Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Side 17
LAUGARDAGUR 9. MAI 1998
17
Nú er vetur úr bæ og ruslið úr görðunum á að fara sömu leið.
Tökum höndum saman með hækkandi sól og fegrum lóðirnar
okkar fyrir sumarið.
Eins og undanfarin ár leggjum við okkar af mörkum og
verðum með sérstaka hreinsunardaga frá laugardeginum
2. maí til sunnudagsins 10. maí. Þessa daga fara
borgarstarfsmenn um hverfin og hirða fulla ruslapoka.
Pokar verða afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra.
Peim sem þurfa að losa sig við annað en garðaúrgang er bent á
endurvinnslustöðvar Sorpu.
Sumartími endurvinnslustöðva Sorpu hefst laugardaginn 2. maí.
Pá er opið þar alla daga frá kl. 12:30 til 21:00.
Endurvinnslustöðvarnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum:
Við Ánanaust gegnt Mýrargötu.
Við Sævarhöfða gegnt malbikunarstöðinni.
Við Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Við Jafnasel í Breiðholti.
Skorað er á forráðamenn fyrirtækja að taka til á lóðum sínum.
Fyrir stóra og fyrirferðarmikla hluti er bent á Geymslusvæðið
í Hafnarfirði, sem hreinsunardeild gatnamálastjóra leigir út.
Við tölaim pokann þinn
Söfnun
iefna
Látum ekki spilliefni safnast saman í heimahúsum, geymslum
eða á lóðum. Notum nú tækifærið, gerum hreint fyrir okkar
dyrum og komum hættulegum efnum í öruggar hendur.
Borgaryfirvöld, í samvinnu við spilliefnanefnd, standa fyrir
móttöku spilliefna laugardagana 2. og 9. maí á eftirtöldum
stöðum:
Skeljungur v/Birkimel og Hraunbæ.
Olís v/Álfabakka, Gullinbrú, Álfheima og
Sæbraut/Kleppsveg.
Esso v/Stóragerði.
Endurvinnslustöðvar Sorpu.
Verum samtaka í söfnun spilliefna.
Vi,
sívernd í verW
Jívmm'"
Borgarstjórinn í Reykjavík
-hreinsunardeild gatnamálastjóra