Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 30
38
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998
’Lyfjablanda
gegn magasári
Nýleg bandarísk rannsókn
hefur leitt í ljós aö miklu betur
gengur að lækna magasár ef
sjúklingarnir fá bæði sýklalyf og
hefðbundin sýrubindandi lyf
fremur en sýrubindandi lyf ein-
göngu. Sjúklingamir þurfa held-
ur ekki nærri eins oft á fram-
haldsmeðferð að halda næsta
^árið á eftir. Þar við bætist að
svona meðferð er miklu ódýrari.
Vísindamennirnir skiptu 727
magasárssjúklingum í þrjá hópa.
Sá fyrsti fékk bæði sýklalyf og
sýrubindandi lyf. Annar hópur-
inn fékk bara sýrubindandi lyf
og sá þriðji hefðbundið maga-
sárslyf. Sjúklingarnir tóku lyfin
í 28 daga og síðan var fylgst með
þeim í eitt ár. Þeir sem voru í
fyrsta hópnum komu langbest út
og þurfti til dæmis enginn
þeirra að leggjast inn á sjúkra-
hús.
Borðið salt með
góðri samvisku
Margt bendir til að áhrif salts
á blóðþrýsting hafi verið ofmet-
in til þessa. Samkvæmt nýrri
danskri rannsókn hefur mikil
saltneysla, tíu grömm á dag,
ekki neikvæð áhrif á eðlilegan
^blóðþrýsting. Þá lagast blóð-
þrýstingurinn ekki nema lítil-
lega hjá þeim sem eru með há-
þrýsting þótt þeir dragi verulega
úr saltneyslunni.
Alkunna er að of hár blóð-
þrýstingur getur leitt til bæði
heilablóðfaUs og hjartaáfalls.
Niðurstöður rannsóknarinnar
benda þó til að minni saltneysla
geti ekki komið í veg fyrir sjúk-
dóma þessa. Það þykir samt við
hæfi að hvetja nýrnaveika og
háþrýstingsmenn til að fara
sparlega með saltið.
Rauðvínssvelgir
‘hjá rottunum
Eitt hundrað hvítar rottur hjá
frönsku rannsóknarstofnuninni
INSERM duttu í lukkupottinn
þegar þær voru valdar til að
taka þátt í rannsókn á heilsu-
samlegum áhrifum rauðvins.
Rotturnar drekka dýrindis
búrgúndvín á hverjum degi til
að kanna megi sannleiksgildi
kenningar um að vínið eyði nei-
kvæðum áhrifum fituríks matar-
æðis.
Visindamenn INSERM, undir
'forustu Denis Blaches, kanna
sérstaklega áhrif efnisins resver-
atrol sem mikið er af í vínberja-
hýði og talið er koma í veg fyrir
myndun blóðtappa. Helsta mark-
mið rannsóknarinnar er að kom-
ast að því hver sé ákjósanlegasti
skammturinn af resveratroli.
Merkileg risaeðluhauskúpa fannst á Madagaskar:
varpað liósi á tilurð
meginlandanna
Hún er í senn furðuleg, dásamleg
og ljót. Þannig lýsir líffærafræðing-
urinn Scott Sampson hauskúpu af
risaeðlu sem fannst nýlega á eyj-
unni Madagaskar. Hauskúpan er
talin geta veitt vísindamönnum
mikilsverðar upplýsingar um þróun
þessara skepna og einnig um hvern-
ig heimurinn hefur breyst síðan
þær voru uppi.
Risaeölan, sem hér um ræðir, var
kjötæta, sjö til níu metra löng og dó
fyrir 65 til 70 milljónum ára. Hún
var náfrænka hinnar ógurlegu
Tyrannosaurus rex risaeðlu og
einnig risaeðla sem lifðu í Suður-
Ameríku, að því er fram kemur í
grein í tímaritinu Science.
Hauskúpufundurinn gæti varpað
ljósi á hvernig risameginlandið,
sem gengur undir nafninu Gond-
wanaland, brotnaði í sundur svo úr
urðu Afríka, Suður-Ameríka, Suð-‘
urskautslandið, Indland og Madaga-
skar.
Sampson og starfsbræður hans
við tæknistofnunina í New York
fundu hauskúpuna og rófubein af
risaeðlunni, sem heitir Majungat-
holus atopus,
nærri Mahaj-
anga,
einni
stærstu borg Madagask-
ar.
„Hauskúpan er furðuleg, dásam-
leg og ljót,“ segir í yfirlýsingu sem
Sampson sendi frá sér af þessu til-
efni. Beinin voru hrukkótt mjög og
grófgerð og kúla fyrir ofan auga
urnar
til þess
að dýr
þetta
hafi ver-
ið fyrsta
flokks rán-
dýr.
Nánustu ætt-
ingjar risaeðlunnar
hafa fundist í fjarlægum
löndum eins og Indlandi og Argent-
ínu. Það bendir til að meginlöndin
bendir til að skepnan hafi verið
með hom eins og
nashyrningur.
Þá benda
tenn-
Áhyggjufullir foreldrar unglingsstúlkna geta andað láttar:
Stúlkur í íþróttum líklegri
til að feta beinu brautina
íþróttir reynast veita ungum stúlkum gott aðhald þegar kemur að því að streitast á móti þrýst-
ingi frá jafnöldrunum, til dæmis um aö byrja að sofa hjá.
Ekki bara heil-
brigð sál í
hraustum lík-
ama, heldur líka
dyggðum prýdd.
Þetta á að
minnsta kosti
við um unglings-
stúlkur sem
stunda íþróttir ef
marka má niður-
stöður könnunar
sem gerð var
vestur í Banda-
ríkjunum.
Já, áhyggju-
fullir foreldrar,
sem annt er um
sakleysi dætra
sinna, ættu að
hvetja þær til að
hella sér út í
íþróttir. Rann-
sóknin leiddi
nefnilega í ljós
að táningsstúlk-
ur sem stunduðu
íþróttir vora
ólíklegri til að
verða óléttar,
þær sváfu hjá
færri strákum,
slógu kynlífi frekar á frest og voru
líklegri til að nota getnaðarvarnir
þegar þær byrjuðu að sofa hjá.
Það voru samtökin Women’s
Sports Foundation sem stóðu að
rannsókninni. Skoðuð voru gögn úr
tveimur könnunum þar sem rúm-
lega ellefu þúsund nemendur úr 9.
til 12. bekk komu við sögu. 1 skýrslu
sinni mæla samtökin með því að
táningsstúlkum verði gert auðveld-
ara að stunda íþróttir.
Fimm prósent stúlknanna sem
stunduðu íþróttir og tóku þátt í
könnuninni urðu óléttar samanbor-
ið við ellefu prósent þeirra stúlkna
sem ekki tóku þátt í neinum íþrótt-
um.
„Fleiri óspjallaðar meyjar voru í
hópi íþróttakvennanna," segir í
skýrslunni um rannsóknirnar.
Fimmtíu og fjögur prósent íþrótta-
kvennanna höfðu aldrei sofíð hjá en
en aðeins 41 prósent hinna. Þá sváfu
íþróttakonurnar ekki eins oft hjá og
hinar þær sem á annað borð gerðu
það og áttu heldur ekki jafn marga
bólfélaga.
Kennarar og foreldrar hafa lengi
talið að íþróttaiðkun væri til þess
fallin aö halda unglingsstúlkum á
beinu brautinni. Enginn hafði þó
haft fyrir því að kanna sannleiks-
gildi þessa hugboðs, ekki fyrr en nú.
„Foreldrar anda rólegar af því að
dætur þeirra eru önnum kafnar og
þær eru undir eftirliti á meðan þær
stunda íþróttir. Þjálfarar segja sög-
ur af stúlkum sem öðluðust aukið
sjálfstraust fyrir tilstilli íþróttanna
og stóðust þess vegna betur þrýsting
jafnaldra sinna um að stunda kyn-
líf,“ segir i skýrslunni.
Visindamennirnir könnuðu
einnig hver áhrif íþróttaiðkun hefði
á pilta. Og þar var annað upp á ten-
ingnum. Ef eitthvað er, þá leiddu
iþróttirnar til aukins kynlífs meðal
piltanna.
„Við komust að því að íþrótta-
menn byrjuðu að stunda kynlíf fyrr
á unglingsárunum en strákar sem
ekki vora í íþróttum," segir í skýrsl-
unni þeirri.
sem nú eru aðskilin hafi verið
tengd saman um langan aldur.
„Risaeðlur lifðu á tímum þegar
öll meginlöndin voru tengd saman
svo við getum notað þær til að
kanna kenningar um hvenær meg-
inlöndin hafi skilist að,“ segir
Sampson.
Madagaskar er nú undan suð-
austurströnd Afriku en snemma á
krítartímanum, fyrir 120 milljónum
ára, voru eyjan og Indlandsskagi
tengd við Suðurskautslandið. Afr-
íka hefur þá nýlega verið skilin frá
þeim.
Visindamenn höfðu vitað að kjöt-
æturisaeðlur lifðu á Madagaskar
þar sem tennur úr þeim höfðu fund-
ist. „Meginmarkmið okkar var að
finna eiganda þessara tanna.. Við
vorum svo heppnir að detta í lukku-
pottinn. Þessi stórkostlega haus-
kúpa er meðal þeirra best varð-
veittu og heillegustu sem þekkist,“
segir Scott Sampson.
Bakteríur
komnar í
eftirlitið
með um-
hverfinu
Við gætum átt hauka í horni
þar sem bakteríurnar eru. Tíma-
ritið New Scientist sagði frá þvi á
dögunum að hægt væri að nota
bakteríur, sem lýsa þegar þær
finna mengunarefni eða jafnvel
efnavopn, til að fylgjast með um-
hverfl okkar.
Það eru visindamenn við rann-
sóknarstöð efna- og sýklavopna
breskra yfirvalda í Porton Down í
suðvesturhluta Englands sem
hafa dundað sér við að þróa þessa
snilldarhugmynd. Þeir hafa upp-
götvað aðferð til að gera bakterí-
ur þannig úr garði að þær nemi
breytingar sem verða á umhverf-
inu, þar á meðal af völdum loft-
mengunar, efnavopna á vígvellin-
um og frárennslismengunar.
Að því er segir í New Scientist
fundu vísindamennirnir prótín
við yfirborð frumuveggjar bakter-
íunnar sem er sérstaklega næmt
fyrir öllum breytingum sem
verða i umhverfinu.
„Þegar prótínið finnur breyt-
ingarnar eða skotmarkið sem því
er beint gegn gerir það virk gen
inni í frumunni," segir í tímarits-
greininni.
Með aöstoð erfðatækninnar var
síðan sérstakt ljósgen tengt við
allt þetta og því kom ljós þegar
bakteríumar fundu það sem þeim
var ætlað að finna. Sérstakir
nemar voru síðan notaðir til að
greina ljósið.
„Við teljum að þetta muni leiða
til lífnema með viðtæka notkun-
armöguleika," segir Paula Gib-
son, ein þeirra sem unnu að rann-
sókninni, í samtali við New Sci-
entist.
Vísindamennirnir hafa sótt um
einkaleyfi á aðferð sinni.