Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Side 48
60
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 DV
bridge
GENERAU-heimsmeistarakeppni í einmenningi 1998:
Frakkinn Paul Chemla sigraði
Fjórða Generali-heimsmeistara-
keppnin í einmenningi var haldin á
eyjunni Korsíku dagana 17.-20. apr-
íl. Fimmtíu og tveimur stórmeistur-
um var boðin þátttaka, fímm mættu
ekki og rýrði það frekar en ekki
þetta merka mót.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Jón Baldursson var fulltrúi ís-
lendinga, vann enda mótið fyrir
tveimur árum, en í þetta sinn gekk
honum verr. Jón byrjaði illa, en
skák
náði risaskor í síðustu umferðinni
og endaði í 18. sæti. Fyrir það fékk
hann 3.000 franska franka í verð-
laun, sem er alls ekki slæmt. Frakk-
inn Paul Chemla nældi sér hins veg-
ar í 50.000 franka í verðlaun fyrir
fyrsta sætið. Hann er atvinnumaður
í bridge, núverandi heimsmeistari í
sveitakeppni og þetta er hans fjórði
heimsmeistaratitill.
í kvennaflokki sigraði Migri Zur-
Albu frá ísrael. Hún er atvinnumað-
ur í bridge og er að vinna sinn
fyrsta heimsmeistartitil.
Við skulum skoða eitt skemmti-
legt spil frá mótinu, þar sem pólski
stórmeistarinn Krzystof Martens er
í aðalhlutverkinu. Reyndar byrjaði
hann illa í mótinu og var um tíma í
52. sæti. Þegar spilið í dag kom fyr-
ir var hann á góðri siglingu upp list-
ann, en úrslit þess bundu enda á
vonir hans um verðlaunasæti.
* 109
V/AllU' v Q64
♦ KD108532
* 7
* KDG73
* ÁK97
* 9
* 1092
♦ 8642
W 103
♦ -G6
* K8643
Með fyrrverandi heimsmeistara,
Barry Westra frá Hollandi í norður,
Kínverjan Zhong í suður, Frakkann
Bompis í austur og Martens í vestur
gengu sagnir á þessa leið :
Vestur Norður Austur Suður
1 ♦ 3 + dobl pass
4 v pass 4 Gr pass
5 v pass 5 Gr pass
64 pass 7 * pass
pass pass
Martens er ekkert að slá af í sögn-
unum, enda er alslemman ekki
Frakkinn Paul Chemla.
verri en laufasvining. Eins og spilið
er þá er sú leið dæmd til þess að
mistakast, en eftir allnokkra um-
hugsun reyndi Martens aðra leið
eftir tígulkóngsútspil norðurs. Hann
drap á ásinn, trompaði tígul, lagði
niður trompás, ef ske kynni að tía
eða gosi kæmi í. Síðan fór hann inn
á spaðaás, spilaði tígli og nú tromp-
aði Zhong með tíunni. Martens yfir-
trompaði með kóngnum og spilaði
hjartaníu. Þegar lítið spil kom frá
norðri þurfti hann að geta til hvort
hann ætti að svína eða toppa. Þetta
var ekki einfalt mál, bæði hafði
norður sýnt sjö tígla og því líklegra
að suður hefði byrjaö með þrjú
hjörtu, en inn í þetta blandaðist
einnig hvort suður hefði ekki reynt
að villa fyrir, ef hann hefði byrjað
með G 10 3 í trompi. Hann hefði þá
trompað i þriðja tígulinn með gos-
anum. Allt þetta þurfti Martens að
glíma við. Að lokum valdi hann vit-
laust og botninn blasti við.
Aðeins tveir sagnhafar völdu rétt
í hjartalitnum og unnu alslemmuna,
en það að spila hálfslemmu og
vinna sjö hefði gefið mjög góða skor.
♦ A5
V D852
♦ Á74
♦ ÁDG5
Landsmótið í skólaskák:
Hjalti Rúnar og Dagur urðu meistarar
Landsmótið í skólaskák er jafnan
fjölmennasta skákmót ársins. Mótið
hefst í skólum landsins þar sem teflt
er í öllum styrkleikaflokkum án
þess nauðsynlega mikil alvara sé á
ferðinni. Þeir sem skara fram úr
vinna sér svo sæti í glæsilegri úr-
slitakeppni, sem að þessu sinni fór
fram í Garðaskóla í Garðabæ. Teflt
er í yngri flokki, nemenda í 1.-7.
bekk og eldri flokki, nemenda í
8.-10. bekk.
Keppnin var æsispennandi í báð-
um flokkum og réðust úrslit ekki
fyrr en á síðustu mínútunum. í
yngri flokki sigraði Dagur Am-
grímsson, Reykjavík, en hann er að-
eins 11 ára gamall - heilum tveimur
árum yngri en margir keppinaut-
anna í yngri flokki. Dagur hlaut 9,5
vinninga úr 11 skákum en næstir
komu Helgi Egilsson, Reykjanesi, og
Guðjón Valgarðsson, Reykjavík,
sem fengu 9 vinninga. Síðan kom
Bjöm ívar Karlsson, Suðurlandi,
með 8,5 vinninga, Guðmundur
Kjartansson, Reykjavik, fékk 7,5 v.,
Heimir Einarsson, Vesturlandi fékk
6.5 v., Víðir S. Petersen, Reykjanesi,
fékk 5,5 v., Gunnar Baldvin Björg-
vinsson, Reykjanesi, fékk 4 v., Hall-
veig Karlsdóttir, Austurlandi, fékk
2.5 v., Egill Steinar Ágústsson, Vest-
fjörðum, og Ágúst Bragi Björnsson,
Norðurlandi eystra, fengu 2 v. og
Jón Ragnar Guðmundsson, Norður-
landi eystra, rak lestina.
í eldri flokki hreppti Hjalti Rúnar
Ómarsson, Reykjanesi, íslands-
meistaratitilinn með 9,5 vinninga.
Stefán Kristjánsson, Reykjavík, sem
fyrirfram var álitinn sigurstangleg-
Umsjón
astur, varð að lúta í lægra haldi fyr-
ir Hjalta Rúnari í síðustu umferð.
Hjalti Rúnar býr í Kópavogi og mun
vera fyrsti Kópavogsbúinn sem nær
þessum áfanga. Stefán varö í 2. sæti
með 9 vinninga, jafnmarga og Andri
H. Kristinsson, Reykjavík, sem varð
lægri að stigum og fékk því þriðja
sætið og Guðni Stefán Pétursson,
Reykjavík, sem varð í 4. sæti. Ólaf-
ur Kjartansson, Reykjavík, kom
næstur með 7,5 v., síðan Halldór
Brynjar Halldórsson, Norðurlandi
eystra, með 6 v., Birkir Örn Hreins-
son, Reykjanesi, fékk 5,5 v., Björg-
vin Reynir Helgason, Suðurlandi,
fékk 4 v„ Sigfús Fossdal, Norður-
landi eystra, fékk 3 v., Bergvin
Snær Andrésson, Austurlandi, fékk
2 v., Harald Bjömsson, Vesturlandi,
fékk 1,5 v. og Rögnvaldur Magnús-
son, Vestfjörðum, rak lestina.
Topalov réð ekki við Kasparov
Milli fimm og sex hundmð áhorf-
endur fýlgdust með fjögurra skáka
atskákeinvígi Garri Kasparovs og
Veselin Topalov, sem fram fór í Sof-
íu, höfuðborg Búlgaríu, um síðustu
helgi. Auk þess vora skákimar fjór-
ar sýndar í beinni útsendingu í
búlgarska ríkissjónvarpinu.
Topalov hefur verið í fremstu röð
stórmeistara síðustu ár og hefur
tekið við hlutverki Kirils Georgievs,
sem öflugasti skákmaður Búlgara.
Fyrir tveimur áram glímdi hann
við Anatoly Karpov í samsvarandi
keppni og skildu þeir jafhir, 3-3. En
Topalov réð ekki við Kasparov. í öll-
um fjórum skákunum varð hann að
játa sig sigraðan - lokastaðan varð
4-0, Kasparov í vil.
Kasparov vann báðar skákimar
af öryggi fyrri keppnisdaginn, en í
þriðju skákinni var hann hætt kom-
inn þegar hann lék af sér biskupi.
Topalov var hins vegar orðinn afar
naumur á tíma og nokkram leikjum
síðcir féll hann í einfalda gildra og
varð mát í 2. leik. Þá vora úrslitin í
einvíginu ráðin en fjórðu skákina
tefldu þeir samt. Aldrei þessu vant
gerði Kasparov mistök snemma
tafls og Topalov átti þess kost að
skipta upp í endatafl með peði
meira. Hann valdi hins vegar aðra
og mun lakari leið, og Kasparov
náði að snúa taflinu við.
Þeir Kasparov og Topalov munu
heyja annað einvígi í Leon á Spáni í
næsta mánuði, sem verður með
óvenjulegu sniði. Þeir munu njóta
aðstoðar tölvu meðan á skákunum
stendur og geta því flett upp í öllum
þeim skákum sem tefldar hafa verið
fr£un á þennan dag, auk þess að riija
upp eigin rannsóknir. Með þessu
vonast Kasparov til að meiri tími
gefist til þess að skapa eitthvað nýtt,
í stað þess að rifja upp gömul af-
brigði en það verður fljótgert með
nýju aðferðinni.
Fyrsta einvígisskákin:
Hvítt: Veselin Topalov
Svart: Garrí Kasparov
Drottningarbragð.
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4.
Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3
b6
Afbrigði Tartakowers, sem Ka-
sparov gjörþekkir frá einvígi sínu
við Karpov í Moskvu 1984.
8. Be2 Rbd7 9. cxd5 exd5 10. 0-
0 Bb7 11. Hcl c5 12. Da4 a6 13.
dxc5 bxc5 14. Hfdl Db6 15. Db3
Da7 16. Bg3 Had8 17. Hd2
Fram að þessu hafa þeir fylgt ná-
kvæmlega 31. skák Karpovs við Ka-
sparov í Moskvu. Karpov lék 17. Rel
og lauk skákinni með jafntefli eftir
35 leiki. Topalov teflir næstu leiki
ráðleysislega og von bráðar hrifsar
Kasparov til sín frumkvæðið.
17. Hfe8 18. Ddl Bf8 19. Bh4
Da8 20. Rel Be7 21. Bg3 RfB 22.
Rf3 Re6 23. Bh4 d4! 24. exd4 cxd4
25. Ra4 Rf4 26. Rc5 Bxc5 27. Bxf6
27. - d3?
Lítur vissulega vel út en eftir
skákina viðurkenndi Kasparov að
hann hefði misst af einfaldri vinn-
ingsleið: 27. - gxfB 28. Hxc5 Hxe2! 29.
Hxe2 Bxf3 30. gxf3 Dxf3! og svartur
er ekki að leika af sér drottning-
unni, því að ef 31. He8+ Hxe8 32.
Dxf3 kemur auðvitað 32. - Hel mát.
Ekki ber svo á öðra en að önnur
vinningsleið sé 27. - Bb4, t.d. 28.
Bxd8 Bxd2 29. Bfl Bxcl 30. Dxcl
Rxg2 o.s.fi*v.
28. Bxd3 Bxf3 29. gxf3 Hd5 30.
Bh4?
Að sögn Kasparovs var 30. Hc4
eini möguleiki hvíts í stöðunni og
þá er taflið alls ekki ljóst. Einnig
virðist 30. Be4!? koma vel til greina.
30. - Bb4 31. Hc3 Bxc3 32. bxc3
Hfd8!
- Og Topalov gafst upp, því að 33.
Bxd8 Dxd8 er vonlaust.
Voratskákmót Hellis
Árlegt voratskákmót taflfélagsins
Hellis fer fram næstu tvö mánu-
dagskvöld, 11. og 18. maí. Tefldar
verða sjö umferðir á þessum tveim-
ur kvöldum, með 25 mínútna um-
hugsunartíma á skákina. Mótið fer
fram í Hellisheimilinu í Mjóddinni
(gengið inn hjá Bridgesambandinu)
og era allir velkomnir til leiks.
Bíldshöfða 16 (Rafbúðarhúsinu)
erútsalan
Borðlampar - Gólflampar - Loftljós
Vegglampar - Ljóskastarar - Halógenljós ýmsar gerðir
Flúrlampar mikið úrval. fjöltengi o.fl. smóvörur.
Rllt ó að seljast - ótrúlegt verð -
Síðasti dagur - lokum eftir helgi
s. 567 39 54
hvað er Bill Gates
eiginlega ri
hur?
www.fjolnet.is/svarid
Smelltu þér á netiö UÚ
islandia
internet
Einstaklingsþjónusta