Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Side 7
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 7 sandkorn Grjótharður „Mái" Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja á Akur- eyri, er yfirleitt ekki að skafa neitt utan af hlutunum, fmnist honum eitthvað vera örðuvísi en hann vill hafa það. Þannig var það nú í vikunni þeg- ar Útgerðarfélag Akureyringa seldi hollensku fyrirtæki hlut sinn i þýska út- gerðarfyrirtækinu Mecklenburger Hochseeflscherei en Samherji vildi eignast þann hlut. Ekki var inn- legg Þorsteins Más neitt skemmtilegt innlegg I kosningabaráttu Jakobs Björnssonar bæjarstjóra því Þor- steinn Már fullyrti fullum hálsi að fulltrúar Akureyrarbæjar hefðu unn- ið gegn Samherja í þessu máli og gaf í skyn að það heíði verið með vitund og vilja bæjaryfirvalda... Titringur Innan Framsóknar eru menn ekki glaðir yfir því hvernig farið er með góða flokksmenn í háum stöðum. Halldór Guðbjarnason þurfti að taka pokann sinn úr Landsbankanum og að ósekju að því er margir flokksmenn telja. Sigurður Gizurarson, sýslu- maður á Akranesi, var fluttur nauðung- arflutningi til Hólmavíkur með háværum mótmæl- um. Og nú stefnir allt í að enn einn gamall flokksmaður Framsóknar sé að hljóta svipuð örlög. En það er Böðvar Bragason, lög- reglustjóri í Reykjavík. Félagar hans telja enga tilviljun að áður en fræg skýrsla um meðferð Böðvars á um- ferðalagabrotum í höfuðborginni var birt var daglegur leki til fjölmiðla úr dómsmálaráðuneytinu... Sigurð á Patró Mikil og frjó pólítísk umræða var á Patreksfirði fyrir kosningarnar. Reglulega voru haldnir eins konar framboðsfundir í Essóskála staðarins og var oftar en ekki fullt út úr dyrum. Fundirnir voru haldn- ir undir samheitinu „á beininu" og þar gafst almenningi kostur á að spyrja framjóð- endur harkalegra spurninga. Sýslu- maður Patreksfirð- inga, Þórólfur Halldórsson, er sagður hafa gengið óvenjuhart fram í spurningum til andstæðinga sjálfstæðismanna. Spumingum sýslu- manns var jafnað við fallbyssuskot- hríð og hann dró ýmislegt fram úr pólitískri fortíð manna og krafðist svara. Sumir voru því nokkuð beygð- ir undir þessu og haft er eftir einum hinna „lúbörðu“ að hann hyggist hafa samband við Þorstein Pálsson dóms- málaráðherra og óska eftir þvi að Þórólfur verði fluttur til Hólmavíkur og Patreksfirðingar fái hinn útskúf- aða sýslumann, Sigurð Gizurarson... Áteppið Svo sem sandkom greindu frá fyr- ir kosningar dreifði efsti maður D- listans í Vesturbyggð stefnuskrá framboðs síns um áhrifasvæöið. Þetta hefði ekki verið í frásögur fær- andi ef dreifingin hefði ekki verið með þeim nýstárlega hætti að yfirlæknir- inn og frambjóðand- inn, Jón B.G. Jónsson, notaði sjúkrabilinn til að bera stefhu sina í kjósendur. Ráðuneyti heilbrigðismála tók nokkurn kipp vegna málsins og hafði samband við sjúkrahússtjórnina. í framhaldinu var yfirlæknirinn kall- aður á teppið og honum gert ljóst hvert hlutverk sjúkrabíla er og hann beðinn að finna nýjar aðferðir til að dreifa pósti sínum... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is Fréttir Felgulykill afhentur í síðustu viku af- hentu bæjaryfirvöld í Vesturbyggð nýjum rekstraraðilum lyklavöld að Félags- heimilinu Felgunni á Patreksfirði. Það vom eigendur Mat- borgar sem hlutu hnossið. Landsfrægt deilumál stóð um Felguna þegar síðasti leigutaki gerðist hús- tökumaður vegna deilna við bæjaryfir- völd um leigusamn- inginn. Nú er bara að bíða og sjá stíga dans við leigusalann og halda hvernig nýjum leigjendum tekst að friðinn. -rt <8ull Gftöltin FðllSð Oiöf í ðööu uril Laugavegi 49 símar 551 7742 og 561 7740 Myndin er frá afhendingu lykla aö Felgunni til nýrra leigutaka. I hverjum Delser pakka eru 8 minni pakkar í loftþéttum umbúðum. Þannig færðu alltaf ferskt, stökkt og brakandi kex þegar þig langar í gott saltkex. ítalir koma til móts við þá sem kjósa saltlaust kex en vilja hafa það stökkt og bragðgott. m Kryddaða kexið frá Delser er alveg sérlega ítalskt. Ólívu- og rósmarín kryddið gefur kexinu og uppáhaldsálegginu þínu alveg einstakt bragð. ítalska bragðið nýtur sín einnig eitt og sér í stökku kexinu. Framleitt á Ítalíu. Dreifing Kexverksmiöjan %trötK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.