallaði mig upp á svið og fé-
lagar mínir úr íþróttakennaraskól-
anum peppuðu
atrennu og spjótinu kastaði hann
lengst 80,5 metra, eigi langt frá ís-
landsmeti Einars Vilhjálmssonar.
Til að
frekari
Guölaug Steila Brynjófsdóttir og Siguröur Matthíasson meö Ingólf Guö-
brandsson á milli sín, kampakátan aö lokinni krýningu þeirra sem ungfrú og
herra Útsýn 1983. Þessi mynd var á baksíöu DV 9. maí 1983. DV-mynd GVA
árangri í spjótkastinu dvaldi Sig-
urður við nám og æfingar i Banda-
ríkjunum í sex ár, nánar tiltekið í
háskóla í Alabama.
Fljótlega eftir að Sigurður kom
heim frá Bandaríkjunum árið
1991 fór hann í verslun-
arrekstur. Tók
að sér umboð
fyrir amerískar
heilsudýnur
sem hann hefur
selt grimmt í
verslun sinni.
Hann sagði ekki al-
veg skilið við
íþróttirnar og hefur
m.a. reynt fyrir sér í
aflraunum. Tók t.d.
þátt í Hálandaleikunum fyrir
tveimur árum og stefna hans er að
taka aftur þátt í þeirri keppni.
Ungfrú Reykjavík
„Þegar ég rifja upp þessa tíma
held ég að öll ferðalögin standi upp
úr sem manni áskotnuðust," sagði
Guðlaug Stella í samtali við helgar-
blaðið sem ári eftir Útsýnarkvöldið
tók þátt í Fegurðarsamkeppni ís-
lands, þá 18 ára. Hafnaði þar í 2.
sæti og var kjörin ungfrú Reykja-
vik 1984. í kjölfarið tók hún þátt í
Miss International í Japan árið
1984 og Miss Europe keppninni í
ársbyrjun 1985.
Fimmtán ára byrjaði hún í fyrir-
sætustörfum hjá Módelsamtökun-
um og Guðlaug sagði aðeins fjögur
ár vera liðin frá síðustu fyrirsætu-
störfum hennar. Þá var hún komin
fjóra mánuði á leið en hún og Þor-
grímur Leifsson eiga tvö börn,
Ragnheiði, 11
ára, og Rögn-
vald, 4 ára.
Fjölskyld-
an bjó í
átVW'
linn
nokkur ár
á Hell-
issandi og
þar
kynntist
hún kennarastarf-
inu, dreif sig í Kennaraháskólann
og útskrifaðist þaðan fyrir fimm
árum. Hún kennir í Húsaskóla
eins og áður sagði. „Yndislegir
unglingar sem eiga hug minn all-
an. Ég er mjög ánægð í kennara-
starfinu og ólíklegt að ég taki að
mér fyrirsætustörf á ný,“ sagði
Guðlaug og brosti. -bjb
Margar bækur í einu
„Ég hef þann slæma ósiö að vilja
lesa margar bækur í einu, les þá
gjarnan kafla úr einni í dag og
annarri á morgun, les fram yfir
miðju i sumum bókum og læt þær
svo liggja, tek þær upp seinna, eða
ekki, útvaldar bækur les ég svo aft-
ur og aftur. Eiginmaður minn er
reyndar nýbúinn að fara þess á leit
við mig að við gerðum sameiginlegt
átak í því að laga umgengnisvenj-
umar um bækurnar okkar. Honum
ofbauð held ég í sunnudagstiltekt
um daginn að telja upp af
náttborðinu okkar yfir
túttugu bækur. Eftir dá-
litla umhugsun félist ég-á
að ölium nema nokkrum
yrði komið fyrir uppi í
hillu og nú er ég að reyna
að temja mér markvissari
lestrarvenjur,“ segir
Hrafnhildur Hagalín, rit-
höfundur og bókaormur
vikunnsir.
„Ein skemmtilegasta
bók sem ég hef lesið á síð-
ustu árum er skáldsagan
Travels with My Aunt eft-
ir Graham Greene. Gaman
er að geta um hana vegna
þess að hún virðist hafa
farið fram hjá jafnvel
hörðustu bókamönnum.
Sagan fjallar um siðprúð-
an eldri piparsvein sem þvælist í
langt lestarferðalag með gamalli
ríkri frænku sinni og er lesandinn
hrifinn með í ævintýralega reisu í
gegnum París, Istanbul og til
Paragvæ. Frænkan gamla, sem er
afar skrautlegur persónuleiki, vek-
ur frændann smátt og smátt til lífs-
ins með frjálslegum skoðunum sín-
um og að því er honum finnst
„hneykslanlegu líferni" og afleiðing-
arnar verða að vonum þær að hann
á illa afturkvæmt til sinnar fyrri til-
breytingarsnauðu tilveru. ... Bókin
er ekki einungis óborganlega fyndin
heldur vekur hún einnig upp ýmsar
áleitnar spurningar um mannlegt
eðli. Svo spaugilega vildi til að
stuttu eftir að ég las bókina hitti ég
leigubílstjóra í London sem hafði
þekkt Graham Greene og staðið í
bréfaskriftum við hann árum sam-
an. Greene hafði haft þrjár megin-
reglur þegar hann skrifaði, tjáði
hann mér, og mér fannst þær koma
heim og saman við bókina. En ég
segi þær auðvitað ekki
nokkrum manni.
Fyrir stuttu las ég
svo bókina Emotional
Intelligence eftir
bandaríska sálfræðing-
inn Daniel Goleman.
Hún sat um alllangt
skeið í efstu sætum
bandaríska vinsælda-
listans og yfirleitt tek
ég slikum bókum með
fyrirvara en þessi kom
á óvart. Höfundur
skrifar ekki aðeins
skemmtilega heldur
byggir hann mál sitt á
nýjustu rannsóknum á
sviði sálar- og taugalíf-
eðlisfræði og í bókinni
kemur fram ný sýn höf-
DV-mynd E.OI. undar á skilgreining-
Hrafnhildur Hagalín les vel og mikiö.
una„greind“ og það
samspil milli tilfinninga og vits-
muna sem stjórnar hegðun okkar og
gerðum. Höfundur útskýrir það
m.a. hvers vegna fólki með háa
greindarvísitölu, skv. hefbundinni
skilgreiningu, getur farnast verr í
lífinu en þeim sem eru með lægri
greindarvísitölu. Þetta er tilvalin
bók fyrir þá sem eru tilfinningalega
óskynsamir og eða skynsamlega til-
finningasamir og auðvitað áhuga-
verð lesning fyrir alla áhugamenn
um sálfræðitengd mál.
Brúðkaup Fígarós
Annars les ég fátt um þessar
mundir annað en Brúðkaup Fígarós
eftir Mozart en ég er að sviðsetja óp-
eruna í Tónlistarskólanum í Garða-
bæ með söngnemendum og
nokkrum kennurum skólans. Sagan
er skemmtileg og byggir á sam-
nefndu leikriti eftir franska leikrita-
höfundinn Beaumarchais en það
olli miklu fjaðrafoki þegar það kom
fyrst út í Frakklandi á síðari hluta
átjándu aldar."
Hrafnhildur skorar á Jónas Þor-
bjarnarson ljóðskáld að vera næsti
bókaormur DV. Hún segir hann lesa
franskar bækur fyrir hádegi, spæn-
skar í eftirmiðdaginn og íslenskar á
kvöldin!
bókaormurinn
--------------------------------
Hrafnhildur Hagalín rithöfundur:
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KILJUR:
1. Charles Frazler. Cold Mountain.
2. Helen Relding: Bridget Jone's Diary.
3. Louis de Bernieres: Captain Corelli’s
Mandojin.
4. Kate Atkinson: Human Croquet.
5. Danielle Steel: The Ranch.
6. John Grlsham: The Partner.
7. Tom Clancy: Executive Orders.
8. PD James: A Certain Justice.
9. Arabella Welr: Does My Bum Look Big
in This?
10. Cathy Kelly: Woman to Woman.
RIT ALM. EÖLIS - KIUUR:
1. Paul Wilson: The Little Book of Calm.
2. Ýmslr. The Diving-Bell & The Butterfly
Jean-Dominique Bauby.
3. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
4. Adeline Yen mah: Falling Leaves.
5. Frank McCourt: Angela's Ashes.
6. Nlck Hornby: Fever Pitch.
7. Ed Marsh & Douglas Kirkland: James
Cameron’s Titanic.
8. Blll Bryson: Notes from a Small Island.
9. John Pilger: Hidden Agendas.
10. Griff Rhys Jones: Nation’s Favourite
Poems.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. John Grisham: The Street Lawyer.
2. Nlck Homby: About a Boy.
3. Joanna Trollope: Other People's
ChWren.
4. Terrý Pratchett: The Last Continent.
5. Jackie Collins: Thrilll
INNBUNDIN RIT ALM. EÖLIS:
1. Ruud Gullit: My Autobiography.
2. Peter Ackroyd: The Life of Thomas
More.
3. Ted Hughes: Birthday Letters.
4. Jane Gleeson: The Arcanum.
5. Blll Bryson: A Walk in the Woods.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Edward Rutherford: London.
2. Nelson DeMllle: Plum Island.
3. Alicia Hoffman: Here on Earth.
4. John Grisham: The Partner.
5. Mary Higgins Clark: Pretend You Don't
Seér’Her.
6. Nora Roberts: Sanctuary.
7. Tami Hoag: A Thin Dark Llne.
8. Rebecca Wells: Divine Secrets of the
Ya-Ya Sisterhood.
9. Maeve Blnchy: Evening Class.
10. Nicholas Sparks: The Notebook.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Rlchard Carlson: Don't Sweat the
Small Stuff.
2. Jon Krakauer: Into Thin air.
3. Robert Atkin: Dr. Atkins' New Diet
Revolution.
4. Les & Sue Fox: The Beanie Baby
Handbook.
5. Katharine Graham: Personal History.
6. Ýmsir: Chicken Soup for the Pet
Lover’s Soul.
7. Rlchard Carlson: Don't Sweat the
Small Stuff with Your Family.
8. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
9. Ýmsir: Chicken Soup for the Teenage
Soul.
10. James McBrlde: The Color of Water.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Sue Grafton: N Is For Noose.
2. Mary Higgins Clark: You'Belong to Me.
3. Anna Quindlen: Black and Blue.
4. Nicholas Sparks: Message in a Bottle.
5. John Grisham: The Street Lawyer.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Suzy Orman: The 9 Steps to Financial
Freedom: Practical and Spiritual Steps
So You Can Stop Worrying.
2. Thomas Cahlll: The Gifts of the Jews.
3. Sarah Ban Breathnach: Simple
Abundance.
4. Mitch Albom: Tuesdays with Morrie.
5. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
(Byggt á Washington Post)