Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 Ertu búinn að skipta um loftsíu? Komdu í skoðun TOYOTA Nýbýlavegi 4-8 IIMiHHII s. 563 4400 Aukin þiónusta J Opið: Mán.-fös. 8-21 Lau. 8-19 Sun. 10-19 Húsasmiðjan Fossaleyni 2 Grafarvogi S: 586 2000 HÚSASMIDJAN Bfirúðufilmur Setjum litaða filmu í bílrúður. Sun-Gardfilma m/ábyrgð. Vönduð vinna. Ásetning með hitatækni. Öryggis (og sóiar) filma, glær, lituð eða spegill. Gerir glerið 300% sterkara. Vörn gegn innbrotum- fárviðri- jarðskjáifta. Tryggingafélögin mæla með filmunni. sólar (og öryggisfilma) á rúður húsa Stórminnkar hita, glæru og upplitun Eykur öryggi gegn innbrotum, fárviðri og eldi. GLÓI hf. sólar- og öryggisfilma. Dalbrekku 22, ^ímar 544 5770 & 544 5990 Utlönd ^ Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu ótvíræð: Irar kjósa frið - undirbúningur fyrir eigið þing á N-írlandi hafinn Sögulegt skref var tekið í átt til friðar á Norður-írlandi eftir að sam- komulag milli málsaðila sem undir- ritað var um páskana var samþykkt með yflrgnæfandi meirihluta í alls- herjaratkvæðagreiðslu á írlandi og M-írlandi þann 22. maí. Tæplega )5% íra studdu samkomulagið, og -úmlega 71% íbúa á N-írlandi voru pví samþykkir. Eftir stendur samt sem áður þau 19% sem höfnuðu friðarsamkomu- laginu á Norður-írlandi. Þeir eru ilestir úr röðum mótmælenda, og vilja halda óbreyttu sambandi við Bretland. Leiðtogi þeirra sambandssinna sem unnu gegn samkomulaginu, klerkurinn Ian Paisley, hét því að gera allt sem i hans valdi stæði til að rjúfa samstöðu mótmælenda á Norður-írlandi með því að ná sem flestum sætum í 108 manna ráði sambandssinna sem á að vinna að undirbúningi hins nýja sjálfstjóm- arþings Norður-íra. Táknræn mynd fyrir hið nýja líf sem bíður íbúa á Norður-lrlandi eftir að friðarsamkomulagið var samþykkt meö yfirgnæfandi meirihluta allra íra. Það er einnig ljóst að erfltt verð- við Sinn Fein, stjómmálaarm írska ur fyrir David Trimble, leiðtoga lýðveldishersins undir forystu sambandssinna, að hefja viðræður Gerry Adams. ~— Það var kosið víöar um helgina en á Islandi. Hér má sjá þrjár ungverskar konur í hefðbundnum klæönaði greiða atkvæði sín í þingkosningum í gær. Sósíaiistar guldu mikiö afhroö í kosningunum, og hefur stjórnarflokkurinn þegar sagt sig frá vöidum. Ótvíræöur sigurvegari kosninganna er Viktor Orban, leiðtogi ungverska hægri flokksins. Flugræningjar yfirbugaðir Fimm flugræningjar sem kröfðust þess að flugvél í innanlandsflugi í Pakistan yrði flogið til Indlands, vom yflrbugaðir í gærkvöldi eftir langt og mikið taugastríð. Yfirvöld segja að björgunar- aðgerðin hafi tekist vel, en ekki var ljóst hvort beita varð mennina ofbeldi, né hvort einhverjir af 38 farþegum hefðu orðið fyrir einhverju áfalli. Orrustuflugmenn pakistanska flughersins neyddu flugræningjana fimm sem náð höfðu farþegaþotu pakistansks flugfélags á sitt vald, til að lenda flugvélinni í bænum Hyderabad. Flugræningjamir höfðu áður krafist þess að þotunni yrði lent í Nýju-Delhi á Indlandi. Öryggisvörður við alþjóðafiugvöll- inn í Karachi stöðvar bifreið vegfar- anda í gær. Mennimir þrír náðu farþegavélinni á sitt vald eftir flugtak frá Gwadur í Pakistan. Þrjátíu og átta farþegar voru um borð i þotunni. Engar upplýsingar voru um það í gærkvöldi hvers flugræningjamir krefðust annars en að flogið yrði með þá til Indlands, né hver ástæðan væri fyrir flugráninu. Bifreiðum var lagt fyrir framan flugvélina eftir að hún lenti í Hyderabad til að koma í veg fyrir að hægt væri að taka hana á loft. Öryggissveitir pakistanska hersins umkringdu flugvélina ásamt lögreglu. Flugræningjarnir voru sagðir vopnaðir byssum þannig að öryggi farþeganna var talið í bráðri hættu. Stuttar fréttir i>v Kosningar í Hong Kong Allt bendir til þess að lýðræðissinnar hafi fengið meirihluta atkvæða í fyrstu kosningunum sem haldnar eru í Hong Kong eftir að Kínveijar tóku þar aftur við völdum í fyrrasumar. Átök í Senegal Stjómarhermenn i Senegal hafa myrt um 40 uppreisnar- hermenn í héraðinu Casamance. Kosningar vom haldnar í landinu í gær. Barist á ný í Abkhasíu Átök brustust út á ný í uppreisnarhéraðinu Abkhasíu í Gergíu nú um helgina. Óttast er að blóðug borgarastyrjöld kunni að bijótast þar út á ný. 31 ár í Jerúsalem ísraelar fögnuðu því í gær að 31 ár er síðan þeir náðu allri Jerúsalem á sitt vald. Yasser Arafat krafðist þess að Bandaríkjamenn gripu inn í friðarferlið á þessum tímamótum og blésu lífi í það á ný. Engin lausn Fjármálaráðherrar APEC-ríkja fundu engar töfralausnir á efnahagsvanda Asíuríkja á tveggja daga fundi sínum nú um helgina. Páfi hvetur til nærgætni Jóhannes Páll páfi annar hvatti vísindamenn til að sýna nær- gætni við rann- sóknir sínar á meintum lík- klæðum Krists sem varðveitt hafa verið í ítölsku borg- inni Toríno. Páfi heimsótti dómkirkjuna þar ítalir bíða í röðum ítalir flykkjast nú yfir til smáríkisins San Marino til að kaupa stinningarlyfið Viagra. Lyfið fæst ekki á Ítalíu vegna ónógra rannsókna um hvort því kunni að fylgja alvarlegar aukaverkanir. Sex menn era sagðir hafa látist í Bandaríkjunum eftir notkun Viagra. Kólerufaraldur í Rúanda Að minnsta kosti 31 hefur farist af kólera í Rúanda nýverið og er óttast að faraldur kunni að breiðast út. Akihito á heimssýningu Akihito Japanskeisari er nú í opinberri heimsókn í Evrópu ásamt konu sinni Michiko. Keisarahjónin bmgðu sér á heimssýning- una í Lissabon meðan á tveggja daga heimsókn þeirra í Portú- gal stóð nú um helgina. Áttu að sprengja fyrr Leiðtogi indverska Hindu- flokksins segir aö kjarnorku- tilraunasprenging Indverja hefði ekki verið neitt sjónarspil til að vinna fylgi, heldur nauösyn sem hefði í raun átt að reyna löngu áður. 67 farast í jarðskjálfta Að minnsta kosti 67 fórust í snörpum jarðskjálfta sem reið yfir Bólivíu um helgina. Óttast er að 40 til viðbótar séu grafnir undir rústum húsa og bygginga. Búast má því við að tala látinna eig eftir að hækka, og kunni jafhvel að ná yfir 100. Viðskiptastríð út af korni Bandarísk stjómvöld hóta því að fara út í viðeigandi aðgerðir gegn Evrópusambandinu til að mótmæla innflutningi á korni sem ESB hefur niðurgreitt. Bandarískir bændur era æva- reiðir yfir skipsfarminum sem er á leiðinni yfir hafið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.