Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 Fréttir Sighvatur Björgvinsson segist vera með skýr skilaboð frá sinu fólki: Erum að búa til jafnoka Sjálfstæðisflokks „Ef við metum þetta þannig á landsvísu að Framsóknarflokkur- inn sé með rétt rúmlega 20 prósent, Sjálfstæðisflokkurinn með 42 pró- • Aðeins 15 sekúndur að tjalda • Mest seldi tjaldvagninn í áratugi • Farangursgrind • Yfirbreiðsla • Teppi á gólfi • Varadekk • Nefhjól • og margt fleira aðeins__________________ kr. 357.200 staðgreitt ~~ Hafðu samband - ýmsir lánamöguleikar Gormar í flestar gerðir bíla. mm w Sportbuð - Títan • Seliavegi 2 SÍMl 551 6080 • Fax 562 6488 sent, þá eru þessi sameiginlegu framboð A-flokkanna og Kvennalistans með 36-38 pró- senta fylgi. Við getum ekki ver- iö annað en mjög ánægð með það. Hins vegar kemur þetta misjafnlega niður eftir sveitar- félögum. Við erum með fylgi frá rúmum 20 prósentum upp í rúm 50 prósent," sagði Sighvat- ur Björgvinsson, formaður AI- þýðuflokksins. Frá um 20 upp í rúm 50 prósent Sighvatur segir að Reykja- vik hafl komið mjög vel út úr kosningunum. Fylgið hefði hins vegar mátt vera meira í „stóru bæjunum" á Reykja- nesi. „í Reykjanesbæ fengum við á hinn bóginn meira fylgi en skoðanakannanir höfðu sýnt, í minni sveitarfélögunum á Reykjanesi' kom þetta mjög vel út, hreinn meirihluti í Sand- gerði og i Vogum, í Grindavík var líka ágæt kosning. Á Vesturlandi komu Akra- nes og Borgarbyggð mjög vel út, Stykkishólmur kom líka vel út. í Vesturbyggð er nýr sam- eiginlegur listi stærsta aflið. Á ísafirði fengum við 40 prósent sem er mjög gott og litlu mun- aöi (49 prósent) að við fefldum meirihluta sjálfstæðismanna. Það vantaði ekki nema rúm 20 atkvæöi. Ég hefði viljað sjá betri ár- angur í Húnaþingi og á Akur- eyri en það var stórgóöur ár- angur á Húsavík. Mjög góöur árangur á öllum Austflörðum, sérstaklega í nýja stóra sveit- arfélaginu. Einnig var gott „Viö erum aö búa til vettvang fyrir félagshyggjuflokk í landinu sem aldrei hefur veriö til. Hann getur veriö jafnstór og Sjálfstæöisflokkurinn," segir Sighvatur Björgvinsson, formaö- ur Alþýöuf iokksins. Meö honum eru Margrét Frimannsdóttir, formaöur Alþýöubandalagsins, og Guöný Guöbjörnsdóttir, þingflokksformaöur Kvennalista. DV-mynd Pjetur gengi á Höfn og í Árborg og viðunandi í Vestmannaeyj- um.“ Ég fékk skýr skilaboð „Það var nú ekki mikill tími sem við fengum frá þing- störfunum til að taka þátt í kosningabaráttunni. Ég náði að fara um Reykjanes, Reykjavík, Vesturland og Vestfirði. Það voru bara ein skilaboð sem ég fékk frá öll- um - „viö fórum ekki í skot- grafirnar hvert gegn öðru eft- ir hálft ár“. Ég tel að þessar kosningar hafi verið áfangi á leiöinni til sameiginlegs framboðs eftir eitt ár. Það er klárt að menn styrkjast í þeirri stöðu.“ - Munu vinstri flokkar mynda meirihlutastjórn með Framsóknarflokki eftir al- þingiskosningarnar á næsta ári? „Ég vil ekki dæma um það. En mér sýnist að eins og ástandið er á stjórnarheimil- inu þá sé draumur Hannesar Hólmsteins um sameiningu Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks kominn í fram- kvæmd. Þetta er eins og fóst- bræðralag. Formenn flokk- anna eru meira að segja farn- ir að gegna hvor fyrir annan. Hins vegar munum við heyja okkar kosningabaráttu á okkar forsendum. Við erum að búa til vettvang fyrir fé- lagshyggjuflokk í landinu sem aldrei hefur verið til. Hann getur verið jafnstór og Sjálfstæðisflokkurinn.“ -Ótt Guöný Guðbjörnsdóttir telur kosningarnar gefa fyrirheit um alþingiskosningarnar: Meirihluti framsóknar og félagshyggjuflokka Mér finnst að með sigri R-listans og Ingibjargar Sólrúnar sé að mynd- ast nýtt landslag í íslenskri pólitik. Þá á ég einnig við hin sameiginlegu framboö úti á landi. Ingibjörg Sól- rún vann persónulegan sigur en um leiö var þetta sigur Kvennalistans og kvenna almennt. Ég bendi á að meirihluti stuðningsmanna R-list- ans eru konur. Þetta er mjög svipað og með Clinton í Bandaríkjunum eða félagshyggjuöfl almennt - konur vilja slíkar stjómir," sagði Guðný Guðbjörnsdóttir, formaður þing- flokks Kvennalistans, um úrslit sveitarstjómarkosninganna. „Þetta sýnir hvers fólk er megn- ugt ef það stendur saman,“ sagði Guðný. Úrslitin voru líka sigur heiðarlegrar kosningabaráttu og ósigur hinna sem vilja persónuníð. Ég er sannfærð um að þetta kom í bakið á sjálfstæðismönnum sjálf- um.“ „Það er tcdað um að kosningamar hafi verið sigur Sjálfstæðisflokksins fyrir utan Reykjavik," segir Guðný. „Vissulega fær hann meirihluta í nokkmm sveitarfélögum. En í heild- ina voru þetta 42 prósent og Fram- sóknarflokkurinn fékk 20 prósent. Þetta sýnir mér að á landsvísu er því hægt að mynda meirihluta Framsóknarflokks og félagshyggju- flokkanna. Hlutfollin eru um 40,20 og 40 prósent. Mér finnst skilaboðin vera mjög skýr fyrir næstu alþingiskosningar - það er hægt að breyta hér valdapólitíkinni gegn hagsmunum séreigna eins og Sjálfstæðisflokkur- inn stendur fyrir. Mér finnst líka mjög líklegt að ef aftur verður farið í svona samvinnu að ári þá muni þau framboð gera sig enn betur en nú,“ sagði Guðný Guðbjömsdóttir. -Ótt Margrét Frímannsdóttir „ofsalega ánægð“ með útkomu kosninganna: Sterkt mótvægi er aö myndast „Mér fmnst ég í fyrsta skipti frá því að ég fór að hafa afskipti af póli- tik vera að upplifa þá tilfmningu mjög sterkt að vinstrimenn vilji af einhug starfa saman og mynda sterkt mótvægi við Sjálfstæðisflokk- inn,“ sagði Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, að- spurð um það hvemig hún metur úrslit sveitarstjórnarkosninganna í heild á landinu. „Ég hef verið að tala við mitt fólk alls staðar á landinu,“ sagði Mar- grét. „Það er ýmist að fara í meiri- hlutamyndun, er í meirihluta eða minnihluta. Þetta fólk er að vinna saman í staö þess að Alþýðubanda- lag og Alþýðuflokkur hafa á kosn- inganóttina verið víða í kapphlaupi um meirihlutamyndun. Jafnvel ver- ið að naga skóinn hvað af öðru. í dag taka menn niðurstöðunum saman og vinna úr þeim. Þaö er stór breyting. Þar sem Alþýðubandalag- ið er sér með lista, þar era ekki aðr- ir vinstri listar. Mér finnst þetta vísir að því sem koma skal. Það er mikil pólitísk gerjun í gangi. Breyt- inga er kraflst." Ég er stolt „Ég er ofsalega ánægð með útkom- una í Reykjavík og á fleiri stöðum. Ég er óskaplega stolt af „Austurríki" og þeirri traustsyfirlýsingu sem það fólk sem ég þekki vel til hefur fengið. Hvað það hefur unnið vel á undan- fórnum árum og áratugum. Það hlýtur að hafa verið stór nótt fyrir Smára Geirsson og Guðmund Bjarnason ekki síður en fyrir Ingi- björgu Sólrúnu og alla þá sem skipa hennar lista. Það er frábær árangur á fleiri stöðum, á Húsavík og á Akra- nesi. Ég er líka mjög stolt af þeim þremur stöðum sem buðu fram G- lista Alþýðubandalagsins. Útkoma þeirra er mjög góð. Ég fagna líka minu nýja sveitarfé- lagi, Árborg, þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur verið mjög sterkur, en Árborgarlistinn vinstra félags- hyggjufólks er orðinn mjög stór,“ sagði Margrét. „Þetta voru öðravísi kosningar en ég hef áður lifað. Það er nýtt lands- lag. Það er að verða til pólitískt afl í sveitarstjórnum sem mótvægi við sterka stöðu Sjálfstæðisflokksins, sem að vísu styrkti stöðu sína vítt og breitt um landið. En við erum engu að síður að koma sterk inn með sam- eiginlega lista. Við getum verið mjög stolt með fylgi 30, yfir 40 prósent og ofar á sumum stöðum. Hér er að koma fram sterkt afl,“ sagði Margrét Frímannsdóttir. -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.