Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998
Fréttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Þakka borgarbúum
lét sjálfstæðismenn ekki kúga mig til að færa mannfórn
„Ég þakka niðurstöðuna góðu
starfi Reykjavíkurlistans á kjör-
tímabilinu og borgarfulltrúanna
fyrst og fremst. Við ákváðum í lok
síðustu kosninga að byrja að heyja
næstu kosningabaráttu strax og
þetta fólk hefur unnið hörðum
höndum síðan. Síðan þakka ég okk-
ar liðsmönnum sem stóöu þétt sam-
an í drengilegri kosningabaráttu og
ég er mjög stolt að enginn leiddist
út í þátttöku í þeim kaldrifjaða leik
sem hér hefur verið leikinn. Og í
þriðja lagi þakka ég borgarbúum
sem ég trúði alltaf að færu að kjör-
borðinu með stefnumál og árangur
Reykjavíkurlistans í huga,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í sam-
tali við DV strax og fyrstu tölur
höfðu birst og úrslitin þar með orð-
in ljós.
-Nú hefur Árni lýst því yfir að
hann sé hættur sem leiðtogi sjálf-
stæðismanna í borginni og ætli ekki
á þing. Telur þú eftirsjá af honum
sem andstæðingi?
„Það er eftirsjá af Áma úr póli-
tísku starfi, ég tel aö hann eigi þar
fullt erindi. Auðvitað hefur hann að
ýmsu leyti átt við ramman reip aö
draga á þessu kjörtímabili og hann
hefur unnið vel í þessari kosninga-
baráttu. En ég held að þeirra
stærstu mistök að ýmsu leyti hafi
verið að fara út í þessa herferð gegn
Hrannari."
- Verður gripið til einhverra ráö-
stafana varðandi Hrannar af þinni
hálfu á næstunni?
„Ég hef verið mjög hörð á því að
gefa ekki eftir í þessu máli vegna
þess að ég vil ekki láta andstæðinga
Fyrstu tölur liggja fyrir og gleöin leynir sér ekki hjá frambjó&endum og stu&ningsmönnum Reykjavíkurlistans.
mína kúga mig með þessum aðferð-
um til þess að færa hér ákveðna
mannfórn. Við höfum öll staðið
saman um þetta. Síðan tökum við
bara á okkar málum eins og alltaf
var ráð fyrir gert,“ sagði Ingibjörg
DV-mynd ÞÖK
Sólrún, nýkjörinn borgarstjóri, að
lokum. -phh
Kosningavaka Reykjavíkurlistans á Hótel íslandi:
Tilfinningaþrungin nótt
„Tilfínningin fyrir þessum sigri
er svo miklu sterkari en fyrir fjór-
um árum vegna þess að með sigr-
inum i dag höfum við innsiglað að
við höfum staðið við þær væntingar
sem til okkar voru gerðar. Við gáf-
um fyrirheit um breytingar í borg-
inni og þær breytingar höfum við
nú staðfest,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, nýkjörinn borgarstjóri,
í upphafi ræðu sinnar á kosninga-
vöku Reykjavíkurlistans.
Það var rafmögnuð stemning á
kosningavökunni á meðan menn
biðu eftir fyrstu tölum og greinilegt
að margir voru orðnir óþreyjufullir.
Þegar fyrstu tölur voru lesnar voru
flestir frambjóðendur mættir ásamt
nokkrum fjölda stuðningsmanna og
í kjölfarið brutust út mikil fagnað-
arlæti og margir gáfu tilfinningun-
um lausan tauminn.
Eftir fyrstu tölur tóku stuðnings-
menn Reykjavíkurlistans að
streyma á Hótel ísland og á tólfta
tímanum, þegar Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir kom í hús, var húsið
orðið fullt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var
hyllt af gestum þegar hún gekk nið-
ur stigann undir laginu Ó, borg,
mín borg og ætlaði dúndrandi lófa-
klappinu og gleðiópunum aldrei að
linna.
Sigurgleði stuðningsmanna
Reykjavíkurlistans var gríðarleg og
dansinn dunaði langt fram eftir
nóttu, undir styrkri stjóm hljóm-
sveitarinnar Geirfuglanna.
-aþ
Hrannar B. Arnarsson og mó&ir hans, Kristín Á. Ólafsdóttir, voru greinilega
mjög hrærö þegar fyrstu tölur lógu fyrir. DV-mynd ÞÖK
Hrannar B. Arnarsson:
Viss um sigur
„Þessi kosningabarátta er ein sú
ömurlegasta sem ég hef tekið þátt í
en ég var alltaf viss um að Reykja-
víkurlistinn fengi að njóta góðra
verka sinna á síðasta kjörtímabili.
Það var greinilegt aö ófrægingar-
herferð Sjálfstæðisflokksins kom
róti á hugi margra en á þessari
stundu er ég afar þakklátur þeim
fjölmörgu sem studdu við bakið á
mér, ekki síst félögum mínum á
Reykjavikurlistanum," sagði
Hrannar B. Arnarsson, nýkjörinn
borgarfulltrúi, á kosningavöku
Reykjavíkurlistans.
Hrannar gagnrýndi vinnubrögð
sjálfstæðismanna sem hann sagði
sorgleg og minna um of á bandarísk
stjórnmál sem ættu ekkert skylt við
lýðræði. Hann sagðist staðráðinn í
aö hreinsa nafn sitt á næstu dögum
og vikum. „Mannorð mitt hefur ver-
ið nítt niður í svaðið og mitt næsta
verkefhi veröur að hugleiða úrslitin
og hreinsa mitt mannorð. Ég hyggst
draga þá til ábyrgðar sem stóðu að
baki ófrægingarherferðinni. Það
kemur í ljós á næstu dögum hvaða
leiðir eru þar færar og ég mun
einskis láta ófreistað í þeim efnum,"
sagði Hrannar B. Arnarsson.
-aþ
Ingibjörg Sólrún hamingjusöm enda sigur Reykjavíkurlistans í höfn. í baksýn sést eiginmaöur hennar, Hjörleifur
Sveinbjörnsson, ásamt ö&rum syninum- nv.mwnH bnir
DV-mynd ÞÖK
Helgi Hjörvar:
Þetta eru söguleg úrslit
„Ég er fyrst og fremst stoltur.
Þetta er sigur Reykvíkinga og ekki
síst lýðræðisins yfir róginum. Þetta
eru líka söguleg úrslit því það hefur
ekki gerst áöur að vinstri meiri-
hluti haldi velli og ég er ekki í vafa
um að sigur Reykjavíkurlistans
mun hafa mikil áhrif á pólitík í
næstu framtíð," sagöi Helgi Hjörv-
ar, nýkjörinn borgarfulltrúi.
-aþ