Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 6
rTil leigu SamkomutjölcP Folleg og sterk. IRINAS NYA LIV Leikstjóri Suzanne Osten. Unga Klara. Borgarleikhúsinu su. 24. uppselt, má. 25. og þri. 26.5. kl. 20. JORDISAVALL, Montserrat Figueras og Rolf Lislevand. Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. Órfá sæti laus CHILINGIRIAN STRING QUARTET og Einar Jóhannesson. íslensku óperunni mi. 27/5 kl. 20, örfá sæti laus. NEDERLANDS DANS THEATER II og III. Borgarleikhúsinu fi. 28., örfá sæti laus, og fö. 29/5. kl. 20. VOCES THULES: Þorlákstíðir. Kristskirkju, Landakoti, su. 31/5 ki. 18 og 24. GALINA GORCHAKOVA, sópran. Háskólabíói þri. 2/6 kl. 20, uppselt. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS. Hljómsveitarstjóri Yan Pascal Tortelier. Fiðluleikari Viviane Hagner. Háskólabíói fö. 5/6 kl. 20 SEIÐUR INDLANDS. Indverskir dans- og tónlistarmenn. Iðnó lau. 6. og su. 7/6 kl. 20. Örfá sæti laus KLÚBBUR LISTAHÁTÍÐAR í IÐNÓ f kvöld kl. 21.00-22.30: Kór Slöggviliðs Reykjavíkur syngur. Ósk Óskarsdóttir ílytur nokkur lög. POPP í REYKJAVÍK í og við Loftkastalann 4.-6. júní. Miðasala í Loftkastalanum, s. 552 3000. CARMEN NEGRA og ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN (sjá sérauglýsingar). MIDASALA í Upply.singainiðsliiií li'i ilainála íRcykjavík, Bankastræti 2. Sínii 552 <>-><!<>. Opiií alla daga li á kl. 8.3(1—19.0(1 ng á sýningarslail klukkiilínia ly rir syningu. (ir(‘i(lsliik(irla|)j(imista. Ilrildanlagskrá liggnr traninii í niidasiilii. Fréttir MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 DV Stórsigur sjálfstæöismanna á Seltjarnarnesi: Ekki verk eins manns - segir Sigurgeir Sigurðsson, efsti maður D-lista Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjam- arnesi heldur meirihluta sínum. Reyndar gerir hann betur og bætir við sig manni. Sigurgeir Sigurðsson hefur verið sveitarstjóri og bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi allt frá árinu 1965. „Ég vil þakka íbúum Seltjamar- ness fyrir endurnýjað traust. Við buðum fram mjög sterkan og góðan lista og þetta er verk okkar alira. Þetta er ekki verk eins manns,“ sagði Sigurgeir þegar úrslit vora ljós. „Við höfum verið með stjórn hér í 36 ár og ætlum okkur að gera það áfram. Við ætlum að þjóna Seltim- ingum hér eftir sem hingað til, seg- Sigurgeir Sigurðsson fagnar með sínu fólki eftir að úrslit sýndu stórsigur D- ir Sigurgeir. -rt/S |istans. DV-mynd S Sigurður Geirdal og aðrir framsóknarmenn í Kópavogi höfðu sannarlega ástæðu til að fagna á laugardagskvöld. Framsóknarmenn bættu við einum manni og voru nánast búnir að ná tveimur. DV-mynd Teitur Framsóknarmenn í Kópavogi unnu mann: Mjög hamingjusamur - segir Sigurður Geirdal bæjarstjóri „Við náðum manni inn og vorum nánast búnir að ná inn þeim þriðja. Ég er mjög hamingjusamur með þessi úrslit. Þetta er mikill sigur fyrir framsóknarmenn í Kópavogi. Það er ekkert farið að ræða meiri- hlutasamstarfið en það er ljóst að samstarfið síðastliðin 8 ár hefur gengið mjög vel. Ég get ekki séð annað en bæjarbúar séu ánægðir með meirihlutann. Ég er mjög bjart- sýnn á komandi kjörtímabil," segir Sigurður Geirdal, hæjarstjóri í Kópavogi og oddviti framsóknar- manna, sem bættu við manni í Kópavogi og hafa nú tvo í stað eins áður. Flokkurinn hefur verið í meirihlutasamstarfi við sjálfstæðis- menn og samkvæmt þessu er líklegt að svo verði áfram. -RR ísafjörður: Sátt við okkar - segir oddviti D-lista „Við erum í heildina sátt við okkar hlut í þessum kosning- um. Við ætluðum okkur fimm menn en vissum að það var á brattann að sækja. Við fógnum því að við eram að auka við okkur fylgi. Ég held að það sé ljóst að þessi framboðslisti okk- ar höfðar til breiðari hóps en oft áður,“ segir Bima Lárus- dóttir, oddviti sjálfstæðis- manna á ísaflrði. Þorsteinn Jóhannesson, odd- viti sjálfstæðismanna í síðustu kosningum, var nú í baráttu- sætinu, fimmta sæti, en komst ekki inn. -RR ísafjörður: Viðræður um meiri- . j hlutasam- starf „Við erum ánægð. Það hefði auðvitað verið frábært að fá hreinan meirihluta en það tókst þó ekki. Það vom óskap- lega mörhg auð atkvæöi þannig að ljóst er að óánægðir sjálstæðismenn hafa frekar skilað auðu heldur en að kjósa annað. Við ætlum að vinna vel að málum. Það ríður á fyrir okkur Vestifirðinga. 1 sam- bandi við meirihlutasamstarf þá emm við þegar í viðræðum við Framsókn en þaö er ekkert orðið ljóst á þessari stundu. Við ætlum að taka okkur tíma og huga vel að þessum málum. Við ætlum að auglýsa eftir bæj- arstjóra eins og við lofuðum," segir Bryndís Friðgeirsdóttir, oddviti K- lista á ísafirði, sem fékk fjóra menn kjöma. -RR Gunnar Birgisson, D-lista: Fram- sóknah menn sigur- vegarar „Ég er mjö^mægður og þetta eru virkilega góð úrslit fyrir sjálfstæðis- menn í Kópavogi. Við höfum bætt við okkur fylgi hér í bænum og það er mjög sterkt. Sigurvegarar kosn- inganna eru þó framsóknarmenn og ég óska þeim til hamingju með það. Meirihlutinn í bænum fékk 62 pró- sent atkvæða hjá kjósendum. Það hlýtur að segja manni ýmislegt," segir Gunnar Birgisson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi. -RR Gunnar Birgisson og aðrir sjálfstæðismenn í Kópavogi voru ánægðir með úrslit kosninganna þar. DV-mynd Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.