Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 Spurningin Hverjir verða íslands- meistarar í fótbolta? Björn Eggert Jónsson nemi: Ég hef bara engan áhuga á fótbolta. Jónas Jóhannesson leigubílstjóri: Ég fylgist ekki með fótbolta. Ólafur Snorrason: Keflavík. ~—W Linda Jóhannesdóttir hár- greiðslumeistari: Skagamenn. Lesendur Gangstétta- og gatnaþrif í Reykjavík Reykjavík er ekki hreinasta borg í heimi, satt er það. - En á ekki borgin að sýna gott fordæmi og hreinsa oftar og betur? Dagný skrifar: Ég rakst nýlega á ágæta blaða- grein eftir Leif Sveinsson lögfræð- ing. Hann ræðir bílastæðamál í næsta nágrenni við heimili sitt, rangan götuahalia, en síðast en ekki síst: hreinsun á rennusteinum í göt- unni hans. Hann segir að þrátt fyr- ir beiðni hans til borgarverkfræð- ings um hreinsun á götunni og rennusteinum hafi hún verið hundsuð. Leifur lýkur skrifum sínum á því að segja að gegni borgarverkfræð- ingur ekki skyldu sinni um að láta hreinsa rennusteinana muni hann gera þetta sjálfur og gera Reykjavík- urborg reikning á taxta lögmanna og draga upphæðina frá fasteigna- gjöldum sínum við heimkynni sín. Hér er komið aö mjög mikilvæg- um þætti i borgarmálum. Ekki bara í Reykjavík, heldur í öllum borgum í siðuðum löndum. Þar er mikið lagt í að halda götum, líka íbúðargötum, vel hreinum og snyrtilegum. Rusl er sjaldséð og rennusteinar eru hrein- ir og gangstéttir nánast hvítskúrað- ar. - Þetta er mjög áberandi á Norð- urlöndunum, í Þýskalandi og minni löndunum vestan við það, Hollandi, Belgíu og Lúxemborg og auðvitað næstum öllum borgum Evrópu. Hér í Reykjavík er ástandið hörmulegt. Ruslið og sóðaskapurinn á götum og gangstéttum er yfir- þyrmandi. Rennusteinar eru fullir af slýi, grasi og öðrum óþverra, t.d. umbúðum utan af matvælum og bréfarusli hvers konar. Dæmi eru um að innihald úr ruslafótum sem eru utan á ljósastaurum sé á víð og dreif eftir að ílát þessi láta undan þunganum þegar þær fyflast. Sums staðar hef ég séð íbúa vera sjálfa að sópa gangstéttir, tína upp rusl og jafhvel hreinsa rennusteina. En fljótlega sækir í sama horfið, því bæði er það, að aðvífandi rusl fýkur um og eins að íbúamir sjálfir henda frá sér pappírssnifsum og jafnvel umbúðum á götuna. - Reykjavíkur- borg er með tæki í gangi; t.d. sóparabíla, en þeir koma of sjaldan og of seint til að halda þessu í horf- inu. Fleiri bíla þyrfti svo að gagn væri að. Ég skora nú á borgarstjóra, svo og á gatnamálastjóra að taka þessi mál upp sérstaklega og gera átak i því að hreinsa götur og gangstéttir. Píp í Hagkaupi Svava skrifar: Ég fór í Hagkaup (á efri hæðinni) í Kringlunni 19. maí sl. Ég keypti ekkert og ákvað að fara í fleiri verslanir. Ég gekk í gegnum þjófa- vamarhliðið við útganginn jafnt og annar viðskiptavinur og tók eftir að hann hélt á poka. Og það skipti eng- um togum að þjófavamarkerfið fór í gang. Viðbrögð hins voru þau að ég áætlaði að gleymst hefði að taka þjófavörnina af vöru sem hann hefði keypt, enda sneri hann við. - Ég hélt því leið minni áfram. Ég fór í Kosta Boda en hafði rétt áður heyrt einhvern kalla. Ung stúlka kom á eftir mér í verslunina og bað mig um að koma með sér og ganga aftur í gegnum hlið Hagkaups. Hún bætti því við að ég gæti neitað. Ég ákvað að gera henni þetta til geðs, enda hef ég aldrei á ævinni hnuplað. En ekki var það skemmti- legt að vera fylgt eins og þjófi eftir ganginum. Ég gekk í gegnum hliðið og náttúrlega heyrðist ekkert píp. Ég var þvi frjáls ferða minna! Ég fór aftur í Kosta Boda og ráð- lagði mér elskuleg kona, sem þar vinnur, að tala við aðstoðarverslun- arstjóra Hagkaups sem ég og gerði. Hann var mjög kurteis og baðst af- sökunar, en benti jafnframt á að mikið væri um hnupl í versluninni. Ég var hálf miður mín eftir þessa reynslu og fór heim. Ég vil ítreka við fólk að vera ekki samferða öðr- um í gegnum svona þjófavarnar- hlið. Þrátt fyrir að hafa mætt kurt- eisi hjá aðstoðarverslunarstjóra Hagkaups veit ég ekki hvenær ég fer þangað aftur. Áfram Páll Óskar Aðdáandi skrifar: Ég var að enda við að lesa bréf í DV í dag (18. maí) þar sem segir m.a. að það eigi að leyfa Páli Óskari „að þroskast aðeins“ áður en hann geti farið að kynna söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir RÚV. Einnig segir bréfritari að ver- ið sé að verölauna hann fyrir að „koma okkur niður í 21. sætið og úr keppninni". - Sér fólk aldrei neitt nema svörtu hliðamar? Páfl Óskar var á svæðinu i fyrra og þekkir því aðstæður og fyrirkomulag svona keppni. Auk þess er hann mikill aö- dáandi „Eurovision". Keppnininni í ár var mjög skemmtilega og liflega lýst og vora hláturrokur og upphrópanir Palla mjög við hæfi og brutu upp þessa annars dauðu og bældu stemningu sem þarna oft ríkir. Fólk varð mun spenntara og áhugasamara en vana- 0=[1©EÍERQ[d)Æ\ þjónusta allan sólarhringinn - eða hringíð í síma r^sso 5000 rríilli kl. 14 og 16 Páll Óskar Hjálmtýsson. - Kom til dyranna eins og hann er klæddur. lega, þegar t.d. Jakob Magnússon lýsti keppninni. Hann hefur lýst keppninni og það samviskusamlega, en án nokkurs áhuga að því er virt- ist. Pafli var heldur ekkert að blaðra inn í stigagjöfina, leyfði konunni bara að tala ótruflaðri. í lokin, þeg- ar Páll lýsti yfir hrifningu sinni á tilheyrandi hátt, og með sinu lagi, að hann væri á leið í partý með sig- urvegaranum, þá kom hann bara til dyranna eins og hann er klæddur. Afar eðlilegur að vanda. Bara það sem hann var að hugsa þá stundina. - Mér fannst frábært að heyra Pál Óskar æpa „Jesús minn“ og lýsa brjóstunum og kjólunum á konun- um í þessari annars frekar dauflegu keppni. I>V Klippt úr dag- blöðunum Ó.Þ. skrifar: Ég gerði það að gamni mínu að klippa úr dagblöðum greinar sem þar birtust í tilefni síðustu for- setakosninga. Sá frambjóðandi sem á kjördegi hlaut yfirburða- kosningu var af allt of mörgum at- aður auri sem höfundum skrif- anna er lítt til sóma. Því kom mér þetta í hug að mér finnst örla á skyldleika við þessa þokkalegu iðju í skrifum vegna kosninga til borgarstjórnar í Reykjavík. Skvettumar nú koma úr sömu herbúðum og 1996 þó höfundar séu aðrir. Og nú er tekin til notk- unar nýfengin tækni til ærumeið- inga og getsaka. Ég hef þessi orð ekki fleiri en tek til við að klippa úr blöðunum og væntanlega verð- ur mér vel til fanga ef taka má mið af reynslunni frá 1996. Bílasölur um- boðanna R.L. hringdi: Ég hef verið að fara á mifli bíla- umboðanna síðustu daga til að kanna hvaða bílar byðust á góðu verði og um leið kjörum - bæði notaðir og nýir. Æði finnst mér misjöfn þjónustan. Aö öðrum ólöstuðum fannst mér þó B&L hafa einna hæfustu sölumönnun- um á að skipa, gátu t.d. svarað öll- um spurningum, skynsamlegum sem fáránlegum, þannig að manni fannst maður vera vel upplýstur. Að öðru jöfnu finnst mér svör sölumanna í þessum bransa vera orðin mun nútímalegri en ég hafði áttaö mig á. Úrelt hægri/vinstri stjórnmál Vilhjálmur Alfreðss. skrifar: í nýafstöðnum borgar- og sveit- arstjórnarkosningum komu fram nokkur sérframboð unga fólksins í landinu. Þó ekki í Reykjavík. í Reykjavík hafnaði eldra fólkið lika sérframboði, t.d. var ekkert framboð Félags eldri borgara. Ekki bauð heldur ffarn fyrirhug- aður Grafarvogslisti. Sem betrn- fer endurspeglast þessi slappleiki íbúa Reykjavíkur ekki á lands- vísu. - Hin úrelta hægri/vinstri stefna í stjórnmálum heldur því enn velli í Reykjavík eingöngu. Tengjum krón- una dollarnum Páll Ólafsson hringdi: Nú er mikið talað um að hin nýja „evra“ Evrópumyntin muni taka sæti sem önnur mikflvæg- asta myntin í alþjóðaviðskiptum. Margir sérfræðingar eru þessu ekki sammála. Það á líka við um mig. Þeir segja dollarann svo sterkan að honum skáki engin önnur mynt. Síst evran. Hvers vegna tökum við Islendingar okk- ur ekki tak og læknum flest mein efnahagskerfis okkar með því að tengja krónuna dollamum? Ráða- menn ættu að íhuga þessa aðgerð og framkvæma sem aflra fyrst. Yfirbyggð sundlaug Steinunn V. Óskarsdóttir, form. ÍTR, skrifar: Vegna bréfs Helga Sigurðsson- ar, form. Sundráðs Reykjavíkur, í DV nýlega, vil ég vekja athygli á að þegar er hafinn undirbúningur að 50 metra yfirbyggöri sundlaug í Laugardal, og hefur sundhreyf- ingin m.a. tekið þátt í undirbún- ingnum. Á næstu dögum verður auglýst samkeppni um hönnun laugarhússins, og á henni að ljúka á þessu ári. Að þessu stóðu borgaryfirvöld, sundhreyfingin, ÍBR og ÍSÍ og hafa óskað eftir því við menntamálaráðherra, að ríkið taki einnig þátt í þessari þjóðar- laug fyrir æfmgar og keppni af- reksfólks okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.