Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 Fréttir Kosningarnar i Hafnarfirði: Sigur D-lista, tap A-lista Sjálfstæðismenn, með Magnús Gunn- arsson í broddi fylkingar, eru ótvíræðir sigurvegarar í bæjarstjórnarkosningun- um í Hafnarflrði. Flokkurinn fær nú fimm menn en hafði fjóra á siðasta kjör- tímabili. Stemningin var því góð og gleðin mikil á kosningavöku sjálfstæð- ismanna í Hafharfirði. Stemningin var hins vegar ansi lítil á kosningavöku alþýðuflokksmanna, und- ir forystu Ingvars Viktorssonar bæjar- stjóra, sem töpuðu tveimur mönnum og hafa því aðeins þrjá menn í bæjarstjóm í stað fimm manna áður. Framsóknarmenn, með Þorstein Njálsson í forystu, geta verið sáttir við sitt því þeir náðu inn einum manni en höfðu engan áður. Fjarðarlistinn, undir forystu Lúðvíks Geirssonar, fær tvo menn kjörna en H- listinn, undir forystu Ellerts Borgars Þorvaldssonar, nær ekki manni inn og heldur ekki Tónlistinn, undir forystu Kristjáns Hjálmarssonar. -glm Þaö var glatt á hjalla hjá sjálfstæöismönnum í Hafnarfiröi þegar fyrstu tölur birtust. Fólk vill breytingar „Eg ( g er bara ofsalega ánægður fyrir hönd Hafn- firðinga. Það er augljóst að þeir hafa tekið ákvörð- un um að breyta til. Ég vona einnig að við munum rísa und- Þorsteinn Njáls- ir þeim vænting- son, oddviti fram- um sem vj5 0kkur sóknarmanna í Hafnarfirði. eru bundnar.' -glm Mjög sleginn „Ég er fyrst og fremst mjög sleg- inn yfir þessum niðurstöðum. Ég átti alls ekki von á þeim. Það er hins vegar augljóst að við höfum einfald- lega ekki náð til hafnfírskra kjós- enda. Ég skýri það meðal annars með því að það hefur verið hamrað á okkur úr öllum átt- um og við mikið gagnrýndir." -glm Ingvar Viktors- son, bæjarstjóri og oddviti al- þýðuflokks- manna. Þeir Ellert Borgar Þorvaldsson, oddviti H-lista, Magnús Gunnarsson, oddviti D-lista, og Ingvar Viktorsson, bæjar- stjóri og oddviti A-lista, voru íbyggnir á svip þegar þeir biöu saman eftir fyrstu tölum í Hafnarfiröi í íþróttahúsinu viö Strandgötu. Uppskeran rýr „Auðvitað eru þessar niðurstöður viss vonbrigði. Hafnarfjarðarlist- inn var settur fram vegna óska margra aðila hér í Hafnarfirði. Hann var einnig stofnað- ur til að kanna hvort listinn gæti orðið að raunveru- legu afli hér í Hafnarfirði. Ég neita því hins vegar ekki að upp- skeran hefði mátt vera miklu betri.“ -glm Ellert Borgar Þor- valdsson, oddviti H-lista. Bjuggumst viö hreinum meirihluta „Niðurstöö- umar eru stór vonbrigði því okkur vantaði talsvert af at- kvæðum til þess að ná manni inn og við höfðum vonast eftir hreinum meiri- hluta.“ -glm Skilaboðin skýr „Við stefndum á þrjá menn og það munaði ekki miklu að við næð- um þeim. Það veld- ur auðvitað von- brigðum að að- stæður hér í Hafn- arfirði hafa verið um margt mjög sérstakar. Samein- ing A-flokkanna tókst ekki, Alþýðu- flokkurinn fór fram sér og galt af- hroð. Skilaboðin eru skýr og þörf lexía fyrir Alþýðuflokkinn og ýmsa aðra.“ -aþ/glm Sigur eftir hremmingar „Mér er efst í huga mikið þakk- læti til bæjarbúa. Við höfum á að skipa mjög sam- stilltum hópi sem hefur unnið vel í kosningabarátt- unni og það er að skila sér. Sigurinn er enn ánægjulegri ef tekið er tillit til þeirra hremminga, þ.e. klofnings og átaka, sem Sjálf- stæðisflokkurinn í Hafnarfirði hef- ur lent í á síðastliðnu kjörtímabili." -glm Magnús Gunnars- son, oddviti sjálf- stæðismanna í Hafnarfiröi. Kristján Hjálmars- son, oddviti Tón- listans f Hafnarfiröi. Einn af stærstu sigrum okkar „Niðurstööum- ar eru mjög góðar og við hljótum að þakka Garðbæing- um þann stuðning og meðbyr sem við höfum fundið að undanfórnu. Sig- urinn nú er einn af stærstu sigrum sjálfstæðismanna í Garðabæ og fyrir það erum við mjög þakklát." -glm IngimundurSigur- pálsson, bæjar- stjóri og oddviti D-lista I Garöabæ. Kosningarnar í Garðabæ: Litlar breytingar Litlar breytingar urðu í Garðabæ, einu sterkasta vígi sjálfstæðis- manna. Sjálfstæðismenn fengu fjóra menn kjöma og höfðu einnig fjóra menn á nýliðnu kjörtímabili. Stemningin var góð í herbúðum þeirra og töluðu menn þar um stór- sigur því listinn var ekki langt frá því að ná flmmta manni inn. Andrúmsloftið var dauflegra hjá framsóknarmönnum, undir forystu Einars Sveinbjarnarsonar, sem höfðu vonast til að ná tveimur mönnum inn en fengu einn mann eins og í síðustu kosningum. J-listi vinstrimanna, undir for- ystu Sigurðar Björgvinssonar, hafði vonast til að fá þrjá menn kjörna en varð að sætta sig við tvo. -glm Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garöabæ og oddviti sjálfstæöismanna þar í bæ, var aö vonum kátur meö sig- ur sjálfstæðismanna. Höldum okkar hlut „Við erum vissulega ánægð að halda okkar hlut í þeim sjálf- stæðisvindi sem blæs í bænum. Við getum verið nokk- uð sáttir miðað við það að Sjálfstæðis- flokkurinn er að bæta við sig. Það ... ,, Þ,i yðst,»sssar“" hann hefur ekki manna f Gar6a. tekið atkvæði frá bæ. okkur heldur frá J- listanum." -glm Einar Svein- Kemur dagur eft- ir þennan dag „Ég neita því ekki að við áttum von á fleiri at- kvæðmn. Við feng- um um 25% en vorum að vonast til að fá um 30%. En við höfum fjög- ur ár fram undan Siguröur Björg- til þess að kynna vinsson, oddviti okkur og koma J-lista í Garöabæ. listanum og stefnumálum hans enn betur á framfæri." -glm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.